Morgunblaðið - 05.08.1961, Page 12
12
MORCVynrjaiQ
Laugardagur 5. Sgúst 1961
ÞAÐ VAR á föstudagskvöldið í
s.l. viku, sem brotið var upp á
þeirri nýjung í ferðastarfsemi
Heimdallar FUS, að efna til veiði
ferðar. Klukkan var rúmlega sex
FRAMTIÐIN
tungu sóttur heim, veiðileyfið
greitt Og upplýsmgar fengnar um
ákjósanlega veíðistaði. Vötn þau,
sem veitt skyldi 1, Kleppavatn og
Fiskivatn, eru syðst á Arnarvatns
heiði, um klukkutíma akstur frá
Kalmannstungu. Ekið var nokkuð
upp fyrir Surtshelli, yfir hraun
og allmiklar torfærur, en góður
farkostur og óiuggur bíistjóri,
Ásgeir Torfason, skilaði okkur
heilum á áfangastað. Aðfararnótt
laugardags var siðan tjáldað á
bökkúm Norðlingafljóts, en þar
er hið fegursta umhverfi. Lang-
Með
Heim-
dallií
veiöiför á Arnarvatnsheiði
hefja veiðar snemma næsta morg
un. En er vaknað var morguninn
eftir hafði veður skipazt í lofti og
hellirigning og rok skollið á. Varð
því minna um veiðar en ákveðíð
hafði verið og tjöldin tekin upp
um hádegi og haldið heim á ieið.
Var ekið niður Borgarijörð, num
ið staðar við Barnafossa, haldið
yfir Dragháls og til Iteykjavík-
ur var komið um kvöldmatarleyt
ið á sunnudag.
Allir voru ánægðir með ferð-
ina. Sumir höfðu veitt hátt upp í
ferðakostnaðinn, aðrir höfðu
er fullur bíll af áhugasömuitt
veiðimönnum lagði af stað frá
Valhöll og var ferðinni heitið upp
á Arnarvatnsheiði og ákveðið að
fara sunnan megin.
Einn þátttakenda, Þórður Guð
johnsen, með veiði sína.
Erfið leið
Vötn þau, sem fyrirhugað var
að renna í, eru í landi Kalmanns-
tungu og þangað var ferðinni
heitið fyrst. Ekið var yfir Kalda-
dal og Kristófer i Kalmanns-
jökul mátti sjá í fjarska, en Ei-
ríkisjökull gnæfir yfir tjaldbúð-
irnar, svo að unnt var að taka
undir orð Jónasar:
fskaldur Eiríksjökull
veit allt, sem talað er hér.
Góð veiði
f býti morguninn eftir héldu
menn til veiða. Himr áhugasöm-
ustu fóru kl. 6 af stað. ea aðrir
voru að tínast úr tjöidunum fram
til kl. 8. Um hálfrar klst. gangur
var frá tjaldbúðunum í vötnin.
Um morguninn var blíðskapar
veður, ágætt á mælikvarða sól-
dýrkenda, en góðir veiðimenn
kæra sig ekkert um sól og þeir
fengu líka dumbungmn síðar um
daginn. Reitingsafli var fram und
ir hádegi, einn og einn fiskur
hjá þeim, sem heppnir voru.
Stuttu eftir hádegi var sem vatn
ið logaði af fiski og þá drógu
bræðurnir Sigurður og Hannes
Hafstein 44 silunga á tæpum
klukkutíma. Flestir hinna veiði-
garpanna höfðu þá dregxð sig í
hlé um stund og sátu að snæð-
ingi heima í tjöldúm. En svo
ört beit á hjá þeim, sem við Fiski
vatn voru, að þeir höfðu ekki
við að draga. Maðkinn þraut
brátt og varð þá að beita öðru
því, sem til féll, tálknum, horn-
sílum o.s.frv., en silungurinn virt
ist ekkert matvandur og gievpti
hvað, sem á öngulinn var sett.
Þessa hrotu lægði íljótlega og
hittu menn ekki á aðra slíka í
þessari ferð. Síðar um daginn
glaðnaði þó yfir veiðinni á ný og
veiddust þá stærstu fiskarnir í
ferðinni, nokkrir ca. 3—'&'h pund.
Rigning og rok
Seint um kvöldið héldu menn
í tjaldbúðirnar og var ákveöið að
veitt minna — sumir ekkert, en
þeir voru þá staðráðnir í að gera
betur næst, því að öllum fannst
sjálfsagt að efna til veiðiferðar
að nýju, eins fljótt og kostur væri
á.
*■
11. þing
S.U.S. n Akui-
eyii í septem
bei
Eins og áður hefur verið get
ið hér á síðunni, verður 16.
þing Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna haldið á Akur-
eyri dagana 8.—10. septem-
ber n.k.
Hin einstöku félög hafa þeg
ar fengið bréf, þar sem skýrð
ar eru reglur uiu kjör fulltrúa
á Sambandsþingi. — Það er
ósk stjórnar SUS að forystu-
menn félaganna tilkynni full-
trúakjör sem allra fyrst íil
stjórnarinnar.
Þessa dagana er verið að
vinna að undirbúrnngi að dag
skrá þingsins og verður hún
væntanlega birt bráðlega.
Styrmir Gunnarsson í veiðihug; að baki honum stendur
Grétar Br. Kristjánsson.
Samkoma í Vagla-
skógi um verzlun-
armannahelgina ^
SKÓGRÆKTARFÉLAG Suður-
Þingeyinga og Skógræktarfélag
Eyfirðinga efna til samkomu f
Vaglaskógi um verzlunarmanna-
helgina.
Aðgangur að skóginum a
laugardag og sunnudag verður
aðeins heimill þeim, sem kaupa
merki skógræktarfélaganna.
Veitingar verða í Brúarlundi
og þar verður dansað bæði
kvöldin, en aðalsamkoman verð
ur á sunnudaginn og hefst kL
2 e. h. —
Hákon Bjamason, skógræktar
stjóri, og fleiri flytja þar
ávörp, Lúðrasveit Akureyrar
leikur undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar, Baldur og Konni
skemmta, stúlkur frá Akureyri
og Húsavík keppa í handknatt-
leik og skátar munu einnig
verða þar með nokkur skemmti-
atriði.
- Ufan úr heimi
Frh. af bls. 10/
ríska vikuritið Time lýsir stíl
hennar með fjórum allkjarn-
miklum lýsingarorðum: For-
dómafullur, ofsafenginn ólík-
indalegur, illkvittinn (opinion
ated, impassioned, impossi-
ble, slanderous) og segir að
þarnc setji Hitler fram skoð-
anir á þann hátt, að enginn
artnar gæti gert slíkt. — Síðan
grípur Time niður á nokkr-
um stöðum í bókinn; og tek-
ur m.a. upp eftirfarandi til-
vitnanir:
ir Landvinningar sjálfsagðir.
• „Hver, sem ekki vill vera
hamar, mun hljóta aafh steðj
ans á spjöldum sögunnar.......
Sverðið hefir ávallt verið und
anfari plógsins, og ef yfirleitt
skal minnast á mannréttindi,
þá ber stríðinu, í þessu sér-
staka tilfelli, hinn æðsti rétt-
ur.... Heilbrigt fólk sér ekkert
syndsamlegt við landvinninga,
heldur telur þá eðlilega og
sjálfsagða."
• „Heimsveldi á borð við
hið foirna Rómaveldi eða Breta
veldi nútímans er ávallt ár-
angur af náinni einingu og
samvinnu hinna beztu eiginda
fólksins sem heildar og hinna
skýrustu pólitísku stefnu-
miða.“
• Hitler lítur á Bandaríkin
sem ógnun við Evrópu. Um
leið og hann ræðir um, að
Evrópa hafi glatað hinum
„djöriustu og beztu“ af kyni
sínu í útflytjendaskörunum,
lýsir hann Bandaríkjunum
sem „nýju s .mfélagi, sem ein-
kennist af hinu bezta úr kyn-
stofninum“.
Stundum virðist höfundur-
inn vera að beina viðvörunar-
orðum til einvalda framtíðar-
innar:
• „Það er þó aldeilis sjón að
sjá. þegar slíkur borgaralegur
föðurlandssinní þykist tendr-
ast eldlegum áhuga, en maður
veit upp á sína tíu fingur, að
það eru eintóm látalæti. —
Það fer hinni sljóu, lötu bong-
arastétt okkar álíka vel að
gera sér upp þjóðerniseldmóð,
eins og þegar gömul gleðikona
þykist fyllast ástarfuna.“
Xngstir í ferðinni voru þeir Kristján og Þorgrímur Stefánssynir — báðir aílasælir.
Frá höfniniii
í GÆRMORGUN kom Hallveig
Fróðadóttir með 170 lestir af
nýjum fiski og eitthvað af salt-
fiski. — Hefur skipið verið á
heimamiðum. í morgun var
Hvalfellið væntanlegt frá Vest-
ur-Grænlandi með 250—270 lest-
ir. —
1 fyrradag kom þýzki togar-
inn Braunschweig til hafnar í
Reykjavík með bilaða skrúfu
og var togarinn tekinn í slipp
í gær.
Aðvörun um tollgreiðslu
Samkvæmt bráðabi rgðalögum nr. 80/1961, um ráð-
stafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka íslands um nýtt
gengi íslenzkrar krónu, þurfa þeir, sem afhent hafa
fullgild aðflutningsskjöl fyrir 4. þ.m., að greiða að-
flutningsgjöldin í síöasta lagi 11. þ.m„ ef þeir vilja
komast hjá því að gjöldin séu miðuð við hið nýja
gengi.
Þeir, sem sett hafa tryggingu fyrir aðfluíningsgjöld-
um fyrir 4. ágúst 1961, verða að hafa gert þau upp
fyrir 5. október 1961.
Tollstjórinn i Reykjavík, 4. ágúst 1961.