Kópavogsblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 19

Kópavogsblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 19
19KópavogsblaðiðJÚLÍ 2007 Dalur og Núpur með sólstöðuhátíð Leikskólarnir Dalur við Funa- lind og Núpur við Núpalind sam- einast árlega í sumargleði, eða sólstöðuhátíð, sem fer þannig fram að sá leikskóli sem heim- sækir hinn kemur þangað í skrúðgöngu og er mikil tilhlökk- un ríkjandi, bæði hjá gestunum og gestgjöfunum. Í ár komu Núp- verjar til Dalamanna í glampandi sólskini og blíðu. Leikskólinn Dalur tók til starfa 25. maí 1998. Dalur er 4ja deilda leikskóli og þar er lögð áhersla á viðurkennandi samskipti og unn- ið út frá hugtökunum virðing-, ábyrgð - sjálfstæði. Grundvöllur starfsins er byggður á kenning- um John Dewey um “Learning by doing” og Berit Bae um viðurkenn- andi samskipti, ásamt uppeldis- fræði dauðu músarinnar. Unnið er með jóga í hvíldarstundum og lögð áhersla á snertingu og slök- un. Markvisst er unnið að endur- vinnslu og umhverfismennt. Lögð er áhersla á góð og traust sam- skipti við foreldra. Á veturna eru m.a. yngismannadagar og þá fá strákarnir svolítið að njóta sín og svo snúast hlutverkin við á yngismeyjadegi. Leikskólinn Núpur tók til starfa í janúar 2000 og er fjögurra deilda fyr- ir allt að 114 börn. Lögð er áhersla á hugmyndaflug og sjálfræði barnsins og að börnin fái að reyna, skynja og skapa á eigin forsendum út frá áhugasviði og þroska hvers og eins. Einkunnarorð skólans eru: sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Götuleikhús Kópavogs. Í Götuleikhúsinu eru um 14 manns og þau voru einnig mætt á sólstöðuhátíðina á Dal og skemmtu krökkunum með uppákomum. Þau fá einnig laun frá Kópavogsbæ fyrir að koma fram. Mörg þeirra eru í Leikfélagi Kópavogs. Þessi hópur lífgar svo sannarlega upp á tilveruna. Mikið skelfing er annars alltaf gott að fá pylsu og Svala. Áfengi og akstur á aldrei saman Ölvun við akstur er ein algengasta orsök banaslysa í umferðinni hér á landi. Á síð- asta ári var ölvun aðalorsök átta banaslysa hér á landi og árið þar á undan í sex. Fyrir liggur að þeir sem neyta áfengis eru marg- falt síður hæfir til að stjórna bifreið en allsgáðir menn. Þess vegna þarf að ræða um ölvun- arakstur og gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir hann. Á undanförnum árum hefur lög- regla tekið að meðaltali um 2000 ökumenn, sem í upphafi eru grun- aðir um ölvunarakstur, en grunur- inn reynist oftast á rökum reistur. Við ölvunarakstri eru ströng viður- lög, bæði há sekt og svipting öku- réttinda. Sektirnar eru á frá 70 þúsundum til 140 þúsund krónur og við það bætist ökuleyfissvipt- ing, allt að einu ári. Þar er mið- að við fyrsta brot. Þetta á við um brot þar sem áfengismagn í blóði er allt að 1,5 prómill, en sé það meira kemur til kasta dómstóla. Við endurtekin brot eru refsingar talsvert harðari og margir þeirra sem lögregla tekur lenda í þeirri stöðu oftar en einu sinni. Stundum er sagt að þeir öku- menn sem lögregla tekur og reyn- ast vera ölvaðir séu heppnir. Oft- ast nær lögregla mönnum áður en þeir valda sjálfum sér og öðrum verulegu fjárhags- og heilsutjóni. Það er mikil heppni fyrir þá og sumir þeirra bera gæfu til að kom- ast á beinu brautina og aka aldrei oftar undir áhrifum áfengis. Lögregla er um þessar mundir með meira eftirlit en tíðkast hefur. Athyglinni er meðal ananrs beint að ölvunarakstri og reynt er að vera á þeim stöðum þar sem fólk safnast saman til að skemmt sér. Meðal annars er athyglinni beint að sumarbústaðasvæðum, þar sem vitað er að menn freistast til að aka eftir að hafa neytt áfengis á þeim. Flestir eru reyndar með sín mál í góðu lagi, en það á ekki við um alla. Þá er rétt að láta þess getið að lögreglan hefur betri búnað til að fylgjast með ástandi ökumanna hvort sem um er að ræða grun um ölvun eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Það leiðir til mun markvissari vinnubragða og styttri tíma tekur fyrir lögreglu- menn að afgreiða málin. Lögregla tekur ótrúlega marga ökumenn grunaða um ölvun við akstur að morgni dags. Fólk gerir sér ekki grein fyrir hversu langan tíma tekur fyrir áfengi að hreinsast úr líkamanum. Oft er fólk yfir refsimörkum langt fram yfir hádegi daginn eftir drykkju. Það er lifrin sem hreinsa alkohól úr blóðinu og hún vinnur bara á ákveðnum hraða og það er ekkert hægt að flýta fyrir því að verða alveg allsgáður. Þá vekur athygli hversu margir sem teknir eru ölv- aðir undir stýri eru með mikið áfengi í blóðinu. Í sumum tilfellum ættu þeir að vera sofnaðir undir eðlilegum kringumstæðum. Besta regla sem fólk getur sett sér þegar það fer út að skemmta sér er að skilja bílinn sinn og bíl- lyklana eftir heima þegar farið er út á lífið. Það kemur í veg fyrir þá hættu að menn aki af stað ölvaðir þegar dómgreindin er ekki lengur fyrir hendi. Sigurður Helgason verkefnastjóri Umferðarstofu

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.