Morgunblaðið - 09.06.1932, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.06.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐTÐ l SHorgunblaíM Útsef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Rltstjörar: Jön KJartanaaon. Valtýr Stef&naaon. Rltatjörn og afgrelCala: Auaturatrætl 8. — Slaal (00. AuKlýalnBaatJörl: H. Hafberar. Augrlýalngraakrlfatofa: Auaturatrætl 17. — Slaal 700. Helmasfmar: Jön KJartanaaon nr. 742. Valtýr Stef&naaon nr. 1220. B. Hafberg nr. 770. ÁakrlftagrJald: Innanlanda kr. 2.00 & m&nuOl. Utanlanda kr. 2.S0 & aa&nutll. 1 lauaaaölu 10 aura alntaklB. 20 aura maS Lesbök. 2. LandsDing kvenna iófet hjer í Eeykjavík mánudag- inn þ. 6. þ. m. Fulltrúar mættu frá þessum fjelögum: Bandalagi kvenna í Reykjavík, samböndum norðlenskra, austfirskra, sunn- lenskra og vestfirskra kvenna; .samböndum kvenna í Borgarfjarð- ar og Mýrasýslu, í Gullbringu- og Kjósarsýslu og sambandi breið- firskra kvenna. Al'ls mættu 15 full- trúar á þinginu. Landsþing þetta liefir liaft mörg merkileg mál á dagskrá sinni, sem stjórn kvenfjelagasambands Is- lands, fulltrúar sambandanna og barnaverndarnefnd þjóðkirkjunn- ar hafa borið fram. Þinginu verður slitið í dag. í þinglokin fara fulltrúar þingsins austur í Þrastalund. Bæjarstjórn Reykjavíkur býður í þá ferð. 1 gær bauð kvenfjelaga samband íslands þingfulltrúum og nokkur- «m gestum austur á Þingvöll. f?órólfur nóði Islanöi á flot. Skipið heldur ferð sínni áfram. (Símfrjett frá Siglufirði), míðvikudag. Togarinn Þórólfur kom að Siglu- Resi um kl. 10 á þriðjudagskvöld, þar sem Is'land stóð á grunni. Setti Þórólfur strax víra út í ísland. En ekki var reynt að losa skipið ,af grunni fvrri en um miðnætti, að háflóð var. Þá tókst Þórólfi að draga ísland á flot. Togarinn Venus kom um það leyti á strandstaðinn. En vírar voru ekki komnir þaðan í ísland, «r það losnaði. Kl. 12y2 aðfaranótt miðvikudags var Island komið hjer að bryggju á Siglufirði. Það mun hafa vifljað til happs, að botn var sljettur þar sem skip- ið stóð, en vita bárulaust allan tímann. Leki kom enginn að skip- ísland fór hjeðan frá Siglu- firði kl. 10 á miðvikudagsmorgun áleiðis til Reykjavíkuc. Þjóðverjar spara. Berlín 8. júní. United Press. FB. v. Papenstjórnin liefir ákveðið að gera ráðstafanir til enn meiri lækkunar ríkisútgjalda en gert er ráð fyrir í fjárlagauppkasti Brún- ings. Meðal annars er gert ráð fyrir að lækka atvinnuleysisstyrki og leggja á nýjan 1% skatt á þá, sem hafa föst laun. Fjársukkið mikla. Fáein sýnishorn af meðferð stjórnarinnar á fje almenn- ings árið 1930. XXIII. Landbnúaðarnefndin. Sextugasta og önnur athuga- semd yfirskoðunarmanna er svo- hljóðandi: „Milliþinganefndin í landbúnað- armálum mun hafa lokið störfum og hefir fengið greitt úr ríkis* sjóði kr. 41.000.00 árin 1927—1930. Fyrir þessari upphæð hafa áhn ekki verið gerð reikningsskil, að því er yfirskoðunarmönnum er tjáð, og óskast reikningur iltveg- aður og sendur með svarinu“. Formaður nefndarinnar, Jörund- ur Brynjólfsson alþm. samdi svo reikning og fengu yfirskoðunar- menn hann í hendur. Um hann segja yfirskoðunarmenn: „Reikningur formanns sýnir, að auk þess sem talið er í aths., hafa verið greiddar 1500 kr. á árinu 1931. Kostnaðurinn sundurliðast þannig: Greitt Jör. Brynjólfs- syni ............... kr. 17.086.45 Greitt Bernh. Stefáns- syni ...........• - • • — 13.000.00 Greitt Þórarni Jóns- syni ............... — 10.700.00 Bílferðir ............. — 350.00 Prentun, vjelritun, að- stoð, bækur, ritföng — 1.363.35 Kr. 42.500.00“. Þessi milliþinganefnd hefir þann ig kostað ríkissjóð 42.500 kr. Eigi er blaðinu kunnugt, hvort nefnd þessi Iieldur enn áfram störfum. Alment var talið, að nefndin hefði hætt störfum 1930; það hafa og yfirskoðunarmenn LR. álitið, svo se,m sjá má af atlis. þeirra. En þegar formaður nefndarinnar send- ir reikningana kemur í Ijós, að 1500 kr. bætast við árið 1931. — Máske bætist enn við rífleg fúlga á yfirstandandi ári. Um störf þess- arar milliþinganefndar skal eigi fjölyrt hjer að þessu sinni, enda hefir það áður verið gert. Þó má geta þess, sem reyndar alkunnugt er, að enn hefir Alþingi ekki feng- ist til að samþykkja eitt einasta frumvarp, sem máli skiftir, frá þessari nefnd. Frv. til ábúðarlaga lág enn fyrir síðasta þingi og um- turnað þar, uns það dagaði uppi. Frv. um sauðfjármörk kom einnig enn á ný fyrir síðasta þing, en var vísað til stjórnarinnar o. s. frv. Það er engin smáræðisfúlga sem farið hefir í alt nefndafargan „Framsóknar“-stjórnarinnar. Á ár- unum 1927—1930 var kostnaðurinn ai þessu nefndafári yfir 132 þús. króna. Þetta er mikið fje. En til- finnanlegast er þó það, að lang- mestu af þessu fje hefir verið al- gerlega á glæ kastað. XXIV. Reikningpf ærslan. Sextúgasta og fimta athugasemd yfirskoðunarmanna er svohljóð- andi: „Af skjölum ríkisfjehirslunnar sjest, að á árinu 1930 hafa kr. 281.302.64 verið greiddar úr ríkis- sjóði gegn endurgreiðslu 1931. — Þessi upphæð er talin í sjóði pr. 31. des. 1930. — Svo að segja öll þessi uppliæð hefir verið færð yfir á árið 1931 og er í henni fólgið meðal annars: a. Byggingarkostn. á Reykjum í Ölfusi kr. 30.000.00 b. Til skóla á Hall- ormsstað .........— 17.000.00 c. Fyrir 3 snjóbíla .. — 49.680.00 Hvers vegna liafa þessar fjár- hæðir ekki verið færðar til gjalda 1930?“ Svar stjórnarinnar er á þessa leið : „a. Byggingarfje var heimilað með 22. gr. XI. fjárlaga fyrir 1931. b. Þessar kr. 17.000.00 til liús- mæðraskólans á Hallormsstað voru greiddar þegar á árinu 1930, vegna þess, að skólinn þurfti að komast sem fyrst upp, en fjárveiting ársins bú- in, og þótti þá rjett að fara ekki fram úr því, sem fjárlög heimiluðu, heldur verja til skólans fjárveitingunni 1931 og var því upphæðin greidd gegn endurgreiðslu á tilsvar- andi fjárlagalið 1931. c. Snjóbifreiðar þessar voru keyptar í desember 1930 og greiddar þá, en þar sem heim- ild til kaupa á slíkum bifreið- um er í 22. gr. V. í fjárlögum 1931, þótti rjett að .færa greiðsluna fyrir þær yfir á það ár“. — Yfirskoðunarmenn svara þessu þannig: „Þessar færslur milli ára virð- ast ekki vera í samræmi við nið- urlag þingsál., sem samþykt var á sumarþinginu 1931. Aths. er því til athugunar framvegis' ‘. Þessi reikningsfærsla, að flytja stórar greiðslur frá einu ári til þess næsta, byrjaði í stórum stíl á árinu 1929. Þá flutti „Fram- sóknar“-stjórnin yfir miljón krón- ur af útgjöldum þess árs yfir á árið 1930. Hefir fyrv. stjórn með þessu viljað fela nokkuð af eyðsl- unni. Yfirskoðunarmenn LR 1929 víttu þetta framferði harðlega. Og á sumarþinginu í fyrra flutti fjár- hagsnefnd Nd. þingsályktunartil- lögu, þar sem m. a. var skorað á stjórnina: „Að færa greiðslur (tekjur og gjöld) á reikning þess árs, sem þær tilheyra að rjettu lagi, eftir því sem við má koma“. En stjórnin hefir ekki sint þessari áskorun betur en það, að hún færir enn stórar fúlgur af greiðslum rík- issjóðs 1930 yfir á árið 1931. Þetta framf erði „Framsóknar‘ * - stjórnarinnar er í raun og veru ekkert annað en fölsun á lands- reikningnum. Og það er ekkert 6- viljaverk, sem stjórnin var hjer að fremja. Hún gekk vitandi vits að verki, og framdi verknaðinn í þeim tilgangi, að sýna hag ríkissjóðs betri í árslok en hann í raun og verit var. — Slík reikningsfærsla sem þessi er stór- háskaleg. Ómögulegt verður fyrir kjósendur að vita, hvernig fjár- hagur ríbissjóðs er. óráðvönd og hlutdræg ríkissjórn getur látið sýnast sem um tekjuafgang sje að ræða, enda þótt stórkostlegur tekjuhalli sje í raun og veru, svo sem átti sjer stað árið 1929. Þessi rcikningsfölsun er ein af hinum mörgu fjármálasyndum fyrverandi stjórnar, sem þjóðin verður að taka hart á. Meira. Síra Friðrik Hallgrímsson sextugur. I dag, þegar síra Friðrik Hall- grímsson fyllir sjötta tuginn, geri jeg ráð fyrir því, að vjer sjeum ekki fáir, sem minnumst hans með hlýleika og þakklæti, ekki aðeins hjer í Reykjavík, heldur einnig víðsvegar úti um land. Því að síra Friðrik er þjóðkunnur maður, bæði fyrir útvarpsprjedikanir sín- ar og aðra liirkjulega starfsemi, og þá ekki síður fyrir störf sín fyrir börnin, barnaguðsþjónustur, barnasögur sagðar í útvarp, bók sína til leiðbeiningar við kristin- dómsfræðslu unglinga o. fl. En hans verður í dag eflaust einnig minst með vinarhug og velvild meðal landa vorra í Yest- urheimi, þar sem hann vann ágætt prestsstarf um nálega 22 ára skeið. Alls eru prestsskaparár hans orðin 34. Hann vígðist prestur Laugarnesspítala 1898, en varð næsta ár prestur á Utskálum og þjónaði því prestakalli til ársins 1903. Þá fluttist hann til Ame- ríku og gerðist prestur landa vorra í Argyle í Manitoba í Kanada og þjónaði þar til ársins 1925, þeg- ar hann sem kjörinn prestur við Dómkirkjuna fluttist aftur heim til fæðingarstaðar síns. Því að hjer er síra Friðrik borinn og barn- fæddur, eins og kunnugt er, elst- ur barna Hallgríms biskups Sveins- sonar og konu hans, Elínu (f. Feveile), sem enn lifir hjer meðal barna sinna háölduð (á 85. ald- ursári) og mikilsmetin. Jeg kyntist Fr. H. á skólaárum mínum hjer heima, en þó einkum á háskólaárum okkar í Kaup- mannahöfn, þar sem þeir bjuggu saman frændumir, hann og Har- aldur Níelsson. Það var gaman að vera með þeim, því að bæði áttum við nóg sameiginleg áhuga- mál að tala um, og svo var fjörið og ástúðin hjá þeim bændum. Það sem mest einkendi Fr. H. var glaðværðin og bjartsýnin; altaf bjart- yfir honum og ekkert virt- ist skyggja á framtíðarbrautina. Hann var eins og fæddur til að verða gæfumaður. Enda hefir hann verið það um æfina. Hann hefir notið gæfu heimilislífsins í sam- búð við hjartkæra konu sína, Bent- ínu Björnsdóttur frá Búlandsnesi við Djúpavog, er hann gekk að eiga árið 1900. Og heimili þeirra hefir ávalt laðað marga að sjer sakir framúrskarandi gestrisni og alúðar. Börn hafa þau eignast 5. eru 4 þeirra hjer heima, 1 sonur og 3 dætur, en ein d'óttir gift ensk- um manni í Winnipeg. En síra Friðrik hefir einnig verið gæfu- maður í lífsstarfi sínu. Hann hefir verið í því með lífi og sál og reynst þar mikilvirkur. Þrátt fyr- ir hið mikla annríki síðustu ára, hefir honum unnist. tími til að gefa út bækur. „Píslarsagan, ásamt stuttum skýringum og sjö föstu- hugleiðingum“ kom út eftir hann 1929; 1930 gaf hann út „Kristin fræði. Bók handa fermingarbörn- um“, en 1931 „Sögur handa börn- um og unglingum.11 En í Ame- ríku gaf liann út biblíusögur 1919. Einnig var hann skrifari hins ev- angelisk-lúterska kirkjufjelags ís- lendinga í Vesturlieimi í 21 ár, og vann þar mikið og gott starf. Vjer vinir síra Friðriks, sem unnið höfum með honum að kirbj- unnar málum fyr og síðar, vitum best, hve samvinnuþýður hann er og sanngjarn í öllum málum, og fullur af áhuga fvrir öllu því, er hanu hyggur að til góðs megi leiða. Alls staðar er hann góður liðsmaður, en þó hygg jeg að hvergi njóti hann sín betur en í starfi sínu fyrir börnin. — Jeg hefi oft dáðst að mörgu í prest- legri starfsemi síra Friðriks, en þó ef til vill mest að því, hve vel honum getiír tekist ~að tala við barna h æfi og á þann hátt, að á- hugi vakni og hug barnanna sje beint inn á hollar og göfugar brautir. Jeg vona, að kirkja vor megi sem lengst njóta starfskrafta síra Friðriks og að hann ávalt megi vera bjartsýnn og glaður í anda. Svo flyt jeg honum á þessum tímamótum í lífi hans bestu þakkir fyrir vináttu og samstarf, og óska honum og ástvinum hans allra heilla í framtíðinni. S. P. S. Frá Spáni. Corunna 8. júní. United Press. FB. Frekari óeirðir hafa orðið og nokkurt manntjón að undanförnu eða frá því allsherjarverkfall hófet í Ferrol fyrir nokkuru síðan. — Óeirðasamt er nú vfirleitt í Gali- cia. — (Galicia er landshluti á Spáni, norðvesturhluta landsins). Grænland og vísindamennirnir. Höfn 8. júní. United Press. FB. Fjárliagsnefnd fólksþingsins hef- ir fallist á. tillögu siglingamála- ráðuneytisins um að veita öllum þéim vísindamönnum frítt far til Grænlands, er ætla þangað til þess .að starfa afj vísindalegum athug- unum, sem alþjóðasamvinna er uin. Kreppuráðstaf anir í U. S. A. Washington 8. júní. United. Press. FB. Fulltrúadeild þjóðþingsins hefir felt frumvarp Hoovers forseta til þess að ráða bót á atvinnuleysinu, en því næst samþvkt frumvarp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.