Fálkinn


Fálkinn - 10.09.1938, Blaðsíða 10

Fálkinn - 10.09.1938, Blaðsíða 10
10 F Á L K I N N Kjoll á 6—8 ára telpu. Efni: 250—300 gr. „bouclégarn.“ 2 prjón- ar, sem samsvara garninu. Mál: Lítið á sniðin og athugið hvort málið passar. ur. Fellið fyrst af 4 1., svo 3 og loks 2 í hvorri hlið. Prjónið svo áfram þangað til blúsan er orðin 10 cm. þá kemur hálsmálið. Fellið af 12 miðlykkjurnar og síðan 1 1. annan hvorn prjón livoru megin þangað til hvor öxl hefir 24 1. og er þá felt af í þrennu lagi. Prjónið: Sljett prjón: Rjett áfram og snúin til baka og á það sem venjulega er kölluð ranga að snúa út. Brugðið prjón: 2 1. r. og 3 1. sn.. Vöfflusaum- ur: Þegar lokið er við brugðna prjón- ið, eru rjettu rákirnar saumaðar saman með 6 prjóna millibili. Sjáið mynd IV. PRJÓNAAÐFERÐ. Bakið: (Mynd I og II), er prjónað eins og framstykkið, þó er nauðsynlegt þegar búið er að prjóna handveginn, að skifta þessu niður á 2 prjóna svo að klauf myndist niður úr hálsmálinu að aftan. Prjónið svo áfram en fellið af 6 1. á hvoru stykki fyrir hálsmálinu og takið úr þangað til 24 1. cru eftir á livorri öxl og eru þær feldar af í þrennu lagi. Framstykki: (Mynd I. og II.). Fitjið upp 13(3 1. Athugið hjer og framvegis hvort Jykkjufjöldinn passar við málið, sem gefið er upp. Prjónið 40 cm. með sljettu prjóni; á seinasta rjetta prjón- inum er prjónað til skiftis 1 1. r. og 2 1. saman, svo að 90 1. eru þá á prjónunum. Blúsan er prjónuð i beinu áframhaldi af pilsinu og er hún prjónuð með brugðnu prjóni. Þegar búið er að prjóna 4 cm. af blúsunni er handvegurinn myndað- Ermarnar: (Mynd III.) Fitjið upp 60 1. og prjónið 10 cm. brugðinn kant. Prjón- ið svo 20 cm. með sljettu prjóni, en aukið jafnóðum út um 1 1. í hvorri hlið C. hv. prjón, þangað til lykkj- urnar eru orðnar 72. Þcgar ermin er orðin 30 cm. eru feldar af 3 1. í byrjun hvers prjóns næstu 6 prjóna, þá eru feldar af 2 I. í byrjun hvers prjóns, þangað til 12 1. eru eftir, sem eru feldar af í einu lagi. Samsetning: Saumið fyrst vöfflusauminn á biúsuna og ermarnar. Strjúkið sljetta prjónið ljett undir deigum klút. — Saumið kjólinn saman þegar hann er orðinn alveg þur. ASferð til að búa til snúrurnar. í hálsmálið eru látnar 2 snúrur af garninu; það á að vera 1 cm. á milli snúranna og eru þær búnar þannig til: Þræðirnir eiga að vera ca. IY2 sinni lengri en fullgerða snúran. Takið t. d. 8 þræði; haldið með hægri hendi um annan endann og með þeirri vinstri úm hinn. Sjáið mynd C. Með hægri hendi er þráð- unum snúið lil hægri og með vinstri hendi til vinstri. Þegar búið er að snúa þetta fast, tekur maður báða endana með hægri hendi og með vinstri lagfærir maður þann snúð, sem kemur af sjálfu sjer við það að snúran er lögð saman. Svo er saum- að fyrir báða enda á snúrunni og hún sauniuð á kjólinn með löngum sporum. Neðan á kjólinn og á ermarnar eru lieklaðar 2 raðir af fastalykkjum. Klaúfinni aftan á hálsmálinu er lok- að með rennilás eða linöppum. SUMARPRJÓN. Nettar sumarpeysur úr bómullar- garni eru bæði fallegar og fara vel við tvisltauspilsið. Hjer er eitt sýnis- horn. Það hefir löngum verið viðfangs- efni margra að finna ráð til þess að fyrirbyggja sjóveiki. Til þess hafa m. a. verið gerð rör eftir skipunum endilöngum, sem sjór hefir runnið i gegnum. Nú hefir verkfræðingurinn Keler í Jierlín komið fram ineð nýja tillögu, sem vekur athygli. Hann hefir gert skipslíkan með lóðrjetlum rör- um, sem eru lokuð að ofan en opin að neðan. Þegar skipið legst á aðra hliðina þrýstist vatnssúlan þeim meg- in saman, eða loftið sem er í henni ofanverðri, og spyrnir á nióti því að skipið liallist meira, en í súlunni hinumegin þynnist loftið og því tog- ar súlán í skipið og leitast við að halda því niðri. Við tilraunir sem gerðar liafa verið á venjulegu skips- líkani og jiessu kom það á daginn að hið fyrnefnda tók tuttugu veltur fyr- ir sömu ókyrðina, sem aðeins gat fengið nýja skipslikanið lil að velta þrisvar sinnum. Við Batticaola á Ceylon er tjörn með syngjandi fiskum. Þegar húmar að koma fiskarnir upp á yfirborðið og fara að syngja og er kliðurinn ekki ósvipaður og lijá hljómsveit, sem er að stilla liljóðfæri sín.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.