Tíminn - 21.01.1962, Qupperneq 13
rWWn,nMWmmnW
Það mundi verka nánast
móðgandi að tala við sjúkling
nú á dögum t.d. ihér á landi
eins og Jesús talað’i við unga
maninn, sem borinn var til
hans lamaður á líkama og sá'l.
En sé betur aðgætt, þá munu
oftar vera nánari tengsl milli
sjúkleifca og syndar, hugar-
ástands og líkamlegrar líðan-
ar en niargir gera sér í fljótu
bragði grein fyrir. Hugsun og
tiifinning verka sterkar á lík-
amsfrumur og efnisheildir eu
margan grunar, þótt þvi væri
nú sleppt, að minnast á það,
hve varJhugs'aðar yfirborðs-
venjur tízkunnar eyðileggja
oft bæði líkama og sál, ef til
vill án þess að sjúfclingur geri
sér þess nokkra grein sjálfur.
Oft er talað um að sjúkling-
ur sé niðurbrotinn á taugum
„í rusli“ „ein taugahrúga“ eins
og nú er farið að orða það. En
það þýðir að samvizkubit ásarnt
niðurbrotinni lífslöngun, og.
æstum tilfinningum hafi náð
ölium tökum á vitund og vilja,
sfcapgerðin er sundurtætt, lífs-
orka og lífsgleð'i iamaðar og
persónuieikinn hvorki. sér né
veit handa sinna sfcil. Mann-
eskjan verður þá líkt og rekald
fyrir staurmi og vindum for-
iaga og atvika. Lífsfögnuður
er horfinn, vonir dauðar, ósk-
ir einskisvirði ,aðeins sárs-
auki ýmist innibyrgður eða
ofsalegur sýnir að enn er
þetta lifandi manneskja, sem
þráir breytt og bætt ástand.
Ailt, sem þarf til breyting-
ar og bóta er örugg sjúkdóms-
gerining, það er að segja vit-
und og vissa sjúklingsins sjálfs
um ors'akir ástands síns, sem
í mörgum tilfellum mundi hafa
verið köll'uð synd í gamla daga,
synd gegn Guði hins góða og
sanna, synd gegn öðrum en
kannske langoftast synd gegn
sjálfum sér og sínum æðstu
og innstu þráim. Þær fengu
aldrei að njóta sín fyrir eftir-
sókn - augnab'liksverðmæta, eit-
urnautna tízkunnar eða óhollra
venja í veizlum og glaumi. En
synd er allt, sem snýst gegn
hinu góða og fagra, allt, sem
sundrar samfélagi og samstarfi
manna og þjóða, allt, sem
sundrar og fjarlægir vitund
mannsins frá Guði sínum, sem
nefna mætti uppsprettu lífs
og ljóss ,eða lind hiinar almátt-
ugu elsku, sem verður að fá
að streyma gegnum tilfinninga
líf mannshjartans eða persónu-
leikans, svo að vellíðan og
innri friður geti myndazt þar
og eflzt.
Það er einmitt þessi innri
friður, þessi sæiu.kennd, þessi
skyndilega eða hægfara breyt-
ing frá myrkri til ij'ósfe frá
Syndir fyrirgefnar
þjáningu til unaðar, frá sjúk-
leika til heilbrigði, frá lömun
til kraftar, sem köiluð er fyr-
irgefning syndanna t.d. í trúar
játningu okkar. Allt í einu
eignast manneskjan nýtt lífs-
viðhorf, nýjan mátt, nýjar von-
ir, finnur sig eins og komna
úr andlegri iaug, þar sem hún
hefur hreinsazt af sora og
óhreinindum.
En undanfari þessa unaðs-
lega ástands syndafyrirgefn-
ingar er alltaf sársaufci í sál-
inni, stundum mjög sár, sem
kallast iðrun. Hún er blönduð
tilfinning sektar og auðmýkt-
ar ásamt heitri löngun til að
losna úr fjötrum og eignast
frelsi og sakleysi langt fjarri
þeim myrkraskotum, sem synd
eða sjúkleiki hafa byrgt manns
sálina í.
Stundum getur þessi sárs-
auki iðrunar verkað sem al-
gjört örvæni og upgjöf smbr.
iðrun Júdasar, sem fannst
hann ek'ki geta lifað mínút-
unni lengur, en stundum er
þessi tilfinning örvandi og hvet
ur til átaks og baráttu, sem
síðar skapar hetjur og dýrl-
inga, göfugmenni og píslar-
votta t.d. Pétur og Pál postula
og Ágústín kirkjuföður eða
Franz frá Assisi.
Sé litið á fyrirgefning synda
sem slíka lausn úr fjötr-
um, og jafnframt þann unað,
sem af frelsiskenndinni leiðir
þá er hún ein ijúfasta og und-
ursamlegasta náðargjöf Guðs.
En syndavitund nútímakyn-
slóðar er annað hvort sljó eða
frosin í flestum tilfellum, og
skapar yfirleitt fátt annað en
þá andlegu timburmenn, sem
nú er farið að nefna „móral“!!
hugsið ykkur íslenzkuna og
hugsunina og stundum er þetta
haft í fleirtölu, „móralar"!
Þarna þarf því sannariega
andi'ega leiðs'ögn, ef ekki
presta því nú hlusta fáir á
það, sem þeir hafa að flytja,
þá sálfræðinga, þeir eru í
tízku. Það þarf að vekja vit-
und fólfcsins fyrir hættum og
vandræðum og sýna því sjálft
sig í skuggsjá vcruleikans, vekja
því iöngun tii að losna.og við-
bjóð á því umhverfi, sem er að
eyðileggja það, frelsi þess og
lífshamingju.
Og bezta leiðin tU þess er
enn sem fyrr að beina þesum
þjáðu og lífsleiðu sálum braut
til þess anda ,kraftar og fyrir
gefningar, sem birtist í Kristi
Jesú sé hann og kenning hans
rétt skilin. Þangað þarf marg-
ur lama maðurinn að koma og
finna fri.ð, finna sjálfan sig
aftur, finna nýja og örugga
leið til iífshamingjunnar, finna
fyrirgefningu syndanna, sem
mun gefa nýja krafta og heilsu
bæði líkama og sáiar.
Þaðan hljóma hin undarlegu
orð, móðgandi og læknandi í
senn og verða fegursti hljóm-
ur lífsins inn í örvæni og ör-
vinglun:
„Syndir þínar eru fyrirgefn-
ar. Statt upp og gakk á bjarta
braut, því búin er nú gjörvöli
þraut.“
Árelíus Níelsson.
■ Xív^aS/ Ihuð
LOgtOK
Samkvæmt kröfu borgarstjórans í Reykjavík f. h. borgarsjóðs og að undangengnum úrskurði, verða lögtök látin fara fram fyrir ógoldnum útsvörum til borgarsjóðs fyrir árið 1961, er lögð voru á við aukaniðurjöfnun skv. 25. gr. útsvarslaganna og fallin eru í eindaga, svo og fyrir dráttarvöxtum og kostnaði, að átta dögum liðnum frá birtingu þess- arar auglýsingar, verði gjöld þessi eigi að fullu greidd innan þess tíma. Borgarfógetinn í Reykjavik, 19. janúar 1962. Kr. Kristjánsson. osKast Reglusöm miðaldra hjón, óska að taka á leigu íbúð, eða hús, í Reykjavík eða ná- grenni. Mætti vera allt að 50—60 km. frá Reykjavík. Tilboð sendist blaðinu fyrir fimmtudagskvöld, merkt íbúð. i
ÞAKKARÁVÖRP Raflagnaefm
Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu mér vin- áttu og tryggð á 70 ára afmælinu með kveðjum og gjöfum og heimsóknum. Vinátta ykkar verður mér ógleymanleg á óförnum ævibrautum. Helgi Erlendsson, Hlíðarenda. RÖR — ROFAR VÍR — TENGLAR KAPLAR — VARHÚS Sendum gegn póstkröfu.
1
: +
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför Björns Björnssonar, Ásvallagötu 39. Börn og tengdabörn. Klapparstíg 27. Sími 22580.
IVIeðan eldarnir brenna
(Orrustan um Rússland 1941)
Stórkostleg striðskvikmynd eftir sögu Alexander Dovjenko. Fyrsta
kvikmyndin, sem Rússar taka á 70 mm filmu með 6-földum stereó-
hljóm. Myndin er gullverðlaunamynd frá Cannes.
Sýnd klukkan 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum. — Pantaðir aögöngumiðar verða geymdir þar til
sýning hefst.
BARNASÝNING kl. 3.
Aðgangur bannaður
Sprenghlægileg og spennandi
gamanmynd með
Miekey Roney og
Bob Hope.
Fulltrúaráð
Framsóknarfélaganna í Reykjavík,
óskar að ráða konu til húsvörzlu í Félagsheimilinu
Tjarnargötu 26. Æskilegt er að viðkomandi geti
tekið að sér ræstingu og haft með höndum lítils
háttar greiðasölu.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu fulltrúa-
ráðsins í Tjarnargötu 26, sími 15564.
Auglýsing
Jörðin Neðri-Harrastaðir í Skagahreppi í Austur-
Húnavatnssýslu er til sölu nú þegar, og laus til
ábúðar í næstu fardögum 1962. Steinsteypt íbúðar-
hús nýbyggt er á jörðinni, túnið er 10 ha. að stærð
og allt véltækt. Útræktarmöguleikar miklir, vega-
samband er ágætt.
Kauptilboð sendist til undirritaðs eiganda fyrir 1.
apríl n.k. sem einnig gefur allar nánari upplýs-
ingar. Réttur er áskilinn til að taka hvaða kaup-
tilboði sem er, eða hafna öllum.
Davíð Sigtryggsson.
Nauðungaruppboð
það, sem auglýst var í 106., 107., 108. og 109.
tbl. Lögbirtingablaðsins 1961 á Hrauntungu 7
(Lindarvegi 7) eign Jóhanns Sigurðar Gunnsteins-
sonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 22.
janúar 1962 kl. 14.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
T í MIN N , sunnudaginn 21. janúar 1962