Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 15
Vörumerki
Framleiðslu-
land
Heimsókn í
verksmiðju
leyfðar
Heildar-
einkunn
Heildar-
einkunn í
prósentum
Fyrir-
tækja-
stefna
Aðstæður
í verksmiðju
Umhverfismál
í verksmiðju
Upplýsingar
til neytenda
&DENIM BY H&M (H&M) Kína já 64
ZARA JEANS (ZARA) Marókkó já 63
JACK & JONES Tyrkland já 61
LEVI’S Pakistan já 60
NUDIE JEANS CO. Ítalía já 56
G-STAR RAW Ítalía já 52
LEE JEANS nei 10 –
WRANGLER nei 10 –
BOSS ORANGE nei 9 –
DIESEL nei 1 –
Mjög gott Gott Í meðallagi Lélegt Mjög lélegt
Við framleiðslu á bómull og síðar gallabuxnaefni eru
notuð margvísleg hættuleg efni sem hugsanlega sitja eftir
í buxunum að framleiðslu lokinni. Því var farið með galla
buxur á rann sóknarstofu og kannað hvort, og í hversu
miklum mæli, skaðleg efni væri að finna í buxunum.
Í flestum tilfellum mæld ust engin efni eða í svo litlu
magni að engin hætta stafar af. Í bux um frá Lee, H&M
og Levi’s fundust leifar af þungmálmum og formaldehýð
en magnið var of lítið til að valda nokkurri hættu. Þetta
gefur þó vísbendingar um það efnafargan sem er not að við
framleiðsluna. Í Wranglergallabuxum fannst hins veg ar
talsvert magn af kopar. Mælt er með því að gallabuxur séu
þvegnar áður en farið er í þær í fyrsta skipti.
Hvað sýnir taflan?
Heildareinkunn er samsett úr eftirfarandi þáttum: Aðstæður í
verk smiðju 35%, umhverfisstefna í verksmiðju 25%, stefna varð
andi samfélagslega ábyrgð 20%, gegnsæi 15% og upplýsingar til
neytenda 5%.
Einkunnagjöf byggist m.a. á eftirfarandi:
Aðstæður verkafólks í verksmiðjum: Laun, yfirvinna,
öryggi á vinnu stað, mismunun og réttur til að vera í
verkalýðsfélagi. Að stæð ur hjá undirverktökum voru einnig
kannaðar.
Ástand umhverfismála í verksmiðjum: Meðhöndlun og
notkun á skaðlegum efnum, og meðhöndlun frárennslis frá
verksmiðju. Einn ig var athugað hvernig fylgst væri með
umhverfisstefnu undir verk taka.
Gegnsæi: Hversu mikinn áhuga fyrirtækin hafa á að taka þátt
í könn uninni og aðgengi að gögnum um stefnu fyrirtækisins
varð andi samfélagslega ábyrgð.
Ódýrustu buxurnar komu best út
Restar af eiturefnum
Hæstu einkunn fengu gallabuxur frá H&M, Zöru og Jack & Jones en athyglisvert er að buxur frá þessum
fyrirtækjum eru meðal þeirra ódýrari sem kannaðar voru. Ekkert samhengi virðist því vera á milli verðs á
gallabuxum og siðferðilegrar frammistöðu fyrir tækjanna enda er framleiðslukostnaðurinn yfirleitt aðeins
lítið brot af endanlegu verði.
15 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011