Tíminn - 20.12.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 20.12.1962, Blaðsíða 9
Sigríður og Birgir Thorlacius: Fcrðabók. Bókaútgáfan Edda, Akureyri. Lesendur Tímans vita vel, að frú Sigríður Thorlacius, sem að stað- aldri hefur ritað i Tímann um ým is e fni síðustu árin, kann vel að segja ferðasögu og miðla fróðleik frá ferðum sínum. Hafa ferða- greinar hennar notið mikilla vin sælda hér í blaðinu eins og ann- að, sem hún hefur ritað. Eftir Birgi Thorlacius ráðuneytisstjóra, mann hennar hafa einnig birzt r.okkrar ágætar ferðafrásagnir hér í blaðinu. Þessi hjón hafa gert allvíðreist síðustu árin og haldið bæði aust- ur, vestur og suður um höf. Og nú er út komin myndarleg fei'ða- bók eftir þau í sameiningu. Efni hennar er þó ekki nema að nokkru leyti ferðaþættir, sem áður hafa birzt, heldur sagt frá nýjum hlut- um. Þættirnir i bókinni eru merktir höfundarstöium annars hvors Sigríður Thorlacius bjónanna, en í formálsorðum seg- ir, að þótt svo sé gert, séu þeir f (estir unnir sameiginlega að meira eða minna íeyti, enda hafa hjón- in verið saman í flestum þeim ferðum, sem frá er greint. Nær 40 myndir eru í bókinni, vel valdar og vel prentaðar, og fylgir skýr myndaskrá. Fyrsti þátt urinn er frá Spáni — fjör'leg og skemmtileg iýsing frá Madrid og ofið í hana ýmsum fróðleik um borgina, landið og þjóðina. í næstu grein er lýst nautaati, og heitir sá þáttur Dans við dauðann, þar sem grimmustu þátttakendurn ir eru áhorfendurnir. Næst koma svipmyndir úr Indlandsför, og er það jöfnum höndum ferðasaga og fróðleikur um Indland og þjóðmál þar. í þætnnum Gönguför um Delhi er hinni fornu og framandi borg lýst frá sjónarmið'i gestsins og sagt frá því, sem fyrir augu hans ber. Þá er einnig rætt um k.lör indverskra kvenna og fágaða gestrisni Indverja. Eftir það víkur förinni og sög- unni til Feneyja og brugðið upp glöggri skyndimynd af staðnum cg lífinu þar, litið inn í nokkrar hallir og kirkjur. Vordagar og vorhugur í Uzbeki- stan heitir næsti þáttur, og þó að nafnið sé framandi verður okk- ur ljóst, að við erum allt í einu komin austur í miðja Asíu í fylgd með sovét-Ieiðsögumönnum. Ber þar margt fyrir augu. Svo er þátt- ur um Samarkand, fæðingarborg Alexanders mikla. Úr sovét-Asíu er lesandanum allt í einu varpað vestur yfir Atl- antshaf, yfir þvera Ameríku og út í mitt Kyirahaf, — þar sem hann lendir á Hawai. Þar er sagt all- ýtarlega frá þessum merkilegu eyj- um, sem nú eru orðnar fylki í Bandaríkjunum, og í senn raktir þættir úr gamalli og nýrri sögu þeirra. Þetta er bæði fróðlegur og skemmtilegur þáttur. Svo er hald- ið aftur til meginlandsins og litið inn hjá Incíánum í Ríó Grande, heimsóttir fjallabúar í Kentucky, gengið um götur höfuðborgar Mormóna, farið út í undralönd cyðimarkanna, dvalizt á búgarði í Kaliforníu og skroppið á humar- veiðar í Maine. Þetta yfirlit gefur nokkra hug- rnynd um Cjölbreytileik og svið þess efnis, sem í bókinni er, en segir annars litlg sögu um hana sjálfa. Eg fæ ekki betur séð en hér sé um alveg einstaklega góða ferðabók að ræða. Kostir hennar eru margir. Hún er vel rituð í hæfi lega léttum stíl. Til hennar er dreg ið efni af alúð, gaumgæfilegri eft- irtekt og samvizkusemi. Saman er ofið eigin skynmyndum ferðalangs ins og fróðlcik, sem hann aflar sér af kynnum við heimamenn og eft- irgrennslan með öðrum hætti. Les andinn fær að fylgjast með í ferð- iunj og njóta þess, sem í henni gerist, en því er ekki heldur gleymt. að kynna honum sviðið með almennum fróðleik og bæta honum það þar upp, að hann gat ekki verið viðstaddur í eigin per- sónu. Það er þetta tvennt, sem er nauðsynlegt í ferðasögu. Þetta verður ag vefa saman af listfengi, ef vel á að takast. Það er ekki nóg að bregða upp skynmyndum höfundar einum, því að það nægir ekki lesandanum. Þetta má held- ur ekki vera mestmegnis þyrrkings leg fræðsla um staði í heiminum, án þess að lesandinn viti teljandi af nærveru höfundarins sjálfs þar. Ferðabókahöfundar sökkva ærið oft ýmist í ökla eða eyra í þessum eínum. f Ferðabók Thorlaciusar-hjón- anna ratast meðalhófið vel. Þess vegna fullnægir frásögnin lesand- anum oftast, og hann hefur það á meðvitundinni, ag hann hafj feng ið rétta og sanna mynd og trúverð'- uga sögu. Þetta er vönduð bók og traust, án þess að afneitað sé góðri gamansemi og persónulegum og sjálfstæðum athugunum höfunda. Þetta er fróðlegur skemmtilestur, sem enginn er svikinn á. Útgáfan er vönduð, búningurinn notalega látlaus og skrumlaus. Þessi bók seiðir og laðar en æpir ekki. — AK Ondvegissaga eftir Hamsun Birgir Thorlacius Skáldsagan BENONÍ, eftir Knut Hamsun, er komin út í íslenzkri þýðingu á vegum HeLgafe'lls. Þýð- inguna gerði Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi að inestu og hafði j nær lokið henni, er hann lézt, en Andrés Bjönsson mun hafa lokið við hana. Skáldsagan Benoní er í tölu hinna merkustu verka Hamsuns og hið ágætasta verk. Hefur haiia illi | lega vantað í þær Hamsun-þýðing I ar, sem hér hafa komið út, en nú er úr því bætt. Jón Sigurðsson fi Kaldaðarnesi var kjörinn Hamsu þýðandi og skilaði mörgum ver um Hamsuns með snilli á ísl. m; Hann var persónulega kunnur Ha sun, hafði lesið hann vel og len; og þekkti mntak verka hans beti en aðrir íslendingar. Fyrst J< var svo langt kominn með þýðin, una á Benoní var sjálfgefið að lái hana sjá dagsins ljós, og fáum v: betur trúandi til þess að ljúl verkinu en Andrési Björnssyni. T í M I N N, finimtudagurinn 20. des. 1962. Mannlífið a Breioa- fjaröareyjum iprcfcvpimi SlriiTncnn* "" JÁ BREIÐFIRZKAR SAGNIR II. Fróð’i gaf út. Bergsveinn Skúlason er iðinn við samtíning sinn og mjög nýt- inn, svo að honum verður allvel fengsamt. Hann gaf út breiðfirzk ar sagnir í bókarformi fyrir einu eða tveimur árum, og ýmsir héldu að þar væri öll hans ull í poka, en nú er komið á daginn, að hann átti ögn í öðrum poka og gæti verið að hann ætti líka fáein hár í litlum belg. Hann nefnir þetta síðara bindi, sem nú er út komið samtíning. Hæfir það, því að sinn lagðurinn er af hverju tagi. Þarna eru minningar hans sjálfs og skráð ar eftir öðrum, kviðlingar og sveit arrímur, þjóðlífs- og þjóðháttalýs ingar teknar eftir gömlum handrit um o.fl. Ekki verður annað sagt en nýtni Bergsveins sé í mesta lagi, og vafasamt, hvort allt er tæti- legt, sem hann tínir til. Hefði mátt velja betur, en þá er líka óvíst, hvort efni hefðu verið næg í bók. En hvaö um það. Þótt margt hefði að skaðlausu mátt eftir skilja, ekki sízt kveðskapinn, sem satt að segja er varla til geymslu fallinn, þá er þarna að finna ýmis legt, sem fróðleikur er að. Nefna má t.d. nokkrar sæmilegar drauga- og fyrirburðasögur úr eyjunum, kynlega kvisti, konur sem karla, svaðilfarir á sjó, selveiði, slys- farir og annað. Yfir þessum Drengja- og unglingabækur hafa margar komið út fyrir þessi jól, og ein hin girnilegasta fyrir stráka er bókin um Zorro, ame- rísku frelsishetjuna, sem var af spænskum ættum. Hann var í hópi þeirra spænsku landnema, sem settust að í Kaliforníu, en snerust síðan gegn spænsku nýlendustjórn Bergsvelnn Skúlason frásögnum er blær eyjanna og á því orðfæri, sem hæfði og heyrði til lífinu þar meðan það var og hét. Og Breiðafjarðareyjar hafa verið merkilegt byggðarlag — ís- lenzkur heimur út af fyrir sig, og sú kemur vafalaust tíð, að menn þakka fyrir allt, sem varðveitzt hefur þaðan. Bergsveinn Skúla- son hefur lagt drjúgan skerf til þeirrar geymdar. — AK. gimileg drengi inni og gerðu henni marga skrá- veifu. Fyrir nokkrum árum gerði hinn kunni listamaður Walt Disney sjónvarpsmynd um Zorro — og gaf einnig út bók um hann. Þetta er þýðing á þeirri bók og gefur bókaútgáfan Vitar hana út. Sögu- Framh. á 13 síðu Tvær skáldsögur frá ísafold Síðustu dagana hafa tvær skáld- sögur enn komið út á vegum fsa- foldar. Þær eru bá*ar þýddar og heita MÆRIN GENGUR Á VATN INU, eftir flnnsku skáldkonuna Eeva Joenpelto f þýðingu Njarðar P. Njarðvík. Hin er HERRA- GARÐSLÍF, eftir .norsku skáldkon una Anitra, í þýðingu Stefáns Jóns sonar, námsstjóra. Skáldkonan Eeva Joenpelto er aðeins fertug að aldri og hefur ritað 9 eða 10 skáldsögur, sem vak ið hafa mikla athygli og aflað henni viðurkenningar meðal Þær eru ekki margar þýddar öndvegisskáldsögurnar, sem út koma á þessu hausti, og því er ástæða til að fagna vel þeim, sem standa vel upp úr moðinu. fremstu rithöfunda Finna. Hafa bækur hennar verið þýddar á Norð urlandamál. Sögur hennar fjalla um finnskt alþýðufólk í sveitum og iðnaðarbæjum. Bók sú, sem hér birtist í íslenzkri þýðingu hef- ur verið talin ein hin bezta frá hennar hendi. Skáldsagan HERRAGARÐSLÍF fjallar um sömu persónur og Silki slæðan, eftir sama höfund, en hún kom út hjá ísafold í fyrra og hlaut miklar vinsældir. Anitra, sem auð vitað er skáldanafn, hefur stund um verið kölluð Selma Noregs. — Þessi saga gerist í norskum fjalla dal, þar sem fólk býr enn á stóð- um og fjölsetnum búgörðum, og það er líf þessa fólks, ævintýri þess, ástir og umstang, sem er söguefni hennar. 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.