Alþýðublaðið - 02.03.1940, Page 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LAUGARDAQUR 2. MARZ 1940
CjAMLA bió
Þrír biölar.
Fjörug og glæsileg amer-
ísk gamanmynd. Aðalhlut-
verkin leika:
Janet Gaynor,
Robert Montgomtery og
Franchot Tone.
SKEMMTIKLÚBBÐRINN CARIOGA
NYJA B!ð
Dansleikur
í IÐNÓ í kvöld
Aðffðnonmiðasala i M
eftir klukkan 6 í kvöld.
Tryggið yður miða í tíma,
Ölvaðir menn fá ekki aðgang.
Hljómsveit
IÐNÓ
Hljómsv. Hótel tslands.
Pantaðir aðgöngum. verða
að sækjast fyrir klukkan 9.
Ölvaðir menn fá ekki aðgang.
Pépé la Moko
(Ræningíaforinginn ! Algíer)
Frönsk stórmynd gerð eftir
hinni frægu sögu lögreglu-
mannsins Ashelhe.
Aðalhiutverkin leika:
Mire'íle Bahn og
Jean Gabin.
Kynnist franskri kvibmynda
list.
I siðasta sinn.
isi barna,
■ flestar
r
stærðir
fyrirliggjandi.
SPAITA
Laugavegi 10. — Sími 3094.
f
í
*V
„Dettlfossu
fer á mánudagskvöld 4. marz
vestur og norður. Viðkomu-
staðir: Patreksfjörður, ísa-
fjörður, Siglufjörður, Akur-
eyri, Húsavík.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir fyrir hádegi á mánu-
dag, verða annars seldir
öðrum.
Fæðissalan, Vatnsstíg 4. Karl-
mannsfæði kr. 85,00. Fyrir kon-
ur kr. 60,00.
I. O. 6. T.
UNGLINASTÚKAN UNNUR nr.
38 heldur hátíðafund í telefni
af 35 ára afmæli sínu á morgun
(sunnudag) 3. marz kl. 2 e- h.
í G. T.-húsinu. Foreldrum barn-
anna er heimilt að mæta með-
an húsrúm leyfir.
BARNASTÚKAN SVAVAN nr. 23
Enginn fundur sunnud. 3. marz
vegna 35 ára afmælis barnast.
Unnar Ijann dag. — En félag-
ar muni að koma fjölmennir
sunnud. 10. marz. Gæslumenn
ST. VÍKINGUR nr. 104. Fundur
n. k. mánudagskvöld á venju-
legum stað. Hefst kl. 8 stund-
víslega. Systurnar stjórna fund-
inum. Inntaka nýrra félaga.
Kosin hússtjórnarmaður. Að
fundi loknum hefst systrakvöld.
Skemmtiatriði: Tvísöngur (stúlk
ur). Samtal. Kvartett syngur.
Dans. Fjölsækið stundvíslega
kl. 8. Æ.t.
F.U.J.
Fimleikaæfing kvenna verður
í kvöld kl. 9, á venjulegum stað.
Áríðandi er að allir mæti, því
ákvörðun verður tekin um breyt-
ingar á æfingardögum.
*
Þeir félagar sem ætla að taka
þátt í árshátíð F. U. J. í Hafn-
arfirði, eru beðnir að mæta í
skrifstofu félagsins annað kvöld
kl. 8.
AFSTAÐA ALÞÝÐUFLOKKSINS
TIL FJÁRLAGAFRUMVARPSINS
Frh. af 3. síðu.
auka hinar, sem minni innflutn-
ing heimta, til að bæta það upp
og jafnvel auka við.
Útlitið.
í>að veit enginn, hvernig árið
1941 verður. En ég get ekki
neitað því, að útlltið er mjög
skuggalegt. — Byggingavinna
hlýtur að minnka stórkostlega,
og útlit er fyrir, að vinna við
fiskverkun, t. d. saltfisk, Verði
stórmikið minni en vérið hefir.
Ef þessar' tvaér atvinnugreinar
dragast svo mikið saman, sem
útlit er fyrir, þá fæ ég eklii
séð, að hjá því verði komizt að
auka fjárframlög til ákveðinna
verklegra framkvæmda, sem
minnstan gjaldeyri þurfa, eða
auka það frámlag, sem kaup-
stöðunum er ætlað í atvinnu-
bótaskyni, eða jafnvel gera
þetta hvorttvéggja. í sambandi
við þetta er rétt að minna á, að
vonandi tekst að ljúka við hita-
veitu Reykjavíkur á þessu ári,
en hún er nú stærsta atvinnu-
bótin hér. Ég veit það vel, að til
eru margir þeir menn, sem
telja, að það fé, sém veitt er til
atvinnubóta, sé eingöngu
eyðslufé og því algjörlega á glæ
kastað. En ég er viss um, að
þessir menn myndu skipta um
skoðun, ef þeir hefðu farið hér
um nágrenni Reykjavíkur og
séð þá ræktun og þá vegi, sem
gerðir hafa verið fyrir þetta fé,
og ef þeir athuga göturnar, sem
gerðar hafa verið fyrir atvinnu-
bótafé, garðinn við Eiðið í Vest-
mannaeyjum og yfirleitt öll þau
mannvirki og umbætur í kaup-
stöðum landsins, .sem fram-
kvæmd hafa verið fyrir at-
vinnubótaféð, þá mundu þeir
ekki lengur segja slíkt í alvöru.
Auk þessa er þess að gæta, að
vegna þessara fjárframlaga
hafa þúsundir manna fengið at-
vinnu. sem hefir fleytt þeim yf-
ir erfiðasta tíma ársins, þegar
allar aðrar bjargir voru bann-
aðar, öll sund lokuð nema von-
in um beinan framfærslustyrk.
Ég get svo látið máli mínu
lokið að þessu sinni. Alþýðu-
flokkurinn mun að sjálfsögðu
sýna afstöðu sýna til þessa frv.
í einstökum atriðum, með því að
flytja till. til breytinga og með
atkvæðagreiðslu um fjárlaga-
frumvarpið í heild og einstökum
atriðum, þegar til þess kemur.
En þau atriði, sem ég hefi nú
gert að umtalsefni, eru mér, og
öðrum Alþýðuflokksmönnum,
ríkust í huga.
Þrír biðlar
heitir myndin, sem Gamla Bíó
sýnir núna. Er það gamanmynd
með Janet Gaynor, Rober't Mou-
tgomery, og Franchot Tone í að-
aðalhlutverkinu.
NÝ HÚSALEIGULÖG
Frh. af 1. síðu.
koma í veg fyrir hækkun á leigu
eftir fasteignir vegna verðfell-
ingar íslenzku krónunnar, en
nokkru fyllri en í þeirri grein.
Síðan nefnd lög voru sett hefir
brotizt út stórveldastyrjöld, og
má því búazt við aukinni dýr-
tíð í landinu, en húsaleiga er
hér víðast hvan a. m. k. í kaup-
stöðum og sjávarþorpum, þegar
orðin svo há, að með svipuðum
launakjörum geta leigutakar
vart risið undir henni hærri.
Þykir því rétt, vegna ófriðará-
standsins. að framlengja á-
kvæði umræddrar greinar um
óákveðinn tíma, með nokkrum
breytingum, til þess að koma í
veg fyrir frekari hækkun húsa-
leigu en orðin er. Er vafalaust,
að húsaleiga myndi hækka, ef
engar ráðstafanir væru gerðar
til að halda henni niðri, vegna
þess, að óumflýjanlega dregur
úr nýbyggingum af völdum ó-
friðarins.
SAMNINGAR VIÐ VEITINGA-
HÚSIN
Frh. af 1. síðu.
Þær stúlkur, sem hafa hærra
kaup eða frekari hlunnindi en
samningur þessi ákveður, þegar
hann gengur í gildi, skulu halda
þeim kjörum óbreyttum.
Þessi árangur af baráttu starfs-
stúlknanna er tiltölulega góður.
1 sumum tilfellum er kauphækk-
unin mjög mikil, en kjörin voru
áður, eins og kunnugt er, ákaf-
lega misjöfn. Sem dæmi má
nefna, að stúlkur, sem áður höfðu
75—80 kr. ámánuði og hálft fæði,
fá nú fyrir utan 9% kauphækkun
og 5 kr. fyrir þvott á vinnuslqpp-
um, hálft fæði til viðbótar,. eða
30 krónúr í peningum á mánuði.
Viðurkenningin á félagi starfs-
stúlknanna er mikils virði, enda
stóð baráttan til að byrja með
aðallega um það.
KOLAVERÐIÐ
Frh. af 1. síðu.
innan fárra daga. Féllst verð-
lagsnefnd á þetta, enda skyldi
öll hækkunin ganga til lækkun-
ar á verði væntanlegra nýrra
birgða.
Það kann að vera rétt að taka
það fram, að nokkur útgerðar-
fyrirtæki hafa lagt hér á land
kol, sem ætluð eru til eigin nota,
meðal annars á síldveiðum í
sumar, og eru kol þessi sumpart
geymd hjá kolaverzlunum hér,
þó verzlanirnar eigi ekki að
hafa neinn umráðarétt yfir
þeim. Er bent á þetta til þess,
að fólk ekki haldi að verzlan-
irnar eigi ölí þau kol, sem hjá
þeim eru.
Út af því að sumir virðast
líta svo á, að verðlagsnefnd eigi
að tilkynna fyrirfram, hvenær
og hvaða verðbreytingar séu
væntanlegar, skal það hér með
í eitt skipti fyrir öll skýrt tekið
fram, að þetta getur verðlags-
nefnd ekki gert, því slíkt myndi
geta haft mjög óheppilegar af-
leiðingar.
Munið
gömlu dansana í Alþýðuhúsinu
í kvöld. 1 4. 1
f DAG
Næturlæknir er Eyþór Gunn-
arsson, Laugavegi 98, sími 2111.
Næturvörður ier í Laugavegs-
og Ingólfsapöt'eki.
ÚTVARPIÐ
20,20 Leikrit: Dagur hamingj-
unnar, eftir Kela frá Skarði (Har.
Björnsson, Friðf. Guðjónsson,
Gunnþ. Halldórsd.). 20,55: Út-
varpstríóið. 21,20 Danshljómsveit
Fr. Weisshappel leikur og syng-
Ur. 21,50 Fréttir. 22,00 Danslög.
24,00 Dagskrárlok.
Á MORGUN:
Helgidagslæknir er Þórarinn
Sveinsson, Austurstræti 4, sími
3232.
Næturlæknir er Gísli Pálsson,
Laugavegi 15, sími 2474.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
MESSUR Á MORGUN:
I dómkirkjunni kl. 11 séra Bj.
Jónsson, altarisganga, kl. 2 barna
guðsþjónusta, séra Fr. H., kl. 5
Ungmennamessa, séra Fr. H.
I Laugarnesskóla kl. 2 séra G.
Svavarsson. Barnaguðsþjónusta
kl. 10 f. h.
1 fríkirkjunni kl. 2 séra Á. S.
ELLILAUN OG ÖRORKUBÆTUR
Frh. af 1. síðu.
eigandi sveitar- og bæjarfélag
tilsvarandi uppbót af sínum
hluta.
í greinargerð fyrir frumvarp-
inu segir:
Frumvarpið er flutt samkv.
ósk félagsmálaráðherra, og hafa
einstakir nefndarmenn óbundn-
ar hendur um frv. og einstakar
greinar þess. — Frumvarpinu
fylgdu frá ráðherra eftirfarandi
athugasemdir:
„Vegna dýrtíðar þeirrar, sem
orðið hefir af völdum styrjald-
arinnar í Norðurálfu, er óhjá-
kvæmilegt að hækka slysabæt-
ur, örorkubætur og ellilaun frá
því, sem nú er. Virðist eðlileg-
ast, að bætur þessar hækki um
sömu hundraðstölu og vísitala
kauplagsnefndar hækkar um,
sbr, lög um gengisskráningu og
ráðstafanir í því sambandi.
Til þess að standa straum af
auknum útgjöldum vegna þess-
ara ráðstafana, veður að hækka
iðgjöld til slysatryggingarinnar,
en þau eru ákveðin í reglugerð
samkv. 12. gr. alþýðutrygg-
ingalaga, nr. 74/1937, en hins
vegar er svo ákveðið í 2. gr. og
3. gr. frumvarpsins, að ríkis-
sjóður og hlutaðeigandi bæjar-
og sveitarfélög greiði uppbæt-
urnar á ellilaun og örorkubæt-
ur.“
Má telja mjög líklegt að
frumvarpið verði samþykkt og
að gamla fólkið og öryrkjarnir
fái þær uppbætur, sem þeim
ber.
Augiýsið í Alþýðublaðinu!
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
TVÆR SÝNINGAR Á MORGUN.
„FJalla- EyvindorM
Fyrri sýningin byrjar kl. 3 e. h. Seinni sýningin byrjar
kl. 8 annað kvöld.
Aðgöngumiðar að báðum sýningunum seldir frá kl.
4—7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
ATH. Fyrsta klukkutímann eftir að sala hefst, verður ekki
svarað í síma.
F. U. J. í HAFNARFIRÐI.
Arshátfið
sína heldur félagið að Hótel Björninn sunnudaginn 3. marz
kl. 8,30 e. h.
Margt til skemmtunar, svo sem: Erindi: Sigurður Ein-
arsson docent. Gamanvísur: Alfreð Andrésson, upplestur og
DANS. — Ágæt hljómsveit. — Sameiginleg kaffidrykkja.
Aðgöngumiðar á kr. 2,50 verða seldir við innganginn.
ATH. Þeir, sem ekki verða komnir fyrir kl. 10,30, fá ekki
kaffimiða.
STJÓRNIN.
um bann gegn leikföngum úr blýi.
Samkvæmt heimild í lögum nr. 24 frá 1. febrúar 1936,
um eftirlit með matvælum og öðrum neyzlu- og nauð-
synjavörum, og samanber auglýsingu heilbrigðismála-
ráðuneytisins í Lögbirtingablaðinu 23. febr. s.l. er hérmeð
bannað að framleiða, flytja inn, hafa á boðstólum, selja,
eða láta á annan hátt afhenda hverskonar leikföng úr blýi
eða efnum, sem innihalda blý eða önnur hættuleg efni eða
máluð eru eða lituð með þess háttar efnum.
Brot gegn þessu varða sektum allt að 10 000,00 krón-
um.
Þetta tilkynnist hér með öllum til eftirbreytni.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 2. marz 1940.
AGNAR KOFOED-HANSEN.
Skiðap
á karla, konur og börn. Fjölbreyttasta úrval landsins.
ffláleisíar Ullarsekkar
Treflar — Hettur
og UllarvestL
ATH. Ennþá fæst margt með gamla verðinu, og ann-
að lítið eitt hækkað, en hins vegar verður óhjá-
kvæmilegt að verð hækki til mikilla muna inn-
an skamms.
Vesta
Laugavegi 40.
Skólavörðustíg 2.
J