Morgunblaðið - 22.04.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur.
88. tbl.
Laugardagur 22. apríl 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
V ísitalan
266
KAUPLAGSNEFND og Hag-
ileg sprenging veldur
stórtjóni í Bergen
stofan hafa nú reiknað fram-
færsluvísitöluna fyrir apríl-
mánuð og er hún 266, eða einu
stigi hærri en mars-vísitalan
'var. — Er það ýmislegt (margt
og smátt), sem hefir valdið þess
ari hækkun vísitölunnar. Geta
•má þess, að hækkun sú, sem
varð nýlega á smjöri í útsölu,
■er ekki komin inn í vísitöluna.
Sú hækkun kemur ekki fyr en
í maí-vísitöluna.
Il.b. Rafn sekk-
ur vil fiorna-
fiariarós
Frá hdfninni í Bergen
MOTORBATURINN „Rafn“
frá Siglufirði, strandaði, og'
sökk í gærmorgun við Horna-
fjarðarós. ,
Um kl. 9 árd. í gærmorgun
< Hjer sjest yfir innri hluta „Vogsins“ í Bergen, en hin gai'la-
lián hús, sem sjást í röð neðarlega á myndinni, eru við Þýsku-
í bryggju og urðu á þeim skemdir. Ekki sjást hús þau, sem hrundu,
þau eru lengra út meg voginum til vinstri.
Skotfæraskip sprakk
við Festingskajen
Frá norska blaðafulltrúanum í Reykjavík.
FREGNIR frá Svíþjóð herma, að aftur hafi orðið ægi-
leg sprenging' í Noregi, að þessu sinni í Bergen. Varð af
mikið manntjón og eignatjón. Sprengingin varð í fyrra-
dag, í skipi, sem lá við Festningskajen í Bergen við vog-
inn, það er að segja því nær í miðjum bænum. Um kvöldið
var þegar vitað um 43 menn, sem beðið höfðu bana og
tala særðra var mörgum sinnum hærri. Við sprenginguna
eyðilagðist Hákonarhöllin og Valkendorfsturninn og hin
mikla bygging Bergenska gufuskipafjelagsins, algerlega.
Búist er við að margt
fleira fólk hafi farist, en þeg
ar er vitað um. Sprengingin
var svo mikil, að dráttarbát
ur, sem í höfninni var, kast-
aðist upp á hafnarbakkann.
Menn hjeldu fyrst að þetta
væri loftárás.
London í gærkveldi.
PETAIN marskálkur flutti
Þjóðverjar halda áfram
gagnsókn í Rússlandi
strandaði báturinn. Leki kom
þegar að bátnum og yfirgáfu
skipsmenn og farþegar hann
skömmu síðar, en hafnsögubát-
urinn frá Hornafirði bjargaði
þeim. Litlu síðar losnaði bát-
urinn og rak hann þá á svo-
nefnd Hríseyjarsker og sökk
þar síðari hluta dags í gær.
Báturinn var á leigu hjá
Skipaútgerð ríkisins, en Horna
fjörður var fyrsta höfn, sem
báturinn skyldi koma á af fjór-
um höfnum. Hinar voru: Djúpi
vogur, Breiðdalsvík og Stöðv-
arfjörður, og var báturinn full-
ur af vörum, er hann sökk.
Eigandi hans var Jón Hjalta
lín. Var báturinn bygður úr
eik árið 1919. Stærð hans var
87 smálestir.
Badogiio hefir end-
urskipulagt stjórn
sína
London í gærkvöldi.
BADOGLIO hefir nú lokið
endurskipulagningu stjórnar
sinnar, og tekið í hana fulltrúa
allra andfasistaflokkanna í It-
alíu, en forsprakkar þeirra
flestra eru ráðherra án umráða
yfir sjerstakri stjórnardeild,
þar á meðal Corce, Sforza og
leiðtogar kommúnista og jafn-
aðarmanria. Badoglio er sjálfur
forsætis- og utanríkismálaráð-
herra, en her og flotamálaráð-
herrarnir eru þeir sömu og.áð-
ur. Rektor Napoliháskóla tekur
við embætti mentamálaráð-
herra. Þá á einnig foringi kristi
legra sósíalista sæti í stjórn
þessari. ■—Reuler.
London í gær.
Einkaskeyíi til ÍU,>igiííð.sííís
frá Reuter.
ÞJÓÐVERJAR HALDA
áfram gagnsókn sinni á
tveim vígsvæðum Austur-
vígstöðvanna, við Stanis-
lavo og við Narva, þar sem
þeir byrjuðu áhlaup í gær.
Kveðast þeir hafa unnið
nokkuð á, en Rússar segjast
hrinda öllum áhlaupum enn
sem komið er. Við Sevasto-
pol eru enn feikna harðir
bardagar, og kveðast Rúss-
ar hafa náð nokkrum stöðv-
um þar á sitt vald. Ennfrem
ur segja þeir, að herskip
Svartahafsflatans elti þýsk
skip, sem eru að reyna að
komast frá Krímskaga til
Rúmeníu.
Rússar segja í herstjórnar-
tilkynningu sinni í kvöld, að
herir þeirra fyrir suðaustan
Stanislavo hafi hrundið áhlaup
um mikilla þýskra herja, sem
nutu stuðnings flugvjela. — I
tilkynningu Rússa er ekki get-
ið átaka á neinum öðrum hlut-
um Austurvígstöðvanna, en aft
ur á móti sagt frá loftárásum
Rússa á ýmsar stöðvar Þjóð-
verja í Eistlandi og Lettlandi,
þar sem Rússar kveða miklar
skemdir hafa orðið og segja
elda hal'a komið upp. — Voru
árásir þessar gerðar í nótt sem
leið. Meðal staðanna, sem á var
ráðist, var olíuhreinsunarstöð.
Þjoðverjar kveða motspy’rnu
Rússa harða við Stanislavo, en
segja þó að ungverskum og
þýskum hersveitum hafi tekist
að sækja nokkuð fram milli
ánna Pruth og Dniester, en flóð
eru nú í þessum fljótum báð-
um. Þá segjast Þjóðverjar hafa
rofið nokkur skörð í varnar-
kerfi Rússa á Narvasvæðinu og
kveðast hafa beitt steypiflug-
vjelum þar með miklum ár-
angri.
I Sevastopol segja Þjóðverj-
ar varnarbaráttuna hafa haldið
áfram með mikilli hörku og
hafi Rússum lítt orðið ágengt.
Fregnritarar herma, að Rússar
dragi saman mikið stórskotalið
við Sevastopol.
Slorskotahríð
á Ítalíu
London í gærkveldi.
Stórskotghríð allhörð er nú á
Italíuvígstöðvunum víða, og
eru það einkum Þjóðverjar,
sem skjóta. Er mest um skot-
hríð þessa hjá Cassino og Or-
tona. — Fyrir utan Anzio
söktu Ameríkumenn þýskum
hraðbát, en flugvjelar banda-
manna rjeðust meðal annars á
Feneyjar og fleiri staði.
— Reuter.
útvarpsræðu í Vichy í dag og
ræddi aðallega um árásina á
París í nótt sem leið og sagði
mecfal annars: „Þúsundir dá-
inna og særðra liggja nú undir
rústum í Parísarborg og út-
hverfum borgarinnar. Sorg yð-
ar er einnig sorg mín, en vjer
verðum að bera höfuðin hátt
og varðveita traust vort á
framtíðinni".
Laval talaði á eftir Petain
og sagði, að enn væru harðir
tímar fyrir höndum, en svo
myndi birta yfir Frakklandi.
— Reuter.
Tyrkir hættir að
selja Þjéðverjum
króm
Tyrkneska stjórnin hefir lýst
því yfir við bresku stjórnina,
að Tyrkir muni hætta að selja
Þjóðverjum króm, en áður
höfðu þeir aukið krómsölu til
Þýskalands. — Fyrir nokkru
sendu svo Bretar Tyrkjum orð-
sendingu út af þessu og bar hún
árangur þann, er fyr greinir.
— Reuter.
De Gaulle hrósar her
sínum.
ALGIERS í gærkvöldi: — De
Gaulle hjelt ræðu í dag, þar
sem hann hrósaði her sínum
mjög og kvað hann ágætlega
útbúinn. Ennfremur bar De
Gaulle á móti því, að hann ætl-
aði að verða einræðisherra
i Frakklandi og ennfremur
hinu, að hann væri verkfæri
Stalins. —Reuter.
Fornar byggingar í riisíum.
Tjónið er mjög víðtækt —
bæði Hákonarhöllin og
Valkendorfsturninn, en það
eru einhverjar kunnustu
sögulegu minjar í borginni,
eyðilögðust gersamlega, svo
aðeins veggjarbrot standa
eftir. Byggingar þessar eru
við Festningskajen. Miklir
eldar kofnu upp og breidd-
ust þeir fljótt út, því hvass
vindur ver á, en hinu ágæta
slökkviliði borgarinnar
tókst á nokkrum klukku-
stundum að hafa hemil á
hinum hættulegustu af eld-
unum.
Tjónið á Þýskubryggju.
Á Þýskubryggju, sem er
með fram innra hluta Vík-
urinnar, fyrir innin Festn-
ingskajen, og þar sem eru
mjög gömul hús (sjá mynd )
varð mikið tjón, bæði á þök
um og gluggum húsanna. —
Rjett fvrir utan múra Berg-
enhuskastalans stóð hin
mikla skrifstofubvgging
Bergenska gufuskipafjelags
ins, nærri Hákonarhöllinni
og Valkendoríturninum. —
Eyðilagðist sú stórbygging
gersamlega.
Þá urðu miklar skemdir á
hinu mikla steinhúsi Norð-
anfjalls-gufuskipafjelags-
ins, sem er nokkru nær
Þýskubrvggju við hornið á
Dregsalmenningen.
Álitið er, að skip það, sem
í kviknaði, hafi verið hlaðið
skotfærum, eins og skipið,
sem sprakk í loft upp í höfn
inni í Oslo þann 19. desem-
ber síðastliðinn og olli ó-
hemju tjóni þar í borginni.