Tíminn - 01.12.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 01.12.1961, Blaðsíða 9
TIMINN, föstudaginn 1 desembp*' 1961 Útvarpserindi dr. Benjamíns Eiríkssonars IIM DAGINN OG GuSmundur við vinnu sína — Hvað heitirðu? — Helgi Gunnarsson og er austan úr Jökuldal — Grund í Efra-Jökuldal, bætir hann við. — Varstu bóndi þar? — Já, ég bjó á Grund, þar til ég missti sjónina á útmánuð- um. Það gekk alltaf vel hjá mér, ég fékk aldrei pest í féð og ég missti enga kind, em svo missti ég sjónina og varð að selja allt saman. — Áttu konu og börn? — Nei, ég bjó einn í tíu ár. Það gekk allt vel hjá mér, þang að til á útmánuðum. — Hvernig fellur þér þessi vinna? — Eg veit það ekki enn þá, — kannske er þetta ágæt vinna. En það er skemmtilegra ag eiga fé á góðri fjárjörð, — það eru mikil viðbrigði að vera kominn hingað fyrir mann, sem er fæddur uppi á öræfum og hefur búið þar einn í tíu ár. — Það er um ag gera að kasta þessari blindu frá sér, segir Jón Guðmundsson. — Hvenær misstir þú sjón- ina? — Eg missti hana 1948, — varð blindur á þrem mánuðum. Maður verður að gera sér Ijóst, aff þetta er allt annar heimur, sem maður kemur inn í, þegar maður verður blindur, og reyma að fá út úr lífinu það, sem maður getur. — Varð þér ekki mikig um að missa sjónina? — Jú, en ég hugsaði lítið um það, því að ég leið svo mikið líkamlega. Hún fór öll á einu bretti á þrem mánuðum. — ég sé ekki glætu. — Mestu von- brigðin voru, að hafa efckert að gera. Þa® er það versta, sem tFramhaia a ö sidl. Sessunautarnir Halldór og Jón. Dagblöðin eru að talsverðu leyti spegilmynd af daglegu lifi þjóðar- innar. Eg ætla því að ræða lítil- lega mál, sem þau hafa rætt nokk- uð, eða tæpt á nýlega. Fyrir nokkrum dögum birti eitt dagblaðanna í Reykjavík frásögn af bæjarútgerðarfyrirtæki einu. Tap þess á s. 1. ári voru nítján milljónir króna. Blaðið bætti því við, að þetta væri sém svaraði vinnulaununum, sem fyrirtækið hefði greitt á árinu. Útkoman hef- ur því verið þessi: Fyrirtækið hef- ur framleitt afurðir, að verðmæti sem svarað'i notkun framleiðslu- tækjanna, véla og bygginga, og sem svaraði andvirði allrar rekstr- arvöru. En fyrir verkafólkið var ekkert afgangs. Væri þetta svona hjá öllum atvinnurekstri lands- manna þá hefðu þeir nákvæmlega ekki neitt fyrir sig að leggja. En sem betur fer, er ekki svona illa ástatt alls staðar, enda fá þessir menn, sem unnið hafa hjá fyrir- tækinu, fulit kaup og framfærslu. Þessi framfærsla og þessar tekjur þeirra verða því að gi'eiðast af öðrum. Afurðirnar námu eitthvað 50 millj. króna að verðmæti, en | kostnaðurinn við framleiðsluna ■ var samkvæmt framansögðu 69 ! millj. króna. | í frjálsu atvinnulífi verður at- ■ vinnurekandinn að geta notað !/framleiðsluöflin, bæði vélar og > tæki, og mnuaflið, þannig að þau ! skapi það mikil verðmæti, að hann | geti greitt fyrir notkun þessara ■ framleiðsluafla. Og það þarf að ! vera einhver afgangur. Atvinnu- 1 rekandinn þarf m. ö. o. að skipu- ! leggja framleiðsluna þannig, að [ hann hafi eitthvað fram yfir kostn- ■ aðinn. Gróðinn er því fyrst og ! fremst mælikvarði á það, hvernig ■ þetta hafi tekizt. Atvinnurekand- ! inn verður þvl í fyrsta lagi að vera ! maður með skipulagshæfileika. ■ Eins og allir vita eru einstakling- ! arnir misjafnlega miklum hæfi- ; leikum búnir. þar með hæfileikum i til að skipuleggja framleiðslu, ! skipuleggja atvinnufyriftæki. ■ Skipulagsgeta atvinnurekandans er ! það mikilvægt atriði í öllum at- ; vinnurekstri, að það má segja, að ■ atvinnufyrirtækið, það er atvinnu- ! rekandinn. Það er eins og sumir ■ menn, sem fást við atvinnurekstur, ! geti skipulagt hvaða atvinnufyrir- | tæki sein er, þannig að það skili > arði, þ. e. a. s. að þeim takist að ! nota framieiðsluöflin þannig, að J þau skili meiru en sem svarar til- ■ kostnaðinum. Hjá umræddu fyrir- I tæki hefur þetta ekki tekizt betur ■ en svo, að aðrir landsmenn verða í ! rauninni að greiða laun þeirra, l sem unnu hjá því. Og því miður ■ er þetta ekki reynsla þessa eina ! fyrirtækis, þetta er yfirleitt reynsl- ; an af bæjarreknu útgerðarfyrir- ■ tækjunum kringum landið. Eina J skiptið, sem þeim hefur tekizt að ■ hagnast, var á stríðsgróðaárunum. I Þegar strjðsgróðaárin eru frátalin, ‘ mun yfirleitt hafa verið tap, í öllu ■ falli miklu lakari útkoma heldur l en hjá einkafyrirtækjunum. Nú er ■ ég ekki að fjalla um neinar nýjar I staðreyndir. Öll þjóð:n veit. hvern- * ið ástandið er. En menn kynoka ■ sér við að horfast í augu við stað- J reyndirnar. Samt eru fiskveiðar og ■ fiskvinnsla þær greinar framleiðsl- ! unnar, sem landsmenn þekkja og J kunna til einna bezt. • Daginn, sem þessi frétt birtist ! var í öðru dagblaðanna í Reykja- ■ vík samtal við hafnarverkamann, ! verkamann hjá Eimskip. Hann sagði, að verkamennirnir við höfn- = ina í Reykjavík fengju 22.75 kr. !! um tímann við uppskipun, en ; verkamennirnir í New York fengju fyrir sömu vinnu 127.89 kr. um tímann. Nú geta menn skilið, að 127.89 kr. um tímann fyrir verka- menn í hafnarvinnu í New York, getur ekki verið neitt einstakt fyrirbrigði, heldur svari þetta til launakerfisins og launagreiðsln- anna í Bandaríkjunum, alveg eins og 22.75 kr. um tímann fyrir verka manninn í Reykjavík svarar til þeirra launa, sem yfirleitt eru greidd á íslandi. Munurinn stafar af því, hvað framleiðnin í fram- leiðslukerfi Bandaríkjanna er á miklu hærra stigi heldur en hjá okkur, að Bandaríkjamenn eru komnir miklu lengra áleiðis. Það væri því synd að segja, að ekki væru neinir möguleikar fyrir bætt lífskjör við hið frjálsa atvinnu- skipulag, sem Bandaríkjamenn hafa, en sem ekki fær notið heil- brigðrar þróunar hjá okkur. Mér datt í hug, þegar ég las þetta við- tal, að það væri líkast lofsöng um Dr. Benjamín Eiríksson flutti nýlega útvarpserindi um daig- inn og veginn, er vakið hefur mikið umtal. Það er birt hér samkvæmt ósk höfundar. auðvaldsskipulagið, því að hver einasti verkamaður veit hver mun- urinn er — þegar annar vinnur fyrir 22.75 kr., en hinn fyrir 127. 89 kr. um tímann. Sannleikurinn er sá, að horn- steinninn í efnahagskerfinu er at- vinnurekandinn, mennirnir með skipulagshæfileikana, mennirnir með hugmyndirnar, mennirnir með framtakið. Allir vita, að þetta gildir um bóndann. En það gildir ekki aðeins um hann. Við þurfum því að búa þannig um hnútana, að þessir menn hafi hæfilega frjálst svigrúm, að atvinnulífið sé skipu- lagt með þetta fyrir augum, og að þeir fái þá aðstoð, sem þeir þurfa með, til þess að koma fram heil- brigðum málum sínum. Gerum við þetta ekki, verðum við nauðugir viljugir að þenja út ríkisbáknið, embættismannastéttina og skatt- heimtuna. Sá andi er samt mjög al- gengur, að atvinnurekendumir séu menn, sem aðeins sækist eftir ein- hvern veginn fengnum gróða, og ef þeir græði, sé það til tjóns fyr- ir þjóðféiagið. Þetta er náttúru- lega hugsunarháttur, sem á alls ekki við okkar þjóðfélag. Gróðinn er fyrst og fremst mælikvarðinn á það, hve hagkvæmt framleiðslan er skipulögð, hve hagkvæmt skipu- lagið sé á atvinnurekstrinum. Af gróðanum eru svo byggð hin nýju atvinnutæki, keyptar nýjar vélar, bætt í haginn fyrir framleiðsluna og afköstin aukin. Enn fremur greiddir skattar til opinberra þarfa. Og við afköstin hlýtur svo kaupgjaldið að miðast, hvort mönn um er það ljúft eða leitt. Það, sem framleitt er, það eitt er til skipt- ; anna. Það. sem ekki er framleitt, jþví skiptir enginn maður. Fram- j leiðslan er grundvöllurinn að vel- meguninni. Verkföll og annar órói í ^þjóðfélaginu getur ekki breytt hér neinu um. Þau geta aðeins sett efnahagslifið úr skorðum og skap- að ný vandamál og nýja erfiðleika. Um þetta breytir engu, þó að bæjarfélögin eða ríkið taki við at- vinpurekstrinum, það þarf alveg eins að finna mennina með skipu- | lagshæfileikana, til þess að stjórna þeim, fyrir því. En það gengur þá I oft miklu verr, vegna þess að þá | koma pólitísk sjónarmið. Enn frem : ur er viðhorf atvinnurekandans Orði® er frjálst: VEGIN annað til fyrirtækis síns heldur en embættismannsins, þar sem hags- munirnir liggja ólíkt í þessum tveim tilfellum. Og endirinn er sá, að hinn opinberi rekstur, bæði bæj arfélaga og ríkis, verður það, sem ég mundi vilja kalla embættis- mannarekstur, en aðrir kalla stund um sósíalisma. En embættismaður er eitt, hversu góður og samvizku- samur, sem tónn kann að vera og atvinnurekandinn annað, eins og ég tel reynsluna sýna. Þjóðfélag okkar er sem óðast að breytast í iðnaðarþjóðfélag, grund vallað á atvinnufrelsi, þótt okkur gangi enn dla að beygja okkur fyr ir staðreyr.dum þess. Nýir atvinnu hættir gera nýtt hugarfar óumflýj anlegt, ef vel á að fara, hugarfar, sem tekur fullt tillit til staðreynda þessara nýja atvinnuhátta. Mönnum verður að vonum tíð- rætt um hinar nýju atómsprengjur Rússa. Það eru margar hliðar á því máli og ekki tími til að fara langt út í það. En þó er það einn hlutur, sem ég gjarnan vildi fara nokkrum orðum um. Eitt af þeim hættulegu efnum, sem myndast við sprengingarnar er strontíum 90. Þetta efni, sem fer upp í há- loftin og kemur smám saman til jarðar með úrkomu, og þá sérstak- lega á svæðum, þar sem úrkoma er mikil, eins og hér á landi. í nýlegri blaðagreín segir Baldur Steingríms son, dýralæknir, að beinaveiki sé að verða algeng í góðum mjólkur- kúm. Þá segir hann, að beri að byggja ódýrari og hollari fjós en nú sé gert. Hvort tveggja minnti mig á samtal, sem ég átti við dr. Stewart, skozkan dýralækni, sem hér var fyrir nokkrum árum, en ég ferðaðist lítillega með honum. Hann sagði mér, að fjósin væru alltof heit og of loftlítil. Nautpen- ingur væri útiskepnur og þeim væri hætt við að sýkjast í of heitum fjósum. Enn fremur sagði hann mér, að doðinn og beinaveiki í kúm stafaði af steinefnaskorti, sér- staklega kalkskorti. Við vitum því, að hér á landi vantar kalk í jurt- irnar, sem kýrnar lifa á. Að ekki er sérstaklega áberandi kalkskort- ur í fólki, getur stafað af því, að við borðum mikinn fisk. Strontí- um 90, sem myndast við kjam- orkusprengjur getur valdið blóð- krabba í fólki. í bein manna, eink- um barna, sezt strontíum 90, og kemur þar fyiir kalk. Mér skilst að minni hætta sé á því, að beinin taki í sig strontíum, fái líkaminn nægilegt kalk í fæðunni. Mig langar því til að varpa fram þeirri spurningu, hvort ekki væri æski- legt, að stjórnarvöldin hvettu bændur til þess að bera kalk á tún og fengju bakara til að setja kalk í brauð. Væri þetta ekki skynsamleg varúðarráðstöfun? En þessa daga berast fréttir frá Rússlandi af fleiru en kjarnorku- sprengingum. Það, sem áður var rætt þar í hálfum hljóðum, er nú hrópað af húsþökunum. Stjórnar- far Stalíns var harðstjórn, einhver blóðugasta og miskunnarlausasta harðstjórn, sem nokkum tíma hef- ur þekkzt í sögunni. Hversu blóðug hún var, kom í fyrsta sinn í ljós í kringum 1935. Þá var látið fara fram almennt manntal í Sovétríkj- unum. Manntalsskrifstofa Sovét- ríkjanna hafði að vísu birt árlegt yfir'lit eða áætlun um mannfjöld- ann, byggt á fæðingar- og dánar- tölum, en nú skyldi fara fram manntal. Það vakti athygli, að nið- urstöðurnar voru ekki birtar. En um þetta leyti flutti Stalín ræðu, þar sem hann þenti á, að í Sovét- ríkjunum væri mikil mannfjölda- aukning. Mannfjöldinn ykist um sem svaraði einu Finnlandi árlega. (Framh. á 13. síðu.) I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.