Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1975, Blaðsíða 29

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1975, Blaðsíða 29
Ávíð oií dreif ENDURSKOÐUN HINNA NORRÆNU KAUPALAGA OG SAMNINGALÁGA Norðmenn, Svíar, Danir og Finnar hafa nú um 13 ára skeið haft með sér samstarf um endurskoðun laga um lausafjárkaup og a. m. k. meðal Dana og Svía eru einnig uppi ráðagerðir um breytingar á samningalögum. Endurskoðun hinna íslensku kaupalaga og samningalaga hefur ekki verið til umræðu enn sem komið er, en fróðlegt ætti að vera fyrir íslenska lögfræðinga að fá fregnir af norrænum hugmyndum og nýmælum á þessu sviði. Við endurskoðun kaupalaganna telja hinar norrænu kaupalaganefndir, að rétt sé að byggja í megindráttum á efni og efnisskipan núgildandi kaupalaga, en hins vegar hafa þær leitast við að samræma ákvæði laganna ýmsum þátt- um í viðskiptalífi nútímans, sem höfundar hinna norrænu kaupalaga gátu eigi haft mið af við samningu laganna á sínum tíma. Einnig hefur verið höfð nokkur hliðsjón af nýlegri kaupalöggjöf meðal ýmissa þjóða og einnig af ýmsum ákvæðum í Haagsáttmálum frá 1964 um kaupsamninga í milliríkja- viðskiptum og um alþjóðleg kaupalög. Árið 1973 lagði finnska kaupalaga- nefndin fram drög að frumvarpi að endurskoðuðum kaupalögum ásamt ítar- legri greinargerð. Frumvarp þetta hefur þó enn eigi orðið að lögum og ekki er heldur alger samstaða meðal hinna dönsku, norsku og sænsku kaupalaga- nefnda um efni þess, en álitsgerða og frumvarpsdraga frá nefndum þessum mun nú að vænta áður en langt um líður. Upphaflega var ekki ráð fyrir því gert, að við endurskoðun hinna norrænu kaupalaga yrði lögð sérstök áhersla á sjónarmið um neytendavernd, en fyrir fáum árum ákváðu sænsk og norsk yfirvöld, að sjónarmið varðandi „neyt- endakaup", svokölluð, skyldu ganga fyrir varðandi endurskoðunina. Gáfu síðan sænsku og norsku kaupalaganefndirnar út álitsgerðir, þar sem ályktað var, að miðað við þá þróun, sem orðið hefði í viðskiptatækni og verslunar- háttum síðan kaupalögin voru sett, gætu ákvæði gildandi kaupalaga eigi talist veita neytendum nægilega vernd varðandi kaup á almennum neysluvörum. Sömdu nefndirnar hvor í sínu lagi frumvörp að lagaákvæðum um „neytenda- kaup“, er dómsmálaráðuneyti viðkomandi landa endurskoðuðu síðan og sem að lokum voru samþykkt sem lög í báðum löndunum. Eru sænsku lögin („konsumentköplag") frá 7. desember 1973 og gengu í gildi 1. janúar 1974, en norsku lögin („... om endringer i kjopsloven ... særlig med sikte pá for- brukervern“) eru frá 14. júní 1974 og gengu þau í gildi 1. janúar 1975. Margt er líkt með hinum norsku og sænsku lögum um „neytendakaup", — einkum 123

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.