Tíminn - 20.12.1962, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.12.1962, Blaðsíða 2
LEGO SYSTEM er alþjóðlegt vöruheiti á bygg- ingateningum af ýmsum gerðum og stærðum, leikfangi, sem ungir og gamlir hafa yndi af. LEGO SYSTEM er framleitt í fjölmörgum lönd- um og eignast hvarvetna aðdáend- ur. Á íslandi hefur REYKJALUNDUR einkaleyfi til framleiðslu á LEGO SYSTEM Vinnuheimilið að Reykjalundi I BÖRNIN ÞARFNAST HENNAR Dæmisögur Jesú eru perlur, sem börn á öll- um tímum hafa kunnað að meta og tileinka sér. Sögur Jesú eru hér í endursögn snillingsins Kaj Munks, en þýðinguna gerði herra Sigurbjörn Ein- arsson, biskup. — Tímabær jólagjöf til allra barna og unglinga. FRÓÐI ppll® .. ; SlfílllÍlM ! ' ' }' 5? í*'2\ „Akranesmála Leiðari Alþýöubiaðsins í gær hei’trr Akranesmál, og er þar fjallað um dóm Hæstiarótt- ar í máli Akraneskaupstaðar og Daníels Ágústínussonar, er spunnizt hefur út af brottvikn- inigu hans úr Starfi bæjarstjóra fyrir tveim árum. Meðferð sannieikans í- ieiðara þessum er með þeim hætti, að sjaldan hefur sézt furðulegri umvend- ing á máium. Ritstjóri Alþýðu- blaðsins vfiar ekki fyrir sér að snúa alveg við réttfestum stað reyndum málsins oig niðurstöð- um sjálfs Hæstaréttar. Alþýðublaðið segir m. a.: „Bæði undirréttur og Hæsti- réttur staðfestu algeriega, að uppsögnin hefði veri'ð lögleg, enda hefur lienni ekki verið riftað. Ef Daníel hefði unnið þetta aðadatriði málsins, hefði hann verið settur aftur inn í embættið. En svo var ekki“. Um hvað er maðurinn að tala? Dómsskjöl málsins bera það með sér, að Hæstiréttur fjallaði alis ekki um þetta at- riði og „staðfestd“ því á eng- an hátt lögmæti bro'ttvikning- arinnar. Hún var igerð með fógetaúrskurði, og þeim úr- skurði var ekk,i skotið til Hæsta réttar. Það er ekkr aðeins ósatt að þetta sé „aðalatriði“ þessa hæstaréttarmá'ls, heldur er þetta atriði alls ekki í málinu .eða dómnum hvað þá meira. Málið var einvörðungu um kaupkröfur oig miskabætur, og um þær fjalliar dómurinn ein- vörðungu. Það var auðvifað út í hött að krefjast dóms um lög- mæti brottvikninigar og inn- setningu þegar hér er kornið, og kjörfímabilið löngu liðið. Úr því sem komið var geta miskabætur einar bætt að ein- hverju fyrir ólöglega eða ósæmi letga brottvikningu, og þær dæmdi Hæstiréttur hinar mestu, sem um getur í slíku máli. Sýnir það gerla álit réft- arins á því atriði málsins. Engin réttlæting Um brottvikningarályktun meirihluta bæjarstjórnar Akna ness segir svo í dómi Hæsta- réttar: „Sakargiftir á hendur gagn- áfrýjanda í áiyktun þessari eru móðgandi og mei'ðandi. Þær eru mu,n meinlegri fyrir þá sök, að þær voru borniar fram sem rökstuðningur fyrir því að víkja honum úr stöðu hans. Eigi hefur verið reynt í málinu að finna sakargiftum þessum stað né réttlæta þær“. Að svo vöxnu máli fannst Hæstarétti hæfilegt að dæma Daníel hæstu miskabætur í sögu réttarins. Er unnt að fordæma sakargift- ir betur? Þegar ritstjóri Alþbl. er að reyna að draga úr sviffia máls- ins fyrir siig og sína menn, skrökvar hann því að miska- bætur hafi verið 30 þús. en þær voru 35 þús. Hann sleppir 8% vöxtum og 25 þús. kr. í málskostnað, sem Daníef var dæmt. Rúsínán í endanum f lok þessia cinstæða leiðara segir svo: „Um kaupgreiðslu meðan skipt er um störf hefur ekki verið deilt. Daníe] gat fengið það án málssóknar, ef hann hefði kosið friðsamari leið til þess“. Þet'ta eru furðuleg og bein ósannindi, sögð af manni, sem hlýtur að hafa málsskjölin beint fyrir framan sig. Á bls. Framhátd á t.ls 13 2 T f M I N N, fimmtudagurinn 20. des. 1962.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.