Morgunblaðið - 30.09.1947, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.09.1947, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 30. sept. 1947 MORGUNBLAÐIÐ riiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiimimiiiua Lítið hús í nágrenni bæjarins til sölu. 2 herbergi, eldhús og geymsla. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 6087 eftir kl. 5. J^táíba | óskast á Víðimel 70. — t Bína Kristjánsson. j KFiimiMKmii-MaKMn:«sawiw^49a«Hnaam ; Góð stofa I óskast. til leigu. Mætti § vera 2, einnig 3. Húshjálp | kemur til greina. Uppl. j í síma 4066 frá kl. 4—6. > MiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiHieiiiiiiiiiiiiiiiiiimr “ Riímfatapoki tapaðist af áætlunarbíl s. 1. föstudag á leiðinni Borgarnes—Ferstikla. — Finnandi geri vinsamleg- ast aðvart 1 síma 1515. 5 manna 1 I Bifreið | | r míðaár 1937, með nýjum | | mótor og í góðu lagi, til | | rölu og sýnis milli kl. 5 | | r í 7 á bifreiðastæðinu við | Lækjargötu. Stúlkei r' ’: ast til heimilisstarfa. í ' rherbergi. Frí annan 1 - rn sunnudag (allan dag i ■) og eftir samkomu- Guðrún Hafstein Víðimel 42, uppi. Ívíburavagn lítið notaður til sölu. - Uppl. í Varðarhúsinu. Bogi Benediktsson — Minningnrorð MiminminmininiiiKinii z Ungur iðnaðarmaður óskar j eftir 1 Eierbergi og eidhúsi 1 (eða eldunarplássi) 1. okt. | Húshjálp eða stigahrein- I gerningar koma til greina. | Tilboð merkt: „Bjartsýni I — 214“ sendist afgr. Mbl. = (iiiiiiiiiimniiiiiiHniiiiiiiiiiaiminiimmiiiiiiiiiiini : j Kensla ( | í ensku, þýsku, sænsku, | | frönsku, dönsku og bók- | | , færslu. Undirbúningur í i undir skólapróf. 1 I g j I HARRY WILLEMSEN í | Suðurg. 8. — Sími 3011. i | Viðtalstími frá kl. 6—8. I MEÐAL fyrstu endurminninga minna frá æsku er að við bræð- urnir vorum að leika okkur við fjóra litla stráka, sem voru á sama reki og við. Þetta voru fjörugir og hraustir drengir, sem við áttum fullt í fangi með, ef til átaka kom. Þeir 'áttu heima á næsta bæ þarna í Fnjóskadalnum, rúmum tug kílómetra fyrir norðan Vagla- skóg. Við vorum gestir á heim- ili þeirra, Garði, er stendur vestan í fagurri brekku í hlíðum hins mikla fjallgarðs, sem skil- ur Fnjóskadal frá austursveit- um Suður-Þingeyjarsýslu. — Þarna á hólnum fyrir framan bæinn naut kvöldsólin sín vel. því að breiða og fagra skarðið í Vesturfjöllin — Dalsmynnið — veitti henni greiðan aðgang, og við hefðum getað sjeð væna sneið af Eyjafirði, ef Höfðinn í Höfðahverfi hefði ekki strítt okkur með því að standa þarna út við sjóinn og skyggja á. — Fnjóskáin, sem annars er orð- lögð fyrir prúðmennsku, hefur líklega einhverntíma skipt skapi og ráðist með ofsa og óhemju- skap.á Garðinn þar sem hann var lægstur í vesturátt — mikið var vinnandi til að sameinast hinum fríða Eyjafirði. Þessa nutum við nú og áttum þarna indæla sólskinsstund þegar flestir aðrir bæir í dalnum voru að sveipast kvöld§kugga. Þessir f jórir sveinar, sem við vorum að glíma við hjetu Bald- ur, Olgeir, Bogi og Indriði og voru synir Benedikts Olgeirs- sonar í Garði og konu hans, Kristínar Gísladóttur. — Pabbi drengjanna var bróðir móður okkar 'og höfðu þau alist upp á þessu ættaróðali með systkinum sínum: Friðgeir, Skúla, Bjarna, Friðriku og Kristjönu. Foreldr- ar systkina þessara, hjónin 01- geir Árnason og Ingibjörg Ein- arsdóttir, höfðu búið allan sinn búskap í Garði. Jeg gleymi því aldrei hve rösk lega þjett-vaxni snáðinn, með brúnu augun og fríða breiða andlitið, gekk fram í því að sýna okkur hornin sín og legg- ina og svo haglega gerðu bygg- ingarnar, sem þeir bræður höfðu reist þarna á hólnum yfir þenn- an búpening. Þetta var Bogi Benediktsson, sem nú, að liðn- um rúmum sex tugum ára, er borinn til grafar í dag. Þessi átta manna sveit átti marga ánægjulega fundi, en svo skildu vegir og hver fór sína braut, flestir langa leið og nú er aðeins helmingur liðsins eftir. Bogi sál. náði brátt góðum þroska þótt oft væru kjörin kröpp framan af, síðari æsku- árin dvaldi hann í Dæli í Fnjóskadal. hjá Skúla bónda, föðurbróðir sínum. Brátt kom í Ijós að hann var mjög góðum gáfum gæddur og hneigðist hug ur hans til bóknáms. Nokkru eftir fermingu gekk hann á Möðruvallaskóla og útskrifaðist þaðan 1897, fjekkst nú um sinn við barnakennslu, en fróðleiks- fýsnin ljet hann ekki í friði og árið 1899 var hann kominn í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan fimm árum síðar, gekk á prestaskólann og tók próf í forspjallsvísindum vandaður og samviskusamur, lundin var ljett og veit jeg að margir sakna hins gáfaða, sí- glaða manns, sem var hrókur alls fagnaðar, en á hinn bóginn þrekmenni hið mesta í hverri raun. Bogi Benediktsson var fædd- ur í Garði í Fnjóskadal 2. jan. 1878 og dó á heimili sínu hjer í Reykjavík aðfaranótt fimmtu- dags 18. sept. þ. á, eftir nokkra mánaða þunga legu. Ing. Gíslason. Bogi Benediktsson 1905,'hætti síðan námi en stund aði leiklist með Leikfjelagi Reykjavíkur um skeið, ávann hann sjer mikla hylli, einkum sem gamanleikari. Til Seyðisfjarðar fluttist hann vorið 1907 og gerðist kenn ari við barna- og unglingaskól- ann þar, en vann að verslunar- störfum á sumrum hjá St. Th. Jónssym og eftir 1920 hætti hann kennslu og gaf sig ein- göngu við verslunar- og skrif- stofustörfum eftir það, síðari árin — frá 1924 — dvaldi hann hjer í Reykjavík. Hjer að framan fór jeg nokkr um orðum um föðurætt Boga, en um Kristínu móður hans er það að segja, að hún var dóttir Gísla Sigurðssonar, bónda á Reykjum í Reykjahverfi, þótti hún fríð kona og vel verki farin. Af bræðrum Boga lifir nú að- eins einn, nefnilega Olgeir, bátasmiður á Akureyri., Indriði dó er hann var á þrítugsaldri, hann var smiður og sömuleiðis Baldur, sem dó hjer í Reykja- vík fyrir fáum árum, en eftir lifa tvær systur: Áslaug og Kristín, kona Magnúsar Guð- mundssonar, skipasmiðs. Þær systur ólust upp á Þverá með okkur systkinunum. Bogi kvæntist 21. jan. 1905 Elínu Guðrúnu Sigurðardóttur, hreppstjóra Jónssonar í Firði í Seyðisfirði, lifir hún mann sinn og hefur reynst honum hin mætasta kona. Börn þeirra eru: Sigurður> f. 1905 d. 1921, Gunn- björg, f. 1909, Indriði, f. 1911, Ólafía Helga f. 1914, Bryndis f. 1919 og Sigríður, f. 1925. Bogi sál. þótti ágætur starfs- maður að hverju sem hann gekk, BOGI BENEDIKTSSON fyrv. skrifstofustjóri erMaðist að heimili sínu, Öldugötu 9 hjer í bæ, 18. sept. s.M eftir þunga legu. Bogi var fæddur 2. jan. 1878 í Garði í Fnjóskaóal í Suður- Þingeyjarsýslu og var því tæp- lega sjötugur að aldri er hann ljest. Foreldrar hans voru Benedikt Olg'eirsson af al- kunnri þingeyskri ætt, bóndi í Garði og víðar í Fnjóskadal og kona hans Kristín Arnbjörg Gísladóttir Sigurðssonar bónda á Reykjum í Reykjahverfi. Seytján ára að aldri fór Bogi í Möðruvallaskóla og útskrifað- ist þaðan vorið 1895. Dvaldi hann næsta vetur í fæðingar- sveit sinni og stundaði þar barnakennslu, en fluttist til Reykjavíkur árið 1898 og bjó sig undir framhaldsnám og tók inntökupróf í annan bekk Lærðaskólans vorið i899. Tók stúdentspróf vorið 1904 Gekk um haustið á Prestaskólann og tók próf í forspjallsheimspeki vorið 1905, en hvarf síðan frá námi og dvaldi í Reykjavík á- fram og stundaði leiklist með Leikfjelagi Reykjavíkur. Vorið 1907 fluttist Bogi til Seyðis- fjarðar og gegndi þar ýmsum störfum um sumarið, en vann aðallega við smíðar því lagtæk ur var hann í besta lagi. Um haustið gerðist Bogi kennari við barna- og unglingaskólann þar, og vrann jafnframt að verslun arstörfum í frístundum sínum, því eljumaður var hann mikill. Hann var og um skeið kennari við kvöldskóla iðnaðarmanna á Seyðisfirði. Ljet af kennslu- störfum austið 1920 og stund- aði eftir það eingcngu versl- unarstörf hjá svila sínum.i Stefáni Th. Jónssyni, sem hann einnig hafði gert á sumrum frá því að hann fluttist til Seyðis- fjarðar. Árið 1924 fluttist Bogi til Reykjavikur og gerðist skrif stofustjóri hjá mági sínum Magnúsi Guðmundssyni. skipa- smið og við það starf vann hann þangað til Magnús hætti rekstri. Eftir það vann hann að ýmsum ritstörfcm á heimili sínu þar til kraftar þrutu. Bogi kvæntist 21. jan. 1905 Elínu Guðrunu dóttur Sigurðar hreppstjóra Jónssonar í Firði í Seyðisfirði, og konu hans Gunn hildar Árnadóttur af Plellis- fjarðarætt, ágætn konu eins og hún á kyn til, sem reyndist manni sínum hin styrkasta stoð á lífsleiðinni. Lifir hún mann sinn. • Þeim hjónum varð sjö barna auðið. Sigurður hjet elsta barn þeirra, mesti efnismaður, en hann ljest 16 ára að aldri og varð foreldrum sínum mjög harmdauði. Hin eru ö)l á lífi, uppkomin; og búsett hjer i bæ. Gunnhildur gift Magnúsi Stephensen sjómaimi, Kristín forstöðukona verslunarinnar Kjóllinn, Indriði skrifstofustj., kvæntur Jóhönnu Ólafsdóttur, Ólafía gift Agnari Breiðfjörö, forstjóra, Bryndís gift Sigur- jóni Sigurðssyni útgerðarmanni og Sigríður ógift i föðurgarði. Öll eru börnin mannvænleg og vel búin að andlegu og líkam- legu atgerfi. Bogi var góðum gáfum gædd ur og menntur vel enda las hann mikið. Hugur hans beind- ist að fagurfræði og sögu. Ótví- ræðir voru leikarahæfileikar hans og kímnigála og myndi hann hafa staðið frama'rlega í þeirri grein ef hann hefði lagt stund á. Seyðfirðingar' hinir eldri eiga honum að þakka margar ógleymaniegar stundir frá þeim tímum sem hann dvaldi þar og tók þátt í sjón- leikjum og upplestrum. Ætíð var hann glaður og reifur hvernig sem bljes og hrókur alls fagnaðar í vir.ahóp. Þrek- menni var hann í hverri raun. Störf sín stundaði hann af al- úð og frábærri samviskusemi, vandvirkni og íhugun. Opinber (Framhald á bls. 12) Benediktsson Enn kemur að því að hausti og húmi, hnípni geislar í tíma og rúmi. — Örlagarún er rist á skjöld. — Og það er eins víst og silfrið sindrar, sólarmorgnana dýrðin tindrar, að allir dagar sín eiga kvöld. Svo týna þeir tölu einn af öðrum, eins og af svönum kippt sje fjöðrum, aldavinir og manndómsmenn. Eftir hnípnir við horfum í bláinn. En hvers vegna’ að syrgja vininn dáinn? Hann lifir þó lengur en ástin enn. Og nú ert þú genginn, góði vinur, gagnmerkra stofna ættarhlynur, eins og fleiri í fósturskaut. En allir, sem muna mæta drenginn, minnast, að glaðreifri þekktist enginn hvar sem að var, á hvers manns braut. -ffrT Þjer tamt var, sem fæstir aðrir eiga, enda þótt kjósi slíkt að mega, leika með snilli á oddi als. Þú tendraðir eld og unað bæja — angraða jafnvel ljestu hlægja — skipaðir forsæti skemmtisals. Þjer var svo oft í lófa lagið að leika við rím og gamanbragi, er aðrir blunduðu á beði rótt. Festum við ósjaldan frelsisyndi hjá fossinum undir Strandartind? við söngva Jónsmessu sólarnótt. Drenglyndi, glaðværð og göfug kynni, góðvinir þínir hafa í minni aldurinn meðan endist þeim. Svífðu á öldum allrar gleði — eilífðin setur ei neitt að veði — öðrum til fagnaðar friðargeim. Sig. Arngrímsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.