Morgunblaðið - 17.08.1940, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.08.1940, Blaðsíða 7
(1 S:h-- Laugardagur 17. ágúst 1940. 7 flnuiuiimiiiiiiiiiu iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini I Hernaðar- í tfllkyoningar I UHKIIIlllllllllllllllll 11111111111111111111111111 Þýska herstjórnin tilkynnir; iklar loftorustur voru gerðar í fyrradag og í fyrrinótt á hafnir, flugvelli, vopnasmiðjur, loftvarnabelgi og skotvirki á ýmsum stöðum Bret- lands. í loftorustu, sem varð yfir Bretlandi, skaut þýskur flug- maður niður tuttugustu ensku flugvjeJina.Haldið var áfram að varpa út úr flugvjelum tundur- duflum fyrir framan breskar hafnir. Loftárásir Breta á staði í Vestur-Þýskalandi’ ollu ekki teljandi. tjóni. Bretar mistu í gær, að minsta kosti 143 flugvjelar, og voru 106 þeirra skotnar niður í loft- orustum, en hinar með loft- varnabyssum eða eyðilagðar á jörðu. Auk þess voru skotnar niður um 20 breskir loftvarna- belgir. 32 þýskra flugvjela er saknað. Kafbátur hefir sökt tveimur kaupskipum andstæðinganna, samtals 14,000 smálestum. — Nokkrir þýskir tundurduflaleit- arbátar skutu niður 4 af 10 enskum Spitfireflúgvjelum. ítalska herstjórnin tilkynnir: ernaðaraðgerðum er hald- ið áfram af kappi í Breska Somalilandi. Yfir Zeila hefir verið skot- in niður ensk flugvjel. Loftárás sem gerð var á Hacatara og annan bæ Itala í Austur-Afríku, olli litlu tjóni, og fórust þar 4 menn, en 12 særðust. I loftárás ítala voru á einum stað 2 flugvjelar eyðilagðar á jörðu, en ein skotin niður úr lofti. Italskar flugvjelar gerðu loftárás á Malta, skutu niður breska rlufvjel, en allar komu heim aftur. I Norður-Afríku hafa ítalir gert loftárás á járn- brautarlínuna Fuka-Messa Mat- ruk. Breskar flugvjelar hafa enn flogið yfir Svissog gert sprengju árásir á tvo ítalska bæi, og biðu 2 menn bana, en 5 særðust, en annað tjón varð lítið. Ein flug- vjel var skotin niður með loft- varnabyssum, og voru þeir af áhöfninni, sem af komust, tekn- ir höndum. Siglingin til Reykjavfkur Girðingin er í hafnarmynninu Vegna þess ,að sjófarendur hafa verið í vafa um hvern- ig skilja ætti tilkynningu ríkis stjórnarinnar um siglingahættú hjer við Reykjavík, hefir. Morg- unblaðið aflað sjer eftirfarandí upplýsinga. iGirðingin (hooms) er í hafnar- mynninu. Merkin, sem gefin verða þegar girðingin er lokuð, verý> á hafnarhausnum. Merkir «c«.. A degi: Tvær svartar kv .u:. Á nóttu: Hvítt, rautt og hvíti Ijós, þráðbeint hvert upp af öðru. Engin hindrun er á siglingu inn eða út í höfn, nema lokun- armerki hafi verið gefin. Hitt svæðið, frá Seltjarnarnesi til Akraness, sem merkt var á uppdrættinum, er ekki hættulegt til siglinga, en það mun vera hægt að gera það hættulegt á auga- bragði. Á þessu svæði er bannað að leggjast við akkeri eða veiða með hverskonar botnslæðum. Alvarlegt ástand fyrir Breta í Somalilandi ILondon var í gær viðurkent að ástandið væri alvarlegt fyrir Breta í Somalilandi og vel gæti svo farið að bresku her- sveitirnar neyddust til að hörfa til höfuðborgarinnar Berbera. Bretar segja að Italir hafi miklu fleira lið en Bretar og telja þeir tefli fram að minsta kosti tveimur herdeildum (di visions) í sókn sinni í áttina til Berbera. Breskar sprengjuflugvjelar hafa gert árásir á hernaðar- bækistöðvar Itala og herskip á Adenflóa hafa haldið uppi skot- hríð á hersveitir Itala, sem sækja fram með ströndinni frá Zeila til Berbera. Á öðrum vígstöðvum í Afríku er alt sagt rólegt. Reykjavik - Akureyri IHraðferðir alla daga. BiíreiOastöð Akureyrar. Bifreiðastöð Steindórs Þakpappi n ý k o m i n n , 3 þyktir. J. Þorláhsson & Norðmann. Bankastræti 11. — Sími 1280. Loftorusturnar FRAMH. AF ANNARI Sfi)D vjelarnar verið hraktar til baka áður en þær komust inn yfir út- hverfi borgarinnar, en í seinna skiftið hefði þeim tekist að varpa niður sprengjum á út- hverfi London, án þess að valda neinu verulegu tjóni. Nokkrir menn hafi særst og sumir al- varlega. Nokkur hús hafi orðið fyrir sprengjum. FLUGVJELA- TJÓNIÐ I GÆÞ Þá viðurk^nna Bretar árásir á nekk»3> bæi við Thamesár- myrm* og meðfram Thames, þar i: raeðál Tilbury. Seint í gærkvöldi tilkyntu Bretar aS þeir hefðu skot- ið niður í gær 70 þýskar flugvjelar. Sjálfir hefðu þeir mist 17 flugvjelar, en af þeim hafi 10 flugmenn bjargast. Þjóðverjar telja hinsvegar, að þeir hafi skotið niður 56 flug- vjelar fyrir Bretum í 'gær, og mist sjálfir 15. LOFTÁRÁSIR I GÆR Þýsku flugvjelarnar hófu að- alárásir sínar á England um hádegi í gær og hjeldust þær fram á kvöld, en heldur dró úr þeim, og um miðnætti var sagt að með kvöldinu hafi árásirnar verið með minna móti, móts við það, sem verið hefir að kvöld- lagi það sem af er vikunnar. Bretar hjeldu einnig uppi loftárásum á Þýskaland, Frakk- land og Holland og gerðu í gær morgun aðra loftárás á sömu staði í Norður-ltalíu og þeir gerðu aðfaranótt fimtudagsins síðastliðinn. Einnig gerðu ensk- ar flugvjelar loftárásir á höfn- ina í Genúa. Loftárásir voru gerðar á Krupps-vopnaverksmiðjurnar í Essen og aðra hernaðarlega staði í Vestur-Þýskalandi. Lundúnafregnir skýra frá því að fjöldi þýskra flugmanna hafi í gær bjargað sjer í fallhlífum og verið teknir til fanga. Um loftorustnr í fyrradag voru stöðugt að berast. nýjar fregnir fram eftir degi í gær, og segj- ast Bretar hafa skotið niður 169 flugvjelar fyrir Þjóðverjum í fyrradag, en sjálfir aðens mist 32. ITm árásina á Croydonflng- völlinn segja Bretar, að enginn þýskvn: flugmaður hafi sloppið úr þeirrí árás tíl að segja frjettir af þeirri viðureign í heimalandi sínu. ROOSEVELT. FRAMH. AF ANNARI SÉÐD. I London er það hinsvegar viðui’kent, að breska stjórnin sje reiðubúin til að ræða við Bandaríkjastjórn um afnot þess- ara eyja fyrir flugvelli og hern- aðarbækistöðvar í sambandi við landvarnamál Vesturheims. 85 ára verður á morgun ekkjan Kristín Jónsdóttir, Bergþórugötu 15. 85 ára er í dag Signrður Guð- mundsson, Freyjugötu 3 A. Herskipa- tjón Breta 47 skip BRESKA flotamálaráður.eytið birti í gær skýrslu ujm: her- skipatjón Breta frá byrjun styrj- aldarinnar og bar saman tölur þær, sem andstæðingar þeirra hafa gefið upp um tjón breska flotans. Þjóðverjar og ítalxr telja sig hafa sökt 269 breskum kerskip, en breska flotamálaráðuneytið segir, að 47 skipum hafi verið sökt. Bretar hafa orðið fyrir her- skipatjóni sem hjer segir það sem af er styrjöldinni; Orustuskip og örustubeitiskip 1 af 15, sem þeir áttu í ófriðar- byrjun. Þjóðverjar og ítalir segja að þeir bafi sökt 32. Tveimur af sjö flugvjelamóður- skipimi. hefir verið -sökt. Þjóð- verjar cg ítalir segja, að 10 hafi veríð sökt. Bretar hafa mist 3 beitiskip af 62, en Þjóðverjar og ítalir segja, að beitiskipatjónið uemi 83. Dagbók Næturlæknir ei- í nótt Kristín Ólafsdóttir, Ingólfsstræti 14. Sími 2161. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Bifreiðastöðin Bifröst, sími 1608 annast næturakstur næstu uótt. Knattspyrnukappleik frestað. Margir knattspyrnuunnendur hafa komið að máli við blaðið útaf því, hvernig frestun kappleiksins milli Fram og Vals var auglýst í fyrra kvöld. Síðdegisblöðin birtu aug- lýsingar um kappleikinn og tvær tilkynningar vorn lesnar í útvarp, ið rjett fyrir kl. 8 um að leikur-1 inn yrði, en svo loks klukkan rúm lega 8 var auglýst í útvarpínu að leiknum yrði frestað. Fjöldamarg- ir, sem ábuga höfðu fyrir leikn- um, fóru því suður á íþróttavöil ] í ausandi rigningu og vissu ekki fyr en þangað kom, að ekkert yrði af leiknum. Mótanefndin hefði átt að ákveða í tíma, hvort leiknum yrði frestað, til þess að gabba ekki fólk í slæmu veðri út á Mela. Útvarpið í dag: 20.00 Frjettir. 20.30 ITpplestur: Sagan af Sjatar konungi, eftir Þorstein Erlings- son (Sigurður Skúlason mag.). API AVÖXTUM SLÆM OLÍA STELUR BENSÍNI frá hreyflinum. Það er eins og að hafa lekan bensín- geymi. Með Veedol ná stimplarnir fullum krafti, yentlarnir opnast og lokast liðugt. Veedol myndar þunna olíuhimnu um alla hreyíanlega hluti mótors- ins. Þúsundir bifreiðarstjóra um allan heim nota þessa bestu olíu, sem sparar og er ódýr. KAUPIÐ VEEDOL, SPARIÐ BENSÍN EDOL MOTOR OI L THE EXTRA MILEAGE MOTOR OIL... DREGUR ÚR BENSÍNEYÐSLD. Samsæti Þeir, sem vilja taka þátt í samsæti því, er próf. dr. Ágústi H. Bjarnason verður haldið fyrir forgöngu há- skólarektors þriðjudaginn 20. ágúst kl. 7 í Oddfellowhöll- inni, í tilefni af 65 ára afmæli hans, geta ritað nöfn sín á lista í skrifstofu háskólans (kl. 10—12) og í skrifstofu happdrættisins, Vonarstr. 4 (kl. 10—5) í dag og á mánud. *«i.' -* ■’ V . V ^ ' Á" ’•* •• Þökknm auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför konu minnar, móður og dóttur KAROLÍNU guðjónsdóttur thorarensen Jón Thorarensen og börn. María Sigurðardóttir. Guðjón Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.