Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 27

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Blaðsíða 27
STÚDENTAR TEKNIR TALI §1»URM1VGAR: 1. Tekur þú námslán? 2. Hvernig gengur þér að lifa á námslánunum? 3. Hefur matarskatturinn komið við þig? 4. Hefur þú hlustað á útvarp Rót? 5. Heldur þú að stúdentar geti nýtt sér „Rótina“ í hagsmunabaráttu? Hermann Björnsson, laganemi: 1. Já 2. Lánin eru náttúrulega allt of lág, það gengur mjög illa að ná endum saman. 3. Já, áþreifanlega. 4. Já. 5. Já, náttúrulega getur hún gert það sem okkar málsvari, eins og aðrir fjölmiðlar. Pað er nauð- synlegt að nota fjölmiðl- ana á réttan hátt. Björk Thorarensen, laga- nemi: 1. Já 2. Það gengur mjög vel. Ég bý í foreldrahúsum, því eru námslánin ágætis vasapeningar eða um 18.000 kr. á mánuði. 3. Nei, ekki persónulega, þar sem ég geri ekki mat- arinnkaup sjálf. En ég hef tekið eftir að rúnnstykkin hafa hækkað mikið úti í bakaríi. 4. Já, og mér líst ágætlega á það sem ég hef heyrt. 5. Mér finnst að við ættum að setja á laggirnar nefnd eða einhvern samstarfs- hóp sem tekur að sér að semja þætti og sjá um útsendingar. Ég hef heyrt að það sé óeining um Rót- ina í Stúdentaráði. Það verður að sjá til þess að ekki aðeins sjónarmið helmings Stúdentaráðs komi fram. Ég hef trú á því að við getum notað útvarpið til að koma okkar málum á framfæri og get- um notað það í hagsmuna- baráttunni. Aðalheiður Eiríksdóttir, félagsfræði: 1. Já 2. Illa. 3. Já, heldur betur, ég hef lést frekar en hitt. 4. Nei, ég ætla að hlusta ef ég finn hana á tækinu mínu. Grétar Erlingsson, sagn- fræði: 1. Nei, éghefhaftsvogóð- ar tekjur að ég reyni að komast hjá því að taka þau, þetta eru jú lán. 3. Nei, ég hef ekki kynnst því enn, en hann mun örugglega koma við mig. Annars ætla ég að kaupa mér sjónvarp, það bætir matarskattinn kannski upp, þau nefnilega lækk- uðu. En ef þau hefðu ekki lækkað, hefði ég náttúr- lega sparað mest. 4. Já, ég setti það á; þá var einhver saga, síðan var Sinfoníuhljómsveit Sovét- ríkjanna leikin og þá slökkti ég, þótt ég sé í sjálfu sér ekki á móti þeirri „grúppu“. Þetta er svo ruglað útvarp, 100 mis- munandi aðilar sem standa að þessu, það þarf að skoða þetta allt saman fyrst. 5. Þetta útvarp er glatað frá upphafi til enda, enda ekki hrifinn af þátttöku SHÍ í útvarpi Rót. Mér fannst þetta meiriháttar „stupid“, sko. Útvarpið var dauðadæmt frá upp- hafi. Maður getur lent á einhverri „heavy“ um- ræðu um Tostoj. Mað- ur hefur þetta útvarp ekki glamrandi allan liðlangan daginn eins og Bylgjuna, þar sem þú veist hvað þú færð. Meiri háttar glatað!! sko. Steinunn Stefánsdóttir, almenn málvísindi: 1. Já 2. Það gengur ekki. Þessu er mætt með aukavinnu. Ég er með heila fjöl- skyldu, maðurinn minn er á skertum námslánum, við eigum 2 börn. Það gengur mjög illa að ná endum saman. 3. Auðvitað kemur matar- skatturinn mjög illa við mig eins og allt annað námsfólk, þetta eru miklar hækkanir. 4. Já. 5. Ég hef ekki nógu mót- aða skoðun, ég var á móti þátttöku SHÍ í upphafi. Mér fannst það ekki verj- andi. Ég hefði t.d. ekki verið hrifin af því að taka þátt í einhverju Vöku- útvarpi, eins og t.d. útvarpi „Frelsi“... En núna veit ég ekki, eftir að ég fór að hlusta aðeins á stöðina og heyri að hún er ekki að hengja sig í ákveðna pólitík. El' hlust- unin verður einhver á þessa stöð þá held ég að hún geti nýst okkur í hagsmunabaráttunni. Viðlöl: Sigrídur I'álína Arnardóttir Skúli Ilaukur Skúlason Agúst Ómur Agústsson (inyndir) STÚDEMTAöLAÐIÐ 27

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.