Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 20
Síldin heldur áfram að veiðast Áfram veginn • • Sjá bls. 8. 182. tbl. — Miðvikudagur 16. ágúst 1961 IÞROTTIR Sjá bls. 18. SIG-LUFIRÐI, 15. ágúst. Eftir- talin skip hafa komið með síld af Austfjarðamiðum til verk- smiðja S. R. Á Siglufirði siðan í gærdag : Vörður Þ. H. 450 mál, Helga RE 900, Helgi Helgason 1450, Katrín Su 820 Saeþór ÓF 1000, Víðir II Garði 800. Til verk smiðjunnar Rauðku kom Heið- rún ÍS með 7—800 mál. Á Grímseyjarsundi varð síld- ar vart í gærkvöldi á lóðningu, en reyndist allt smásíld sem á- netjaðist og er mikið verk að ihrista hana úr. í dag er hér suð- austan gola og mikil rigning. — Guðjón. Raufarhöfn, 14. ágúst Frá laugardagsmorgni til sunnu dagsmorguns var sæmileg veiði. Þá var kunnugt um 39 skip, sem fengið höfðu 28.600 mál Og tunn- ur. Á sunnudegi og fram á mánu- fengu 45 skip 28.550 mál og tunn- dagsmörgun var svipuð veiði; þá ur. í gær var ástandið líkt óg jafnvel heldur betra. Það var Ljósafellið frá Fá- skrúðsfirði, sem fann aðalsíldar- magnið á sunnudagskvöld um 35 til 36 mílur undan landi. Aðal- steinn skipstjóri kastaði þá á 1500 mála tórfu, hirti sjálfur 1200 en gaf öðrum bát 300 mál eftir. í gærkvöldi hitti Ljósafell aftur á feiknamikla síld tveimur mílum dýpra. >«* Leiguskipin Siglufirði, 14. ágúst í gær var lokið við að afferma tvö norsk leiguflutningaskip, sem hingað komu að austan með bræðslusíld. Þau voru með sam- tals um 8000 mál síldar. Þá komu hingað í morgun tvö skip með bræðslusíld, Guðbjörg ÍS með 800 mál Og Gissur hvíti með 400 mál. Síld hefur ekki verið söltuð hér að undanförnu. — Stefán *s*» S.R. bráðum með lA milljón Siglufirði, 14. ágúst Á hádegi á laugardag höfðu Flugvéla - sprengja á línu REYÐARFIRÐI 15. ágúst. — Jón Björnsson í Gröf, Reyð'- arfirði, fékk í gær flugvéla- sprengju á línu, sem hann hafði lagt hér í firðinum. ;Mun sprengjan ættuð frá norska flughernum, en Norð- menn voru hér á stríðsárun- um, og æfðu sig oft í því að fleygja sprengjum úr flug- vélum í sjóinn. Gerðu þeir það einnig sér til gamans að nota sprengjurnar til að veiða fisk í soðið, en er þær sprungu, rotaðist fiskurinn og flaut upp á yfirborðið. Sigldu norskir síðan um á hraðbát og hirtu fiskinn. Mun sprengja sú, er Jón fékk, vera þannig til komin. Sprengjur þessar eru litlar, um 1,2 m á lengd og nálega hálfur meter í þvermál. Er lítil skrúfa aftan á þeim, til að stjórna ferð þeirra í vatn- inu. — Er Jón varð sprengj- unnar var, skar hann á öng- ultauminn og sökk ódráttur þessi aftur á bafsbotn. — Arnþór. Síldarverksmiðjur rikisins tekið á móti 470.974 málum, sem skipt- ast þannig: Siglufjörður 235.914 mál, Rauf- arhöfn 201.275 mál, Húsavík 7 861 mál ög Skagaströnd 5.636 mál. Flutningaskipin Jolita og Una hafa 20.288 mál innan borðs. Um helgina losaði Una 3.500 mál. Guðbjörg og Gissur hvíti komu með 800 og 400 mál, og von er á Helgu RE með 800 mál. Tank- skip, sem fylgir sovézka veiði- flotanum, er fiskar hér norður í hafi, kom hingað í síðustu viku og tók 1000 tonn af neyzluvatni. Það lestar sér aftur í dag sama Frh. á bls. 2 Þorskhaus- inn til sýnis STÓRI þorskhausinn, sem þröstur gerði sér hreiður í og Mbl. birti myndir af á dögunum, verður til sýnis í Morgunblaðsglugganum næstu daga. Hér er um að ræða hina gagnmerkustu hreiðurgerð, og er ekki að efa að ungir sem gamlir muni hafa skemmtun af að skoða hausinn. Síldarskip missfi bátinn í þoku Áframhaldandi óþurrkar í Þingeyjarsýslu HÚSAVÍK 15. ágúst. — Áfram- haldandi erfiðleikar eru hér um slóðir vegna binna langvarandi óþurrka, þótt þeir, sem súg- þurrkun hafa, séu betur staddir en hinir, er ástandið hvergi gott. Sjaldgæfir hafa verið tveir samstæðir þurrkadagar á sumr- inu, og þremur þurrkdögum samstæðum man ég ekki eftir. í gær var hér í sýslu sól og sumar og mikið unnið að heyj- um, en þó fór eins og áður, að þurrkdagurinn varð aðeins einn, því að í dag hafa hér verið skúrir, en stillt og hlýtt í veðri. Þó munu margir hafa lagað mik- ið fyrir sér í gær, náð inn heyj- um, en þó víðast töluvert hrökt- um. Veðurspámenn hér, þeir bjart- sýnni, spá veðurbreytingu að lokinum hundádögum 23. þ. m., en þeir svartsýnni ekki fyrr en um höfuðdag 29. þ. m. Illa mun fara fyrir mörgum bóndanum, ef lengi þarf að bíða eftir þurrki. — Fréttaritari. KLUKKAN rúmlega 3 síðdegis í fyrradag var vélbáturinn Keil- ir frá Akranesi á siglingu 6 sjó- mílur austur af Glettinganesi, er siglt var á nótabát hans svo hann slitnaði aftanúr. Var þar svarta þoka á og skyggni sára- lítið. Skipstjóri sagði að mið- punktur ratsjárskífunnar í bát sínum hefði verið mjög ógreini- legur og því erfitt að staðará- kvarða skip sem sáust í rat- sjánni innan hálfrar sjómílu frá bátnum. Kvað skipstjóri því heppilegra að standa í stýris- glugga og freista að fylgjast með siglingum fremur en að standa við ratsjána. Skömmu áður höfðu skipverj- Skip smíð- uð til ffalla SIGLUFIRÐI, 14. ág. — Það þykir í frásögur færandi, að feðgarnir Jón Kristjánsson og Sæmundur Jónsson smíða í hjáverkum trillubáta í fjalls- hlíðinni fyrir ofan Siglufjarð arkaupstað. Mun það senni- lega eina skipasmíðastöðin á landinu, sem starfar upp til fjalla. Á morgun verður sjó- settur 10 tonna trillubátur, sem þeir feðgar hafa smíðað fyrir Svein Þorsteinsson, skipstjóra, og er það annar trillubáturinn, sem frá þeim fer úr fjallshlíðinni á þessu ári. — Stefán. ar séð 4 togara í ratsjánni er þeir töldu vera brezka. Á Bátur slitnar aftanúr Skyndilega verða þeir varir að dráttartaug sú er hélt nóta- bát þeirra aftan í slitnaði, en taugin 60 faðma löng. Snéru þeir þá við til að huga að bátnum og nótinni, sem í honum var. — Komu þeir að bátnum mikið brotnum og hófu þegar að taka nótina um borð. Tókst það og náðist nótin lítið skemmd. Freist uðu þeir að draga bátinn til lands, en það reyndist ekki fært sökum þess hve brotinn hann var. á; Var á leið á miðin Keilir var á leðinmi á miðin frá Vopnafirði, en þar hafði hann landað síld. Fór hann síð- an inn til Norðfjarðar og þar var bráðabirgðapróf í málinu en síð- an hélt báturinm norður tun. Ekki reyndist skipverjum á Keili fært að komast að því hver hefði siglt á nótabátinn sökum þess hve þokan var svört. í GÆRKVÖLDI var gamli. eimvagninn, sem notaður var ] til grjótflutninga til hafnar-1 gerðarinnar í Reykjavík á sín-1 um tíma, fluttur á sýningar- svæði Reykjavíkurkynningar- ; innar við Melaskóla. Eins og sjá má á myndinni hlaut hann I góðar móttökur hjá ungu kyn- | slóðinni. Það var í marz 1913, sem \ vagninn kom hingað til lands, og var lagningu járnbrautar- innar lokið á rúmum mánuði. | 17. apríl 1913 var brautin full- lögð, og fór eimvag ninn fyrstu I ferð sína eftir henni þann dag fj Réttum mánuði síð ir hófust, svo grjótflutningar til hafnar- gerðarinnar úr Öskjuhlíð. (Ljósm. Mbl. K.M.) Vélskófla stórskemmd UM helgina var skemmd stór vélskófla i Rauðhólum, en ein- hverjir hafa brotizt inn í skófl- una, og ekið henni af stað. Aðal- bóma skóflunnar hefur síðai. verið reist, en of mikið, þannig að hún féll afturábak og lenti á húsi skóflunnar, sem stór- skemmdist. Var vélskóflan ný- lega komin úr mikilJi viðgerð. - Alvarieg misklíð Adenauers og Brandt Útflutningur á síld að hefjast LÍTIÐ var frétta af síldveið- um í gær. Síldarleitin á Seyð isfirði kvað engar veiðar hafa verið fyrir Austurlandi í gær en í fyrrinótt nokkra, — Útlit var fyrir brælu í gær- kvöldi. Byrjuð er yfirtaka á síld á Seyðisfirði hjá öllum söltunar- stöðvunum þar og er ráð gert að Helgafellið taki síld til útflutn ings til Rússlands n.k. föstudag. BERLÍN, 15. ág. — Það er nú| ijóst, að komin er upp alvarleg misklíð með þeim Adenauer, kanslara Vestur-þýzkalands, og Willy Brandt, borgarstjóra Vest- ur-Berlínar — einmitt þegar Berlínardeilan stendur sem hæst. — ★ — Brandt er andstæðingur Aden- auers við kosningarnar í haust —- kanslaraefni jafnaðarmanina. Á kosningafundi í gær drap Aden- auer illkvittnislega á þá stað- reynd, að borgarstjórinn er óskil getinn. Vakti þetta mikla athygli á fundinum — og þótti mörgum helzt til langt gengið. — ★ — f dag gerðist það svo, er Willy Brandt sat í forsæti á fundi borgarstjórnar V.-Berlínar, að hann fékk í hendur útdrátt úr fyrrnefndri ræðu Adenauers, þar sem kanslarinn talaði um and- stæðing sinn sem „herna Brandit — alias Frahm“ (eftirnafn móð. ur hans). — Brandt yfirgaf þeg- ar fundinn, er hann hafði lesið þetta. Síðar gaf hann út yfirlýs- ingu, þar sem hann lýsir furðu sinni vtgna hinnar „ódrengilegu árásar“ Adenauers, einmitt „þeg ar mikill reynslutími gengur yfir þýzku þjóðina" — og nauðsyn ber til. að allir standi saman. Ekki róið AKRANESI 15. ágúst. — Hum- arbáturinn Ásbjörn er hættur veiðum. Engir trillubátar eru á sjó í dag. Stormur er af suð vestri, og ókyrrð í sjóinn. , — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.