Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 3
Fimmtudaefur 13. ágúst 1959 MORCVNBLAÐ1Ð 3 Sameinað Alþingi ræðir um: Jarðhifarannsóknir og kaup á nýjum jarðbor STAKSTEINAR .,Brask og hreppa pólitík“ FORSÆTISRÁÐHERRA svaraði á fundi Sameinaðs Alþingis í gær fyrirspurn frá Karli Kristjáns- syni um hvaða ráðstafanir ríkis- stjórnin hefði gert til þess að framkvæma þann vilja síðasta Alþingis að kaupa í samráði við jarðhitadeild raforkumálaskrif- stofunnar jarðbor, sem notaður verði til jarðhitarannsókna á Norðurlandi, eins og komizt var að orði í fyrirspurninni. Kosta nær 4 milljónir Skýrði forsætisráðherra svo frá að leitað hefði verið upplýsinga um tæknileg atriði varðandi kaupin í nokkrum löndum Evrópu svo og Bandaríkjunum, og hefði komið í ljós, að bor, sem hægt er að bora með niður á 1200 m dýpi 100 mm holu, mundi kosta 3,9 milljónir ísl. króna og væri afgreiðslufrestur um 4 mánuðir. Árlegur reksturskostnaður hans Matthías Matthiesen flytur jómfrúrræðu sína í Sam. Alþingi. væri áætlaður 3—5 milljónir. Athugunum á málinu yrði hald- ið áfram og mundi væntanlega verða lagt fyrir næsta Alþingi að taka endanlegar ákvarðanir um kaupiri. Jómfrúrræða Matthíasar Matthías Matthiesen, kvaddi ★ Nýft háskóla- bió Á efri myndinnl sést turninn, þar sem sviðinu er komið fyr ir, og framan við hann, þar sem salur- inn verður, er verið að leggja niður þak- ið. Hin myndin sýn- ir greiniiega hvernig þakið er lagt — á jörðinni. Ljósm. Studio. 83 tonna þaki ver&ur lyft BUÐUR á Melum er að rísa upp hið nýja háskólabíó eða hljóm- leikahöll, sem á að taka 1000 manns í sæti. I»ar er nú kominn 24 metra turn, en upp á hann á að draga kvikmyndatjaldið og stækka sviðið að mun, þegar sal- urinn verður notaður til hljóm- leikahalds. Þá er einnig ætlunin að klæða salinn plötum sem snúa má við með handtaki, ti’. að fá réttan hljómburð, eftir því hvort hljómleikar eða kvikmynda sýningar fara þar fram. Undir sviðinu í turninum er mikið rými fyrir búningsherbergi. Byggingin verður reist með ail nýstárlegum hætti. Þakið verður úr stáli og er þessa dagana ver- að leggja það — á jörðinni. Það kemur til með að vega 83 tonn, að sögn, og á að fullgera þáð fyrst og lyffa því síðan með veggj unum, sem steyptir verða raeð skriðmótum, en salurinn verður 16 m hár. Arkitekt er Gunnlaugur Halldórsson. Er fyrirhugað að steypa upp salinn í sumar, vinna að hor.um að innan í vetur og reisa and- dyrið, sem verður ákaflega stórt næsta sumar. Á kvikmyndahúsið að vera fullbúið til notkunar 17. júní 1961, en þá á Háskóli íslands 50 ára afmæli. sér hljóðs f tilefni fyrirspurnar þessarar og flutti jómfrúrræðu sína á þingi. Komst hann m.a. svo að orði: Herra forseti! Eitt af mest aðkallandi verk- efnum í okkar þjóðfélagi í dag, er, að rannsaka til hlýtar jarð- hitasvæði landsins svo og skil- yrðin til þess að hagnýta þau bæði til hitaveitna, efnaiðnaðar og raforkuvinnslu. Hitaveitur spara þjóðinni ár- lega tugi milljóna króna í er- lendum gjaldeyri og verða þær því þannig, að teljast þjóðhags- lega heilbrigt fyrirtæki. Jafnframt nýtingu varmans þennan hátt hefur á síðari árum ítarlega verið rætt og ritað um og reyndar rannsakað nokkuð um nýtingu varmans með tilliti til efnaiðnaðar, og þá sérstak- lega í sambaridi við sjóefna- verksmiðju og annan kemiskan iðnað. Þá hefur og verið rætt um byggingu raforkuvera og þá sér- staklega með tilliti til þess að brúa bilið á milli fullvirkj unar Sogsins og annarra stærri vatnsf allavirk j ana. Það sem hér hefur verið sagt, svo og sú staðreynd að landið er auðugt af jarðhita, styður mjög að þvi, að allt sé gert sem unnt er, til að rannsaka til fullnustu helztu jarðhitasvæðin og unnið verði að því í vaxandi mæli að gera ítarlegar áætlanir um hag- nýtingu jarðhitans með tilliti til notagildis fyrir þjóðfélagsþegn- ana, gjaldeyrissparnaðar og hugs anlegrar útflutningsframleiðslu. Þær frumrannsóknir sem fram hafa farið á einu stærsta jarð- hitasvæði landsins, Krýsuvík, hafa sýnt, að þar séu fyrir hendi ein hin hagkvæmustu skilyrði til þeirra framkvæmda, sem ég hef lauslega minnzt á í þessari athugasemd minni í sambandi við þær umræður sem hér fara fram. Jarðhitarannsóknir þær sem fram hafa farið í Krýsuvík, hafa verið framkvæmdar með hinum veigaminni tækjum, og hafa þeir sérfræðingar sem um mál þessi hafa fjallað, bent á, að nauðsyn beri til víðtækari rannsókna með stórvirkari tækjum. Það hefur frá öndverðu verið ætlunin að hinn stórvirki jarð- bor yrði sendur m. a. til Krýsu- víkur, enda lágu fyrir, eins og ég gat um áðan, álitsgerðir sér- fræðinga þar um. í Hafnarfirði hefur um lang- an tíma ríkt mikill áhugi fyrir hagnýtingu jarðhitans í Krýsu- vík og fullnaðarrannsókn jarð- hitasvæðisins og þá ekki hvað sízt með tilliti til væntanlegrar hitaveitu. Þar eð mál þetta er mikið hagsmunamál Hafnfirðinga, vildi ég mega varpa þeirri spurningu fram til hæstvirts forsætisráð- herra, ráðherra raforkumála, hvort þegar hafi verið gerðar Framh. á bls. 19 Málgögn vinstri stjórnarinnar sálugu halda áfram að brigzla flokkum hver annarra um svik og pretti. í gær deilir „Þjóðviij- inn“ harðlega á Framsóknarflokk inn fyrir margvíslega brigðmælgi hans í V-stjórninni og kemst þá meðal annars að orði á þessa leið: „Ekki tók Framsóknarflokk- urinn heldur í mál að komið væri viturlegra skipulagi á þjóðar- búskapinn. Þar skyldi brask og hreppapólitík áfram ráða ríkj- um. Afleiðingin varð sú að stefna vinstri stjórnarinnar í efnahags- málum varð ekki nægilega mark- viss. Þá hét vinstri stjórnin því að hefta verðbólguna og tryggja óskertan og bættan kaupmátt launa. Einnig þvj fyrirheiti brást Framsóknarflokkurinn.“ Þannig viðurkenna höfuðmál- gögn vinstri stjórnarinnar að hún hafi brugðizt öllum sínum fyrir- heitum. Kjördæmaskipunin og fólksflutningar úr sVeitunum I umræðunum um kjördæma- málið hafa Framsóknarmenn lialdið því blákalt fram, að i kjölfar hiutfallskosninga um land allt muni fylgja „eyðing heilla landshluta“. En hafa ekki Fram- sóknarmenn sjálfir flutt tillögu um það á Alþingi að hlutfalls- kosning skuli haldast í tvímenn- ingskjördæmunum og Reykja- vík? Hafa þeir ekki einnig lagt til að hlutfallskosning skuli upp tekin á Akureyri? Af því Ieiðir sem sagt enga hættu fyrir sveitirnar að hlut- fallskosningar gildi i tvímenn- ingskjördæmum, á Akureyri og Reykjavík. En ef þær væru tekn- ar upp í öðrum héruðum, segja Framsóknarmenn að það mundi hafa í för með sér „eyðingu byggðar innar“!! í þessu sambandi er einnig rétt að benda á það enn einu sinni, að á síðastliðnum þrjátíu árum hefur þvj fólki fækkað stórkost- lega, sem vinnur að landbúnaðar- störfum í sveitum landsins. Áriff 1930 unnu 40—50 þúsund manns að landbúnaðarstörfum. En nú vinna að landbúnaðarstörfum rúmlega tuttugu þúsund manns. Á þessu tímabili hefur sú kjör- dæmaskipun þó verið í gildi, sem Framsóknarmenn að það hefði í för með sér „eyðingu byggðar- innar“!! Voru þeir óvinir strjál- býlisins? Það er staðreynd sem alþjóð er kunn að ýmsir af merkustu leiðtogum bænda á Alþingi hafa fyrr og síðar mælt eindregið með því að sú kjördæmaskipun yrði upp tekin, sem nú hefuí veriff lögfest. Menn eins og Pétur á Gautlöndum og Þórhallur biskup lýstu því yfir fyrir fimmtíu ár- um aff þeir teldu hlutfallskosn- ingar í nokkrum stórúm kjör- dæmum skynsamlegustu kjör- dæmaskipunina sem íslendingar ættu völ á. En það eru ekki aðeins þessir látnu þingskörungar og heiðurs- menp sem slík ummæli hafa látið falla. Ýmsir af núlifandi forystu- mönnum Framsóknarflokksins hafa fyrir tiltölulega fáum árum lýst þeirri skoðun sinni að hlut- fallskosningar í stórum kjör- dæmum væru æskilegar og lík- legar til þess að treysta grund- völl íslenzks lýðræðis og þing- ræðis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.