Morgunblaðið - 01.05.1921, Page 2
MORGUNBLA*
MORGUNBLAÐIÐ
Ritstjóri Vilh. Finsen
Sími 500 — PrentsmiSjusími 48
Afgreiösla í Lækjargötu 2.
Ritstjómarsímar 498 og 499
Kemur út alla daga vkunar, ai5 mánu-
dögum undanteknum.
Ritstjórnarskrifstofan opin:
Virka daga kl. 10—12.
Helgidaga kl. 1—3.
Anglýsingum er e k k i veitt mót-
taka í prentsmiðjunni, en sé skilaö á
afgr. fyrir kl. 4 daginn fyrir útkomu
þess blaös, sem þær eiga aö birtast í.
Auglýsingar sem koma fyrir kl. 12, fá
aö ölhmi jafnaöi betri stað í blaSinu
(á lesmálssíSum), en þær, sem síSar
koma.
AuglýsingaverS: Á fremstu síSu kr.
3,00 hver cm. dálksbreiddar; á öSrum
stöSum kr. 1,50 cm.
VerS blaSsins er kr. 2,00 á mánuSi.
AfgreiSslan opin:
Virka daga frá kl. 8—6.
Helgidaga kl. 8—12.
Gimnar Egilson
«ó-
Btriðfl-
Bruaa-
Líf-
ily»a-
Yátryggingar.
að löggjafarvald landsins láti sig
einu gilda hvort eða að hve miklu
leyti íslenska krónan geti setið á
bekk með gjaldeyri annara þjóða
eða ekki.
Viðskiftalífið krefst þess að
gjaldmiðill landsins sé yfirfæran-
legur annaðhvort með dönsku
kxónugengi eða með sérstöku
gengi hærra eða lægra en danska
krónan eftir því hvernig seðlaút-
gáfuréttinum er beitt eða misbeitt
og að öðru leyti er í pottinn búið.
En hvort heldur er að íslenska
krónan fylgi dönsku gengi eða
sérstakt gengi kemst á hana, þá á
leyfið til seðlaútgáfunnar að vera
bundið því skilyrði að peningarnir
séu yfiríæranlegir.
Að iögfesta það ástand, sem er
og til er orðið fyrir það að lands-
lögum hefir ekki verið framfylgt,
er ekki aðeins skaðsamlegt fyrir
viðskiftalífið og til þess að halda
við dýrtíð í landinu, heldur háð-
ung, óskiljanleg öllum heimi, því
að ekkert annað land hefir látið
sér koma það til hugar að stöðva
greiðslur til útlanda og gera pen-
iiagana óyfirfæranlega og öll við-
skifti landsmanna sem eríiðust,
heldur er þvert á móti reynt að
greiða fyrir þeim eftir föngum.
Til þess að firra iandið því end-
emisástandi á peningamálasviðinu,
sem nú er og við borð liggur að
lögfesta og þeim óútreiknanlegu
afleiðingum er það kann að hafa,
leyfi eg mér að skora á alþingi,
að gera yfirfæranleik peninganna
að ófrávíkjanlegu skilyrði fyrir
framhaldsleyfi til útgáfu óinnleys-
anlegu seðlanna, svo að almenn-
ingur standi jafnt að vígi sem út-
flytjendur um að afla sér nauð-
synja frá útlöndum.
Og skyldan til þess að yfirfæra
peningana á ekki aðeins að gilda
gagnvart Landsbankanum, af því
það hefir sýnt sig að vera til
einskis nýtt, heldur á hún að gilda
um seðlana sjálfa.
Þegar seðlarnir eru innleysan-
legir gegn gulli, hefir reynslan
sýnt, að sú tilhögun felur í sér
fulinægjandi ráðstöfun til sjálf-
verkandi takmörkunar á þeim seðla
fjölda eða peningafúlgu, sem á
hverjum tíma er hæfileg.
Um óinnleysaniegu seðlana haf-
ir reynslan hinsvegar sýnt að sú
tiihögun sem höfð hefir verið um
útgáfu þeirra, er ófullnægjandi í
því efni að mynda sjálfverkandi
takmörkun fyrir útgáfu þeirra við
hóf.
Afleiðingin hefir því orðið sú,
að ÖIl lönd, er gefið hafa út óinn-
leysanlega seðla, hafa misbeitt
seðlaútgáfuréttinum og gefið út
óhæfilega mikið af seðlum og við
það felt þá í verði.
Það er ])ví verkefni, sem enn
hefir ekki verið leyst, að finna
einhverja þá úrlausn um útgáfu
óinnleysanlegra seðla, er feli í sér
þá sjálfverkandi takmörkun á
seðlafjöldanum, er verkað geti á
sama hátt og gullið gerir þegar
seðlarnir eru innleysanlegir gegn
því.
Mér hefir nú komið til hugar að
þessi sjálfverkandi takmörkun
seðlafjöldans, sem reynslan sýnir
að nauðsynlegt er að finna fyrir
útgáfu óinnleysanlegu seðlanna,
væri fengin, ef útgáfan væri bund-
in eftirfarandi skilyrðum:
1. Að seðlabankinn sé skyldur
tii þess að yfirfæra seðlana og
nota í því skyni málmforðatrygg-
ingu sína fyrir seðlunum nær sem
á þarf að halda.
2. Að seðlabankinn greiði ríkis-
sjóði fulla útlánsvexti af Iþeim
seðlum, er við það að grípa til
yfirfærslna kunna um takmarkað-
an tíma að geta orðið í umferð
umfram það sem lögáskilin trygg-
ing er fyrir að öðrum kosti.
Yfirfærsluskyldan með málm-
forðatryggingunni kemur í veg fyr
ir það að gengið lækki til skaða
fyrir aimenning, en ákvæðið um
fulla útiánsvöxtugreiðslu af þeim
seðlum, er ótrygðir geta orðið við
það að grípa þarf til málmforða-
tryggingarinnar til yfirfærslna,
hindrar það að stjórn bankans
fái tilhneyging eða ástæðu til þess
að auka seðlaútgáfuna um hóf,
fyrir stundarhag bankans eða hlut-
deild sjálfum sér til handa í gróða
bankans af útgáfu þeirra seðla.
Ef slíkar ákvarðanir og þessar
hefðu verið settar í upphafi um
útgáfu óinnleysanlegu seðlanna,
hygg eg að seðlarnir hefðu getað
haldist í verði samfara ákvæðun-
um um ói'uuleysanleik þeirra.
Ef þing og stjórn vildi athuga
þetta og reyna að boma þessari
tilhögun í framkvæmd í sambandi
viðtöku þá erlendis, sem virðist
vera í ráði, hygg eg að það væri
vel til fundið og tii þess að létta
af dýrtíðinni og koma seðlaútgáf-
unni í gott horf.
Eggert Briem,
frá Viðey.
Bengi erl. myntar
Sterlingspund .. ..
Dollar.............
Mörk..............
Sænskar krónur ..
Norskar krónur ..
Franskir frankar ..
Svissneskir frankar
Lírur ..
Pesetar
Gyllini .
ifDunungen“
„Svenska Biografteatern*' ‘ hefir
gert kvikmynd úr þessari nafnfrægu
sögu Selmu Lagerlöf og var mynd
þessi sýnd í Nýja Bíó í gærkveldi
í fyrsta sinn. Er hið sama að segja
um mynd þessa eins og aðrar myndir
sem koma frá þessu ágæta félagi,
að snildarmeðferð einkennir hana.
Efnið skal eigi rakið. pað er sum-
um kunnugt, sem sé þeim er lesið hafa
skáldsöguna eða séð leikinn á leik-
húsi. í myndinni leikur aðalhlutverkið
aðalleikari þjóðleikhússins í Stokk-
hólmi, Ivan Hedquist. Lék hann þetta
sama hlutverk þegar leikritið var sýnt
í Stokkhólmi og fór orð af því hversu
vel honum tókst. Þegar til orða kom
að kvikmynda söguna var farið til
hans og hann beðinn um að leika
sama hlutverk í kvikmyndinni, en
leikhússtjórnin bannaði. En hann vann
það til, að segja upp stöðu sinni við
leikhúsið. Hefir hann einnig séð um
útbúnað kvikmyndarinnar.
Og árangurinn hefir orðið sá, að
„Dunungen“ þykir með allra bestu
myndum er frá Svíþjóð hafa komið
og er þá mikið sagt. Hafa smekk-
menn á kvikmyndir sagt, að þessi
mynd tæki fram því besta, sem Ame-
ríkumenn gerðu, og viðtökurnar sem
þessi mynd hefir fengið víðsvegar um
heim hafa verið fádæma góðar.
Hér á landi hefir fáum myndum
verið tekið eins vel eins og myndum
„Svenska Biografteatern* ‘. Sigrún á
Sunnuhvoli, Ingimararnir, Blómið
blóðrauða, Fjalla-Eyvindur og þorgeir
í Vík, koma fyrst í hug, þegar maður
rifjar upp fyrir sér góðar myndir.
Og þessi mynd verður áreiðanlega ein
í þeirra flokki, er hún hefir verið sýnd
hér.
-------0--------
ITIinningarsjáðuri
Stefáns Stefánssonar skólameistara
Strax eftir lát Stefáns skóla-
meistara Stefánssonar hófst hreyf-
ing meðal hinna mörgu lærisveina
hans norðanlands og sunnan, að
gangast fyrir því, að minningu
hans væri á lofti haldið á ein-
hvern varanlegan og vorðugan
hátt. Kom þeim ásamt um, að svo
merkur maður og ágætur kennari
mætti ekki liggja Óbættnr. Var þá
strax ’hallast að því að stofna sjóð,
er bíéri nafn hans og skyldi sá
sjóður stuðla að því að framhald
yrði á kærasta viðfangselfni Stef-
áns: rannsókn á n á 11 ú r u
1 a n d sin s.
Fundi var skotið á hér syðra!
og þar kosin nefnd til að undir-
búa málið. Var ]>ó framkvæmdum
frestað þar til Valtýr Stefánsson
k'om. hingað til lands, því sjálf-
sagt þótti að ættingjar Stefáns
réðu mestu um fyrirkomulag sj'óðs-
ins, sem þá þegar var byrjaður á
Norðurlandi. En sjálfsagt þykir að
alt sem gert verður í þessu efni
renni í eitt og sameinist um eitt
og hið sama.
Nú er málið komið á fastan
rekspöl. Er uppkast að skipulags-
skrá samið fyrir sjóðinn og sam-
þykt af hlutaðeigendum.
Stofnfé sjóðs þessa er fyrst og
fremst það, sem safnast með
frjálsum samskotum meðal læri-
sveina og vina Stófáns. Og enn-
fremur allar tekjur af 2. útgáfu
Flóru íslands' ‘, sem væntan-1
21,87
5,52
8,60
117,75
85,75
42,15
96.50
27.50
77,25
193,50! af
'■‘k jfeí íétiiLtjlSS i - ■! ■ ■-i.
~-■
SUKKULAÐI
Glaxo gerir súkkulaði og kakao ljúffengt
og bragðgott. Glaxo er hin eina niðursoðna mjólk
sem komið getur alveg í stað nýmjólkur. Glaxo má
geyma — húm súrnar ekki. Þess vegna er
Giaxo drjúg og ætíð við hendina. — Ef þér
notið Glaxo þurfið þér ekki að sækja mjólk á hverj-
um degi. Glaxo sparar yður fyrirhöfn og áhyggjur.
Þeir sem vanist hafa á að nota Glaxo nota nú
enga aðra mjólk.
Kaupið eina dós í dag ef þér hafið ekki þegar
reynt Glaxo. Blandið hana með sjóðandi vatni.
Látið 8aman við ögn af sykri eða salti.
TvfdffTnnprrnfno,
ryiTji.’Þfft
Til leigu
2 ágætir kjallarar i miðbænum.
O. Johnson & Kaaber.
lega kemur út á næst.u mrsserum.
Tilgangur sjóðsins er. eins og
þegar hefir verið drepið á, að
j styrkja menn til náttúnrfræðis-
j legra raniisókna, <*n þó einkum
I þeirra, sem „geta komið atvinnu-
! vegum landsins að sem öruggustu
og skjótustu iiði.“
Þegar árlegir vextir sjóðsins
nema 5000 kr. má verja 4000 kr.
til styrkveitingar, Ef enginn sækir
j um styrk úr sjóðnum skulu allar
1 tekjurnar leggjast við höfuðstól-
inn.
Stjóm sjóðsins skipa náttúm-
fræðiskennari Akurevrarskólans,
forstöðum aður Náttúru gripasafns-
ins í Reykjavík o'g sá er síðast hef-
ir notið fjögra ára styrks úr ejóðn-
um. Þangað ti'l svo er orðið, skipar
einn af nánustu ættingjum Stefáne
skólameistara þriðja sætið í stjórn-
inni. Ákveður stjórnarráðið hann.
Styrk geta aUir fengið, jafnt
karl sem kona, er hafa íslenzkan
ríkishorgararétt. Þó sknlu þeir sem
útskrifast úr hinum norðlenzha
mentaskóla sitja fvrir, að öðru
.jöfnu.
Þetta era höfuðdrættir skipulags
skrárinnar. Er svo nánar ákveðið
um hin einstöku atriði.
Til þess að gefa sem allra fiest-
um kost á að leggja í þennan sjóð,
og sýna með því liðsinni sitt því
hlutverki, er Stefán vskólameistari
hafði valið sér, hefir listi verið
sendur út um bæinn með nöfnum
þeirra manna, sem náðst hefir til
qg menn vita að eitthvað vilja láta
af hendi rakna. En til þess að gera
mönnum sem hægast fyrir, er gef-
endum gefinn kostur á að skifta
tillögum sínum niður á fleiri ár,
í líkingu við tillög burtfarinna
Akureyrarskóiamanna í „Nemenda
sjóðinn' ‘ þar.
Æskilegt væri, að þeir sem þessi
listi nær ekki til, en vildu leggja
fram einhvern skerf, sneru sér til
skrifstofu Búnaðarfélags íslands.
Þar verður tekið á móti tillögum.
Sjóðsstofnun þessi hefir fengii
svo eindregið tylgi manna, að
gariga má, að því vísu, að mikiiil
áhugi sé fyrir >ví, að ihann nái
sem fyrst tilgangi sínum: að alt af
sé einn maður í landinu, sem geti
gefið sig óskiftan við náttúrurann-
sóknum. Og þótt sjóðir séu venju-
lega seinvirkir og hér séu altof
margir en smáir sjóðir, má vænta
þess, að „Minningarsjóður Stefáns
skólameistara Stefánssonar" verði
mörgum sjóðnum fljótvirkari. Og
ekki virðist vera auðið að halda
við einum besta og -stærsta þætt-
inmn í lífsstarfi þessa merkis-
manns á bstri eða tryggari hátt.
-------0------—
riokkur orð um bannið.
Eftir
Árna Kristjánawm.
Frh.
Niðurl.
B annmenn s e g j a: Vér vit-
um vel, að til eru þau persónuleg
réttindi, sem jafnan eiga að vera
friðhelg, svo sem skoðanafrelsi
manna og málírelsi, en vér neit-
um því að frelsi manna til að
neyta áfengra drykkja sé svo dýr-
mætt, að það megi ekki skerða.
E g s e g i: Þarna ketmur fram
ein 'ióf uðvilla bannimanna. Þeir
gera gremarmun á málum, sem eru
alveg hama eðlis. Er nokkuð miiiua
varið 1 það, að háfa frelsi til að
neyta þess, er maður óskar. he|d-
ur en að hafa frelsi til að láca í
ljosi skoðanir sínar? Eg neita því.
Með skoðunum sínum geta menn
haft skaðleg áhrif á aðra, en það
kemur niður á þeim sjálfum, ef
þeir eta eða drekka eitthvað, sem
er þeim skaðlegt. Annars er ekki
hægt að gera greinarmun á þessu
tveunu, hvorutveggja er sama eðl-
is, og hvorugt má skerða.