Vísir - 23.01.1919, Blaðsíða 3
visir
gagns. Og' vel ar af stað farið, því
aö smjörlíkið, sem komið er hér á
markaðinn, er ágætt.
Inflnensao.
Herra ritstj. Visis!
í smágrein, sem eg ritaði í blað
yðar, i vikunni sem leið, var farið
fram á það, að spornað yrði við
því, að spanska veikin bærist nú
aftur hingað til lands með Botniu.
Þar var farið fram á, að skipi
þessu væri als ekki leyft að koma
hingað frá Kaupmannahöfn, þar
sem pest þessi er enn í fullum
gangi.
En nú mun Botnia farin frá K,-
höfn áleiðis hingað, með þenna
þokkalega gest innanborðs, og' má
þvi vænta veikinnar hér i næsta
mánuöi.
Hvað er svo gert hér til þess
.að verjast veikinni?
Sagt er, að búið sé að tæma sótt-
varnarhúsið gamla í Vesturbæn-
tim af fólki því, er þar hefir búið
undanfarið.
Ætli það sé ekki alt og sumt,
sent gert hefir verið, og gert verð-
ur, til jæss að tryggja líf og heilsu
bæjarbúa hér og landsmanna yfir-
leitt, gegn þessum vágesti?
Máske sú sé meiningin með
þessu, að sóttkvia eigi þá, sem
koma með Botníu, þarna í sótt-
varnarhúsinu ?
En er það nægilegt?
Það er langt frá að svo sé. Með
því hörmulega lögregluástandi,
sem hér er í bænum, verður þetta
þýðingarlaust kák.
Brennivinssmyglaramir verða
komnir út i Botníu löngu á undan
lögreglunni og búnir að flytja
veikina í land, og sjálfsagt verða
fleiri búnir að hafa mök við far-
þega og skipsmenn, áður en lög-
reglan er búin að snúa sér við.
Er ómögulegt að opna augu
hugsandi og ráðandi manna hér
fyrir þessari lífshættu, sem nú enn
á ný vofir yfir fjölda rnanna hér,
eða hugsa mennirnir ekkert um að
•gegna skyldu sinni og verja þjóð-
ina fvrir þessari hættu?
Eða hafa þeir sömu trú og frarn
var sett i vetur í hinni frægat setn-»
ingu landlæknisins, sem þannig
hljóðaði: „Þeir, sem ekki eru
hræddir við veikina, fá hana ekki“.
Máske svo sé.
En má þá ekki eins prédika á
þessa leið, og segja r „Þeir, sem
ekki eru hræddir við að deyja,
deyja ekki“. — Sú setning er ekki
vitlausari en setning landlæknis-
ins.
. Reykvíkingur.
ATHS.
Stjórnin hefir gert fyrirspum
um gang veikinnar í Danmörku
og fengið það svar, að hún sé þar
alment í rénun. Og liklegt er tal-
ið, að fregnin, sem blöðunum barst
á dögunitm, um, að veikin væri að
Mótorbátur til sölu
oirba 8 tonna stór mað 8 hesta Danvél. Báturinn sterkur og vél-
iu i góöu lagi. Bátnum fylgja s»gl og legufæri. Hann er hér á
xöfninni. — Allar nánari upplýsingar hjá
Sigorjóni Jónssyni
á Hafnarskrifstofunni.
Graðsþjóimstur próf. Haraldar Níelssonar.
Þeir sem æskia að sækja guðsþjónustur próf. Haraldar á þessu
ári, eru beðnir að skrifa sig á lista, sem liggja frammi í
Bókaverslnn ísafoldar
— Péturs Halldórssonar.
— Ársæls Árnasonar
og fá þar aðgöngumiða.
Reikningur yfir hið liðna ár liggur til sýnis hjá gjaldkera
safnaðarins, Iir. Halldóri Þórðarsyni, Ingólfsstræti 21.
Sidórnln.
magnast, hafi afbakast eitthvað á
leiðinni.
Vísir treystir þvi, að i þetta sinn
verði gætt nauðsynlegrar varúðar,
til að verjast veikinni, enda mun
sýkingarhættan nú miklu minni en
í haust, vegna þess, að allur þorri
óæjarbúa tók veikina þá, og mun
nú lítt móttækilegur fyrir hana.
Engin ástæða er til að óttast óleyfi-
legar samgöngur við skipiö áður
en læknisrannsókn hefir farið
fram; þaö væri þá miklu fremur
síðar.
Hvita þ? ælasalan.
ið þessu máli vakandi í blaöi yðar,
því það er þjóðarnauðsyn, að mál-
iö sé ekki kæft.
Það er annað ósómamál til hér
í bænum, sem virðist vera á góð-
um vegi með að sofna ofboð
mjúklega.
En — við sjáum nú hvað setur!
„Ekki er öll nótt úti enn.“
Borgari.
Bæjarfréttir.
Ingibjörg Árnadóttir, ungfrú.
Magnhildur Ólafsdóttir, ungfrú.
Herra ritstjóri! Eg er einn af
þeim mörgu, sem er þakklátur
fyrir að blað yðar hefir opinber-
lega minst á þessa höfuðstaðar-
svívirðingu.
Raunar er mál þetta illa lagað
til að ræða þaö opinberlega i blöð-
unuitl.
En hvað skal segja!
Hér „brýtur nauðsyn lög,“ sem
svo er kallað.
Landsstjóm og yfirvöld hafa 1
þessu máli sýnt litla rögg af sér
enn sem komið er; eru þvt ýmsir
famir að tala um, að borgarar
bæjarins verði að taka málið í sína
hönd; en slikt er neyðarúrræði,
og til þeirra ráða má ekki gnpa,
fj'r en önnur sund em lokuð.
En að því getur þó rekið, þeg-
ar framkvæmdaleysi yfirvaldanna
verðuf að skálkáskjóli fyrir þá,
sem fremja svívirðilegt athæfi. —
_Geri yfirvöldin ekkert til að firra
bæjarfélagi'ð þessum ósóma og
þessu skaðræði, þá verðum við
hinir að reyna að fletta opinber-
lega ofan af því ósótna athæfi, sem
átt hefir sér stundum stað hér 5
bænum.
Viö vonum margir, aö þér hald-
Fossafélagið Titan
hefir keypt mikinn hluta af
Skildinganeslandi.
Miki] eftirspurn.
Hús var auglýst til sölu t Vísi
i gær og um 8o lysthafendur gáfu
sig þegar fram við seljanda.
Samverjinn.
280 gestir komu til Samverjans
í gær. Af þeim vom ri gatnal-
mennk
„Skallagrímur“
kom til Englands á sunnudaginn.
Afli hans var seldur á mánudag-
inn fyrir 6700 sterlingspund.
Mentaskólinn
hefir frt t dag í tilefni af jarð-
arför B. M. Ólsens prófessors.
Fisbsalan.
Það er G. Copland stórkaup-
maður, sem keypt hefir það, sem
eftir er af fiski hér á landi frá síð-
asta ári. Verðið er kr. 272,00 fyr-
ir skippundið og sagt að það sé
sama og 280 kr„ samanborið við
Lankk
0,45 aara */„ bg. selttr
Verel. Vegamót
Bestur Sódi
fæst í
Verel. Vegamót.
Islenskt Smjörlíki
í versl.
„SKÓGAFOSS"
Aðalatr. 8.
Islenskí
ágst ksfa og mjólknrostnr
fæst í verslun
Böðvars Jónsson"
Laugav. 70
rengur
15—17 ára, ábyggilegur og van-
ur búðaretörfum, getur fengið
atvinnu.
Uppl. á Spífcalast. 9 kl. 8—10 e. m.
Sí 111011 Jónsson-
Ensk-islensk
orðahók (aðeins gott eiutak) ósk-
asfc keypt. A. v. á.
Stransyknr
0,Ö6 aura x/» kg.
Farin
0,53 aura V* kg- selnr
Versl. Vegamót, Langav. 19.
Laugav. 19.
EFTIRSTÖÐVAR
af tanskóm verða seldtr
með niðnrsettu verðí.
Vöruhúsið.
enska verðið, vegna kvaða sem þvr
fylgdu í sambandi við útflutning-
inn. Sölu þessa fiskjar anna'SÍsr
útflutningsnefnd 5 samráði w5
trefnd, setn fiskeigendur kusn og
í voru þeir Garðar Gislason stór-
kaupmaður, Pétur Ólafsson ko«-
súll og Þorsteinn Jónssonútgerkar-
maður. Hefir sala þessi tekist svo
vel, að talið er að upp tnnni vin»-
ast tapið á sölunni til Breta: