Teningur - 01.05.1990, Blaðsíða 16
14 / DÖNSKU SKÁLDIN
HENRIK S. HOLCK
á þeirri sekúndu þegar 1 fugl flýgur 1 sekúndu yfir himininn
blaktir grasstráið sem stendur hér á þessari sekúndu
það rignir ekki, snjóar ekki
enginn sefur, enginn vaknar, enginn hefur eða lýkur nokkru
svört lína, jörð
eins og þetta sem er fjárfest í 1 kyrrð
það deyr ekki, lifir ekki
ekkert rangt verður sagt, ekkert rétt
en fingurnir um leið og þeir
þrýsta á jörðina, þrýsta á
andrúmsloftið, þrýsta á vatnið
og finna mótstöðuna og
mótstöðuleysið
á þeirri sekúndu þegar 1 steinn lýstur 1 sekúndu í vatninu
er það staðurinn sem veröldin hefst á
og á því andartaki er ekkert þar fyrir handan, engar hugsanir
það snjóar ekki, rignir ekki
allt er á þeirri sekúndu
nú stendur grasstráið kyrrt
nú er heimurinn: að grasstráið stendur kyrrt
og ekki að einhver deyr annarsstaðar og að nokkrar mannverur verða eftir
grá lína, jörð
heimurinn er ekki í líkinu sem liggur og rotnar vinstra megin við
rykuga runnana
heimurinn er ekki í greininni sem sveiflast í fýlunni, ekki heldur í skugganum
sem vaggar þunglamalega yfir jörðina
heimurinn er ekki á öðrum stað, ekki í steyttu fóstrinu sem vindurinn feykir
af fingrum einhvers út í buskann
Vegna þess að
ég stend hér og við einbeitingu mína er 1 sekúnda
ásamt fuglinum sem flýgur yfir himininn
og grasstráinu sem blaktir aftur á þessari sekúndu:
Þessi staður, þessi mynd
er upphafspunktur heimsins
Magnúx Gezzon þýddi