Morgunblaðið - 25.04.1948, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITTÐ: Faxaflói:
SV-gola eða kaldi. Skúrir eða
jel. en bjart á milli._
REYKJAVÍKURBRJEF er á
bis. 7.
Fundur um Harshall-aSdoSina í París
Sextán þjóðir, sem taka þátt í viffreisnarstarfi Evrópnlanda, sam-
kvæmt tillögum Marshalls, komu nýlega til fundar : París. Full-
trúar ísiands á þeim fundi voru Pjetur Bencdiktsson, sendiherra,
Davíð Ólafsson, forseíi Fiskifjelagsins, og Kristján Albertson,
sendifulltrúi íslands í París. Hjer er mynd frá fundinum. Það er
utanríkisráðherra Dana, Gustav Rasmussen, sem er að tala.
sklftasamningar
vlð Brefa yndirrifaðár
ÞRIÐJUDAGINN 20. þ. m. voru undirriíaðir heildarviðskifta-
samningar við Breta fyrir árið 1948. Eins og undanfarin ár kaupa
Bretar að þessu sir.ni hjeðan hraðfrystan fisk, síldarmjöl og síld-
arlýsi og veita innflutningsleyfi á nokkrum vörutegundum þ. á.
m. niðurlögðum og hraðfrystum hrognum og kindagörnum.
------------------------
ýi Goðóloss stran ar
i É
Frá frjettaritara vorum á Isafirði.
HIÐ NÝJA glæsilega skip Eimskipaf jelags íslands Goðafoss,
strandaði hjer kl. rúmlega 8 í fyrrakvöki. I alla fyrrinott var
unnið að því að losa vörur úr skipinu til þess að ljetta það.
Drátt fyrir þetta tókst skipinu ekki að komast á flot af eigin
rammleik í gærkvöldi.
„Marz" vænfanleg-
ur á mániidag
NÝ SKÖPUN ARTOGARINN
Mars er væntanlegur til Reykja
víkur frá Aberdeen á mánu-
dagskvöld.
Er hann bygður í skipasmíða-
stóð John Lewis & Sons i Aber-
deen og er 183 fet á lengd og 717
smáiestir.
í reynsluferð gekk skipið 131/>
mílu. Mars er bíinn Öiium nýj-
ustu tækjum og kæiitækjum í
lest, og er að öliu ieyt.i eins og
nýsköpunartogarinn Nepíúnus.
Eru þeir því stærstu skip tog-
araflotans.
Skipstjóri á Mars verður Þor-
steiHff Eyjólfsson, en eigandi er
h.f. Mars og framkvæmdastjóri
Tryggvi Ófeigsson.
leikshólarbæjarinsí
Málleysingja- og
Slýrimannaskólan-
um gamla
SUMARIÐ 1947, starfrækti bær
inn ieikskóla á gamla Stýri- j
mannaskólanum og Málleys- j
ingjaskólanum. Mál þetta kom
fyrir síðasta fund bæjarráðs og
var samþykt að halda áfram
rekstri þeirra á þessu sumri.
Fræðslufulltrúi Reykjavikur-
bæjar hefur gefið skýrslu um
starfsemi þessara tveggja leik-
skóla á síðasta sumri. Hugmynd
in var, að þar kæmu fyrir há-
degi alt að 20 börn. Þessum
barnafjölda var þó aldrei náð.
Flest voru þau 13 í Málleysingja-
skólanum og 11 í Stýrimanna-
skólanum. Eftir hádegi gátu
skólarnir tekið á móti 40 börn-
um. Aðeins í nokkur skipti náði
barnafjöldinn þessu marki, og
var það í júlímánuði,
ASðHimdur Rauða
Kross fslands
AÐALFUNDUR RKÍ var hald-
inn í Reykjavík miðvikudaginn
21. apríl s.l. Formaður, Schev-
ing Thorsteinsson lyfsali setti ’
fundinn og stjórnaði honum.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa láu fyrir gagngerðar^
breytingar á lögura fjelagsins,,
en verða þó ekki endanlega af-
greiddar fyrr en á næsta aðal-1
fundi.
Allmikið var rætt um útvegun
nýrra sjúkravagna, en sjúkra-
bílar RKÍ eru nú mjög úr sjer
gengnir.
Hafði Jóni Sigurðssyni slökkvi
liðsstjóra verið falið að vinna að
þessum málum, en hann kvað
hina miklu örðugleika á að fá
bílana endurnýjaða, meðal ann-
ars af því að framleiðsla sjúkra-
vagna væri nú lítil sem engin,
og ættu t. a. Bandaríkjarnenn
við sömu erfiðleika að etja í
þessum efnum og við.
Lesðfogi porfiígaiskra
kommúniifa íiandfekinn
Lissabon í gærkv.
INN ANRÍKISRÁÐHERR A
Portúgals tilkynti í dag að leið-
togi kommúnista þar í landi,
hefði verið handtekinn. Skýrði
ráðherrann frá því, að komm-
únistar hefðu haft uppreisnar-
tilraun í undirbúningi. —Reuter
Frá Bretlandi
Frá Bretlandi verður fiutt inn
kol, járn, og stálvörur, sisal,
hvalfeiti og sápa, auk þess sem
lofað er fyrirgreiðslu með veið-
arfæri, cement o. fl.
Jafnframt var undirntaður
samningur sá um fisldandanir í
Þýskalandi, sem tilkynt var um
um síðustu heigi.
Fisklandanir
Ennfremur hefur fyrir nokkru
verið undirritaður samningur,
um fisklandanir í Bretlandi-fyr-
ir sumarmánuðina, í sama formi
og gert hefur verið undanfarin
ár.
Á grundvelli heildarsamninga
vérða svo geröir sjer sammngar
um sölu freðfisks, síldarmjöls
og lýsis, og er verið að vinna að
þeim.
(Frjettatilkynnir.g frá utan-
ríkisráðuneytinu.)
Tundurspillar fara
skipi lil aðsloóar
New York í gæricvöldi.
TVEIR bandarískir tundurspill-
ar eru lagðir af stað frá Flor-
ida til aðstoðar frönsku skipi,
sem er að sökkva á Karabiska
hafi. Þegar síðast heyrðist frá
skipinu, var í því mikill eiriur og
áhöfnin að fara í bátana. Eldur
inn kom upp í því, skömmu eftir
að það lagði af stað frá Jama-
ica, snemma í morgun.
— Reuter.
Nýr læknir
NÝR læknir er að opna lækn-
ingastofu hjer í bænum. Er það
Hannes Þórarinsson læknir, sem
fyrir skömmu hefur lokið fram-
haldsnámi í læknisfræði og aðal-
lega lagt stund á húðsjúkdóma.
i Hannes tók embættispróf í
j læknisfræði við Háskóla íslands
1943. Síðan var hann eitt ár á
háskólasjúkrahúsinu í Minnea-
polis í Minnesota í Bandarikjun-
um, en síðan á Mayo-klinikkinni
þar til í fyrrahaust.
: Ingélfiir Amarson
nær góðri sölu
í GÆR seldi Reykjavíkur-\
togarinn Ingólfur Arnarson,
afla sinn í Englandi.
Togarinn var með 4609 kit af
fislci og seldi fyrir 14.324 ster-
lingspund. Er hjer um að ræða
ágæta sölu.
í bessari ferð fer fram við-
gerð á trollspili skipsins og
mun það taka um það bil viku
tíma.
Mannrán
BERLÍN: — Rússar hafa neitað
að taka þátt i fjórveldarannsókn,
vegna mannrána í Berlin. Því
hefur opinberlega verið haldið
fram í þýsku höfuðborginni, að
Rússar standi á bak við mörg
þessara mannrána.
Strandaði á Skipseyri
Goðafoss var að fara frá ísa^-
firði, er þetta óhapp vildi tíl.
Lagði skipið frá bryggju Kl. 8.
Þegar það var að sigla út aí höfn
inni strandaði skipið á svo-
nefndri Skipseyri.
Þegar voru gerðar tilraunir
til þess að ná skipinu út, en þær
báru engan árangur. — Þegar
Goðafoss strandaði var háfióð,
stærsti straumur.
Búið að Ijetta skipið um
300 tonn
I alla fyrrinótt og í allan gær-
dag var unnið að því, að ljetta
skipið. Voru við það þrír 100
tonna bátar. I gærkvöldi var
búið að taka úr því um 300
smál. af síldarmjöli og gærum.
í lestunum er hraðfrysti fisk-
urinn, sem tekinn var úr Brú-
Hátíðahöld á Akur-
eyri 1. sumardag
Á SUMARDAGINN fyrsta
hófst skátamessa í Akureyrar-
kirkju kl. 10,30 árdegis. Prjedik
aði þar sr. Friðrik Rafnar vigslu
biskup.
Kvenfjelagið „Hlif“ efndi til
sinnar árlegu fjáröflunar um
daginn, en fjelagið vinnur ein-
göngu að því að undirbúa bygg-
ingu og starfrækslu dagheim-
ilis fyrir börn í Akureyrarbæ.
Merki voru seld á götunum,
bazar var starfræktur á Hótel
Norðurlandi. Fór þar og fram
kaffisala og fjölbreytt kvöld-
skemtun. Var mjög mikil að-
sókn af hálfu almennings að
þessum samkomum kvenf jelags-
ins. — H. Vald.
19dæmdirtildauða
London í gærkvöldi.
FREGNIR frá Aþenu herma, að
19 kommúnistar, þar af átta
konur, hafi í dag verið dæmdir
til dauða í Suður Grikklandi. —
Sjö aðrir, þar af þrjár konur,
voru dæmdir í lífstíðar fang-
elsi. — Reuter.
arfcssi, er hann strandaði ái
Djúpuvík.
Það var framendi skipsins, er
tók niðri. Um fjöru gátu bát-
arnir, sem voru við að ljetta
skipið, ekki komist að framlest
þess.
)
Orsök slyssins.
Hjer á Isafirði er orsök slyss-
ins sögð vera sú, að stýri skips-
ins hafi ekki látið nógu vel að
stjórn.
Þar sem Goðafoss strandaði
er siglingaleiðin mjög þröng. -—
Botn er mjúkur og er ekki kunn
ugt um að skipið hafi laskast
við strandið.
Varðskipið Ægir er nú á leið
til ísafjarðar Goðafossi til að-
stoðar og mun hann verða kom
inn á strandstaðinn í dag.
Frjettir af skipsbruna þess-
um voru allóljósar í gærkvöldi.
Ekki tókst að hafa samband við
skipstjórann á bátnum, sem
bjargaði Ernismönnum, en það
var mb Snæfell frá Stykkis-
hólmi. Snæfell flutti skip-
brotsmennina 5 til Ólafs-
víkur. Meðal þeirra er eigandi
bátsins og skipstjóri, Leifur:
Zakaríasson.
Eldurinn kom upp í mb Ern-
ir, er hann var staddur undan
Lóndröngum á Snæfellsnesi. —•
Var báturinn þá á leið til Rvík-
ur frá Bolungavík, með lýsi og
annan varning. Sjór var mjög
þungur. Skipverjar reyndu að
ráða niðurlögum eldsins, en það
tókst ekki.
Ernir var um 70 smál. að
stærð. Einkennisstafir bátsing
voru IS. 115.
Seint í gærkvöldi frjetti Mbl,
að skipstjórinn á Hafnarfjarð-
arbátnum Hafdís, Magnús
Magnússon, muni hafa ætlað að
freista þess að bjarga bátnum.
Þá mun ekki hafa verið áber-
andi mikill eldur í bátnu.m, en
erfitt var að átta sig á því,
vegna reyks er lagði frá hon-
um.
Arabar flýja
JERtJSALEM: — Arabar eru nú
byrjaðir að flýja hjeðan frá Jerú-
salem, af ótta við árás Gyðinga.
Sjötíu smál. vjelbótur
frú Bolungurvík
brennur ■ Munnbjörg
t GÆR kviknaði í vjelbátnum Ernir frá Bolungarvík. Skipverjar
urðu að yfirgefa bátinn. Var þeim bjargað um borð í vjelbat er
lcorn til aðStoðar. Ernir var á leið til Reykjavíkur, með farm sem
mun vera um 200 þús. kr. virði.