Morgunblaðið - 01.03.1958, Side 1
16 siður og Lesbók
45 árgangur.
51. tbl. — Laugardagur 1. marz 1958.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vesturveldin haía slakað til við Rússa
Verður annar ,Genfar-
fundur' haldinn
juií?
PABÍS 28. febrúar. — Greinilegt
þykir, ad stefnubreyting hafi átt
sér sta'ð innan frönsku stjórnar-
innar hvað hugsaniegum ríkis-
leiðtugaiundi viðkemur. Talsmað
ur utanríkisráðuneytisins skýrði
Býst Sukarno
til átaka?
JAKARTA, 28. febr. — Forsætis
ráðherra Jakartastjórnarinnar
sagði í dag, að tilvera uppi-eisn
armannastjórnarinnar á Sumötru
gæti orðið þess valdandi, að er-
lendir aðil-r notuðu ástandið sem
átyllu til innrásar. Kvað hann upp
reisnarmenn valda Indónesíu
miklu meii-i vandræðum en sköp-
uðust í landinu í deilunum við
Holiendinga. Þá harmaði hann
það, að Hollendingar hlökkuðu nú
yfir ástandinu. I Jakarta voru
miklar heræfingar í dag, sem
stóðu yfir í sex stundir. Er iátið
í veðri vaka, að Jakarta-stjórnin
sé nú að búa sig undir að ganga
milli bols og höfuðs á uppreisn-
armönnum. Stjórn uppreisnar-
manna hefur farið þess óbeint á
leit við hollenzku stjórnina, að
hun veiti uppreisnarmönnum
viðurkenningu.
Grmisamles;t
ferðala^
ALSÍR, 28. iebr. — Fiutninga-
flugvél af bandarískri gerð á leið
frá Israel til S-Ameríkvr nauð-
lenti í Alsír í gær vegna vélar-
bilunar. Flugmennirnir voru 4,
2 bandarískir, Breti og ísraels-
maður. Þótti Frökkum ferð fjór-
menninganna grunsamleg — og
kyrrsettu þeir hana á meðan
rannsókn farmsins fór fram. Lék
grunur á að vopn, sem flugvélin
hafði meðferðis, væru ætluð
uupreisnarmöi.num í Alsír, eri I
kvöld fékk flugvélin fararleyfi.
Munu vopnin ætiuð Venezúela —
aem gjöf frá ísrael.
30 börn fórust
PRESTONSBGRG 28. febrúar. —
í dag varð hörmulegt slys
skammt utan við Prestonsburg í
Kentucky-fylki í Bandaríkjun-
um. Strætisvagn, þéttskipaður
skólabörnum, ók út af veginum
og féll í hyldjúpa á — eftir aö
hann hal'öi rekizt á vörubíl. 30
barna og vagnstjórans er saknað.
14 börn komust af — og tókst
þeim aö komast út um bakdyr
vagnsins, um Ieið og hann sökk.
svo frá í dag, aö stjórnin teldi
undir vissum kringumstæðum
ekki nauðsynlegt, að utanríkisráð
herrafundur kæmi saman til und
irbúnings ríkisleiötogafundi. —
Slíkan fund mætti undirbúa eftir
„diplomatiskum“ leiðum.
Sem kunnugt er var sú ákvörð
un tekin á Nato-fundinum í París
í desember sl., að Vesturveldin
mundu ekki taka þátt í í-íkisleið-
togafundi nema að utanríkisráð-
herrafundi væri falið að undir-
búa hann. Nú hafa bæði Bretar
og Bandaríkjamenn slakað
til í þessu efni, en
Frakkar hafa hingað til haldið
fast við fyrri samþykkt. Fasta-
ráð Nato mun nú fjalla um undir-
búning hugsanlegs fundar — og
ekki er talið ólíklegt, að Vest-
urveldin geri Rússum sameigin-
lega grein fyrir afstöðu sinni að
þeim viðræðum loknum.
Telja stjórnmálafréttaritarar,
aö ekki sé ólíklegt, aö ráöstefna
ríkisleiðtoganna verði ákveöin í
júlí nk., en Bretar munu því
fylgjandi, aö þátttakendur verði
ekki fleiri en 4—6.
Kvarnasl úr verko-
mannaflokknam?
LONDON 28. febrúar. — Morgan
Phillips, ritari framkvæmdanefnd
ar verkamannaflokksins brezka,
skýröi svo frá í dag, aö að undan
förnu hefði borið æ meira á öfl-
um þcim innan flokksins, sem
berjast undir slagoröinu „sigur
sosíalismans". Hefðu samtök
þessi lagt kapp á að efna til funda
víös vegar um Iandið og birta
stórnmálalegar yfirlýsingar.
Hefði þetta komið verkamanna-
flokknum illa, þvi að nú heföi
náðst innan flokksins samkomu-
Imre Nagy
Nagy neitaði að „játa
//
Var boðin ráðherrastaða
verskt blað
segir ung-
VÍNARBORG, 28. febrúar. —
Fregnir herma, að Imre Nagy,
sem nú er í haldi í Rúmeníu, hafi
neitaö að „játa glæpi sína“. —
Ungverska blaöið „Magyar
Hirado“, sem gefið er út í Vínar-
borg, flytur þessar fréttir í dag
í sambandi við frásögn af heim-
S-Arabía verður ekki
þri&ja a&ildarríkið
L'iklegt að Yemen gangi Nasser á hönd
LONDON, 28. febrúar. — Krón-
prinsinn af Yemen kom í dag til
Kairó frá viðræðum við föður
sinn í heimalandinu. Ský?ði
prinsinn svo frá, að hann hefði
umboð til þess að undirrita sátt-
mála um upptöku Yemen í sam
bandsríki Egyptalands og
Sýrlands. Hafði krónprinsinn
viðkomu í Saudi-Arabíu og ræddi
við Saud konung. Ekkert hefur
heldur verið skýrt frá úrslitum
viðræðna sendinefnda íraks og
Jórdaníu við Saud, en þær héldu
heimleiðis í dag.
Samkvæmt síðari fregnuin
þykir nú hilla undir þriðja
arabiska sambandsríkið. Moham-
med E1 Khalifa, frændi og ráð-
gjafi hæstráðanda á verndarsvæð
inu Bahrein lét svo ummælt í
Bombay í dag, að ráðagerðir
væru um það, að Saudi-Arabía
og brezka verndarsvæðið Ban-
rein og Kuwait gerðu með sér
ríkjasamband. Ef úr þessari sam-
einingu yrði mundu hér samein
ast tvö auðugustu olíuvinnslu-
svæði í heimi, þvi að árlega eru
unnar samtals 100 milij. lestir
olíu í Saud-Arabíu og Kuwait.
Hussein Jórdaníukonungur hé!t
ræðu í dag og lýsti því þar yfir,
að Jórdanía hefðu gengið í banda-
lag við írak vegna þess að land-
Kadnr segir verkefni sitt nð
„fjorlægja" óæskiiega ntenn
BÚDAPEST 28. febrúar. — Ör-
yggislögregluvöröurinn var geysi
fjölmcnnur á járnbrautarstöðinni
í Búdapest, er Janos Kadar og fé
lagar hans komu neim úr lörinni
til Rúmeníu í kvöld. í stutlriræöu
er Kadar flutti viö þaö tækifæri,
sagði hann að efnahagsleg og
ið stóð eitt gegn óvininum. Þakk-
aði hann aSudi-Arabíu jafnframt
fyrir fjárhagsaðstoðina, er hún
hefur veitt Jórdaníu, en sagði,
að Egyptaland og Sýrland hefðu
enn ekki greitt einn skilding aí
þeirri aðstoð, er ríkin hétu Jórd-
aníu.
Frá London bárust fregnir seint
í kvöld, aö brezka utanríkisráöu-
neytið hefði fyrir sitt leyti tekið
fram, aö engin ráðagerö hefði
komið til tals um sameiningu
Saudi-Arabíu og brezku verndar-
svæöanna Kuwait og Bahrain.
Saud konungur Saudi-Arabíu gaf
út yfirlýsingu í kvöld þess efnis,
að Saudi-Arabía mundi hvorki
ganga í ríkjasamband Egypta-
lands né Sýrlands né samband
íraks og Jórdaníu. Er því ijóst,
að sendiför Jórdaníu- og íraks-
manna hefur til einskis orðið.
sókn ungverskrar sendinefndar,
meö Kadar í fararbroddi, til
Rúmeníu.
Telur blaöiö, aö för sendi-
nefndarinnar til Búkarest hafi
aöallega verið gerö til þess að
hafa samband við Nagy, sem ein-
hvern tíma á næstunni veröi flutt
ur til Ungverjalands til yfir-
heyrslu. KveÖst blaöiö hafa sann-
fregnir af því, aö Nagy hafi veriö
boðin góð staöa, m. a. s. forsætis-
ráölierrastaöa í Ungverjalandi
eftir ákveðið reynsluíímabil, ef
hann vildi „játa glæpina“, en með
því hafi verið ætlun kommún-
ista aö uppræta vinsældir hans
meöal ungversku þjóöarinnar.
Hins vegar hafi Nagy neitaö öllu
samstarfi viö ungverska komm-
únista — og algerlega neitað aö
„játa“ — og Ijósasti votturinn
um það sé ræöa, er Kallai, inn-
anríkisráöherra Ungverjalands,
flutti í gær, þar sem liann sagð'i.
aö Nagy væri „heimsvaldasinni"
og „óvinur fólksins“.
lagsgrundvöllur í helztu málefn-
um þjóðarinnar — og sigurlíkurn
ar væru miklar fyrir verkamanna
flokkinn i næstu kosningum. Boð
aði Phillips forvígismenn sam-
takanna til fundar við sig.
Vopnahlé í Alsír,
ef............
ALSÍR 28. febrúar. — f febrúar
böröust 425.000 franskir hermenn
í Alsír — og háðu 500 orrustur
við uppreisnarmenn. í þessum
átökum féilu 3,900 uppreisnar.
menn og 207 franskir hermenn.
Telja frönsku stjórnarvöldin, að
uppreisnarmenn hafi nú 30,000
manna her á að skipa — og er
hann mun betur vopnum búin en
nokkru sinni fyrr. Þá lét tals-
maður herstjórnarinnar svo um
mælt í dag, að vopnahlé yrði í
Alsír jafnskjótt og Frökkum tæk
ist að Ioka landamærum Túnis
og Alsír.
Eiscnliower missti
eina tönn
WASHINGTON, 28. febr. — Eis
enhower Bandaríkjaforseti lagð-
is í dag í hersjúkrahús í
Washington. Mun hann gangast
undir nákvæma ransókn I fyrra-
máiið í sambandi við æðastífluna,
sem hann fékk hinn 24. nóvem-
ber sl. Ekki mun försetinn hafa
kennt sér neins meins, hann var
hress og reifur, er hann hélt til
sjúkrahússins, og mun rannsókn-
in einungis gerð £ öryggisskini.
Eisenhower sat í morgun í for-
sæti á ráðuneytisfundi, síðdegi*
var dregin úr honum ein tönn á
sjúkrahúsinu — og blaðafulltrúi
forsetans lét þess getið í kvöld,
að sennilega færi forsetinn áf
sjúkrahúsinu strax að rannsókn-
inni lokini. á morgun.
Kommúnistar safna li&i
um allt S-England
Tjalda þvi, sem til
LONDON 28. febrúar. — Komm-
únistar í Bretlandi ætla að efna
til mikillar mótmælagöngu á
morgun. Verður gengið til fjög-
Nýir róðgjafor Eisenhowers
WASHINGTON, 28. febrúar. —
Dulles utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna skýrði svo frá í dag, að
James J. Wadsworth hefði veriö
skipaður fulltrúi Bandaríkjanna
við framtíðarviðræður um taK-
markaða afvopnun. Wadsworth
hefur um skeið átt sæti í sendi-
nefnd Bandaríkjanna hjá S. Þ
Stassen, fyrrv. sérl. ráðgj. Eisen-
howers í afvopnunarmálum, heí-
( ur sem kunnugt er haft þennan
menningarleg samvinna Rúmeniu. starfa á hendi að undanförnu. —
og Ungverjalands yrði aukin á j Þá hefur verið skipuð nefnd sér-
næstunni. f lok ræöu sinnar sagöi ] fx-æðinga Eisenhowers forseta
hann: Þaö er verkefni okkar að | til aðstoðar hvað afvopnunar-
fjarlægja úr opinberu lifi þá j málunum viðvíkur. í henni eiga
menn, sem valda erfiðleikum í
sambúö Ungverja og Búlgara.
Ekki gaf hann frekari skýringu
á hvaö hér var átt við.
sæti: Grunther, fyrrum yfirher-
foringi NATO, Lovett, fyrrum
ráðgjafi utanríkisráðuneytisins
McCloy, fyrrum yfirmaður her-
námsliðs Bandaríkjanna í Þýzka-
landi og Smith, fyrrum sendi-
herra Bandaríkjanna í Moskvu.
Mendes France
ómyrkur í máli
PARlS, 28. febr. — Mendes
France, fyrrum forsætisráð-
lierra Frakklands, lét svo um-
mælt í ræðu í dag, að hann vítti
þá menn, er vildu gera Alsírmál-
ið alþjóðlegt deilumál. Kvað hann
Frakka einna að leysa Alsírvanda
málið — og það mundi verða
skaðlegt bæði Túnis og Frakk-
landi, að Frakkar misstu yfiráð
yfir flotahöfninni Bizerta — og
Nato yrði faiið að hafa yfirum-
sjón þar.
er
urra bandarískra herstöðva I
Bretlandi í mótmælaskyni við
dvöl bandaríska hersins í Bret-
landi svo og fyrirhugaða upp-
setningu eldflaugastöðva. Komm
únistar eru fámennir í Bretlandi
— og þess vegna hafa foringjar
þeirra gert víðtækar ráðstafanir
til þess að safna kommúnistum
af öliu Suður-Englandi saman á
fjórum fyrrgj-eindum stöðum.Um
100 langferðabílar hafa veriS
leigðir til flutninganna, en sumir
ir munu koma í einkabílum og
aðrir með járnbrautarlestum.
Er ætlan kommúnista að ná
tali af yfirmönnum bandariska
hersins á þessum fjórum stöðvum
og biðja þá að koma á framfæri
við Eisenhower forseta kröfum
um brottflutning alls bandaríska
hersins frá Bretlandí.
Búizt er við að þetta verði fjöl-
mennustu hópgöngur kommún-
ista í Bretlandi í fjölda ára —
og telur lögreglan, sem þegar
hefur gert ráðstafanir til þess að
senda varalið á vettvang, ef til
tiðinda dregur, að um 6,000 kom-
múnistar muni mæta. Þeir eru nú
taldir 25,000 í Bi-etlandi.