Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 2
2 MORGUMtL AÐ1Ð MiðviKudagur 16. ágúst 1961 Ben Gurlon enn forsætisráðherra ? Kosningar til Israelsþing i gær TEL AVIV, 15. ág. — (Reuter) — Kjörsókn var fremur góð, er fimmtu almennu þignkosningam ar í ísrael hófust í dag. Um 1/10 kjósenda neytti atkvæðis sins fyrstu þrjár stundirnar, en spáð var, að heildarkjörsókn mundi a.m.k. nema 75%. Flestir telja, að verkalýðs- flokkur Ben Gurions, Mapai, í Axarfirði - ekki Arnarfirði í frétt í blaðinu í gær, þar sem skýrt var frá því, að þrjú ný rækjusvæði væru fundin, stóð, að eitt þeirra væri í Arn- arfirði. I>etta var prentvilla, og átti að standa þar „í Axarfirði“. Leiðréttist þetta hér með. Bruni íJKÖMMU fyrir klukkan eitt í gær var slökkviliðið kvatt að Sláturfél. Suðurlands við Skúla- götu. Þegar komið var á staðiinn logaði í rafmagnstöflu í vélahúsi og í lofti yfir rafmagnsklefa. Var eldurinn slökktur með há- þrýstidælu og kolsýrutækjum. Skemmdir urðu nokkrar. Veiðif er ð Heimdallar HEIMDALLUR FUS efnir til annarrar veiðiferðar á Arnar- vatnsheiði um næstu helgi, en eins og kunnugt er stóð félag- ið fyrir slíkri för fyrir nokkr- um vikum síðan og tókst hún mjög vel. Farið verður frá Valhöll á föstudagskvöld og lsomið til Reykjavíkur á sunnu dagskvöld. Auk þess, sem veiðimennska verður iðkuð við Fiskivatn og Kleppsvatn munu þátttakendur skoða Surtshelli og Barnafossa. Þeir féiagsmenn, sem áhuga hafa á ferðinni eru beðnir að hringja í síma 17100 og verða þar gefnar allar nánari upplýsing- ar. Skákin S V A R T : Síldarverksmiðja ríkisins Raufarhöfn ABGilEFGH ABCDEFGH H V í T T : Síldarverksmiðja ríkisins Siglufirði Raufarhöfn leikur: B h * — g 3 Siglufjörður svarar: Be 2 — f 3 muni enn sem fyrr verða lang- stærsti flokkur þingsins — jafn vel sé ekki útilokað, að hann nái hreinum meirihluta. A síð- asta þingi hafði flokkurinn 52 sæti af 120. — Kosningabarátt- an hefir yfirleitt verið heldur lin — og eina ógnunin við Ben Gurion og flokk hans stafar frá hinum nýja Frjálslynda flokki, sem er samsteypa tveggja minni flokka, sem áður störfuðu (Fram faraflokksins og Almenna Zíon- istaflokksins) og höfðu til sam- ans 14 þingsæti. Athugasemd við grein Bukdahls ÞAÐ skal tekið fram, að grein Jörgens Bukdahls um hand- ritamálið, sem birtist í opnu blaðsins í dag, var rituð, áð- ur en undirskriftir þriðjungs þingmanna í danska þinginu voru fengnar fyrir frestun af- hendingar handritanna. — Síldin Frh. af bls. 20. magn. Hér er lygn og gott veður en þoka. — Guðjón * Neskaupstað, 14. ágúst SÍÐAN á laugardagskvöld hafa komið hingað um 12.000 mál síld ar úr eftirtöldum skipum: Sig- urður 1000, Héðinn 1300, Krist- björg 600, Vonin II. 550, Glófaxi 750, Þorgrímur 700, Helguvík 300, Böðvar 600, Þráinn 750, Hjálmar 500, Mímir 600, Páll Pálsson 650, Snæfell 700, Hugrún 800, Björg NK 500, Jón Jónsson 800 og Ingi- ber Ólafsson 950. Verksmiðjan hefur nú alls tek- ið á móti um 105 000 málum. Þyrill var hér í dag og lestaði 600 tonn af lýsi, sem hann flytur til Hjalteyrar. — SIL. Eskifirði, 14. ágúst. í morgun komu þessir bátar inn: Guðrún Þorkelsdóttir með 700 mál Og tunnur, Hólmanes með 300 mál, Fram GK með 300 mál, Grunnfirðingur II. með 500 mál og tunnur og Seley er að koma inn kl. 3 með einhvern slatta. — GW Óheppinn flóttamaður. Einn úr alþýðulögreglunni vísar hon- um veginn til baka — til „sæluríkis“ Ulbrichts. Atburðir í Berlín Fra'mhald af bls. 1. hvaða gagnaðgerðir komi til mála að gera nú í Berlínarmálinu. Annar ráðuneytisfundur mun verða á morgun. Talsmaður stjórnarinnar vildi fátt segja um fundinin í dag — aðeins, að við- ræður hefðu komizt vel á veg — og að ekkert yrði framkvæmt nema í nánu samráði við vest- urveldin. — Þá var tilkynnt í Bonn í dag, að v.-þýzka þingið kæmi saman til aukafundar um Berlínarmálið á fimmtudaginn — og mun ríkisstjórnin leggja þar fram skýrslu um málið og gera grein fyrir sjónarmiðum sínum varðandi það, hvaða ráðstafanir fceri að gera. ★ „Reitt til höggs“ í tilkynningu a.-þýzku f/T m /S hnutar 1 '&SVSOhmHor K Snjóiomo * ÚHW& V Shirir. K Þruniur W/ZS, KutíooMXH, Hm! ZS* Hitoski! \L*‘ Laoi 1 stjórnarinnar, sem nefnd var hér að framan, er ekki minnzt á samgöngu- og flutn ingarétt vesturveldanna til Berlínar, sem hvílir á samkomulagi fjórveldanna (Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands — og Sovét- ríkjanna), en hins vegar sagt, „ef v.-þýzka stjórnin fellir einhliða úr gildi við skiptasamninginn, sviptir hún sig um leið möguleikum til að halda áfram vöruflutn- ingum um yfirráðasvæði Þýzka alþýðulýðveldisins“, sem sé „fullvalda ríki“. Og enn fremur segir í tilkynn- ingunni: „Það liggur í augum uppi, að með því að taka slíkt skref (þ. e. að ógilda viðskiptasamninginn) væri vestur-þýzka sambandslýð- veldið vitandi vits að reiða til höggs við Vestur-Berlín.“ í orðsendingunni er fullyrt, að A.-þýzkaland geti vel komizt af án viðskiptanna við Sambands- lýðveldið — en hins vegar hefir löngum verið talið augljóst, að ýmsar greinar iðnaðar í A.-þýzka landi væru mjög háðar hráefn- um þeim ,sem keypt hafa verið af V.-þjóðverjum. Lægðin við SV-ströndina veldur rigningu um allt land- ið að kalla. Hún er á hreyf- ingu austur eftir og má því búast við sæmilegu veðri í dag. Miklar þokur eru suðvest- ur í hafi og einnig víða við Grænland. En á Norðursjó og strönduim hans er skúra- veður. Veffurspáin kl. 10 í gærkvöldi SV-land til Breiðafjarðar og miðin: Vestan stinningskaldi og skúrir í nótt, hægari og létt skýjað með köflum á morg- un. Vestfirðir til NA-lands og miðin: Breytileg átt, rigning með köflum í nótt en léttir til á morgun. Austfirðir og miðin: Sunn- an kaldi og rigning eða súld fram eftir nóttu en vestan kaldi Og léttskýjað á morgun. SA-land og miðin: Vestan kaldi, bjart með köflum. ár Enn opiff austur Sovézk heimild í Austur- Berlín lét hafa það eftir sér í dag, að ekki sé fyrirhugað að loka merkjunum milli borgar- hlutanna algerlega fyrir allri umferð á báða bóga — en svo kunni þó að fara, að annars verði ekki kostur, ef „æsinga- og undiróðursmenn" haldi á- frarn að laumast inn í A-Berlín að vestan. — Sá orðrómur komst á kreik „vestantjalds“ snemma í dag, að ákveðið hefði verið að loka fyrir allar samgöngur þeg- ar í dag, um nón — en seint í kvöld sáust engin merki þess, að slíkar ráðstafanir væri í að- sigi á þeim 12 stöðum, sem „opn- ir“ hafa verið. Hins vegar fram- fylgdi a-þýzka lögreglan ná- kvæmlega hinum nýju „reglurn** um að bílstjórar að vestan verði að sýna sérstakt leyfi frá opin- berum aðilum til þess að fá að aka austur fyrir mörkin. Var hundruðum bifreiða að vestan snúið frá af a-þýzkri lögreglu við borgarmörkin í dag. j Jc Mótmælaaffgerffir Þaff gerðist viff „opiff" milli borgarhlutanna á Friedrich- strasse í dag, aff hópur Vestur- Berlínarbúa réðst í reiði sinni aff a-þýzkum bílum, sem héldu vestur yfir, og barði þá meff berum hnúunum. Annað atvik gerðist við Brandenborgarhliðiff. Um 20 unglingar tóku að rífa niff- ur gaddavírshindranir austur- þýzkra, en v-berlínskir lögreglu- menn hindruðu unglingana í þeim framkv. og ráku þá burt frá markalínunni. Hefir lögregl- an verið mjög á varðbergi til aff koma í veg fyrir beinar mótmæla aðgerffir íbúa V.-Berlínar. Hins vegar hefir borgarstjórnin skor- að á ibúana að f jölmenna til mót- mælafundar við borgarstjórnar- húsið kl. 15 á morgun (ísl. tími). „Vopnaðar herbúðir í fyrrnefndu bréfi sínu till sovézka hernámsstjórans í A.-Berlín sökuðu hinir vest- rænu „kollegar" hans Sovét- ríkin m. a. um að rjúfa sam- komulagið frá 20. júní 1949 (eftir samgöngubannið við Berlín), þar sem ábyrgzt var ferðafrelsi í allri Berlín og milli borgarinnar og annarra hluta Þýzkalands. „Við fram- kvæmd þessara ólöglegu að- gerða, hafa hernaðarlegar og stjórnmálalegar stofnanir, sem komið var upp í trássi við fjórveldasamkomulagið —• en sjálf tilvera þeirra í Austur-Berlín er ólögleg —• (hafa þessar stofnanir) gert sovézka hernámssvæðið í Berlín að vopnuðum herbúð- um“, segir í bréfinu — og enn fremur: „Vér verðum að mótmæla hinum ólöglegu að- gerðum 13. ágúst og lýsum yður ábyrga fyrir því, að umræddir samningar verði haldnir". Búizt er við, að á eftir þessu bréfi fylgi form- leg mótmæli til sovétstjórn- arinnar frá ríkisstjórnum vesturveldanna —- og loks svar við síðustu Berlínar- orðsendingu Krúsjeffs, frá 3. ágúst. Borgarstjórn V.-Berlínar sendi í dag bréf til hernámsstjóra vest- urveldanna, þar sem lagt er til að þeir ráðgist við borgarstjórn- ina um ýmsar aðgerðir til svar3 við ferðahömlum a.-þýzku yfir- valdanna. — Þá er talið, að fasta- ráð NATO í París kunni að at- huga möguleika á því að banna ferðir A.-Þjóðverja til NATO- landa á fundi, sem ráðið heldur að líkindum á morgun. Jc Heldur dregiff úr herverffi Austur-þýzkur talsmaður sagði í dag, að ekkert væri ákveðið, hva lengf Brandenborgarhliðinu yrði algerlega lokað, en það yrði a. m. k. ekki opnað fyrr en linnti „ögrununum“ frá V.-Berlín. — Þrátt fyrir lokun hliðsins var heldur dregið úr herverði aust- an þess í dag. Þannig sáust nú aðeins 25 sovézkir skriðdrekar þar á verði í dag, í stað 50 I gær, og einnig voru nokkrir vopn aðir verðir fjarlægðir. En víða á götuhornum stóðu herflutninga- bílar, fullir af hermönnum, sera tilbúnir voru að grípa til vopna, ef óeirðir hæfust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.