Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 13
Fimmtudasrur 13. ?' erúst 1959 MORCTnvnr 4010 13 Kristín Ölafsdóttir - Mihning Kristín Ólafsdóttir var fædd í Ólafsvík, 18. febrúar, 1901. For- eldrar hennar voru Ólafur Bjarna son, sjómaður og koná hans, Kat- rín Hjálmarsdóttir. Eignuðust þau ellefu börn og eru sex þeirra á lífi. Stór var barnahópurinn og tíðum þröngt í búi. Var því Krist- ín send, tólf ára gömul, til Pat- reksfjarðar, til þess að vinna fyr- ir sér. Fermd var hún frá föður- húsum í Ólafsvík, en kom til Reykjavíkur árið 1919 og vann hér við hússtörf þar til hún giftist Guðlaugi Gíslasyni, úrsmiði, 15. okt. 1922. Fluttu þau til Vest- mannaeyja og bjuggu þar í nítján ár. Börn þeirra fjögur fæddust í Eyjum, en þau eru: Gísli, skrif- stofustjóri hjá Vátryggingafélag- inu hf., giftur Guðrúnu Guð- mundsdóttur, Elsa, gift Birgi Helgas., strætisvagnstjóra, Karl, úrsmiður, giftur Sigurdisi Er- lendsdóttur og Ólína, gift Helga Arnlaugssyni, skipasmið. Árið 1941 fluttist Kristín með manni sínum og fjölskyldu til Reykjavíkur og hafa þau hjón og börn þeirra öll verið búsett hér í bæ síðan. Frá tfyrstu kynnum átti maður ttCristlínar við vánheilsu að stríða. Var hún ávalt stoð hans og stytta í veikindunum og í allri sambúð þeirra. Þegar hann varð að fara í sjúkrahús, þar sem hann dvaldi meira og minna um fimm ára skeið, fór hún að vinna utan heimilisins og hélt því áfram annað slagið til hinstu stundar. Kristín var félagslynd kona •oig hafði mikinn áhuga fyrir mannúðarmálum. Gengdi hún trúnaðarstörfum fyrir Mæðra- styrksnefnd og í Barnavernd- arnefnd Reykjavíkur síðustu tíu árin. Einnig var hún, síðast- liðin fimm ár, formaður Heima- eyjar, átthagafélags brottfluttra Vestmannaeyinga, búsettra hér í bæ. y Leiðir okkar lþgu saman í Barnaverndarnefnd Reykjavík- ur um nokkurra ára skeið. Var hún ávallf reiðubúin að fara með mér, þegar neyðin kallaði og ég leitaði til hennar, hvort sem það var síðla kvölds, snemma morguns eða á helgi- degi og þó að slíkir, leiðangrar gætu staðið yfir í fleirri klukku stundir. Börnin áttu hjarta hennar svo og mæðurnar. Af reynslu sinni, þegar hún varð að fara að heiman ung að árum, vissi hún að samband móður og barns' er svo mikilvægt að ekki má rjúfa það nema í ítrustu neyð og að happasælla er að reyna að hjálpa móðurinni til þess að hafa börnin hjá sér en að leysa upp heimilið, þó að því sé að einhverju leyti ábóta vant og að fáar stofnanir geta gegnt hlutverki þess, þó að góðar séu. Það er þolinmæðisverk og oft vanþakklátt og vanmetið að reyna að hjálpa þeim, sem af einhverj um ástæðum hafa lent í djúpið. Sumir, sem lífið hefur leikið hart, hafa hlaðið utan um sig harða skel, einskonar varnarbrynju, sem erfitit er að komast inn úr. Þeir geta mis- skilið þá, sem reyna að hjálpa þeim og leiðin að hjartanu er oft löng og vandfundin. En ég hygg að Kristín hafi tíðast fundið þá leið. Hún hafði djúpa samúð með þeim, sem báru skarðan hlut frá borði lífsins og vildi rétta þeim hjálparhönd og margir hafa leitað til hennar á raunastund, bæði á heimíli hennar og annaxs staðar. Kristín var glæsileg kona að ytra útliti, há og dökkhærð og bein í baki. En það var sá and- legi kraftur og innri ljómi, sem geislaði út frá henni, sem mér verður minnisstæðastur. Hún var einörð og hreinskiþn og hélt fast við sinn málstað, stórlynd nokkuð, en hafði stjórn á skapi sínu og viðkvæm undir niðri og trygglynd. Göngu hennar hér á jörðinni er nú lokið. Sporin hafa stund- um verið þung og skóli reynsl- unnar og lífsins erfiður. Þó var ávallt bjart i kring um hana hér og ég veit að birtan muni fylgja henni yfir til ódáins- landa, þar sem ný störf og ný verkefni bíða hennar. Hún byrjaði nýjan dag, hress og glöð, á Barnaheimilinu Laugarási, þar sem hún starfaði undanfarnar vikur, en eftir fá- ar stundir var hún önduð. Það er erfitt fyrir eiginmann henn- ar og börn að skilja að hún muni ekki koma heim aftur. Votta ég ástvinum hennar dýpstu samúð mína í sorg þeirra. Vinir okkar hverfa stundum án þess að við fáum þakkað þeim samfylgdina. Svo fór nú. En bænir okkar og þakjdr geta fylgt þeim inn í ókunnu löndin og minning góðrar konu lifir í hjörtunum. Blessuð sé hún. Þorbjörg Árnadóttir. Horfin, dáin: Að kveldi 4. þ.m. gekk hún glöð til hvílu. Árla morguns reis hún úr rekkju til að búa börnunum á barnaheimil- inu að Laugarási morgunverð. Þá var það, að hönd dauðans leiddi hana til æðri starfa. Góður dauðdagi, en snöggur og óvænt- ur viðskilnaður við ástvinina. Gift var Kristín vini mínum Guðlaugi Gíslasyni, úrsmið frá Stykkishólmi og áttu þau á lífi 4 mannvænleg börn, öll uppkom in og vel gift, enda var Kristín góð móðir, sívakandi yfir velferð barna sinna og barnabarna. Heim ilið að Langagerði 56 var hvorki hátt til lofts né vítt til veggja en einkar hlýtt og friðsælt svo vel fór um vegfarandann og hjón- in samhent í að vera ræðin og skemmtileg. Það vakti oft undr- un mína, hvað Kristín var'víð- lesin og ljóðelsk. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga ,að heilsast og kveðj ast það er lífsins saga. Þegar ég las andlátsfregn vin- konu minar og starfsfélaga, komu mér þessi orð í huga. Það voru mörg verkefni og félagsstörf, er frú Kristín Ólafsdóttir lagði gjörva hönd að, því að áhuga hennar, vinnugleði og innri þörf fyrir að bæta tilveru þeirra, er minna máttu sín í lífinu. mörk- uðu henni þó að nokkru brautina. Það var því ekki nein tilviljun, að vegir okkar lágu saman í Mæðrastyrksnefnd fyrir 16 ár- um, og var hún, sem allar aðrar konur í þeirri nefnd, sívakandi og hjálpandi þeim er þurftu hjálp ar við. Það voru mörg spor farin inn á heimili þessa bæjar til að taka sárasta broddinn af fátækt- inni fyrir jólin, eða heimsækja gamlar konur og ekkjur, er þörf höfðu fyrir sumardvöl á Mæðra heimilinu að Hlaðgerðarkoti. Að ógleymdu þegar fjáröflunardag- ur nefndarinnar var, að selja Mæðrablómið. Var Kristín oftast ein af þeim konum, er brosandi stóðu á götuhorni og glöddu veg farandann með því að gefa hon- um tækifæri til að minnast móð ur sinnar með þvf að kaupa eitt eða fleiri blóm. Mér er Kristín sérstaklega minnisstæð fyrir það, hve áhuginn var miklu meiri en kraftarnir leyfðu og áttum við tal um þgð. Svarið, sem ég fékk var, að hún fyndi sig sérstaklega knúða til að vera með núna. Hver veit, nema hjá henni hafi legið leyndur grunur um, hvað framundan væri, og því ekki fyr- ir neinn mun viljað missa síðasta tækifærið að láta gott af sér leiða. Frú Kristín Ólafsdóttir var Al- þýðuflokkskona í orðsins beztu merkingu og hélt merkinu hátt og einarðlega á lofti. Væri deilt á menn hennar eða flokk kunni hún alltaf ráð að betrumbæta það sem gert hafði verið einstakling um eða þjóðinni til heilla. Hvort Kristín aftur á móti hefur fengið þetta traust endurgreitt er ég ekki nógu kunnug að dæma um. Eitt ,pr þó víst ,að virðingar og trausts framámanna í Alþýðu- flokknum hefur hún notið því að í ýmsar nefndir var hún kosin sm fulltrúi flokksins ,þar á með- alí barnarvendarnefnd Reykjavík ur. Áttum við þar sæti saman um 9 ára skeið og fórum oft út sam- an til starfa, bæði á nóttu sem degi og ekki alltáf sefn skemmti- legast, og ekki heldur alltaf á alveg sama máli um úrlausnina. En alltaf sammála um að gera það, sem við teldum bezt fyrir þann sem hjálparinnar þurfti við og aldrei í eitt skipti kom það fyrir, að pólitískur ágreiningur skyti upp kollinum. Of félagslega þroskuð var Kristín til þess. Vinir Kristínar og við sam- starfsfólk kveðjum hana með söknuði og biðjum henni meira starfs, guðs um víðan geim. Ást- vinum hennar sendum við beztu kveðjur og vottum þeim samúð okkar og biðjum guð að hugga þá og blessa í sárri sorg. J. G. Eignarlóð í Garðahreppi Hefi til sölu 2200 ferm eignarlóð í Garðahrepppi (Hrauninu). — Nánari uppl. gefur. M ÁLFLUTNIN GSSTOF A INGI INGIMUNDARSON hdl Vonarstræti 4 H. hæð. Sími 24753. Kjallaraíbúð á Melunum Tvö herbergi og eldhús með sér inngangi og sér hitaveitu, er til sölu nú þegar. Upplýsingar gefur EGILL SIGURGEIRSSON, hrl., Austurstræti 3, sími 15958. Góð fbiið 2—4 herbergi með öllum þægindum, óskast til leigu nú þegar eða frá 1. september, helzt í vesturbænum Tilboð merkt: „Öll þægindi—4594“, sendist afgr. Mbl. fyrir 18. þ.m. Tilboð óskast í fólksbifreiðaboddý og grindur er seljast til niðurrifs. Verður til sýnis að Melavöllum við Rauðagerði, föstud. 14. þ.m. kl. 1—3. — Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Eyðublöð fyrir tilboð verða afhent á útboðsstað. SÖLUNEFND VARNALIÐSEIGNA Atvinna 1—2 duglegar stúlkur óskast nú þegar Upplýsingar í verksmiðjunni í dag kl. 10—12 og 4—6. Sokkaverksmiðjait h.f. Bræðraborgarstíg 7 Loftskeytanámskeið hefst í Reykjavík um miðjan september 1959. Um- sóknir, ásamt prófskírteini miðskólaprófs eða ann- ars hliðstæðs prófs og sundskírteini, sendist póst- og símamálastjórninni fyrir 1. september n.k. Inntökupróf verða haldin 7. og 8. september 1959. Prófað verður í ensku og reikningi þ. á. m. bókstafa- reikningi. Nánari upplýsingar í síma 1-10-00 í Reykjavík. Reykjavík, 12. ágúst 1959. PÖST- OG SlMAÍVIÁLASTJÖRNIN MARKAÐURINN HAFNARSTRÆTI 11. Gróðrastöðin við Miklatorg. — Sími 19775

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.