Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 5

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 5
í-iÉH*. STÚDENTAPÓLITÍK rlwlw Undir regnhlíf félagshyggjunnar. Það ríkir bjartsýni og gleði í hópi þeirra sem standa að nýja félaginu. Þórunn Svein- bjarnardóttir, for- maður félagsins, er í miðjunni. Til vinstri er Margrét Einarsdóttir, for- maður Féiags vinstri manna, til hægri Ágúst Ómar Ágústsson, for- maður Félags umbótasinna. Mynd: Kópía. 011 hagsmimabarátta erpólitík — segir formaður félagsins, Þórunn Sveinbjarnardóttir Er það talandi tákn þess sem er að gerast að þú sem ert úr forystuliði Félags vinstri manna tekur við for- mennsku í nýja félaginu? - Pað fer ekki á milli mála hvort félagið hefur verið stærra í vetur. Það er því ekkert skrítið þótt meira beri á fólki þaðan fyrst í stað. Þaðan koma fleiri til starfa. En ég vil undir- strika að umbótasinnar eru mjög sterkir innan nýja félagsins, bæði að mannvali og málefnum. Hvaða gagn verður að nýja félag- inu þegar til lengri tíma er litið? - Ég vona að félagið geti nú og í framtíðinni verið skýr og ótvíræður valkostur fyrir allt félagshyggjufólk, þannig að menn geti kosið á milli hægri stefnu Vöku og okkar. Við viljum gjarnan forða stúdentapó- litíkinni undan þeim stimpli að hún sé, eigi að vera eða geti verið „ópóli- tísk“. Öll hagsmunabarátta er póli- tísk í eðli sínu, burtséð frá daglegu þrasi. Ég vona svo sannarlega að félagið lifi sem lengst til að sinna þessum verkefnum. Þetta er ekki ífyrsta sinn sem reynt er að sameina alls konar vinstri menn í einum og sömu regnhlífarsam- tökunum. Hingað til hefur þetta all- taf mistekist. Er ekki eins líklegt að stúdentar tvístrist aftur, t.d. eftir flokkslínum? - Það held ég ekki. Ég er viss um að fólk hefur þroska til að haida skoðunum sínum á flokkapólitík- inni utan hagsmunabaráttu stúd- enta. Ég lít í rauninni svo á að þetta félag byggi á samstöðu félagshyggju- fólks gegn íhaldinu, í þessu tilfelli Vöku og þeirri stefnu sem hún boðar. Röskva — samtök félagshyggjufólks í Háskóla íslands hefur kosið sér formann. Hún heitir Þórunn Sveinbjarnardóttir, nemi á 3. ári í stjórnmála- og fjölmiðlafræði. Þórunn hefur komið nálægt félgas- störfum áður. Árin 1985-86 og 1986-87 sat hún í stjórn Samfélagsins, síðara árið sem formaður. Vorið 1987 tók hún sæti á lista Félags vinstri manna til Háskólaráðs og er nú varamaður á þeim bæ. Við fengum Þórunni í snöggsoðið viðtal rétt áður en blaðið fór í prentun. Við lögðum fyrir hana þrjár erfiðar spurningar. STÚDEMTABLAÐIÐ 5

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.