Morgunblaðið - 11.07.1961, Page 19
Þriðjudagur 11. júlí 1961
MORGVNBLAÐtÐ
19
— Sítldin
Frh. af bls. 20.
urður SI 500, Reynir 1000, Stein-
unn SH 1200.
Hafði frétzt af mörgum skip-
um, sem voru að kasta og í veiði
í ágætu veðri austur af Bjarnar-
ey. Þar var veður ágætt, en lág-
skýjað svo ekki var flugveður.
• Á Vopnafirði
Fréttaritari blaðsins á Vopna
firði símaði í gær: — 5. og 8.
júlí lönduðu hérna fimm bátar
samtals 1600 málum í bræðslu og
um 2000 tunnum uppmældum í
salt. Síðan barst engin síld hing-
að fyrr en í morgun. í fyrrinótt
fór síld að veiðast 27—40 mílur
austsuðaustur af Bjarnarey.
Þetta er feit og góð síld, Og magn
ið virðist töluvert. Hún er stygg,
en veður þó, Og virðist vaða hratt
í suðvesturátt.
Víðir frá Eskifirði ko<m hér í
morgun og landaði 900 málum
í bræðslu. Ársæll Sigurðsson
landaði 192 málum í bræðslu og
400 tunnum í salt. Einar SU var
með 400 tunnur í salt og Katrín
SU er nú að landa í salt.
Hér vantar bæði fólk cg hús-
næði. Saltað er á tveimur plön-
um, en þriðja planið vantar fóik.
Von er á fólki frá Siglufirði og
Reykjavík. — S.J.
— Krúsjeff
Framlhald af bls. 1.
ur leitt til. Ég fyrir mitt leyti
get ekki skilið hvernig Rússar,
sem ekki skortir fögur orð þeg-
ar rætt er um afvopnun, gátu
hafnað hinum sanngjama sam-
bomulagstilboði um bann við
kjarnorkutilraunum, sem við
lögðum fram í Gienf.
* * *
Og Ráðstjórnin hefur líka
brenglað upptökum á alþjóða-
vettvangi. ,,Friður“ er orð, sem
notað er yfir hvert það ástand,
sem gagnar kommúnistum í
landvinningum. „Árás“ kallast
allt, sem er í veginum fyrir
þeim. /.
!N * *
Á laugardaginn filutti Krúsjeff
ræðu í Moskvu og var henni út-
varpað um öll Ráðstjórnarríkin.
Hvatti hann þar til „topp-fund-
ar“ um Berlínarmálið og sagðist
mundu koma með eigin tillögur
é þann fund. Rússar væru alltaf
reiðubúnir að ræða tillögur ann-
arra.
Við ætlum að gera friðarsamn
tng við A-Þýzkaland, sagði hann.
Vesturveldin æsa sig upp og saka
okkur um ógnun við heimsfrið
inn. Þetta eru hins vegar frið-
samlegustu aðgerðir, sem hægt
er að hugsa sér — að reyna að
breiða yfir síðustu spor heims-
styrjaldarinnar. Það eru Vestur
veldin,- sem ógna heimsfriðnum
sagðí Krúsjeff, og þess vegna
verðum við að auka varnir okkar
til þess að tryggja okkur gegn
hættunni.
* * *
Krúsjeff ítrekaði fyrri ummæli
og sagði, ^ð A-Þjóðverjar mundu
fá öll vold yfir samgönguleið-
unum til Berlínar í haust. Hins
vegar yrði ekki skert hár á höfði
íbúa V-Berlínar. — En vegna
ógnana Vesturveldanna ætlum
við ekki að skera herinn niður
um 1,2 milljónir manna, eins og
áður hafði verið tilkynnt, sagði
Krúsjeff. í þess stað verjum við
3,144,000,00 rúblum til hernaðar-
þarfa — til viðbótar því, sem
éður hafði verið ákveðið.
Minntist Krúsjeff á Rapaeki-
éætlunina, krafðist brottflutnings
erlendra herja frá öllum lönd-
um, endurók ýmislegt, sem áður
hefur 'heyrzt.
Almenmt er talið, að ummæli
Krúsjeffs boði að friðarsamn-
ingurinn við A-Þjóðverja verði
gerður fyrr en áður var ætlað,
e. t. v. september í stað nóvem-
ber.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa.
Austurstræti 10 A — Sími 11043
• Á Seyðisfirði
Fréttaritarinn á Seyðisfirði
símaði í gærkvöldi: Hér er allt
á kafi í síld, því síldin fæst nú í
aðeins 4—5 tma siglingu héðan.
Öll síldin er hér söltuð. Tvær
söltunarstöðvar eru komnar í
gang, Hafaldan og Ströndin, en
væntanlega saltar Valtýr Þor-
steinsson hér í sumar. Þrjú skip
eru komin inn með 1900 mál:
Keilir með 200, Sunnutindur með
700 og Auðunn HA 1000. — Sv.G.
• Á Norðfirði
Fréttaritari blaðsins á Norð-
firði símaði í gærkvöldi: Hingað
er kominn Sigurvon AK með 1000
tunnur og von er á fleiri bátum.
Saltað er á tveimur söltunarstöðv
um. Búið er að setja soðvinnslu-
tæki í síldarverksmiðjuna og er
hún tilbúin til að taka við síld
í bræðslu. Hún getur brætt 2500
—3000 mál á sólarhring. — S.L.
• Á Eskifirði
Fréttaritarinn á Eskifirði sím
aði: — Hingað hafa komið tveir
bátar, Seley kom í nótt með 700
tunnur í salt og Hólmanesið í
dag með 900 tunnur. Síldin er
betri og fallegri en sést hefur
hér undanfarin ár, alveg óvenju-
góð Austfjarðasíld. Hún fæst á
Digranesflakinu. í gærmorgun,
áður en íslenzku skipin komu á
þessi mið, virðast Norðmennirn-
ir hafa fengið geysistór köst. Eg
heyrði í einum tilk. 3000 hektó-
lítra. — Gunnar.
• . Á Reyðarfirði
Fréttaritarinn á Reyðarfirði
símaði: — Síldarbáturinn Gunn-
ar kom hingað með fyrstu síld-
ina á þessu sumri, 900 tunnur.
Var hún veidd út af Vopnafirði,
þar sem Fanney fann síld í fyrra
dag. Hér er saltað á einu plani
og fer öll síldin í salt. Snæfugl
er væntanlegur hingað í nótt með
síld. — A.Þ.
• Á Siglufirði
Fréttaritarar blaðsins á Siglu
firði símuðu í gær, að um helg-
ina hefði verið bræla á miðunum.
Margir bátar lágu inni og lítið
saltað, svo síldarfólkið gerði sér
glaðan dag. Tveir dansleikir voru
um helgina Og í gærkvöldi ætl-
aði leikflokkur frá Þjóðleikhús-
inu að sýna „Horfðu reiður um
öxl“ og Svavar Gests og hljóm-
sveit hans að skemmta.
í fyrrinótt og í gær komu 5
skip til Siglufjarðar af miðunum
við Kolbeinsey: Hugrún með
1100 tunnur, Bergur VE 100, Von
in KE með 160, Sæþór ÓF með
200 og Gnýfari SH með 100, en
hann hafði sprengt nótina. í gær
var aðeins saltað á einni söltun-
arstöð á Siglufirði, Nöf.
í gærkvöldi var heldur að
lygna á vesturmiðunum. Hafði
verið lóðað á síld, sem stóð
djúpt.
Leiðrétting
á Reykja-
víkurbréfi
í REYKJAVfKURBRÉFI á sunnu
daginn varð villa sem hér skal
leiðrétt. í þriðju setningu næst
síðustu málsgreinar bréfsins féll
niður orð sem breytir merkingu.
Rétt er setningin þannig.
... Þeir byggja á því, sem
Stalin var vanur að kalla hinn
rétta grundvöll alþjóða stjórn- j
mála, mat á því afli sem fyrir
hendi er.
Hestamannafélag-
ið Fákur leggur
FÉLAGAR í hestamannafélaginu
Fáki munu fjölmenna á fjórð-
ungsmótið á Hellu um næstu
helgi og leggur flokkurinn af
stað ríðandi á fimmtudag. Verð-
í Grafning. Á föstudag verður
ur riðið upp hjá Litla Felli og
haldið áfram austur Grímsnesið,
hjá Skálholti og Þjórsárbakkana
og komið á Hellu á föstudags-
kvöld.
— Sjóslys
Framlhaild af bls. 1.
fyrir taugaáfalli. Aðeins ein þyr
ilvængja var tiltæk til þess að
flytja þetta nauðstadda fólk í
sjúkrahús, en það hafði verið
þrjá daga á ströndinni — og ekki
er hægt að komast þ ví til hjálpar
landveginn, yfir' mýrlendið. Enn
er því ekki nákvæm vitneskja
um það hve margir hafa farizt,
en síðustu fregnir hermdu, að
250 farþegar hefðu látizt og sex
skipsmenn.
Seinustu fregnir: Portúgölsk
stjómarvöld telja, að með skip-
inu hafi ekki verið fleiri en 490.
Scmu heimildir herma, að þegar
sé vitað um 239, sem f arizt hafa.
— íþróttir
Framh. af bls. 18.
20 mín. Cousin innherji skoraði
af stuttu færi eftir að Árni hafði
bjargað á marklínu. Fyrir hlé
bætti Penman innherji öðru
marki við af stuttu færi eítir
góða sendingu frá Waddell mið-
herja.
Penman skoraði einnig þriðja
markið með fallegu skoti af 15 m
færi og fjórða og glæsilegasta
markið skoraði Smith útherji
með fallegri snúinsspyrnu, sem
Helgi reiknaði ofan við mark,
en þá gætti snúningsins og knött-
urinn fór óverjandi í netið. Mjög
Verzlun og skrifstofan verður lokuð frá hádegi í dagf, vegna jarðarfarar. VOLTI
LOKAÐ - •
kl. 1—4 síðdegis vegna jarðarfarar
Hannes Þorsteinsson €r Co.
Laugavegi 15
LOKAÐ
kl. 1—4 síðdegis vegna jarðarfarar
Ludvig Storr & Co.
laglega gert af Smith, aftur' fyrir
sig.
• Liðin
Smith og Penman voru sem
fyrr beztu menn liðsins. ^ Þetta
var leikur framherjanna. Á vörn
ina reyndi næsta lítið. Hjá Akra-
nesi var það vörnin sem bar hita
og þunga leiksins. Árni og þá
ekki síður Halldór áttu góðan
leik. Úthlaupin hjá Helga i mark
inu eru enn mjög slæm á köflum
— en þess á milli greip hann vel í
leikinn.
EIÐAMENN! — Djúpt hrærð af vináttu ykkar og
tryggð, sendum við ykkur innilegar þakkir fyrir heilla-
kveðjur og höfðinglega gjöf.
Guð blessi ykkur ölL
Sigrún Sigurþórsdóttir og Þórarinn Þórarinsson, Eiðum
Þakka hjartanlega öllum, sem á margvíslegan hátt
auðsýndu mér hlýjan hug á 70 ára afmæli mínu 25. júní
. sl. — Lifið heiL
Bjarni Vilborg
Hjartkær eiginmaður og faðir okkar
JÓHANNES BIRKILAND
lézt að Farsóttarsjúkrahúsinu þann 9. þ.m..
Ragnhildur Magnúsdóttir og dætur.
Útför
ELlNBORGAR PÁLSDÖTTUR
frá Unnarholti
fer fram frá Hrepphólum 13. júlí kl. 2 e.h. — Bílferð
verður frá B.S.Í. kl. 11 f.h
Vandamenn
GESTHEIÐUR ÁRNADÓTTIR
Mávahlíð 15
sem andaðist 4. júlí í Bæjarspítalanum, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni 12. þ.m. kl. 3.
Eiginmaður og böm hinnar látnu
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
JÓN JÓNSSON
Grettisgötu 36
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn
12. júlí kl. 2 e.h. — Athöfnin hefzt kl. 1 e.h. að heim-
ili hins látna.
Börn, tengdabörn og fósturbörn
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför
SVANFRÍÐAR BJARNADÓTTUR
frá Skógum
Vandamenn
Hugheilar þakkir til allra nær og fjær, sem auðsýndu
okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
mannsins míns,
INGJALDAR PÉTURSSONAR
vélstjóra
Fyrir hönd ættingja
Brynhildur Björnsdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og
ömmu
ARNBJARGAR ÓLAFÍU JÓNSDÓTTUR
Kirkjuvegi 13, Keflavík.
Símon Gíslason og börn.
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
samúð við andlát og jarðarför drengsins okkar
RlKHARÐS HEIMIS
Ingveldur Á. Hjartardóttir, Sigurður Sigurðsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
ABIGAELAR JÓNSDÓTTUR
Vandamenn.
Öllum þeim, sem sýndu okkur vinsemd og samúð
vegna andláts og jarðarfarar móður og tengdamóður
okkar
GUÐBJARGAR MARfU JÓNSDÓTTUR
Stóru-Mörk, Vestur-Eyjafjöllum,
flytjum við innilegar þakkir og biðjum þeim blessunar.
Börn og tengdabörn.