Morgunblaðið - 02.04.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.04.1957, Blaðsíða 11
ÞriSjudagur 2. aprfl 1957 MORGVNBLAÐIÐ 11 Bréf Bulganins til IVorðmanna og Dana Rússar ætla með hótunum að þvinga Norðurlönd úr Atlantshafs- bandalaginu Hátanir um tfer- eyðintyu landanna SOVÉT-RÚSSAR hafa nú gert stórfellt stjórnmálalegt áhlaup á Norðurlönd. — Bulganin, forsætisráðherra, hefur sent Norð- mönnum og Dönum bréf og er tilgangur þeirra bréfa að reyna að kljúfa þessi lönd út úr varnarsamtökum vestrænna þjóða — Norður-Atlantshafsbandalaginu. Það sem Sovét-Rússar leggja áherzlu á í þessum bréfum eru hótanir um að bækistöðvar, sem Danir og Norðmenn komi sér upp verði eyðilagðar með kjarnorkuvopnum Rússa, ef þeim bjóði svo við að horfa, cn það hafi í för með sér yfirgripsmikla eyð- ingu. 1 þessu sambandi skipti það ekki máli þó enginn erlendur her sé í stöðvum hessum. Það á að nægja til kjarnorkueyðingar í Danmörku og Noregi ef þessi lönd komi sér upp varnarstöðv- um, sem meðlimir í Atlantshafsbandalaginu, þó þar séu ekki erlendir herir. Sérstök áherzla er á það lögð í bréfi Bulganins að Rússar mót- mæli því að löndin fái eldflaug- ar að vopni og hafi þess háttar viðbúnað í varnarstöðvunum. Gagnvart Noregi er tekið fram að Rússar ætlist ekki til að Norð- menn segi sig beinlínis úr Atlants hafsbandalaginu, en gagnvart Dönum er látið í veðri vaka að þeim væri betra að vera utan við slík samtök en leita sér öryggis á annan hátt eða með yfirlýsingum og ábyrgðum stór- velda. FVRRI HÓTANIR Það er ekki nýtt að Rússar beiti hótunum um kjarnorku- styrjöld í stjórnmálaáróðri sínum á Vesturlöndum. Þeir hafa hvað eftir annað reynt að hræða Vest- ur-Þjóðverja frá að endurvígbú- ast með því að hóta kjarnorku- eyðingu í landi þeirra. Hið sama gerðu Rússar einnig er Bretar og Frakkar hófu hernaðaraðgerðir sínar gagnvart Egyptum út af Súez. Sú hótun um eyðingu, sem er meginatriðið í bréfum Búlgan- ins til Norðmanna og Dana er því ekki nýlunda að þessu leyti. BRÉFIÐ TIL NORÐMANNA Þann 21. marz sendi Bulganin Gerhardsen forsætisráðh. Norð- manna bréf sem gert var heyrum kunnugt 5 dögum síðar. Bulganin fagnar því að Norðmenn hafi ekki erlendan her í landi sínu en þó sé nú svo komið, að Norðmenn hafi byggt miklar herstöðvar, sem herir Atlantshafsbandalagsins geti hvenær sem er tekið til af- nota en bandalagið sé hernaðar- bandalag, sem beint sé gegn Rúss- um og til árása á þá. Þó æski Rússar þess ekki að Norðmenn gangi úr bandalaginu en þeir vari Norðmenn stranglega við því að taka við kjarnorkuvopnum frá öðrum þjóðum bandalagsins til afnota í herstöðvum í Noregi. En það sé bæði réttur og skylda hvers ríkis, segir Búlganin, að eyðileggja slíkar stöðvar, sem ætlaðar eru til árása en þess hátt ar gagnráðstafanir af hálfu Rússa Gerhardsen. j mundu hafa mikla eyðileggingu í för með sér í kringum sjálfar stöðvarnar, en slíkt sé hættulegt fyrir land, eins og Noreg, sem ekki ráði yfir víðlendum land- svæðum. Vetnissprengja valdi t. d. eyðileggingu á svæði, sem nái mörg hundruð kílómetra út fyrít þann stað, sem henni sé á varpað. VIÐBRÖGÐ NORÐMANNA Norðmenn hafa enn ekki svar- að Rússum og norskir stjórnmála- menn tóku bréfi Búlganins með jafnaðargeði. Norðmenn líta svo á að hér sé um tilraun að ræða til að kljúfa þá út úr varnarsamtök- um vestrænu þjóðanna. Hér sé um að ræða tilraun til að blanda sér í innanrikismál Noregs að því leyti sem bréfið beinist að því, hvernig þeir komi fyrir vörnum á landi sinu. Einnig er á það bent að ekki komi til greina að amerísk kjarn- orkuvopn verið tekin í noktun á norskri grund, þar sem Norðmenn hafi marglýst því yfir að á friðar- tímum muni þeir ekki leyfa er- lendum herjum bækistöðvar í landi sínu, og samkvæmt banda- rískum lögum megi ekki afhenda öðrum þjóðum karnorkuvopn, nema bandarískt herlið sé til stað ar og fari með þessi vopn. Það sé því ekki möguleiki fyrir hendi til þess að bandarísk kjarnorku- vopn verði tekin í notkun í Nor- egi. Norðmenn benda mjög á þau ummæli í bréfi Búlganins að Atlantshafsbandalagið sé árásar- bandalag og að ófriðarhættu hafi verið bægt frá með því að „kæfa hina fasistísku uppreisn í Ung- verjalandi“. Segja Norðmenn að slíkar rökfærslur séu ekki tekn- ar gildar á Norðurlöndum. MÓTMÆLI EISENHOWERS Eisenhower forseti lét svo um- mælt eftir að bréf Búlganins til Norðmanna hafði verið birt, að í því fælist afskiptasemi af mál- um Noregs, sem væri óforsvaran- leg, því hverju landi ætti að vera í sjálfsvald sett hvernig það hagaði vörnum sínum. í bréfi Búlganins er að því vikið að u, séu áætlanir um að hervæða all- ar þjóðir Atlantshafsbandalagsins með kjarnorkuvopn. Eisenhow- er neitaði því að nokkrar slíkar ráðagerðir væru uppi hvað við kæmi Norðurlandaþjóðunum eða yfirleitt nokkurt tilefni til þeirra hótana, sem Rússar hefðu í frammi gegn Norðmönnum. Hins vegar sagði forsetinn að allir bandamenn Bandaríkjamanna hefðu rétt til að taka við banda- rískum kjarnorkuvopnum sér til varnar, ef þeim sýndist svo. — Eisenhower minnti á að þegar hann hefði komið til Evrópu, árið 1950, sem hershöfðingi Atlants- hatfsbandalagsins, hefðu Rússar haft uppi svipaðar hótanir og ákærur um árásarbandalag, cins og nú. BRÉF BÚLGANINS TIL DANA Bréfið til Dana hefur vakið öllu meiri athygli en bréf það, sem Norðmenn fengu. Það er álit manna að bréfið til Dana sé harðara, og í því felst líka bein og ákveðin á- skorun um að landið segi sig mm. Búlganin. úr lögum við Atlantshafs- bandalagið. í bréfinu er einnig lögð sérstök áherzla á að Rússar muni, ef svo ber undir ekki einungis ráðast á varnar stöðvar á vegum Atlantshafs- bandalagsins, heldur einnig aðrar herstöðvar í landinu, sem möguleiki væri að nota til árása á Sovétríkin. Nú er það svo að bækistöð til varna er oftast einnig hægt að nota til árása og jafngildir kraf» Búlganins því, að Danir láíi af öllum vörnum í landinu. H.C. Hansen skýrir frá efni bréfs Búlganlns. Hægra megin við hann situr S. Kristensen, sendiráðu- nautur — og vinstra megin H.S. Möller, ritari forsætisráðherra. HOFUÐATRIÐI BRÉFSINS Höfuðatriðin í bréfi Búlganins til H.C. Hansens, forsætisráðherra Dana, eru þessi: 1. Þær áætlanir, sem uppi eru um að koma amerískum kjarn- orkuvopnum og kjarnorkuher fyrir í þeim löndum, sem eru þátttakendur í Atlantshafsbanda- laginu svo og hin ameríska áætl- un varðandi löndin fyrir botni Miðjarðarhafs og vígbúnaður, sem er meiri en áður þekkist, ásamt með stöðugum stríðsáróðri, eru einungis tilraunir til þess að gera sambúð þjóða enn verri og þvinga þjóðirnar til að taka stefnu, sem leitt getur til nýrrar styrjaldar. 2. Ef litið er á viðbúnað Norð- ur-Atlantshafsbandalagsins, þá er staða Danmerkur þess eðlis að Sovétríkin hljóta að gefa henni mikinn gaum. Ekki sízt vegna þess að mjög stór hluti af landi Danmerkur, Grænland, hefur þegar verið gerður að herstöð fyrir Bandaríkin og Danir ráða þar raunverulega engu og enn- fremur vegna þess, að land Dan- merkur í Evrópu er nú alsett hernaðarlegum flugstöðvum og flotabækistöðvum, sem eru byggð ar eftir áætlunum frá herstjórn Natos, þar sem enskir og amerískir herfræðingar starfa. En fyrir því er engin trygging, að þessar hernaðarbækistöðvar verði ekki notaðar af Atlants- hafsbandalaginu til árása, og þá með erlendum her, með aðeins fárra klukkustunda fyrirvara. 3. Með því að ánetjast þannig hernaðaráætlunum vissra stór- velda, leggur Danmörk sig í mikla og óforsvaranlega hættu Þegar um lönd er að ræða, sem ekki eru víðlendari en Danmörk, þá mundi kjarnorkustyrjöld fyrir slíkt land vera hið sama og sjálfs morð ef til þess kæmi að erlend- ar þjóðir kæmu þar upp bæki- stöðvum. Sprenging kjarnorku- sprengju, sem beint væri gegn bækistöðvum árásarþjóðar, sem komið væri upp á dönsku landi, mundi hafa í för með sér eyði- leggingu, sem tæki yfir land Framh. á bls. 12 SMSTEINAR Óvenjuleg hreinskilni Alþýðublaðsins Morgunblaðið hefur þegar sagl frá ritstjórnargrein Alþýðublaðs- ins á fimmtudaginn var um „verk fallið 1955, sein kommúnistar stofnuðu til í þeim tilgangi að brjótast til valda, án minnsta til- lits til þess verkafólks, sem þeir drógu út í verkfallið". Þó að hér sé um alþekkt sann- indi að ræða, þótti mönnum í þeim kenna óvenjulegrar hrein- skilni hjá Alþýðublaðinu og meiri manndóms en þaðan væri að vænta. Þjóðviljinn brást hið versta við og birti á föstudaginn grein, sem hét „Drekka smánarbikarinn í botn“. Henni lauk með þessari lýsingu á Alþýðuflokksmönnum: „Þeir fá ekki stöðvað sig á göngu smánarinnar og niðurlæg- ingarinnar, þeir eru neyddir til að afneita fortíð sinni og ei'gin verk- um og verða að drekka hvem þann bikar í botn sem hinn harði húsbóndi að þeim rétíir“. Glæpur að gefa þeim frí“ Á laugardag birti Alþýðublað- ið forsíðugrein, sem hét „Heið- arlegir verkalýðssinnar“. „Þjóðviljinn í gær fárast mikið út af greinarkorni, sem birtist hér í blaðinu í fyrradag undir nafninu „Iðja vísar veginn“. Eyð- ir blaðið hálfum leiðara sínum í stóryrði í garð Alþýðuflokksins út af greininni og í vandlætingu sinni beinir það orðum sínum til fólks, sem blaðið kallar „heið- arlega verkalýðssinna". „Ætli ekki sé óhætt að slá því föstu, að fyrrverandi stjórn Iðju hafi verið skipuð „heiðarleg- um verkalýðssinnum“. — — — „Þá er vert að athuga hvernig þeir Björn Bjarnason og félagar hans stóðu sig, en Þjóðviljinn tel- ur, sem kunnugt er, þá hafa stað- ið sig svo vel í starfi sínu, sem stjórn Iðju, að það hafi verið hreinn glæpur að gefa þeim frí. Þegar þetta er athugað virðist augljóst, að Þjóðviljinn telur þá einu „heiðarlega vcrkalýðssinna“ sem lána sjálfum sér fé verka- lýðsfélaga og brenna svo fylgis- skjölunum“. \lþýðublaðið sakfellir sjálft sig. Á sunnudag er heldur komið annað hljóð í strokkinn en áð- ur var. Forystugrein Alþýðu- blaðsins byrjar svo: „Fyrir nokkrum dögum var gefið í skyn í aðsendri grein hér í blaðinu, að kommúnistar hafi reynt að hagnýta sér verkfallið 1955 til póiitískra áhrifa «g valda“. Þá vita menn að sumar rit- stjórnargreinar í Alþýðublaðinu eru „aðsendar" og þessi „aðsenda grein“ á einungis að hafa „gefið í skyn“ sannindi, sem hún sagði alveg ótvírætt. Verst er, að ritstjórnin skyldi þurfa marga daga til að fullvissa sig um, að greinin var „aðsend“, í stað þess að segja það strax og tilefni gafst. Síðan segir Alþýðublaðið: „Alþýðublaðið þarf sannarlega ekki að orðlengja um þessi atriði við Þjóðviljann. Hann segir orð- rétt í gær: „Alþýðublaðið studdi verkfallsmenn og taldi verkfallið og árangur þess einn mesta sigur, sem alþýðusamtökin hefðu unn- ið.“ Þeíta er hverju orði sann- ara.“ Eina afleiðing þessarar yfirlýs- ingar er sú, að Alþýðublaðið fellir nú einnig á sjálft sig og flokk sinn þá sök, sem það fyrr í vik- unni vildi láta hvíla á kommún- istum einum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.