Morgunblaðið - 01.05.1936, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.05.1936, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Föstudaginn 1. maí 1936, að láta rannsaka sfmanjósnamálin. PEAMH. AP ÞRIÐJU S£ÐU. ]pgðu áherslu á það augljósa mál, að ef ríkisstjórnin telur %ð hún og starfsmenn hennar sieuí hreinir í þessu máli, og hafi orðið fyrir órökstuddum gtun um ósöemilegt athæfi, og hrot á landslögum, þá átti sfjórnin að grípa tækifærið og styðja tillögu Sjálfstæðismanna um rannsóknarnefnd. ^ En úr því stjórnin tekur upp handjárnin og lætur alla fylg- ismenn sína snúast gegn rann- Sðkn málsins, vinna gegn því, áð sannleikurinn verði leiddur í ljós, þá eru ráðherramir með því að færa sönnur á það frammi fyrir þjóðina, að þeir vita um sekt sína, og þora ekki að' mál þetta verði rannsakað. Það er eins og Sig. Kr. komst að orði: Enginn maður, sem er ekki keyptur eða kúgaður, leggur stjóminni lið í þessu máli. Hringlar í hand- járnunum. „Dagskráin“ samþykt. Atkvæðagreiðsla um þetta mál fór fram í gær. Fyrst kom til atkv. hin „rök- studda""' dagskrá, seifi Stefán JÓh. Stefánsson gekst að síð- ustu við. Hún var samþykt með 17:13 atkv. og þingsályktunar- illagan sjálf þar með úr sög- unni. • Nafnakall var viðhaft um dagskrána. Til þess að það sjá- ist hvernig þingmenn snúast í þessu máli, þykir rjett að birta hjer atkvæðagreiðsluna í heilu lagi. Með dagskrártillögunni var öll stjórnarfylkingin og í þess- ‘ari röð: Sitefán Jóh. Stefánsson, Þorbergur Þorleifsson, Ásgeir Ásgeirsson, Bjarni Ásgeirsson, Bjarni Bjarnason, Emil Jóns- spn, Eysteinn Jónsson, Finnur Jónsson, Gísli Guðmudsson, íljeðinn Valdimarsson, Jónas Guðmundsson, Magnús Torfa- son, Páll Zophoníasson, Páil Þorbjörnsson, Sigfús Jónsson, Sigurður Einarsson og Jörund- ur Brynjólfsson. Á móti voru: Sigurður Krist- jánss'on, Thor Thors, Eiríkur Einarsson, Garðar Þorsteinsson, Gísli Sveinsson, Guðbr. ísberg, Jak. Möller, Jóhann Jósefsson, Jón.Pálmason, Jón Sigurðsson, Ölafur Thors, Pjetur Halldórs- í-on og Pjetur Ottesen. Fjarverandi voru: Bergur Jönsson (erlendis), Hannes Jénsson og Jón Ólafsson, sem voru fjarverandi sakir lasleika. Lifur og hjðrtu Bögglasmjör Tólg. PMl HaMnH. Ilafnarstræti 18. Sími 1575. Bretar byggja 38 ný herskip. 10 miljónir £ til aukinna flotaútgjalda. Londan 30. apríl. FÚ ILLÖGUR hafa ver- ið lagðar fyrir breska þingið, sem fara fram á að 10 miljónum sterlingspunda verði varið til flotaþarfa um- fram áætlaðar upphæð- ir, og að 38 ný skip verði bygð handa flotanum. Þrem miljónum ster- lingspunda á að verja til nýrra skipabygginga, og 2 miljónum til flota- stöðvarinnar í Singa- pore. Aðalatriðin í herskipasmíða- áætlun fyrir árið 1936, eru á þá leið, að byggja skuli tvö stór orustuskip, fimm beitiskip, tvo tundurspilla, níu flugvjelamæð ur og sex torpedo-báta. Þar að auki fara fram ýmsar endur- bætur og breytingar á öðrum skipum, og útbúnaði þeirra, þ. á. m. togara, sem nota á til hernaðarþarfa. Frakkar. Meðal franskra flotamála- sjerfræðinga, er frjettunum um þessa útgjaldaaukningu tekið mjög vel. Eina óvinsamlega at- hugasemdin, sem sjest hefir í frönskum blöðum er á þá leið, að þessi aukning breska flot- ans kunni að leiða til aukningar á þýska flotanum. ÞjéSverjar. Berlínarblöðin segja^ að fregnirnar um þessar fyrirætl- anir bresku stjórnarinnar hafi engin áhrif á skipasmíðafyrir- ætlanir Þjóðverja, enda bygg- ist þær á stefnuskrá, sem þegar hafi verið birt. Rússar. Svo er að sjá, sefti Sovjet- Rússland óski nú að gera flota- málasamning við Bretland. — Fulltrúi Sovjet-rússnesku stjórn arinnar heimsótti utanríkismála ráðuneytið fyrir tveimur dög- um, og ræddi þá þetta mál við Eden. Þykir líklegast, að samn- ingur af sömu gerð eins og þrí- velda samningurinn, sem und- irskrifaður var í síða.stliðnum mánuði, verði einnig gerður við Sovjet-Rússland. Spaðsallað Dilkakföf í heilum og hálfum tunnum til sölu hjá Kr. 0. Skagtjörð Sími 3647. Orgeltónleikar Páls ísólfssonar. Við hefði mátt búast, að hver sæti væri skipað í Frí- kirkjunni á þirðjudagskvöldið, er þessi mikli listamaður vor mintist 10 ára starfs síns við kirkjuna, og um leið heilsaði ný byrjuðu sumri með hinum vold- ugu tónum J. S. Bach’s: C-moll preludium og fúgu, og C-dúr Toccötu, adagio og fúgu hins mikla meistara. Niðri í kirkj- unni vaj, þunnskipað, en uppi Var góð aðsókn. Hvar voru alL ir hinir mörgu músíkvinir bæj- arins, og hvar var Fríkirkju- söfnuðurinn sjálfur þessa minn- isstæðu kvöldstund? Jeg treysti mjer til að fullyrða, að alt það fólk fór þarna á mis við mikla unun ög nautn listar. Það mátti þegar í upphafi tónleikanna heyra, að Páll ísólfsson tók föstum og framúrskarandi smekklegum tökum öll við- fangsefnin, en auk hinna fyr- nefndu stórverka ljek hann með snild hið stórfenglega tónverk César Franck’s, E-dur Choral nr. 1 og Kyrie eleison Max Reg- ér’s og loks D-dúr Toccötu og fúga eftir sáma tönsnilling. -—- Efnisskráin var einhver hin besta, sem hjer hefir heyrst við kirkjuhljómleika, og ekki spilti það fyrir, að Páll ísólfs- son Ijek öll þessi stórverk, hvert á fætur öðru, með litlum eða nær því engum hvíldum, svo að fegurðaráhrif þeirra, hvers um sig, rann saman í eina feg- urðarheild, sem áheyrendur hans munu seint gleyma. Leikur Páls var frá upphafi til enda aðdáanlegur; hann var djarfur, fastur, voldugur og ör- uggur, ósegjanlega mjúkur og smekkvís á viðkvæmum köfl- íim; bar hann þess ljósan vott um hvílíkur afburðamaður Páll er við hljómborðið og „pedal- ana“. Það sýndi sig einnig, að orgel Fríkirkjunnar er hið á- gætasta hljóðfæri, þegar meist- ari tekur á því. Hljómleikar þessir báru vott um feikna kunnáttu, þroska, fimleik og smekkvísi Páls ísólfssonar. Reykjavíkurbær má miklast af, að njóta svo góðs listamanns | og bæta ráð sitt með því, að |fylla hvert sæti kirkjunnar er í boði. 29. 4. ’36. Á. Th. Páll Guðnason frá Máskoti í Reykjadal andaðist vestan hafs í vetur. Hann var fæddur 1883 og voru foreldrar hans Guðni Jónsson og Sigríður Kristófers- dóttir. Þau fóru vestur uin haf 1893 með böm sín. Ilafnarfjörður Fimtudaginn, 30. apríl. Sparisjóður Hafnarfjarðar helt aðalfund sinn 27. þessa mán. Hagur Sparisjóðsins er mjög góður. Yiðskiftavelta hans nam árið sem leið rúmum fimm miljón- um króna. Hreinn arður af spari- sjóðsrekstrinum varð kr. 18.010.17 síðasta ár. 1 árslok 1935 nam vara sjóður Sparisjóðsins kr. 206.406.50. í stjórn sjóðsins voru kosnir: Þórður Edilonsson hjeraðslæknir, Sigurgeir Gíslason gjaldkeri og Ólafur Böðvarsson bókhaldari, all- ir endurkosnir. f stjórninni eiga sæti, auk þelrrá, Loftur Bjarnason útgerðarmaður og Emil Jónsson bæjarstjóri, og eru þeir kosnir af bæjarstjórn. — Endurskoðendur sjóðsins eru Ingólfur Flygenring kaupmaður og Guðmundur Gissur- arson bæjarfuRtrúi. Höfnin. Haukanes kom >af veíðum í morgun með 69<rföt lifrar. Slripið fer ekki aftur á veiðar. Krónuveltan. Hjer birtast fyrstu nÖfnin í krónu- veltu kvenfjelagsins „Hringurinn" í Hafnarfirði. — Nöfn áskorenda eru prentuð með feitu letri, en nöfn þeirra, sem skorað er á, undir með grönnu letri. Frú Ingileif Sigurðardóttir, Hábœ: Þórð Edilonsson, lækni, Hf. Emil Jónssoii, bæjarstjóra, Hf. Loft Bjárnason, frámkvæmdastj. Guðrún Eiríksdóttir, Linnetsstíg 2: Stefán Sigurðsson, kaupm., Hf. Síra Jón Auðuns, Hf. Ólaf Þórðarson, skipstjóra. Júliana Jónsdóttir, Hverfisgötu 18: Guðjón Jónsson, kaupmann. Kristinn Guðjónsson, Hf. SVerrir HalldórsS., Landssím., Rvík. Sigríður Eyjólfsdóttir, Lækjargötu: Bjarna Snæbjörnsson, lækni, Hf. Valdimar Stefánsson, bæjarfógeta. Davíð Kristjánsson, trésmið, Hf. Snjólaug Arnadóttir, Austurg.: Gunnlaug Stefánsson, kaupm. Pál Kr. Árnas., versl.fltr., Bárug. 21 Ásgeir Stefánsson, framkv.stj. Arnfríður E. Long: Valdimar Long, kaupmann. Eirík Björnsson, lækni. Síra Garðar Þorsteinsson. Guðbjörg Kristjánsdóttir, GerSi, Hf.: Ásgrím Sigfússon, framkv.stj. S. R. Kampmann, lyfsala. Ólaf Tr. Einarsson, framkv.stj. Hanna Davíðsson, Hf.: Sigriði Bjarnason, Hverfisg., Hf. Ingibjörgu Ögmundsdóttur, símastj. Ásthildi Flygenring, hjúkrunark. Frú Kristín Flygenring, Hf.: Ingólf Flygenring, Hf. Þórunni I. Flygenring, Hf. Láru Pálsdóttur, Brekkug., Hf. María Eiríksd., Krosseyrarv. 3, Hf.: Jóhönnu Indriðad., Linnetsstíg 2. . Helgu Jónsdóttur, Hverfisg. 65. Guðm. Guðmundss., kpm., Oldunni. Þeir, sem hafa í hyggju að koma börnum til sumardvalar, sendi um- sóknir til forstöðukonu „Hringsins", frú Ingileifar Sigurðardóttur, Skúla- skeiði 3, fyrir 15. maí næstkomandi. FIX I sjálfvirkt þvottaefni þvær tauið yðar meðan þjer sofið og hvílist. — AUSTURRIKI. FEAHH. AF ANNARI Slf)U. ar taki frjettunum frá Aust- urríki yfirleitt rólega. í Bretlandi er álitið, að her- flutningarnir eigi rót sínafyrst og fremst að rekja til innan- lands ástandsins í Austurríki sjálfu, og að herafli Austurrík- ismanna ásamt Heimwehr-lið- inu sje nógu öflugur til að bæla niður nazistauppreisn. Auk þess sjeu ftalir fast- ákveðnir í því, að vernda sjálfstæði Austurríkis. Austurríska stjórnin hefir lýst yfir því opinberlega, að herflutningarnir undanfarið hafi farið fram, samkvæmt þeirri venju, að herdeildir sem æft hafi á láglendi, sjeu á vor- in fluttar upp í alpahjeruðin.. Að baki standi engar utanríkis- málahræringar. í opinberri tilkynningu frá. þýsku stjórninini, segir að „að sjálfsögðu fari æfingar alpa- sveitanna fram í Alpafjöllun- um!“ Alþýðusambandið. FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐUj karfaveiðunum fómað, þrát,t fyrir það þó þær myndu skapa atvinnu fyrir 180—200 manns í landi og 90—100 sjómenn á fjórum togur- um, sem liggja aðgexðarlausir i höfn. Alþýðusambandið hefir þannig haft af verkamönnum 4000 krónur á dag, í vinnu- launum á sjó, og landi, og nemur sú upphæð þann tíma sem verkfallið er búið að standa um 60 þúsund krón- um. Alþýðublaðið gleymir(?) í gær að geta um að verkamrtin á Flat- eyri höfnuðu kröfum Alþýðusam- bandsins. Og eins láðist því að. geta um livort sambandið fram- fylgdi hótuninni um að reka verk- lýðsfjelagið „Skjöldnr" úr Al- þýðusambandinu. Eða er ein- hverju leynt 'að yfirlögðu ráði í" þessu máli? Mega verkamenn ekki fá að vita sannleikann ? Rauði Kross íslands tilkynnir: Með gj.afa.br iefi dags. 4. apríí hafa þau hjónin frú Ingunn. Sve'insdóttir og lir. kaupm. Har- aldur Böðvarsson, Akranesi, á- samt hr. útgerðarmanni Lofti Loftssyni, Rvík, gefið Rauða Krossi íslands eitt þúsund fer- metra lóð undir sjúkraskýlis- og haðhúsbyggingu í Sahdgerði. —* Eigendur Sandgerðis hafa frá upphafi sýnt næman skdning á sjómannahjúkrun Rauða Krossins, þar syðra, e'nda hefir fjelagið á margvíslegan. hátt notið greiða- semi þeirra á undanförnúm ár- um. — Sjúkraskýlið verður reist. á þessu ári. (FB). Farsóttir og manndauði í Rvík, vikuna 5.—11. apríl (í svigum töl- ur næstu viku á undan): Háls- bólga 61 (48). Kvefsótt 77 (91). Iðrakvef 17 (2). Mislingar 97 (49). Kveflungnabólga 4 (2). Skarlafssótt 2 (0). Hlaupabóla 4 (2). Munnangur 2 (2). Mannslát 6 (9). — Landlæknisskrifstofan. (FB.).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.