Eining - 01.12.1961, Blaðsíða 1

Eining - 01.12.1961, Blaðsíða 1
Vegna þess að hann kom Eftir séra Jón Auðuns dómprófast FædcLi hún þá son sinn frumgetinn, vafSi hann reifum og lagdi hann í jötu, því aö eigi var rúm fyrir þau í gistihúsinu. Lúk. 2, 7. m ' m ljóði segir frá ungum manni, sem bergði sólarskál gleðinnar, unz ^Mi^gyðja sorgarinnar vitjaði hans. Hún leiddi hann yfir firnindi og fjöll, yfir fárkalda jökla og logandi eldfjöll, unz hún kyssti hann á ennið og kvaddi: En hvert sem forlögin flytja þann mann, yfir fjöll eða sæ eða torgin, hann kennir á enni sér kossinn þann, sem kyssti ’hún hann forðum, Sorgin. (E. H. Kvaran.) Til æviloka bar hann koss sorgarinnar á enni. Eitt andartak, — og sál hans varð lostin þeirri minning, sem máðist aldrei burt. Svo fer mannssálinni, þegar hún mætir hinu stóra, í gleði eða sorg. Hún ber þess síðan merki og verður aldrei að öllu eins og hún áður var. Það er lærdómsríkt að sjá manninn, þegar hann kemst í snerting við hið sterka, háa og stóra. Þá sögu segja heilög fræði, að þegar einn af guðs- mönnum liðinna alda hafði lifað hina stóru stund í lifandi nálægð guðdóms- ins, og kom aftur til fólksins, hafi því- líkur ægiljómi staðið af ásýnd hans, að fólkið byrgði augu sín og þoldi eigi að líta ljómann. Svo hafði þessi augna- blikssnerting merkt sálu hans, að jafn- vel ásjóna hans bar þess merki. Þessi maður varð einn af kyndilberum nýrrar menningar og enn stendur heimurinn í þakkarskuld við hann. Til æviloka kenndi hann á enni sér kossinn, og boð- orðin tíu, sem han bar mönnunum frá hinni stóru stund, eru grundvöllur lög- gjafar og siðrænnar menningar mikils hluta heims enn í dag, — já, enn eftir þúsundir ára. Svo merkir hið stóra í lífi og listum, í menningu og trú, mannlega sál. Óvíða eru dæmin ljósari en af fyrstu kristnu kynslóðunum. Umkomulítið fólk hafði komizt í snerting við Krist, og breytingin varð svo stórkostleg, að þessir menn urðu frumgróði nýrrar kynslóðar á jörðunni. Af eigin mætti hófust þeir ekki svo hátt. Það var snertingin við hann, sem gaf þeim líf og gæddi þá þreki, svo að í dauð- anum sungu veikar konur sigursöngva, og æskumenn jafnt og öldungar gerðust ósigrandi hetjur. Nú ljóma nöfn þessa fólks á gullnum spjöldum furðulegasta tímabils mannkynssögunnar. En nöfn þess kynni nú enginn jarðneskur mað- ur að nefna, ef Kristur hefði ekki snort- ið sálirnar og snertingin við hann gefið þeim lyfting, ljóma og líf. Svo merkir hin stóra hugsjón mannlega sál, svo máttug er snerting hennar, að koss Heilög María með soninn. Eftir Mabuse.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.