Morgunblaðið - 28.04.1917, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
£»
Þepskylduvinna.
Ráðleysi. — Bjargráð.
Landstjórnin hefir sýnt ofurlítinn
vott f>ess, að hún veit það hvernig
horfurnar eru í landinu, en þó er
hún altof atkvæðalítil. Hér þýðir
ekkert kák. Það verður að taka dug-
lega í taumana. Stjórnin verður að
sýna af sér röggsemi, beita öllu því
valdi, er hún hefir og taka sér vald
þegar það þrýtur. Með vetlingum
veiðir enginn köttur mús og með
þessu sleifaralagi og slóðaskap, sem
nú er á öllu hjá okkur, stefnum við
beint út í opinn voða fyrirhyggju-
leysisins.
Það er þýðingarlítið að brýna
einstaklinga þjóðarinnar, segja þeim
að þetta og þetta eigi þeir að gera.
Menn hafa rekið sig svo oft á það,
að það lætur þjóðin inn um annað
eyrað og út um hitt. En það verður
að brýna stjórnina, eggja hana lög-
eggjan um það að skipa mönnum
og skylda menn til þess að gera
það sem þeir eiga að gera — sjá
um það að þau verk komist í fram-
kvæmd sem okkur getur orðið, og
er jafnvel lífsnauðsyn að framkvæmd
sé. Stjórnin er húsbóndinn á þjóðar-
búinu. Hún verður að skipa fyrir
verkum til þess að sjá heildinni
borgið. Þetta er mikið starf og örð-
ugt, en þó eigi óframkvæmanlegt,
því að væri svo, ættum við engrar
viðreisnarvon.
Stjórnin verður að lögbjóða þegn-
skylduvinnu í einhverri mynd. Störf
þau, er nú bíða framkvæmda, verða
aldrei unnin nema því að eins að
menn séu sk) ldaðir til þess að vinna
þau.
Hér er orðinn ægilegur kola- og
eldsneytis-skortur. Og hamingjan má
vita hvenær við fáum kol frá út-
löndum. Ef til vill ekki fyr en
eftir 2—3 ár. Og hvar stöndum við
þá? Hvernig mundi mönnum litast
á blikuna, ef nú færi vetur í hönd
í stað sumars ? En hér í landinu eru
nóg kol og nógur mór handa okk-
ur. Og eigi þarf annað en ná í það.
Þetta höfum við vitað í tvö ár —
en framkvæmdirnar? Hvar eru þæi ?
Á alt að stranda á dugnaðarleysi og
skorti á »organisation« ? Getur stjórn-
in vænst þess að einstakir menn
fari að brjótast í því að vinna kola-
námurnar svo að landinu nægi? Nei,
það verður aldrei. Stjórnin verður
sjálfsagt að standa fyrir verkinu. Og
hún á að taka menn til þess með
valdi, hvar sem henni sýnist. Það
verður enginn vandi. Hér ganga
menn hrönnum saman iðjulausir og
verður þó enn verra þegar fram á
kemur sumarið.
En það bíða líka fleiri verk heldur
en kolagröfturinn, þótt hann eigi að
sitja fyrir mörgu öðru. Hvernig er
með kartöfluræktina? Það mætti
taka þegnskylda 'menn til þess að
vinna að henni, bæði í sveitum og
bæjnm og yrði það affarasælla held-
ur en hver hokraði sér og von um
meiri uppskeru, því að þeir sem
hafa garða munu samt sem áður
rækta í þeim.
Það hefir lítið verið minst á gul-
rófu- og næpu-rækt. Eigi ætti hún
þó að sitja á hakanum. Hvert ein-
asta sáðkorn, sem til er í landinu
ætti að fara ofan í jörðina í vor.
Bæja- og sveita-stjórnir ættu að
kaupa alt útsæði og sjá um það að
því verði sáð. Rófurækt gefur ef til
vill nokkru minna af sér heldur en
kartöflurækt, en er líka mikið ódýr-
ari. Og þótt uppskera bregðist vegna
óhagstæðrar veðráttu, þá er litlu til
kostað öðru en rófufræinu, sem ekki
er dýrt og verður eigi í askana látið
með öðru móti en því sé sáð. En
þótt illa fari um uppskeruna, þá
eigum við þó altaf þá huggun, að
hafa gert alt sem í okkar valdi
stóð til þess að búa okkur undir
það versta.
Um fráfærurnar hefir áður verið
talað, og bændur eru hvattir til þess
að færa frá í sumar. En það þarf
að gera þeim það að skyldu og sjá
þó jafnframt um það, að þeir hafi
þann vinnukraft, sem til þess þarf.
Og það ætti að vera hægt.
Enn er eitt, sem ekki hefir verið
minst á, en það er veiði í ám og
vötnum. Það þyrfti að auka hana
margfalt í sumar. Getur þá komið til
greina að veiðiréttur verði upphaf-
inn að einhverju leyti — eins og
nú er gert í Englandi —- en þess
þó gætt, að eigi verði beztu veiði-
stöðvarnar skemdar að mun. Hér
eru mörg fjallavötn full af silungi.
Þyrfti að senda menn þangað til
veiða í sumar.
Aðdrættir geta orðið margir hér á
landi og miklu fleiri en svo, að
hægt sé upp að telja. En til þess að
þeir komi þjóðinni að sem beztum
og hagkvæmustum notum, þarf
verkskiftingu, »organisation« um
land alt, en það verður aldrei nema
þegnskyldu sé komið á. Það er
ógerningur að ætla sér að marka
það fyriifram hvert starf þegnskyldu-
menn skuli leysa af höndum, því að
sitt á við í hverri sveit. Og það
verða sveitarstjórnir að ákveða hver
fyrir sig í samráði við stjórnina.
En grundvallar-atriðið er það, að afla
sem mestra nauðsynja handa land-
inu í sumar, hvað sem öðru líður.
Og hvað sem skoðunum manna á
þegnskyldunni líður yfirleitt, þá er
ilt að trúa því, að þeir kjósi hana
ekki heldur en það, að verða að
sitja bjargarlausir í kulda og myrkri
næsta vetur.
srrs d a© soffi n. ra
Afmæli í dag:
Sigríður Clemenz, húsfrú.
Sigríður Björnsdóttir, bóksali.
Ásgr. Eyþórsson, kaupm.
Einar Gunnarsson, ritstjóri.
Lárus Hjaltested, bústjóri.
Sumar- og fermingarkort selur
Friðfinnur Guðjónsson, Laugavegi 43B.
Agæt beitusíld
(frystuð) ca. 1100 kg. fæst keypt nú þegar óheyrilega
ódýrt. Ritstjóri vísar á.
Tilkynnins.
Trá deginum í dag kosía f)eií rýgbrauð kr. 1,42
og f)áíf rúgbrauð 71 eijrir.
Bakaraféf, Beykjavíkur.
Iðnskóíinn.
Teikningar nemenda skólans verða til sýnis í Iðnskólanum laugar-
daginn 28. apríl kl. 6—8 og sunnudaginn 29. apríl kl. 2—6.
Pór. B. Poríáksson.
'Winna §§
D u g 1 e g eldhússtúlka getur fengið
vist frú 14. mai. Mikill fritimi. R. v. á.
Æapaé
T a p a s t hefir nýsilfurbúin svipa á
Hverfisgötu, merkt Guðni. Skilist gegn
fundarl. á Hverfisgötu 82.
Sólarupprás kl. 5.17
Sólarlag kl. 9.36
Háf 1Ó8 í dag kl. 11.5 f. h.
og kl. 11.35 e. h.
Hver sem finnur hornskeltan, grábíld-
óttan lamhhrút, mark: blaðstift fr. h. bití
aft. v., geri mér undirritnðnm viðvart
sem fyrst. Framnesveg 38 Rvik
Þór. Arnórsson.
Fyrirlestrar Háskólans:
Prof. B. M. Ólsen:
Bókmenta saga íslendinga, kl. 5—6.
Edddukvæði kl. 5—6.
Jón Aðils, dócent:
Saga ísl. kirkjunnar, kl. 7—8.
Matarsild fæst keypt hjá Árna Nikulás-
syni rakara.
Nokkur hæns meö kynbótahana og íbúö
þeirra eru til sölu á Hverfisgötu 71.
Trúlofuð eru jungfrú Guðrún Gam-
alíelsdóttir á Nýja Landi, og Ingimar
Jónsson sjómaður.
Heiðursgjafir hafa þeir skipstjór-
arnir Þorst. Þorsteinsson og Björn Ó-
lafsson fengið hjá fiskiveiðafólaginu »ís-
Iand<£. Eru það gullúr með gullfesti
og letrað á lokin: »Með þökk fyrir
aflann 1916.« Er það falleg viður-
kenning og sýnir hugsunarsemi fólags-
stjórnarinnar.
Messað verður í þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði á morgun kl. 3 síðiegis.
Messað á morgun í fríkirkjunni í
Rvík. kl. 12 á h á d e g i (ferming)
síra Ól. Ól.
Frá skipshöfninni á Þór hefir Morg-
unblaðið móttekið 142 kr. samskot
handa ekkju Hannesar Jónssonar á
Vesturgötu 46. Frá N. N. 10 kr. og
frá M. Ó. kr. 20. Þökkum vér fyrir
hönd hennar þessar gjafir.
SíBustu sfmfregnir
frá fréttaritara ísaf. og Morgunbl.
Khöfa 27. apríl.
Framsókn Breta heldur
áfram milli Croiselles og
Gavrelle.
Mikil loftorusta hefir
^ verið háð og hafa loftfðr
ráðið á þýzka kaf báta við
Zeebriigge og sökt einum
þeirra.
Konungurinn (Danakonung-
ur) fór trá Stokkhólmi í
fyrradag áleiðis hingað.
Mörgum skipum hefir
verið sökt, þar á meðal
Baron Stjernblad og Seott,
Baron Stjernblad var eign Saaí
félagsins og var 991 brúttó tn.