Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
D A G B Ó K I N
Hjá ESSO fæst úrval gasgrilla á sjó›heitu ver›i. fiú getur
fengi› grilli› sent heim samdægurs, án endurgjalds,
samansett og tilbúi› til notkunar.* Au›veldara getur fla›
ekki veri›. Grilla›u me› ESSO í sumar!
Grilla›u í kvöld!
*Bo›i› er upp á heimsendingu á höfu›borgarsvæ›inu.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
G
R
IL
L
I‹
S
E
N
T
HEIM
SAMANS
ET
T
O
G
T
IL
B
Ú
I‹
Magnús Þorsteinsson er orðinn
umsvifamikill í íslensku viðskipta-
lífi eftir að félag hans, Avion
Group, keypti Eimskipafélagið
af Burðarás. Avion Group verður
önnur stærsta fyrirtækjasam-
steypa á Íslandi, með um 110
milljarða veltu og 4.400 starfs-
menn. Magnús er þar stjórnarfor-
maður og langstærsti eigandinn.
Avion Group kemur næst á eftir
risanum Bakkavör Group – Geest
sem er með áætlaða veltu í
kringum 120 milljarða.
Heildarverðið á Eimskip í
viðskiptunum var 23 milljarðar
kr., en sagt hefur verið frá því
að FL Group hafi viljað kaupa
Eimskip á um 20 milljarða fyrr á
árinu. Avion Group keypti 94,1%
hlut Burðaráss í Eimskip, en
færeyska félagið P/F Tjaldur á
afganginn 5,9%.
Nokkrum dögum áður en
Magnús hélt blaðamanna-
fundinn og tilkynnti um kaupin
á Eimskip var grein frá því
að hann hefði selt hlut sinn í
Samson og Samson Holding,
en helstu eignir þessara félaga
eru bundnar í Landsbankanum
og Burðarási. Magnús átti mun
minna í Samson en feðgarnir
Björgólfur Guðmundsson og
Björgólfur Thor og var hlutur
hans 14,5% og var greint frá
því í Fréttablaðinu að hlutur
Magnúsar í Samson hefði
verið að veðmæti í kringum
12 milljarðar kr. Þar af hefði
hlutur hans í Landsbankanum
í gegnum Samson verið um 10
milljarða virði. Magnús hefur
fimmfaldað virði hlutar síns á
aðeins tveimur og hálfu ári.
Söluverð hlutar 94,1% hlutar
Burðaráss var 21,6 milljarðar kr.
Þar af skuldbindur Avion Group
sig til að greiða 12,7 milljarðar
kr. með peningum og 8,9 mill-
jarðar króna með hlutabréfum
í Avion Group, en fjöldi hluta
verður endanlega ákvarðaður
við skráningu Avion Group í
Kauphöll Íslands. Innleystur sölu-
hagnaður Burðaráss í viðskipt-
unum var 15,5 milljarðar króna
– sem er auðvitað sögulegur
árangur.
Stefnt er að skráningu
Avion Group í Kauphöll Íslands
eigi síðar en 31. janúar 2006.
Náist þetta markmið ekki hafa
stærstu hluthafar Avion Group
skuldbundið sig til að kaupa
áðurnefnda hluti af Burðarási á
sömu kjörum.
Magnús er fæddur á
Djúpavogi 6. desember 1961.
Hann er því aðeins 44 ára. Hann
ólst upp á Egilsstöðum, en
faðir hans Þorsteinn Sveinsson
var þar kaupfélagsstjóri til
margra ára. Magnús gekk í
Samvinnuskólann. Hann kynnt-
ist Björgólfi Guðmundssyni og
Björgólfi Thor þegar hann var
framkvæmdastjóri Viking Brugg
á Akureyri. Hann hélt með
þeim í víking til Rússlands árið
1993 og byggði upp með þeim
drykkjarvörufyrirtækið Bravo, en
bjórverksmiðja þess var seld til
Heineken í ársbyrjun 2002. Þar
með varð Magnús Þorsteinsson
þekktur maður í íslensku við-
skiptalífi. Lengi vel var gantast
með það að Samvinnuskólinn
og Verslunarskólinn mættust
og sneru bökum saman þegar
rætt var um þá Magnús og
Björgólf Thor. Magnús var verk-
smiðjustjóri Bravo í Rússlandi
og sagður mikill harðjaxl við
rekstur verksmiðjunnar, slík tök
hafði hann á Rússunum sem þar
voru í vinnu.
Frjáls verslun útnefndi þá
félaga í Samson „menn ársins í
íslensku viðskiptalífi árið 2002“.
31. maí
Magnús kaupir Eimskip
Magnús Þorsteinsson.
Lengi vel var gantast með
það að Samvinnuskólinn og
Verslunarskólinn mættust og
sneru bökum saman þegar
rætt var um Magnús
og Björgólf Thor.