Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Blaðsíða 30

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Blaðsíða 30
Barði Friðriksson hrl.: 50 ÁRA AFMÆLI EMBÆTTIS SÁTTASEMJARA RÍKISINS Embætti sáttasemjara ríkisins hefir allt frá stofnun þess í reynd verið eitt allra þýðingarmesta embætti á íslandi. Og þó að oft hafi virst „að ógæfu íslands yrði allt að vopni“ hefir ekki orðið sú raun- in á, þegar valdir hafa verið menn til þessa embættis. Til þess hafa einungis valist þeir, sem hverju sinni þóttu best til þess hæfir sökum vitsmuna, reynslu og alhliða þekkingar á þjóðarhag og nutu óskoraðs trausts samningsaðila og þjóðarinnar allrar. Stofnun embættis sáttasemjara ríkisins átti langan aðdraganda. Með tilkomu afkastamikilla atvinnutækja í sjávarútvegi síðast á 19. öld, fyrst stórra fiskiskúta og síðar togara, tók smám saman að fjölga fólki á þeim stöðum þar sem slík útgerð var mest. Hið íslenska bænda- þjóðfélág, sem í stórum dráttum hafði, að uppbyggingu til, staðið ó- breytt frá landnámsöld, tók þannig smám saman að breytast í borgara- þjóðfélag með tilheyrandi einkennum. Atvinnubylting þessi breytti hinu persónulega sambandi, sem var milli smáatvinnurekanda, land- bónda eða útvegsbónda og starfsmanna hans og í kjölfar hennar urðu raunverulega til nýjar þjóðfélagsstéttir: Annars vegar vinnuveitend- ur með marga starfsmenn í þjónustu sinni og hins végar launþegar, verkamenn og sjómenn. Framan af bar lítið á hagsmunaágreiningi milli þessara stétta, en í raun höfðu vinnuveitendur allt ráð launþega í hendi sér. Hér virðist rétt að geta þess, að menn sóttu mjög eftir skiprúmi á skútum og togurum, enda tekj ur þar betri en annars staðar, þótt vinnuveitendur réðu um sinn einir kaupi og kjörum. Slík skipan gat þó að sjálfsögðu ekki staðið til frambúðar. Smám saman risu upp verkalýðsfélög, er hófu baráttu fyrir bættum kjörum félagsmanna sinna. Fyrsta meiriháttar verkfall hérlendis gerðu hásetar á togurum 1916. Sama ár stofnuðu verkalýðsfélögin samband með sér, Alþýðu- 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.