Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 24
VEÐR I O Sjá veSurkort á bls. 2. í»rijíTOÍ>IaMfo 77. tbl. — Föstudagur 1. apríl 1960 Úr fjárlögunum Sjá blaðsíðu 8. T ogaraverkfall- inu lauk í gœr VERKFALLI yfirmanna á togur- uniim lauk í gærmorgun. Samn- ingar voru untirritaðir laust fyr- ir kl. 6 fyrir milligöngu Torfa Hjartarsonar, sáttasemjara rík- isins. Hafði sáttafundur þá stað- ið yfir frá því kl. 5 á miðviku- dag. Það var viðurkent, eins og kunnugt er, að kjör togarasjó- manna voru lakari en kjör ann- arra sjómanna. í greinargerð með efnahagsmálafrumvarpi ríkis- Stjórnarinnar kom það fram, að þrátt fyrir þá stefnu hennar að sporna við launahækkunum, væri óhjákvæmilegt að bæta kjör togarasjómanna, segir í frétt frá FlB. Skömmtuw á smjöri afnumin RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið, að skömmun á smjöri og smjör- líki skuli afnumin frá og með 1. fipríL Framvegis verður allt smjör fiömu tegundar selt á einu og sama verði og sömuleiðis allt smjörlíki. Nýja verðið er meðal- •verð skammtaðrar og óskammt- aðrar vöru í vísitölu framfærslu- Icostnaðar. Heildarupphæð niður- greiðsina breytist ekki. Verð á smjöri verður því sem (hér segir: Heildsöluverð á „gæða- smjöri“ verður 42,05 kr. kg. og smásöluverð 47,65 kr. kg. 1 öðr- um flokki 36.05 kr. kg. í heild- fiölu og 40,65 kr. kg. í smásölu Verð á böglasmjöri verður 31.25 ikr. kg. í heiltsölu og 35,45 kr kg. í smásölu. TCr söluskatturinn inni- falinn í smásöluverðinu. Leiðrétting sú, sem samið var um við FÍB, er fólgin í því, að fiskverð, sem aflaverðlaun mið- ast við, var fært til samræmis við skiptaverð bátasjómanna, en auk þess var um litisháttar form- breytingar á kjarasamningum að ræða. AKRANESI, 30. marz. — 166 lestir af fiski bárust hér á land í gær á 17 bátum. Aflahæst var Sigrún með 21 lest. Aliur flotinn er á sjó í dag. Reykjanes lestaði hér í dag eöltuð hrogn og Lagarfoss var hér í gær og lestaði 5000 kassa af freðsíld, sem hann flytur á Ameríku-markað. — Oddur. 88 pd. lax Húsavík, 31. marz. GRÍMSEYJARLAXINN svonefndi hefur verið talinn konungur laxanna hér á landi, en verður það nú ekki lepgur, þar sem annar lax, ennþá stærri, veiddist við Grímsey sl. miðvikudag. Það var mb. Hagbarður, skipstjóri Þórarinn Vigfús- son, sem fékk hann á línu suður af Grímsey á svo- nefndum Fiesjum. Þegar bátsverjar voru að draga línuna fundu þeir allt í einu að einhver stór skepna hafði bitið á, og töldu að Þórarinn Vigfússon, skipstjóri á Hagbarði, með stóriaxinn. veiöist við Grimsey það mundu vera hákarl. En svo reyndist ekki, heldur var það bessi stóri lax, sem myndin er af. Strax og komið var með laxinn til Húsavíkur var hann settur í frost, og er hann svo að segja alveg ó- skemmdur að útliti. Laxinn er hrygna, vegin blóðguð var hún 88 pund og 173 cm að lengd. Linan, sem hann var dreg inn á var 7 punda hamplína með nylontaum og öngli nr. 7. Beitan var nýveidd loðna. Svo margir hafa viljað sjá laxinn að takmarka hefur orðið aðgang að frysti húsinu, en ráðgert er að hann verði sendur til Reykjavíkur með næstu flugferð, til frekari rann- sóknar. — Fréttaritari. Sendiherra Belga hér, C. Fontaine, sem talar norsku, á skipsfjöl eftirlitsskipsins, ásamt skipherr- anum, P. William, og Gunnari Guðjónssyni, ræðismanni. (Ljósm. vig.) ' Nei, við höldum okkut djúpt úti 144 BELGISKI fáninn blakkti við hún á eftirlitsskipinu Brou- wer þar sem það lá við Ingólfs garð í gærdag. Síðdegis í gær fór hinn nýskipaði sendiherra Belgíu hér Chevalier DeFonta ine, um borð í skipið ásamt ræðismanni Belga hér, Gunn- ari Guðjónssyni. Skipherrann á þessu eftirlits skipi, Poppe William, skýrði blaðamanni frá Mhl. svo frá, að hér við land væru nú við veiðar 15 stórir togarar. Herskipið veitir þessum togurum margháttaða aðstoð. Hafði það nú fyrir nokkrum dögum, farið að togara, sem slys hafði orðið um borð í. Hafði einn skipverja fengið slæma byltu og brotið rif. Var maðurinn fluttur um borð í eftirlitsskipið og þar búið um brotið. — Ætli þeim hafi gengið vel að veiða? — Já, þér vitið að skipstjór- ar flíka því ógjarnan hvort þeim gengur vel, en innanum munu þeir hafa fengið góð Uóst. — Og þér liafið ekki komizt neitt í kynni við nágranna yðar hér í höfninni, Óðinn? — Nei, segir hinn ungi belgiski skipherra og hlær. — Nei, við höldum okkur djúpt úti og höfum ekki átt í nein- um útistöðum við Óðinn Breiðadalsheiði ÍSAFIRÐI, 30. marz: — í morg- un var byrjað að moka Breiða- dalsheiði og gert er ráð fyrir, að rnoka fljótlega af Botnsheiði. — Ætti því bráðlega að vera fært á bíl til Reykjavíkur — eða þeg- ar lokið hefur verið við að moka Breiðadalsheiði. — J.P.H. IttorgmtfclaMd UNDANFARNAR vikur hafa orðið stórfelldar hækk anir á rekstrarkostnaði dag- blaða. Nema þær svo háum upphæðum, að víðtækir fjárhagsörðugleikar hafa skapazt í þessum rekstri, sem felur í sér margvíslega þjónustu við almenning. Sem dæmi um hækkun rekstrarkostnðarins má nefna, að pappir, sem er einn af aðalkostnaðarliðum blaðanna, hefur hækkað um 70%, og yfirleitt má segja, að allt, sem kaupa þarf erlendis frá til blaða- útgáfu, auk pappírsins, svo sem vélar og varahlutir, fréttaþjónusta o. fl., hafi hækkað um 50%. Ennfremur má benda á, að tveir stórir kostnaðarlið- ir innlendir — burðargjald og sími — hækkuðu stór- lega um síðustu mánaða- mót. Af þessum ástæðum eru blöðin knúin til að hækka áskrifta- og auglýsingaverð sitt. Frá og með deginum i dag, 1. apríl, kostar Morg- unblaðið kr. 45.00 á mánuði. Þó mun blaðið verða selt nokkru ódýrara til sveita, þar sem póstsamgöngur eru strjálastar. Auglýsingaverð verður kr. 24.00 pr. eindálka senti- metra. Lóðar á mikla síld AKRANESI, 30. marz: — I gær var þilbáturinn Síldin frá Akra- nesi, sem er 10 tonn að stærð, á skaki inn á Sandvík norðan við Reykjanesvita. Lóðuðu bátsverj- ar á talsverðri síld þarna í vík- inni og drógu meira að segja nokkrar síldar á nælonfærin. Þær voru bæði stórar og fallegar, en enginn fiskur virðist fylgja síld- inni. Þilfarsbáturinn Síldin var 3 daga í leiðangrinum, og var afl- inn 1 lest. Ahöfnin er 3 ungir menn, eigendur bátsins, og gerðu þeir að aflanum og söltuðu hann um borð. Austur á Selvogsbanka lóðuðu bátar á óhemju síld og sömu- leiðis á Eyjabankanum. Þar virt- ust einnig vera stærðar torfur fyrir. — Oddur. Mikil síld út ai Vestijörðum ÍSAFIRÐI, 30. marz. — Sl. mið- vikudag urðu vélbátar varir við mikla síld út af Vestfjörðum við lóðningu á dýptarmæla, og að kvöldi sama dags komu víða upp stórar síldartorfur. Var þetta að- allega út af Skálavík og Dýra- firði. Á fimmtudag sáust svo stórar torfur út af Dýrafirði. Vélbáturinn Einar Hálfdáns frá Bolungarvík var á þessum slóð- um, og sagði Guðfinnur Einars- son, útgerðarmaður, mér að skip stjórinn á Einari Hálfdáns hefði séð talsvert magn hafsíldar og væru torfurnar frá 10 föðmum niður í botn ,en þarna er 30—40 faðma dýpi. Er þetta sérstakt fyr irbrigði á þessum tíma árs. Mikil loðna er út af Djúpinu, þótt hún veiðist ekki í net. Er Einar Hálfdáns eini báturinn, er veitt hefur að staðaldri út af Djúpinu, aðrir bátar eru fyrir sunnan og vestan. — J. P. Óðins- félagar MUNIÐ skemmtun félags- ins í kvöld. Mætið og takið gesti með ykkur. Allt Sjálf- stæðisfólk velkomið meðan húsrúm leyfir. Kvikmyndasýning fyrir börn félagsmanna næsta sunnudag í Trípólíbíói. Sjá auglýsingu inni í blaðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.