Morgunblaðið - 02.11.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.11.1960, Blaðsíða 24
Abstraktlist — Sjá bls. 10 — 251. tbl. — Miðvikudagur 2. nóvember 196C íþróttir eru á bls. 18. J,6 milljón kr. fyrir oð bjarga togaranum Keili Gerðardómur í björgunarmáli togarans Keilis trá Hafnarfirði LOKIÐ er með gerðardómi björgunarmáli togaranna Keilis og Brimness, en sá síðarnefndi dró Keili til Reykjavíkur eftir að vélbil- un hafði orðið vestur á Græn landsmiðum á síðastl. vori. Ásfjall h.f., sem er eigandi Keilis, var gert að greiða eigendum og umráðamönn • um Brimness og áhöfn tog- arans alls kr. 1,650,000, með 10% vöxtum. Forsaga máls þessa er á þá leið að 17. maí síðastl. var tog- arinn Keilir á leið til Fylkismiða við A-Grænland og átti ófarnar þangað um 100 sjóm. er vél skips ins stöðvaðist skyndilega. Eftir að vélin stöðvaðist var hvorki hægt að hreyfa skrúfu skipsins né stýri. Töldu vélstjórarnir sýnt að sveifarásinn væri brotinn. Brimnesi var eftir fyrirskipun frá útgerðarstjóra, en hann var hinn sami fyrir bæði skipin snú- ið Keili til hjálpar. Hingað til Reykjavikur kom Brimnes með togarann 24. maí. ★ Gerðardómur Hinn 12. september síðastl. komu aðilar málsins sér saman um að fela einum manni, ísleifi Árnasyni, borgardómarafulltrúa, að skena úr um það hvort um björgun eða aðstoð hafi verið að xæða og hvaða þóknun útgerð og áhöfn Brimness beri fyrir störf sín o. fl. málinu viðvíkjandi. Ný framhaldssaga: Of mikid - of fljótt Á MORGCN hefst hér í blað- inu ný framhaldssaga. OF MIKIÐ — OF FLJÓTT, sem er sjálfsævisaga Diönu Barry- more, en færð í letur af Ger- old Frank. Sagan kom út fyr- ir svo sem tveimur árum, en aðalpersójoa hennar og höf- undur, Diana Barrymore, lézt J janúarmánuði þessa árs, eft- ir skamma en órólega ævi, að- eins 38 ára gömul. Þetta er „Öskubuskusagan — öfug“ og „bókin, sem hefur látið mill- jónir manna gripa andaiyi á lofti“, eins og hún er hressi- lega auglýst í Ameríku. Og ameríski hraðinn lætur ekki sjálfan sig án vitnisburð ar, því að, þótt ekki sé lengra um liðið, hefur þegar verið gerð kvikmynd upp úr þessari ævisögu, og verður meira að segja sýnd hér í Austurbæjar- bíói alveg á næstunni. Þar leik ur ung leikkona, Dorothy Mal- one, aðalhlutverkið, en hún er jafnframt fræg sundkona og kemur það hentni að gagni í þessari mynd. Errol Flyn leik- ur hinn fræga föður Diönu, John Barrymore, og auk þess eru þekktir leikarar í öðrum hlutverkum. Sóknaraðilar málsins, eigendur og umráðamenn Brimness, þ. e. Seyðisfjarðarkaupstaður og rík- issjóður annars vegar og áhöfn Brimness hins vegar gerðu þær kröfur fyrir dómnum að Ásfjalli h.f. í Hafnarfirði eiganda Keilis, yrði gert að greiða í lögmætum hluföllum kr. 3,633,920,— í björg unarlaun ★ Ótvíræð björgun í gerðardómsforsendum seg- ir dómarinn m. a.......,Það verður að fallast á það að um rædd hjálp bv. Brimness við bv. Keili sé ótvíræð björgun Fjölmenni á Akureyrnriundi í GÆRKVÖLDI héldu Sjálfstæð isfélögin hér á Akureyri og í Eyja firði fund i Borgarbíói, en aðal- umræðuefnið var landhelgismál- ið. Bjarni Benediktsson dómsmála ráðherra var frummælandi og flutti bráðsnjalla og fróðlega ræðu og skýrði einkar vel frá gangi þeirra mála. Einnig talaði Jónas G. Rafnar alþm. og fleiri. Fjölmenni mikið var á fundin- um og létu fundarmenn óspart í Ijós ánægju sína yfir hingað komu ræðumannanna. í merkingu siglingalaganna. Svo sem áður er sagt var skrúfuás skipsins brotinn og skrúfan föst aftur við stýri, þannig að hvorugt var hægt að hreyfa. Skipið hafði engan seglaútbúnað. Var það því á reki algjörlega hjálparvana og hafði enga möguleika til að komast til hafnar af eigin rammleik. Það er að vísu svo að skipið var ekki í bráðri hættu vegna þess hve veður hafði verið og var gott þegar Brimnes kom því tii hjálpar. En það var á reki á opnu hafi þar sem bæði er von ísa og stórviðra og var því í hættu statt . . . .“ Björgunarlaunin sem gerðar maður ákvað að falla skyldu i hlut eigenda og umráða- manna Brimnes, nema kr. 1,050,000,00, en í hlut áhafnar Brimness koma til skipa 600,000 króna björgunarverð- laun, við bætast 10% vextir frá 24 .maí til greiðsludags. Slíkum dómi sem þessum- verð ur ekki.áfrýjað Bátarnir í vanskilum með tryggingargjöld Friðrik Ólafsson MIKIL brögð eru nú að því því að bátar hafi ekki getað staðið í skilum með greiðsl- ur á tryggingargjöldum sín- um fyrir árið 1960. — Eru greiðslurnar löngu fallnar í gjalddaga. Ekki má skilja það svo, að bátarnir séu ekki tryggðir, því þeir eru í skyldutryggingu. Tryggingar félögin bíða enn átekta, en þau eiga veðrétt í bátunum. Blaðið spurðist fyrir um þetta i gær hjá Páli Sigurðssyni, fram kvæmdastjóra Samábyrgðar. Kvað hann þetta rétt vera, fáir bátar hefðu enn getað staðið í skilum með greiðslur. Tryggingar gjaldið fyrir 1960 hefði íallið í gjalddaga 1. janúar, en útflutn- ingsjóður greiddi janúariðgjald- ið og hálft febrúariðgjaldið fyrir þá báta sem þá hefðu verið á veiðum. En þrem mánuðum eftir að tryggingargjaldið er fallið í gjalddaga er hægt að ganga að bátunum. Sagði Páll að trygging- arfélögin biðu átekta, vildu halda að sér höndum í lengstu lög. En væru komin í stórar skuld ir með endurtryggingargjöld sín, auk þess sem ýmislegt annað kæmi til, eins og t. d. að nú væru 5—6 bráðafúatryggðir bát- ar í slipp og væri vinna við þá kostnaðarsöm. . — Þetta er allt sem sagt að verða knappt hjá okkur, sagði Páll að lokum. En við bíðum átekta, LÍÚ heldur fund 10. nóv- ember og þá gerist kennski eitt- hvað. JÓHANNES Gu,nnarsson Hóla biskup, söng hámessu suður á Keflavíkurflugv. fyrra mánu- dag. Skrýddist biskup kór- kápu og bar mítur á höfði. Að lokinni messu ávarpaði hann unga flugliða i varnar- liðinu, veitti þeim fermi,ngar- sakramenti. — Er myndin tekin við þá athöfn. (Ljósm.: Varnarliðið). Þriðjudag næstkomandi verður dregið i skyndihappdrætti Sjálfstæðis- flokksins. Skammur tími er til stefnu og því vissara að tryggja sér miða strax. Hver veit nema það verði einmitt þér, sem eignist nýjan Volks- wagen. Vinningarnir, tveir Volkswagen, standa í Austur- stræti — og þar verða miðar seldir til þriðjudags. Lítið á þessa glæsilegu vinninga — og fáið yður miða í leiðinni. Tel mig ekki „þjdðnýttari i — sagði Friðrik Ólafsson, vegna árása í Þjóðviljanum „B A R Á T T A N um heims- meistaratitilinn er vitanlega efst í huga allra skákmanna — og úr því að ég á kost á að taka þátt í þeim leik finnst mér ekki nema eðli- legt og sjálfsagt að mæta þar“, sagði Friðrik Ólafsson, skákmeistari, í gær, er frétta maður Mbl. átti tal við hann vegna harkalegrar árásar, sem hann varð fyrir í Þjoð- viljanum. Ummæli Þjóðviljans Þar var m.a. haft eftir Ásgeiri Þór Ásgeirssyni, forseta Skák- sambands íslands, að Friðrik teldi sér ekki samiboðið að tefla á Olympíumótinu í A-Þýzkalandi vegna þess hve lið íslands á mót inu væri veikt. Þetta var í fréttabréfi frá Ingi- mar nokkrurn Jónssyni í Leip zig. Undir fyrirsögninni „Hvers vegna tefla beztu skákmennirnir ekki á Olympíuskákmótinu í Leipzig?" spyr fyrrnefndur Ingi- mar Ásgeir Þór: — Hvað veldur því að Friðrik skoraðist undan þátttöku? — Það mætti ætla að Friðrik teldi sér skylt að vera fulltrúi íslands á Olympíuskákmótinu eftir allt það, sem búið er að gera fyrir hann, en því miður er ekki svo. Skáksambandið reyndi allt til þess að fá hann með, við buðum honum m.a. að tefla aðal- lega í undanrásum til þess að tryggja sveitina í B-úrslitariðil. Eftir það hefði hann getað haft það ósköp rólegt og undirbúið sig fyrir svæðamótið í Hollandi, sem hefst 19. nóvember n.k., en ekkert dugði. Mitt álit er það, að hann telji sig of góðan til þess að tefla með svona veiku liði eins og keppir hér. Mér skilst, að hann telji það engan persónulegan ávinning að taka þátt í Olympíuskákmótum", sagði forseti Skáksambandsins. Frh. á bls. 23 30 jbús. kr. stolið í FYRRINÓTT var framið innbrot í skrifstofu sælgætis- gerðarinnar Opal við Skipholt hér í bænum og framinn þar stórþjófnaður. Peningar, alls 30,000 krón- ur, þar af nokkuð af gjald- eyri, voru geymdir í pe.ninga- skáp. 1 skrifstofunni var og geymdur lykillinn að skápn- um. Fann þjófurinn hann og var því fyrirhafnariítið að stela fjárfúlgu þessari. Hvers konar verðbréf og ávisrjiir hafði þjófurinn skilið eftir, því vonlaust var að ætla sér að koma þeim í peninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.