Morgunblaðið - 04.07.1961, Page 5
Þriðjudagur 4. júlí 1961
5
MORGVNHLÁÐIÐ
li
:«ÍtH iHmi
ííírííí
in íffi
pÉS
E B
f SÍÐTJSTU viku veittu vegfar
endur því eftirtekt a3 renni-
legt fley sigldi seglum þönd-
um um Tjörnina. Fólkið, sem
var að spóka í góðvirðinu,
hætti að lygna aftur augunum
framan í brosandi sólina og
staldraði við, og íbúarnir í
Tjarnarhólmanum urðu svo
hissa að þeir máttu ekki vera
að iþví að verða hræddir og
fljúga á braut.
Þegar seglskipið nálgaðist
hólmann ískyggilega mikið
þótti kríunni auðvitað nærri
sér höggvið og fylkti liði til
árásar á „landhelgisbrjótinn“
— án þess að vara hann við
eða kanpa málið eftir diplo-
matiskum leiðum. Tuttugu
kríur hófu sig samtímis til
flugs, hnituðu nokkra hringa
yfir hinn ókunna árásaraðila
og steyptu sér svo niður með
viðeigandi stríðsöskri. — Það
var siglutoppurinn sem varð
að taka út hegninguna fyrir
hið meinta afbrot, því í næstu
andrá flugu kríurnar fram
hver af annarri, gáfu toppin-
um eitt vel útilátið högg og
lögðu svo til atlögu á ný. Anda
steggirnir, sem eru nú frem-
ur svifaseinir, undir venjuleg-
um kringumstæðum, urðu svo
felmlraðir að þeir brutu ó-
sjálfrátt blað í ævagamalli og
hefðbundinni flugtæknisögu
andaættarinnar, því að nú
fóru þeir lóðrétt í loftið eins
og þyrilvængjur.
Þrátt fyrir berserksgang krí
unnar komst seglskipið ólask-
að norður fyrir hólmann,
beygði og sigldi í hringi og
tók svo stefnu á tjarnarbakk-
ann og sigldi örugglega til
lands. Áhorfendur ráku upp
stór augu og veltu vöngum
yfir því hvort lína væri tengd
við skútuna og hvar hún lægi.
En það var engin lína tengd
við skútuna. Skipið stóð að-
eins í radiosambandi við land
og á bakkanum fylgdust tveir
starfsmenn Landsímans með
fcrðum þess, þeir Jón Eiríks-
son, loftskeytamaður og Þor-
kell Gunnarsson viðgerðamað-
ur og höfðu með sér f jarstýri-
tæki og þurftu ekki annað en
að þrýsta á hnapp á tækinu
og þá breytti skútan sam-
stundis um stefnu.
Við hittum þá Jón og Þor-
kel að máli og spurðum þá
um skipið. Jón hefur séð um
alla smíði þess, Þorkell hefur
sett saman stýristækin, bæði
senditækið og móttökutækið í
skipinu, en það er tengt við
sérstakan mótor sem hreyfir
stýrið ýmist til hægri eða
vinstri, eftir því á hvorn
hnappinn stjórnandinn styð-
ur. Skipið er 128 sm að lengd,
gert úr 5 mm þykkum viði.
Siglan er 160 cm að hæð með
segli sem er 800 ferþuml.
— Er Iangt síðan þið smíð-
uðuð skipið?
— Það var einhvern tíma á
árunum 1942—’43. Þetta var
Jón Eiríksson og Þorkell Gunnarsson með fjarstýrðu skút-
una og senditækið.
(Ljósm.: Sv. Þormóðsson)
25. skipið sem ég smíðaði, seg-
ir Jón. Það má segja að ég
hafi fengið áhugann á þessu
þegar ég var í siglingum fyrr
á árum. Ég var í Þýzkalandi
og það kom dálítið einkenni-
legt atvik fyrir okkur á skip-
inu. Við vorum að koma í
höfn og sigldum þá á lektu,
sem lá þarna Ijóslaus við inn-
siglinguna. Við björguðum
mannskapnum en höfðum
skemmt skiþið, sem varð að
fara í slipp, og það tók nokk-
urn tíma að gera við það, svo
að skipshöfnin varð að finna
sér eitthvað til dundurs. Ég
hafði keypt seglbát handa
syni mínum og rölti með hann
niður að höfninni og byrjaði
að sigla honum þar. Þegar ég
kom heim gerði ég svo helm-
ingi stærri eftirlíkingu af lion
um og þar með var vírusinn
kominn í mig og síðan hefi ég
smjðað fjöldann allan af skip-
um af öllum gerðum.
Þorkell hefur gert stýritæk-
in, nema mótorinn sem hreyfir
stýrið til. Þorkell sagði okk-
ur að allt efni í tækin væri
hægt að fá hér heima og kqst-
aði um 600 krónur.
— Þarf ekki sérstakt Ieyfi
til að nota svona stýristæki?
— Það þarf að fá samþykki
Landssímans. Menn koma
bara með tækin til okkar, við
athugum tíðnina sem þau
senda á, og ef við sjáum að
þau geti ekki haft nein trufl-
andi álirif á f jarskiptin þá gef
um við út leyfisspjald, sem
kostar 50 krónur.
— Og það er ekkert spurt
hver hafi sett tækið saman?
— Nei, það kemur okkur
ekkert við. Bara að það sé
gert á réttan hátt.
Þorkell er um þessar mund-
ir að ljúka við að smíða stórt
fjarstýrt flugvélarlíkan. Til-
raunarflugið á að fara fram
einhvern tíma á næstunni, á
ótilteknum stað utan við bæ-
inn. Hann segist hafa mikinn
áhuga á flugvélasmíðum og
les mikið um þau mál í er-
lendum tímaritum.
— Þeir eru farnir að fljúga
þessum módelum í 13 tíma
samfleytt og fara þá upp und-
ir 200 mílna vegalengd, segir
Þorkell. Annars er ég alveg
einn á báti við flugvélasmíð-
arnar. Jón hefur ekki fengið
„delluna“ enn þá.
— Er langt síðan skútan
komst á flot?
— Það er orðið ærið langt
síðan hún var smíðuð, eins
og ég sagði áðan, segir Jón.
En fjarstýristækin eru alveg
ný. Við höfum ekki þorað að
sigla henni fyrir almennings-
sjónum fyrr en núna. Við er-
um eins og Rússarnir í þessum
málum. Fyrst fórum við með
hana upp á Rauðavatn, og þá
geþk það heldur skrykkjótt.
En við fundum út hvað að var
og svo lögðum við í að fara
með hana á Tjörnina og það
hefur allt gengið prýðilega.
Hún hefur gengið mest um
Wi mílu. Það þarf að vera
mjög nákvæm smíði á þessum
skipum til þess að þau sigli
vel. Miklu meiri nákvæmni
heldur en við venjulega báta.
Öll hlutföll verða að vera hár-
nákvæm ef vel á að vera. Það
eru mikil þægindi að hafa f jar
stýringuna. Tækin draga um
3 mílur, svo að stjórnandinn
getur tekið lífinu með ró. —
Það er mlfnur eða þegar ég
var að sigla henni á Tjörn-
inni. Þá varð ég að hlaupa
fram og aftur á bakkanum til
að taka á móti henni.
—^ Áhuginn hefur ekkert
dvínað með aldrinum?
— Nei, nei. Ég get alltaf
Ieikið mér eins og strákur.
Alltaf jafn ungur — eða rétt-
ar sagt gamall. Ég held nefni
lega að ég hafi fæðzt gamall.
Ég man fyrst eftir mér þegar
ég var 6 vikna. Þetla er ákaf-
lcga merkilegt. Þó veit ég
um annað mjög líkt. Það var
franskur ráðherra eða einhver
annar labbabútur, sem fædd-
ist gamall, og honum fór eins
og mér, hann hefur alltaf
drukkið mjólk frá fæðingu.
Skútan á siglingu á Tjörninni.
2ja—3ja herbergja íbúð óskast. — Uppl. í síma 35736. Óska eftir 1 til 2 herbergja íbúð sem fyrst. — Sími 36716.
Húsbyggjendur Gröfum húsgrunna. — sprengingar. Símar 32889 og 37889. Keflvíkingar Vegna sumarleyfa verður lokað 9.—29. júlí. Efnalaug Keflavíkur.
Hjónarúm með amerískum springdýn- um til sölu i verzlun G. Zoega, Vesturgötu 6. Verð 4500. íbúð óskast Óska eftir 2—3 herbergja íbúð, helzt í Kópsvogi eða Hafnarfirði. Góð umgengni. Uppl. í síma 12867.
Volkswagen Vil kaupa vel með farinn Volkswagen, ekki eldri en ’56. Tilboð merkt: „Volks- wagen — 118“ sendist fyrir 6. júlí til afgr. Mbl. 13 ára drengur óskar ið komast á gott heimili í sveit í sumar, er vanur. Uppl. í síma 16182 eftir kl. 2 í dag og næstu daga.
S amarbústaður Lítill sumaróústaður á fallegum stað í Vatnsenda- lar.di til 'ölu ódýrt. Sími 12982. Trésmíði Vinn allskonar innanhúss trésmíði í húsum og á verk stæði. Hef vélar á vinnu- stað. Get útvegað efni. — Sanngjörn viðskipti. Sími 16805.
Óska eftir íbúð 2—4 herb. í Hafnar- firði. Tvennt í heimili. — Uppl. í síma 50518.
Bílkrani til Ieigu ' hýfingar, ámokstur og gröftur. — Sími 33318.
íbúð — leiga Óska eftir að leigja 4ra herbergja íbúð. Tilboð sendist blaðinu merkt: — „íbúð 1285“.
A T H U G I Ð að borið saman 5 útbreióslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. —
Til leigu
íbúð við Miðbæinn, 2 herb., eldhús og bað. — Nokk-
ur húshjálp áskilin. — Tilboð merkt: „Kyrrlátt —
1283“, sendist afgr. Mbl.
Tjarnarhárgrei^slustofan
verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 30. til 24.
júlí.
4—5 herbergja íbuð
eða lítið hús, óskast til kaups, með góðum kjörum.
Tilboð með lýsingu og kjörum, leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir laugardag 8. þ.m. merkt: „1286“.
„GUMOUT“
hreinsiefni fyrir bíla blöndunga
Hreinsar blöndunginn og allt benzínkerfið. Sam-
lagar sig vatni og botnfalli í benzíngeyminum og
hjálpar til að brenna það út. — Bætir ræsingu og
gang vélarinnar.
Smyrill
Laugavegi 170 — Sími 1-22-60
Síldarstúlkur
Leiðin til fjár liggur til Siglufjarðar. Viljum ráða
nokkrar síldarstúlkur til starfa strax. — Fríar ferð-
ir, — Kauptrygging — Fyrsta flokks húsnæði. —
Upplýsingar í síma 23403 eftir kl. 4 í dag.