Morgunblaðið - 18.03.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.03.2013, Blaðsíða 2
Í GRAFARVOGI Kristinn Friðriksson sport@mbl.is Stjörnuliðið mætti eins og vel smurð vél í Grafarvoginn í gær og gjörsigr- aði Fjölnismenn 107:68 í ójafnasta leik vetrarins. Fjölnir er fallinn ásamt Tindastóli og Borgnesingar eru inni í úrslitakeppninni. Það var aldrei spurning um hvorum megin sigurinn myndi lenda í gær; Stjörnuliðið var mörgum númerum of stórt fyrir Fjölni, sem virtust daufir og áhuga- litlir. Eftir fyrsta hluta, sem endaði 14:35, fór leikurinn að líkjast æ meira Wagner-óperu; leikur heimamanna var þunglamalegur og depurð í loft- inu á meðan Stjörnumönnum leið eins og þeir gætu lagt undir sig Pólland með leiftursóknum sínum. Frábær leikur Stjörnunnar lokaði leiknum á fyrstu mínútum hans og eftirleik- urinn auðveldur og stórsigur stað- reynd. Stjarnan er mjög vel skipað lið og er að spila af miklu öryggi þessa dag- ana. Mér finnst fjórða sætið ekki nægilega góður árangur miðað við mannskap en mér þykir líka alveg ljóst að Stjarnan er í upplögðu færi að landa þeim stóra í ár. Þríeyki liðsins, Mills, Shouse og Frye, er frábært og bakland þess, Jovan, Marvin, Fann- ar, Dagur og Kjartan, er ekkert slor. Teitur verður að stilla liðið í þann andlega farveg sem það þarf til þess að fara alla leið á næstu vikum. Leik- ur liðsins er mjög sannfærandi, liðs- menn virðast vera komnir í mjög þægilegan gír þar sem hvert tannhjól snýst í sama takti. Meiðsli Árna og Jóns höfðu áhrif Það er sjaldgæft að sjá Fjöln- ismenn jafn þungbúna og baráttulitla eins og í gær en það virðist vera sem svo að leikmenn hafi vitað eigin örlög áður en flautað var til leiks. Þetta unga lið hefur barist vel í vetur en ljóst þótti hinsvegar í upphafi að liðið ætti erfitt tímabil fyrir höndum. Margir spáðu liðinu falli en það sann- aði sig hinsvegar í vetur sem eitt skemmtilegasta liðið í deildinni; ungir strákar eins og Björgvin, Arnþór, Gunnar og Tómas fengu reynslu sem mun nýtast vel. Það sem er útilokað að spá er hvað hefði gerst ef Jón Sverrisson og Árni Ragnarsson hefðu ekki meiðst. Það er ekki annað hægt en að taka hattinn ofan fyrir þessum mannskap fyrir að hafa komið liðinu þetta langt, svona lengi, án þessara tveggja leikmanna. Að mínu viti, og öðrum ólöstuðum, tveir bestu ís- lensku leikmenn liðsins. Þessi meiðsli eru líkleg orsök þess að liðið er nú fallið; stöðugleikinn sem aldrei náðist hjá liðinu speglast í meiðslum þessara lykilmanna og þó að aðrir leikmenn hafi tekið upp hanskann var skarðið sem þeir skildu eftir kannski aðeins of mikið. Hræðileg niðurstaða hjá Stólunum Örlög Tindastóls eru þau sömu og Fjölnis og líklega er rót þeirra vanda- Líktist Wagner-óperu Morgunblaðið/Golli Fall Ingvaldur Magni Hafsteinsson lagði Fjölni lið á lokasprettinum en það dugði ekki til og Fjölnir féll í 1. deild. Justin Shouse á möguleika á sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli miðað við spilamennsku bikarmeistara Stjörnunnar.  Depurð í loftinu í Grafarvoginum í gærkvöldi þegar Fjölnir féll úr úrvalsdeild- inni í körfuknattleik  Stjarnan í upplögðu færi til að landa þeim stóra í ár mála einnig að finna í mannabreyt- ingum, þó svo að meiðsli hafi kannski ekki spilað rullu þar. Eitthvað virðist hafa vantað í lið Stólanna í vetur og erfitt að henda reiður á. Útlendinga- mál riðluðust, Íslendingar látnir fara frá liðinu og liðið aldrei í neinum takti inni á vellinum. Það er ljóst að liðið þarf einhverskonar yfirhalningu; það verður ekki auðvelt fyrir Stólana að spila í 1. deild en frammistaða liðsins í ár hefur einfaldlega verið hræðileg miðað við mannskapinn. Menn geta sjálfum sér um kennt og þurfa að reyna að nýta næsta ár vel til að gera atlögu að efstu deild aftur. 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MARS 2013 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Fjölnir – Stjarnan 68:107 Dalhús, Dominosdeild karla. Fjölnir: Christopher Smith 20, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 13, Tómas Heiðar Tómasson 8, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 6, Arnþór Freyr Guðmundsson 6, Isacc Deshon Miles 5, Gunnar Ólafsson 5, Hreið- ar Bjarki Vilhjálmsson 3, Leifur Arason 2. Stjarnan: Justin Shouse 24, Brian Mills 24Jovan Zdravevski 16, Dagur Kár Jóns- son 11, Sæmundur Valdimarsson 11, Kjart- an Atli Kjartansson 9, Jarrid Frye 5, Fann- ar Freyr Helgason 4, Daði Lár Jónsson 3. Snæfell – Njarðvík 83:79 Stykkishólmur, Dominosdeild karla. Snæfell: Sigurður Á. Þorvaldsson 23, Ryan Amaroso 21, Jay Threatt 10, Jón Ólafur Jónsson 9, Sveinn Arnar Davíðsson 9, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 7, Stefán Karel Torfason 4. Njarðvík: Nigel Moore 28, Elvar Már Frið- riksson 19, Ólafur Helgi Jónsson 16, Maciej Stanislav Baginski 4, Marcus Van 4/5 frá- köst, Ágúst Orrason 4, Hjörtur Hrafn Ein- arsson 2, Kristján Rúnar Sigurðsson 2. Keflavík – ÍR 87:78 Toyotahöllin, Dominosdeild karla. Keflavík: Michael Craion 27, Darrel Keith Lewis 24, Billy Baptist 14, Magnús Þór Gunnarsson 7, Valur Orri Valsson 5, Snorri Hrafnkelsson 4, Arnar Freyr Jónsson 2/5 stoðsendingar, Hafliði Már Brynjarsson 2, Almar Stefán Guðbrandsson 2. ÍR: Eric James Palm 23, Nemanja Sovic 19, Sveinbjörn Claessen 15, D’Andre Jordan Williams 8, Ellert Arnarson 6, Hjalti Frið- riksson 4, Þorvaldur Hauksson 3. KFÍ – KR 89:84 Ísafjörður, Dominosdeild karla. KFÍ: Damier Erik Pitts 33, Mirko Stefán Virijevic 24/, Tyrone Lorenzo Bradshaw 14, Kristján Pétur Andrésson 8, Hlynur Hreinsson 4, Jón Hrafn Baldvinsson 4, Guðmundur Jóhann Guðmundsson 2. KR: Kristófer Acox 14, Finnur Atli Magn- usson 14, Martin Hermannsson 13, Brand- on Richardson 10, Helgi Már Magnússon 10, Emil Þór Jóhannsson 8, Brynjar Þór Björnsson 8, Darshawn McClellan 5, Jón Orri Kristjánsson 2. Tindastóll – Grindavík 91:97 Sauðárkrókur, Dominosdeild karla. Tindastóll: Tarick Johnson 16/, Helgi Rafn Viggósson 16/, Svavar Atli Birgisson 15, Drew Gibson 13, George Valentine 10, Þröstur Leó Jóhannsson 9, Hreinn Gunnar Birgisson 5, Pétur Rúnar Birgisson 5, Helgi Freyr Margeirsson 2. Grindavík: Samuel Zeglinski 29, Aaron Broussard 27, Jóhann Árni Ólafsson 11, Þorleifur Ólafsson 9, Sigurður Gunnar Þor- steinsson 7, Björn Steinar Brynjólfsson 6, Ryan Pettinella 5, Daníel G. Guðmundsson 3. Skallagrímur – Þór Þ. 96:109 Borgarnes, Dominosdeild karla. Skallagrímur: Carlos Medlock 43, Páll Ax- el Vilbergsson 23, Hörður Helgi Hreiðars- son 12, Birgir Þór Sverrisson 6, Trausti Ei- ríksson 5, Davíð Ásgeirsson 4, Orri Jónsson 2, Sigmar Egilsson 1. Þór Þ.: Guðmundur Jónsson 29, Benjamin Curtis Smith 27, David Bernard Jackson 26, Þorsteinn Már Ragnarsson 8, Emil Karel Einarsson 6, Darrell Flake 6, Grétar Ingi Erlendsson 5, Halldór Garðar Her- mannsson 2. Lokastaðan: Grindavík 22 18 4 2155:1916 36 Þór Þ 22 16 6 2056:1904 32 Snæfell 22 16 6 2105:1912 32 Stjarnan 22 15 7 2088:1919 30 Keflavík 22 14 8 2021:1940 28 Njarðvík 22 12 10 1982:1898 24 KR 22 11 11 1900:1893 22 Skallagrímur 22 7 15 1784:1958 14 ÍR 22 6 16 1818:1967 12 KFÍ 22 6 16 1946:2172 12 Tindastóll 22 6 16 1781:1906 12 Fjölnir 22 5 17 1814:2065 10 1. deild karla Valur – Hamar ...................................... 78:81 KR – Keflavík 93:88 DHL-hölllin, Dominosdeild kvenna. KR: Shannon McCallum 38, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 17, Sigrún Sjöfn Ámunda- dóttir 16, Björg Guðrún Einarsdóttir 8, Sara Mjöll Magnúsdóttir 6, Rannveig Ólafsdóttir 6, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2. Keflavík: Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 26, Pálína Gunnlaugsdóttir 24, Jessica Ann Jenkins 14, Sara Rún Hinriksdóttir 11, Bryndís Guðmundsdóttir 6, Ingunn Embla Kristínardóttir 4, Telma Lind Ásgeirsdótt- ir 3. Staðan: Keflavík 25 21 4 1968:1700 42 Snæfell 26 19 7 1878:1619 38 KR 26 18 8 1810:1728 36 Valur 26 14 12 1755:1665 28 Haukar 26 12 14 1779:1828 24 Njarðvík 25 8 17 1724:1924 16 Grindavík 26 7 19 1751:1953 14 Fjölnir 26 4 22 1833:2081 8 KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Mikil gleði ríkti á Ísafirði í gærkvöldi eftir að KFÍ tryggði sæti sitt í Dominos-deildinni með sigri á KR 89:84. Fyrir lokaumferð deild- arinnar í gærkvöldi var ljóst að KFÍ og Fjölnir yrðu að vinna sína leiki til að eiga möguleika á því að halda sætum sínum í deildinni. Fjölnir tapaði hins vegar illa fyrir Stjörnunni og féll. ÍR tapaði í Keflavík eftir jafnan leik og Tinda- stóll fyrir Grindavík á Króknum, einnig eftir jafnan leik. ÍR, KFÍ og Tindastóll urðu því jöfn að stigum og þurftu Sauðkrækingar að sætta sig við fall niður í 1. deild vegna lélegrar út- komu í innbyrðisviðureignum þessara þriggja liða. ÍR fékk 9. sætið, KFÍ 10. sæti og Tinda- stóll 11. sæti. Skallagrímur hélt hins vegar 8. sætinu og komst í úrslitakeppnina, tveimur stigum á undan þessum þremur. „Þetta var frábær sigur. Jú, það er rosalega skemmtileg stemning í gangi enda var fullt af fólki á leiknum. Við vorum náttúrlega ótrú- lega nálægt því að komast í úrslitakeppnina því tveir leikir okkar töpuðust á flautukörfum. Ég held hins vegar að fólk sé himinlifandi með að við skyldum halda okkur uppi því okkur var spáð falli síðasta haust. Okkar takmark var að komast í úrslitakeppnina en allir eru glaðir því við erum ánægðir með að vera eitt af tólf bestu liðum landsins,“ sagði Pétur Már Sigurðsson, þjálfari KFÍ, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi. Pétur er á sínu öðru ári sem þjálfari liðsins en hann kom KFÍ upp úr 1. deildinni í fyrra og hélt því uppi á fyrsta ári í úrvalsdeild. Pétur er 35 ára gamall fyrrver- andi leikmaður KFÍ en uppalinn Valsari. Hann sagðist hafa verið rólegur á hliðarlínunni í gærkvöldi þrátt fyrir að KFÍ hefði gloprað niður vænlegri stöðu í nokkrum leikjum í vet- ur. „Ég var samt alveg ótrúlega rólegur og ég treysti þessum strákum fyrir þessu. Við settum niður vítaskot sem skiptu máli og hittum vel af vítalínunni í kvöld sem hafði mikið að segja fyrir okkur. Við sóttum grimmt á körfuna og það stóðu allir sína plikt. Við vorum bara flott- ir,“ sagði Pétur Már ennfremur. „Ég treysti þessum strákum“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.