Morgunblaðið - 03.01.1936, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.01.1936, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Bruninn í Framh. af 2. síðu. Þá er þar kominn maður með Ragnar Ásmundsson, er hafði feng ið djúpt sár á læri af glerbroti. Lagði hann Ragnar á húströpp- umar og bað lækni að hafa hrað- ann á. Blóðferillinn lá frá brunastaðn- nm að bústað læknisins. En Ragn- ar fell í öngvit þar í höndum læknisins, er brátt stemdi blóð- rásina. Áður en varði var vinnustofa læknisins orðin troðfull af fólki, ungum og gömlum með brunasár og sárar kvalir. Sótugir vora flest- ir út úr eldinum og afskaplega illa til reika. Varð þar margt að gera á stuttum tíma, en margar hendur til hjálpar er frá leið. Hventig aðkoman var. Guðmundur Guðmundsson odd- viti hefir látið blaðinu í tje eftir- farandi frásögn. Jeg var staddur í .einu af næstu húsum. Þegar jeg gekk þar inn, leit jeg til samkomuhússins og sá ekkert athugavert. Jeg hafði vart dvalið þar meira en fimm mínútur, þegar maður kemur ofan af loftinu og segir að kviknað sje í samkömuhúsinu. Rauk jeg þá út og var húsið þá að sjá alelda og þeir komnir út, sem björguðust. Blasti þá við hin hörmulegasta sjón. Tíu ára stúlka kemur hlaup- andi í brunnum klæðum, hljóð- andi af kvölum og ótta. Tólf ára drengur æðir grátandi um, því fóstra hans og eina at- hvarf var að brenna inni. Hafði hún hlaupið inn aftur í húsið til að ná í drenginn, sem hún vissi ekki að var kominn út. Tveir gamlir meUn leita og spyrja. Annar fann konuna sína, eT áður var að mestu blind, hættulega brunna í næsta húsi. Foreldrar og systkini koma hlaupandi úr öllum áttum. Kvíð- inn og óttinn lýsa sjer í orðum og látbragði. Allir spyrja um börn sín og systkini. Sumir finna þau, aðrir ekki og halda leitinni áfram. Jeg er líka á hlaupum. Stjúpdóttir mín var við veitingar í húsinu og drengurinn minn, Ól- afur, var á skemtuninni. Eftir stund hitti jeg hana ótta- slegna. Við spyrjum hvort annað samtímis: „Hefirðu sjeð hann Óla?“ „Nei“. Við hlaupum áfram sitt í hvora áttina, spyrjum og spyrjum. Einhver hafði sjeð hann, en það var ekki víst og því var ekki að treysta. Við höldum leitinni áfram og þegar sýnt var, að hann var ekki finnanlegur í nánd við bruna- stöðvarnar, hlupum við heim. Hann var einn þeirra, er komust niðúr í kjallarann og út bakdyra- megin. í dauðans ofhoði hljóp hann beint heim. Jeg sný aftur í skyndi til eld- stöðvanna. Þar heldur enn áfram sama leitin. Fjöldi manna hleyp- ur hús úr húsi og spyr og spyr. Óttinn og vonleysið fara vax- andi, eftir því sem lengra líður. Örlögin verða ekki umflúin. Sex manns hafa brunnið inni, tvær Keflavfk. konur og fjögur börn. Sorg og söknuði foreldra og aðstandenda fá engin orð lýst. Fæstum var svefnsamt hjer þessa nótt þó tilraun gerðu til að sofa. Margir voru á ferli þangað til að kvöldi hins næsta dags. Hjá Helga lækni Guðmunds- syni var örtröð alla nóttina til að spyrja um þá sem vantaði, leita læknanna og bjóða aðstoð sína, því allir voru boðnir og.hún ir til hjálpar. Þeir, sem dáið hafa. Kl. 2 um nóttina voru menn orðnir þess fullvissir hverjir hefðu brunnið inni. Þeir sem inni brunnu voru: Guðrún Eiríksdóttir, 56 ára að aldri. Bjó hún með Bjama Þorsteinssyni, sem er mjög við aldur og lasburða orðinn. Höfðu á fóstri drenginn Guðbjörn Her- mannsson. Hin konan var Kristín Halldórsdóttir, 76 ára gömul. Flutti hún fyrir nokkrum árum vestan úr Dalasýslu, og var nú hjá dóttur sinni Vigdísi Guð- brandsdóttur. Börnin, sem fórust í e'ldinum voru þessi: Loftur 10 ára gamall, sonur Kristins Jónssonar frá Loftsstöðum, Borgar 5 ára, sonur Björns Guðbrandssonar. Guðbjörg 7 ára, dóttir ekkjunnar Stefaníu Vilhjálmsdóttur og Solveig, 7 ára, dóttir Guðmundar Guðmundsson- ar, er flutti til Keflavíkur frá Bala á Miðnesi fyrir mánuði síðan. Auk þessara eru dáin af bruna- sárum: Anna, 10 ára, dóttir Guð- mundar Gíslasonar, og Árni, sonur Júlíusar Vigfússonar í Hlíð í Ytri-Njarðvíkum. Alt voru þetta hin efnilegustu börn. Dáin er einnig á Hafnarfjarðarspítala, Þóra Eyjólfsdóttir, kona Gamalí- els Jónssonar, 65 ára að aldri. Uppgröftur líkanna. Á gamlársdagsmorgun var grafið í rústum samkomuhússins eftir líkunum. Fundust þau brátt. Þau voru mjög brunnin flest. Lík þeirra bamanna þriggja, Lofts, Guðbjargar Sigurðard, og Solveigar Guðmundsdóttur urðu ekki nafngreind. Þau voru lögð í sömu kistu. En lík kvennanna þektust á smáhlutum er þær höfðu haft í vösum sínum, og á fataleifum, svo og lík drengsins Borgars Björns- sonar. 10 sjúklingar era nú á spítölum, flestir í Landakoti, og eru sumir þeirra allþungt haldnir enn. Bágar ástæður hjá hinu Taunamædda fólki. Morgunblaðið hefir spurst fyrir um ástæður þesas fólks, sem varð fyrir hinum þunga harmi við brunann. Hefir blaðið fengið eftirfarandi upplýsingar frá oddvita hrepps- nefndar. Björn Guðbrandsson er fátæk- uí verkamaður. Hann misti móð- ur sína og son í brunanum. Hann á 5 böm og hefir fyrir aldraðri tengdamóður að sjá. Tveir dretig- ir hans liggja nú veikir, annar af brunasárum, en hinn hefir legið í mánuð. Fátæk ekkja, sem á 5 hörn inn- an við fermingu, hefir nú rúm- fastan 11 ára dreng er brendist mikið. Onnur fátæk ekkja með 3 born innan við fermingu á nú 2 syni skaðbrenda á spítala. Þriðja ekkjan með þrjár dætur allar innan við 10 ára aldur, misti dóttur sína í brunanum. Tvö böm fátækra foreldra hrunnu mikið, drengur á spítala, dóttir liggur rúmföst heima. Svipaðar sögur má segja frá fleiri heimilum. Veikindakostnaður fyrir þessi fátæku heimili verður mikill. Brunasár gróa seint. Því hefir hreppsnefnd Keflavík- ur sent blaðinu eftirfarandi á- varp til birtingar, þar sem hún beinir áskorun um hjálp til al- mennings, því hún telur að nauð- syn beri til, að þessum heimilum verði hjálpað í hinum þungbæru raunum þeirra. W Avarp til hreppsbúa !rá hreppsnefnd Keflavíkur. Samkomuhússbruninn í Keflavík hinn 30. þ m. er einstæður sorgaratburður í sögu okkar hrepps- fjelags. Fjögur börn og tvær konur brunnu inni, þrett- án voru fluttir í sárum á sjúkrahús, þar af eru tvö böm og öldmð kona dáin, en tólf eru minna brunn- ir ,heima Þeirra, sem mest brunnu, bíður langvarandi sjúkrahússvist. Harmi lostnir kvöddu hreppsbúar hið liðna ár. Syrgjendur hinna látnu og aðstandendur hinna sjúku heilsa hinu komandi með sorg og kvíða. Ástvinamissinn getum við ekki bætt, en sorg- ina og áhyggjumar má ljetta hinum sjúku, þjáðu og fátæku með hjálpsemi, samúð og fjárstyrk. Hreppsnefndin væntir þess að þeir, sem ham- ingjan hefir forðað frá þessum áföllum, bregðist rú vel við og rjetti hjálparhönd með því að láta af mörkum nokkrar krónur, eftir efnum og ástæðum. Keflavík, 1. janúar 1936. F.h. hreppsnefndarinnar. Guðmundur Guðmundsson. Tekið á móti samskotafje á afgreiðslu Morgunblaðsins. ðlæði á gamlársKvöld. Framhald af bls. 3. Pósthússtrætis og var öll um- ferð gangangi manna stöðvuð um þær götur, sem liggja að lögreglustöðinni. óvenju mikið um ölvaða menn. Svo að segja alla nóttina var lögreglan á þönum, bæði við að koma reglu á götuumferðina og þá sjerstaklega við að að- stoða fólk vegna yfirgangs ölv- aðra manna. Mun aldrei hafa verið jafn mikið um ölvaða menn hjer í bænum og þetta kvöld. Á tveimur klukkutímum, frá 2l/2—4V2 um nóttina, var lög- reglan kölluð 22 sinum vegna ölvaðra manna. Hafði lögreglan 3—4 bíla í gangi fullmannaða. Engin stórmeiðsli urðu á mönnum þessa nótt, en margir fengu „glóðaraugu" og smá- skrámur í handalögmáli. Áfengisverslunin opnuð. Strax þegar það frjettist um morguninn á gamlársdag að bílstjóraverkfallinu væri lokið fór að kvisast um bæinn að Áfengisverslun ríkisins myndi verða. opnuð. Starfsmenn verslunarinnar voru viðbúnir og um kl. 10 mun hafa komið skipun úr Stjórnar- ráðinu að opna verslunina. Streymdu menn nú í hundr- aða tali að vínversluninni og komust færri að en vildu. Varð að hafa lögregluvörð við dyrn- ar og var mönnum síðan hleypt inn í smáhópum. En hópurinn, sem beið fyrir utan, minkaði lítið og urðu margir frá að hverfa án þess að hafa náð í það sem þeir ætluðu að kaupa. Dæmi er til að menn hafi biðið í tvo klukkutíma áð- ur en þeim tókst að komast inn í verslunina. Virðist sú ráðstöfun ríkis- stjórnarinnar harla undarleg, að fara að opna vínútsöluna á gamlársdag, eftir að hafa haft lokað í meira en viku. Er líkast því, sem stjórnin hafi beinlínis verið að stofna til ærsla og ó- eirða á gamlárskvöld. Glímufjelagið Ármann á 30 ára afmæli þriðjudaginn 7. þ. m. Af- mælisins minst með samsæti í Iðnó þann dag og hefst það kl. 9 stundvíslega. Til skemtunar verð- ur: Söngur, kvartett, glímusýn- ing, leikfimissýning (úrvalsflokk- ur karla) og dans. Áskriftalistar liggja frammi hjá Þórarni Magn- ússyni, afgreiðslu Álafoss, skrif- stofu S j óvátryggingarf j elagsins, skrifstofu Olíuverslunar Islands og á skrifstofu Ármanns. Skemt- unin er aðeins fyrir f jelagsmenn. Föstudaginn 3. janúar 1936,. Linsur. Baunir með hýði. do. Viktoria. do. hvitar. do. brúnar. áo. grænar. Pást í er besta það besta fáanlega. Þurkaðir og nýir ávextir í fjföl- breyttu úrvali. ióbannes Jóhannsson, Grundarstíg 2. Bími 4131. Bækur Sagan um San Michele. íslensk fornrit, Egilssaga, Laxdæla og Eyrbyggja. Ennfremur úrval af nýjum bókum. Bókaverslun Þór. B. Þorlákssonar Bankastræti 11. Sími 3359. Lottárás Itala, Framh. af 3. síðu. eð Abyssiníumenn háfi drepið tvo ítalska flug- menn sem hafi orðið að nauðlenda. Abyssiníumenn hafi skilið höfuð flugmann- anna frá búknum og borið höfuðin á stöngum í sigur- för til Harrar. Árásinni hafi ekki verið beint gegn Rauðakrossi, en hitt sje kunnugt, að herforingjar Ábys3 iníumanna flýi oft í tjöld Rauðakrossins. * Haile Selassie mótinælir. Keisarinn í Abyssiníu hefir sent mótmæli til Þjóðabanda- lagsins, vegna árásarinnar á Rauðakross-vagninn. Páll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.