Morgunblaðið - 02.02.1918, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.02.1918, Blaðsíða 3
MOKGUNBLAÐIÐ Geysir Export-kaffi er bezt. Aðalumboðsmena: 0. J0HNS0N & KAABER. Adolf Guðmundsson, sem áður var hér á landssímastöðinni, kom hingað frá Spáni á »Huginn« um daginn. En þar heflr hann dvalið síðan í haust til þess að kynnast saltfisksmarkaði syðra. Hygst hann ef til vlll að setj- ast að á Spáni og reka þar umboðs- verzlun með íslenzkan saltfisk. Messað á morgun í Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2 síðd. (síra Ól. Ól.) Gjafir til Samverjans. Penitiqar: Frú N. kr. io.oo, N. P. kr. 3.50, Morgunblaðinu afhent kr. 100.00, N. N. kr. 5.00, Lilly Bruun kr. 8.00, F. R. kr. 100.00, N. N. kr. 10.00, Onefndur kr. 10.00, N. N. kr. 2.00, S. P. kr. 10.00, G. Sv. kr. 10.00, G. Funch (þóknun fyrir alþýðu- fyrirlestur) kr. 35.00, afmælisgjöf kr. 50.00, Kaffigestir kr. 1.00, kr. 1.00, Máltíðir kr. 0.25, kr. 0.25. Vörnr: Frú N. 1 tn. saltkjöt, verzlunin Kaupangur 1 tn. saltkjöt, 1 sk. hafra- mjöl. Verzlun: 2 sk. haframjöl, 2 ks. mjólkurdósir. X. 3 sk. hafra- mjöl, 2 sk. grjón, 10 ks. mjólkur- dósir. Stórkaupm.: 2 ks. mjólkur- dósir, 1 sk. hveiti, 1 sk. strausykur, 1 sk. kaffi. G. Copland: 2 skppd. saltfisk. F. M. & Co.: 1 ks. mjólk- Qrdósir, 1 sk. hveiti, 1 sk. hafra- miöl. Heildsali: 1 sk. haframjöl, 1 sk. hveiti, 1 sk. kartöflur. Kærar þakkir! Reykjavík, 27. jan. 1918. Júl. Arnason, gjaldk. kaupir hæsta verðí Tlorðurför TJnrnndsons Þfgir ófriðurinn hófst var Roald Amundsen að biia sig undir það, að fara ti! Norðurheimskautsins. En vegna margs konar erfiðleika, sem af stríðinu haf.t stafað, hefir förin alt : f dregist og um eitt skeið var heizt svo að sjá, að Amurdsen yrði', að hætta við fyrirætlanir sinar. En nú hefir hann þó sigrast svo á erfiðteikunum, að hann hefir afráðið það að leggja af stað í júnímanuði í sumar sem kemur. Eftir því sem norska »Morgenbladet« segist frá, er það aðallega að þakka Mr. Schmedeman, sendiherra Bandarikjanna i Kristiania. Hann hefir með óþreytandi dugnaði hjálpað Amundsen til þess að fá leyfi Bandaríkja- stjórnar til þess að mega taka allar birgðir til leiðangursins þar vestra. Og sendiherrann hefir einnig fengið stjórn Bandarikjanna til þess nð setja engar’ skorður við norðurförmni. En jafnhliða þessu hefir Amundsen séð þess vott, að áhugi No:ð- manna fyrir norðurför hans er að aukast. Kostnaður við leiðangurinn hefir farið langt fram úr þvi sem áætlað var í fyrstu, vegna stríðsins. Er álitið að Amundsen muni eigi komast af með minna en 1 miljón króna. Ríkissjóður Norðmanna hefir veitt honum 200,000 króna styrk til farar- innar, en sjálfur verður Amundsen að bera ábyrgð á því, sem á vantar. Honum hefir þvi komið [ að vel, að norskir »striðsgóðamenn« hafa sýnt áhuga fyrir fyrirætlun hans. Hinn kunni skipaeigandi A. F. Klaveness hefir runnið á vaðið og óbeðið boðist til þess að leggja fram 50 þúsund krónur til fararinnar. Er búist við því að margir fleiri muni feta i fót- spor hans. Samt sem áður verður Amuncsen að takmarka nokkuð útbúnað sinn frá því sem upphaflega var ætlað. Meðal annars verður haon að hverfa frá því að hafa flugvélar með í förinni og þess vegna verður hann að hætta við það að kanna sjálft heimskautið nákvæmlega. En það var lika auka- atriði i fyrirætlaninni. Amundsen hefir látið smiða sér nýtt skip til þessarar norðurfarar og birtum vér hér mynd af þvi. Það er smiðað hjá Chr. }ensens skipasmiða- stöð í Asker og hefir verið skirt »Maud«, i höfuðið á drotningu Norð- manna, sem er verndari leiðangursins. Er svo sagt að skipið sé hin mesta gersemi bæði frá verkfræðislegu sjónarmiði og að traustleika, og allur út- búnaður þess er hinn vandaðasti. Amundsen hefir afráðið það, að leggja inn í hafísinn, 250 sjómílum austar heldur en »Fram« lagði inn i hann — eða austan við siberisku eyjarnar. Er hann svo fastráðinn i þessu, að hann vill heldur fresta för- inni um eitt ár, ef tilraunin skyldi mishepnast i fyrsta sinn. Margir vís- indamenn hafa haldið því fram, að meginland muni vera i hafísnum á þeirri leið, sem Amundsen ætlar sér að fara. Draga þeir þá ályktun af straumunum. En Amundsen er ekki trúaður á þetta. Og hann hefir áður sýnt það, að hann : etur komið því í framkvæmd, sem hann ætlar sér. c2qzí að auglýsa i cJlZorgunBlaóinu. ? Nolið tækifærið! Eina viku kai*pi eg hlutabréf Eimskipafélag Islands háu verói. Hverfisg. 35. Aðalfundr Abyrgðarfélags þilskipa við Faxaflóa verður haldinn mánud. 4. febr. 1918 kl. 5 sd. á skrifstofu Sameinaða gufu- skipafélagsins. Stjórnin. Mest frost veturinn 1880—81 varð eins og hér greinir, allsstaðar Cclsius en hverqi Réaumur: Janúar Febrúar Marz Berufjörður 23,1 í6,9 21,9 Grímsey 3 0,0 25,0 30,0 Stykkishólmur 26,0 22,5 25,0 Siglufjörður 2%4 26,4 36,2 Valþjófsdalur 28,6 23,6 29.4 Papey 23,6 16,2 20,6 Vestmanneyjar ii,4 13,0 15,6 Hrepphólar 29,8 vantar 28,5 Eyrarbakki 20,1 17,6 24,5 Hafnarfjörður 21,1 18,1 22,1 Reykjavik 20,1 17,0 22.1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.