Morgunblaðið - 06.05.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.05.1959, Blaðsíða 23
23 Miðvikudagur 6. maí 1959 MORGUNBLAÐIÐ Bréf sent Mbl.: Kafarar á skipum Reykjavík 23/4 1959 Herra ritstjóri. Nýlega birtist í blaði yðar svar- grein félags ísl. kafara við grein eftir Sigrurjón Sigurbjörnsson, um nytsemi þess að hafa sundköfun- artæki um borð í öllum skipum. Sjá kafarar í grein þeirri ógn- un við hagsmuni sína og vilja verja þá, svo sem auðskilið er. Grípa þeir til þess að mála fjand- ann á vegginn og lýsa sundköf un sem svo hættulegu háttalagi sem „falllhlífarstökk í myrkri yfir ó- kunnu landi“. Mikið að þeir skyldu ekki líkja því við falthlíf- arlaust stökk). Sannleikurinn er sá, að sundköfun er mjög hættu- laus íþrótt, sem stunduð er af þús undum manna um víða veröld. Rétt er að taka fram, að um tvenns konar tæki til sundköfunar er að ræða, lofttælci og súrefnis- tæki. Súrefnistækin eru þannig, að kafarinn notar alltaf sama loftið. Það er hreinsað í tækjum 'hans og bætt í það súrefni. Notk- un slíkra tækja mátti sjá í kvik- myndinni um Crabb, sem nýlega var sýnd hér í Reykjavík. Þessi tæki eru mjög hættuleg, vegna þess að súrefnið verkar sem eitur á mannslíkamann, þegar niður fyrir 11 metra dýpi er komið. Enda eru slík tæki ekki notuð nema á stríðstímum, því kostir þeirra eru fólgnir í því, að engar loftbólur, sem gætu komið upp um kafarann, myndast. Hin tegundin er þannig, að lofti er þrýst á kúta, eða brúsa, og ber kafarinn þá á bakinu. Liggur svo slanga í munn hans og á henni er hemill, sem sjávarþrýstingurinn verkar á, og skammtar kafaranum loft- ið með réttum þrýstingi. Einnig er hægt að losna við að nota kút- ana, með því að láta kafarann fá loftið gegnum slöngu frá loftdælu í skipi eða landi. Með slöngu er hægt að kafa á allt að 20 metra Nart Tímans í þingmann Snæfellinga VIÐ afgreiðslu fjárlaga fyrir ár- in 1957 og 1958, á þeim árum sem þjóðin naut handleiðslu vinstri stjórnarinnar, undir for- ustu formanns Framsóknar- flokksins, fluttu þeir þingmenn- irnir Friðjón Þórðarson, Sigurð- ur Ágústsson, Ásgeir Bjarnason og Pétur Pétursson tillögu um hækkun á framlagi til Heydals- vegar fyrra árið úr 1550 þús. kr. í 350 þús. kr. og seinna árið úr 150 þús. kr. í 300 þús. kr. Bæði árin var tillagan felld — og auð- vitað með atkvæðum allra þing- manna Framsóknarflokksins, nema þingm. Dalamanna Ásgeirs Bjarnasonar. Á yfirstandandi þingi kom fram breytingartillaga við afgr. fjárlaganna, um hækkun á fram- lagi til Heydalsvegar úr 150 þús. kr. í 300 þús. kr. Tiliagan var felld með 25 atkv. gegn 19. Átta þingm. voru fjarverandi, þar á meðal þingm. Snæfellinga, sem var einn flutningsm. tillögunnar. Dagblaðið Tíminn sá ástæðu til að narta í þingm. Snæfellinga (ekki í fyrsta skipti) með því að birta rammagrein í blaðinu í gær, þar sem segir að þingm. hafi ekki látið sjá sig í þinginu fyrr en búið var að fella tillög- una — og hafi það hvorki sýnt heilindi eða skörungsskap. Svo mörg eru þau orð. Þeir sem þekkja þingm. Snæfellinga vita að hann mundi síðastur manna ganga gegn því máli, sem hann hefir flutt eða heitið stuðn- ingi. Hins vegar er ekki óeðli- legt að Tíminn álykti þannig — og mun blaðið þá hafa í huga vinnubrögð þau, sem forustu- menn Framsóknarmanna oft og einatt beita flokksmenn sína — og sem hvorki vitna um skör- ungsskap eða heilindi. dýpi, en athafnasviðið takmarkast auovitað af lengd slöngunnar. Auðvitað verður að fylgja fyrir- mælum framleiðenda tækjanna nákvæmlega og einnig verður að hafa allar varúðarreglur í huga og ætla sér ekki um of. Er sund- köfun í engu frábrugðin öðrum íþróttum hvað það snertir. Eða myndi nokkrum detta í hug að kalla skíðastölck lífshættulegt, af því að byrjandi væri líklegur til að hálsbrjóta sig, ef hann stykki fram af stökkpallinum á Holmen kollen eða öðrum sambærilegum? Það má vera, að kafarar í félagi ísl. kafara telji sundköfun hættu- lega, og það er rétt, ef menn eru ekki gætnari en sá meðal þeirra, sem slyngastur er talinn í sund- köfuninni. Hann segir nefnilega frá því í viðtali, sem birtist í Vik unni, hvernig hann var nærri kom inn yfir til hinna eilífu veiði- landa. Var hann að kafa á 28 m. dýpi, þegar loftið þraut. Segir svo í viðtalinu: „Hann hafði átt von á því, þ.e. að loftið, þryti, en treysti því að hann yrði dreginn upp. Ekki var hægt að komast hjálparlaust upp, því svo hafði hann þyngt á sér“. Leturíbr. mín. Þarna segir hann blákalt frá því, að hann hafi vísvitandi brotið að- alboðorð sundkafara, en það er, að aldrei megi festa þannig á sig sökku, að ekki sé hægt að losa hana með einu handtaki. Þetta vita allir áhugamenn, enda líta þeir ekki sömu augum á sundköf- un og fél. ísl. kafara. i eir, þ.e, áhugamennirnir, vita, að sundköf un er skemmtileg og þroskandi íþrótt, sem einnig getur verið til mikils gagns Má nefna rannsókn- ir á sjávarbotninum, rannsóknir á dýralífi, fornminjarannsóknir, botnhreinsanir skipa og báta, smá viðgerðir allskonar á skipum og fjölmargt annað. Virðingarfyllst, Björn Gigja. Síðustu hljómleik- ar Five Keys í kvöld AMERÍSKI söngkvintettinn Five Keys syngur í síðasta sinn í Reykjavík í kvöld kl. 11,15 í Aust urbæjarbíói. Gert hafði verið ráð fyrir að söngvararnir færu út á land til hljómleikahalds í dag, en það verður ekki fyrr en á morgun og því gefst tæki til að halda kvöld. í fyrramálið fara Five þessa síðustu hljómleika hér í Keys til Akureyrar og munu syngja þar annað kvöld. Five Keys ásamt KK sextettin- um, Elly Vilhjálms og Ragnari Bjarnasyni fóru til Vífilsstaða í gærdag og skemmtu þar fyrir sjúklinga hæhsins, sem fögnuðu þessum góðu gestum vel. Nefndarálit um stjórnarskrárírv. í efri deild Á FUNDI sameinaðs Alþingis í gær var frestað laust fyrir kl. 4 og fram haldið kl. 9 í gærkvöldi. Þá var útbýtt nefndarálitum frá stj órnarskrárnefnd efri deildar um kjördæmafrumvarpið. Eins og vænta mátti klofnaði nefndin um málið. Meirihlutinn, Gunnar Thoroddsen, Eggert Þor- steinsson og Björn Jónsson, leggja til að frv. verði samþykkt, en minnihlutinn, Karl Kristjánsson og Hermann Jónasson, leggja til að því verði vísað frá með rök- studdri dagskrá, en bera fram til vara sömu tillögur og framsókn- armenn báru fram í neðri deild. Stjórnarskrárfrv. verður tekið til 2. umr. í efri deild í dag. Samiiingar undir- ritaðir um togara- srnioi HAFNARFIRÐI. — Nú hafa verið undirritaðir samningar um smíði á nýjum togara fyrir Bæjarútgerð ina, en það var gert hinn 1. maí í i Bremerhaven í Þýzkalandi. Gerðu það forstjórar útgerðarinnar og Gísli Jónsson, sem verið hefir ráðunautur hennar um kaupin. Eins og fyrr hefir verið getið, verður þetta stærsti togari ís- lendinga eða um 1000 brúttólest- ir, 210,7 fet á lengd og á að geta borið 550 lestir af ísfiski í lest. Verður hann búinn öllum nýj- ustu öryggistækjum og mjög traust skip í hvívetna. Til dæmis verða í því tæki til að verjast ís- ingu. Þá verður það með skipti- skrúfu, en við það nýtist vélar- aflið miklu betur en ella. Verður togarinn afhentur 20. apríl árið 1960. — G. E. Bandarískur ráð- herra í Reykjavík 1 GÆR um kl. 6 síðdegis kom aðstoðarflugmálaráðherra Banda ríkjanna, James Douglas, við í Reykjavík á leið sinni frá Ev- rópa til Bandaríkjanna. Sat hann í gær kvöldverðarboð íslenzku ríkisstjórnarinnar en hafði næt- urgistingu í bandaríska sendiráð- inu. Var búizt við að hann héldi för sinni áfram til Bandaríkj- anna í dag. Mr. Douglas hefur áður komið hingað til»lands. Var hann for- maður bandarísku sendinefndar- innar, sem kom hingað haustið 1956 til að semja við vinstri stjórnina um endurnýjun her- verndarsamningsins og áfram- haldandi setu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, þrátt fyrir ályktun vinstri flokkanna um brottrekstur varnarliðsins. Inflúenzufaraldur fer hratt yfir í Eyjnm VESTMANNAEYJUM, 5. maí: — Fyrir um það bil þrem dögum, tók á því að bera hér í bænum að infúenzan var tekin að breið- ast út. Síðan hefur hún farið ákaflega hratt yfir, og fólk strá fallið. í verbúð Fiskiðjunnar lá allmargt fólk rúmfast í dag vegna veikinnar. Kemur þessi farald- ur eðlilega hart niður á fiskíram leiðslunni, því þó vertíð sé senn lokið, eru framundan mikil verk- efni, t. d. við fiskpökkun. Telja verður það þó lán í óláni, að veikin skyldi ekki herja hér þeg- ar aflahrotan var mest, því slíkt hefði komið afar hart niður á fiskframleiðslunni. —Bj. Guðm. BLÓM Afskorin blóm og pottaplönt- ur. — Gróðrarstöðin við Miklatorg Simi 19775. Málflutningsskrifstofa Einai- B. Guðmundsson Cuðlaugur Þorláksson Cuðmundur Pcti rsson Aðalstræti 6, III. hæð. Símar 12002 — 13202 — 13602. Sigurgeir Sigurjónsson hæstarcttarlögmaður. Aðalstrætj 8. — Sím? 11043. KetiII í soðviimslu í GÆRMORGUN kom skip til Siglufjarðar með stóran gufu- ketil á.þilfarL Höfðu Síldarverk- smiðjur ríkisins keypt ketilinn á Hjalteyri af Kveldúlfsverk- smiðjunni, en þar hafði hann staðið lengi ónotaður. Verður hann settur upp í sambandi við soðvinnslu verksmiðjanna. Soð- vinnslustöðin við SR var reist í fyrra og var til bráðabirgða notazt við gufu frá kötlum þeim, sem eru í verksmiðjum SR. Það var þó ekki framkvæmanlegt ef vinna þurfti síld í öllum verk- smiðjum samtímis soðvinnslunni. Soðvinnslustöð SR mun geta unnið úr soði frá 10 þús. mála vinnslu á sólarhring. Vandræðaástand vegna inílúenzu á Ðalvík DALVÍK, 5. maí. — Hér er hið mesta vandræðaástand ríkjandi, því svo miskunnarlaust hefur inflúenzan herjað hér í kaup- túninu, að heita má að annar hver maður sé frá vinnu vegna faraldurs þessa. Hingað kom vélskipið Björgvin í gær með 63 tonn af smáum fiski eftir 12 daga útivist. Er hugmyndin .að vinnsla fisksins fari fram í hraðfrystihúsinu, en það er þó undir því komið að hægt verði að fá hægilegt vinnu- afl. Á sumum heimilanna hefur inflúenzan lagt h'ærn einasta fjölskyldumeðlim. Þó eru ekki nærri eins mikil og alvarleg brögð að inflúenzunni fram í sveitinni. FéS á Þórodds- stöðum atliugað SELFOSSI, 5. maí. — Sýslumað- ur Árnesinga, skýrði frá því í dag, að fram hefði farið athugun á sauðfénu að Þóroddsstöðum í Laugardal. Er hér um að ræða fé það sem menn úr Reykjavík kærðu út af slæmri meðferð á. Við athugun kom í ljós að hið dauða fé sem komumenn fundu og töldu hafa fallið úr hor, hafði drepizt í fyrrahaust er veiki kom upp í því. Seinna kom svo upp ormaveiki í fénu og einnig drap hún nokkrar kindur. Kvað sýslu- maður fjárbú þetta vera mjög vanhirt, og af þeim sökum væri útlit fjárins slæmt, en um dauða af völdum hors virtist ekki að ræða. — GG. Hugheilar kveðjur og þakkir til allra ,sem mundu mig á 70 ára afmælinu, 27. aprjl s.l. Lifið heil. Lilja Samúelsdóttir, Garðaveg 11, Keflavík. Hjartans þakkir færi ég öllum vinum og vandamönnum sem glöddu mig með gjöfum, heillaóskaskeytum og kveðj- um í tilefni af 70 ára afmæli mínu 3. maí. Drottinn blessi ykkur öll. Guðrún Elíasdóttir, Sörlaskjóli 9 Konan mín INGIBJÖRG ÓLAFSDÖTTIR Hverfisgötu 69, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. maí kl. 3,30. Blóm afþökkuð. Gunnar Jónsson, börn, tengdabörn, barnabörn og fósturdóttir. Útför HÖLMFRlÐAR GUÐRÚNAR BJARNADÓTTUR sem andaðist 26. apríl fer fram frá Gaulverjabæjarkirkju miðvikudaginn 6. maí. Athöfnin hefst kl. 1,30 með húskveðju að Hólum I Stokkseyrarhreppi. Magnús Hannesson Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar NlELSlNU KRISTJÁNSDÓTTUR Óslandi. Kristján Jónsson, Gestur Jónsson. Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför RANNVEIGAR LILJU SKARPHÉÐINSDÓTTUR Sérstaklega þökkum við Kjartani Ólafssyni, héraðs- lækni, fyrir veitta hjálp í veikindum hennar. Anna Jónsdóttir, Skarphéðinn Njálsson, Rannveig Jónsdóttir, Jón Jóhannesson. Við þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, BJARGAR ISAKSDÓTTUR FINNBOGASON. Borghildur Jónsdóttir, Jalcob Frímannsson, Rannveig og Vilhjálmur Þór Nora og Oscar J. Finnbogason, Margrét Benediktsdóttir, Aibert J. Finnbogason og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.