Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.01.1963, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. janúar 1963 Parísarsamningurinn mætir víða ákafri mótspyrnu Mörg blöð I V-Evrópu telja hann stefna einingu og samstarfi Evrópu- beinan voða rikja Bonn, Moskvu, Róm. — NTB-AP. SAMNINGUR sá, sem DeGaulle, Frakklandsforseti, og Adenauer, kanzlari V-þýzkalai*ds hafa und irritað um nánari samvinnu ríkj anna, hefur víðast verið talinn sögulegt plagg. Viðbrögð ráðamanna í Evrópu og vestan hafs við samningnum hafa þó verið mjög misjöfn, og víða hefur verið hreyft mótmæl- um, m.a. á V-þýzkalanc*. Moskvublaðið „Pravda“ segir i grein, þar sem mjög er vegið að samkomulagi leiðtoganna, að ljóst sé nú, að hermangararnir í Bonn ætli sér framvegis það hlutverk að stjórna afstöðu Frakka. í Bandarikjunum íelja ráða- menn, að afstaða DeGaulle sé í mörgum atriðum alröng, m.a. til varnarmála. Fregnir frá Washington herma, að ráðamenn þar muni leggja sig fram við að sýna fram á villu Frakklands- forseta í þeim efnum. Hins veg- ar er því fagnað, að betra sam- komulag kunni nú að ríkja fram- vegis með Frökkum og þjóðverj um. Blöð í V-Evrópu setja flest samkomulagið í París í samband við afstöðu Frakka í Brússel til aðildar Breta ao' Efnahagsbanda laginu. • Ludwid Erhardt, efnahags málaráðherra V-þýzkalands, sem margir telja líklegasta eftirmann Adenauers, sendi í dag frá sér tilkynningu, þar sem segir m.a.: Aðild Breta að EBA getur ekki hindrað sam- einingu Evrópu, né heldur getur hún hindrað nánara samstarf Frakklands og V- þýzkalands, miklu fremur verður að telja, að aðild Breta sé skilyrði fyrir því, að sam- starf Evrópuþjóða beii ávöxt. Samstarf Evrópuríkja innan NATO, á stjórnmála- og varn arsviðinu krefst náinna tengsla. • Blaðið „General-Anzeiger", óháð, gefið út í Bonn, segir, að samningurinn geti haft alvar- legar afleiðingar fyrir sam- starf Evrópuríkjanna. Hefur blaðið oft verið vinveitt stjórn- inni í skrifum sínum. Segir þar ennfremur, að það sé Ijóst, að franskt-þýzkt samstarf undir stjórn DeGaulle geti vart feng- ið stuðning í öðrum Evrópulönd um eða Bandaríkjunum. Samn- ingur sá, sem nú hafi verið gerð ur, sé ógnun við allt, sem áunn- izt hafi frá stríðslokum. Að visu þarfnist V-þýzkaland vináttu Frakka, en þó sé sú þörf ekki meiri en sú, sem V-þjóðverjum sé á vináttu Bandaríkjanna og Stóra-Bretlands. • „Die Welt“, í Hamborg seg- ir, að nú verði V-þýzkaland að velja milli Frakklands og Banda ríkjanna. Telur það hættu á einangrun Bretlands, en Bretland hafi einmitt átt að verða tengi- liður Evrópuríkjanna og Banda- ríkjanna, fyrst og fremst efna- hagslega, en þó einnig á stjórn- málasviðinu. • „Kölnischer Rundschau," stuðningsblað v-þýzku stjórnar- innar, segir, að samningur De- Gaulle og Adenauers sé hápunkt ur fransk-þýzkrar samvinnu, en bætir við: hann markar þó að- eins upphaf stjórnmálasamvinnu Evrópuríkja. • Moskvublaðið „Pravda" hef- ur það eftir fréttaritara í París, að nokkrar greinar samningsins sýni það svart á hvítu, að hann nái einnig til Berlínar, og feli í sér hefndarráðstafanir. • „Rauða stjarnan", málgagn sovézka herrins, segir, að samn- ingurinn muni binda Frakka enn nánari tengslum við hervagn V-þjóðverja, og opni um leið dyrnar fyrir V-þjóðverjum að kjarnorkuvopnum Frakka. • Málgagn Vatikansins, „Osservatore Romano“, varar við þeirri hættu, sem leiðir af samn- ingnum, og bendir á, að Sovét- ríkín munu hagnast á þeim skoð anamun, sem nú geri vart við sig í Evrópu. • „La Voce Republikana“ mál- gagn ítalska fjármálaráðherrans, La Malfa, fordæmir samninginn. og telur efni hans á þann veg, að jafnvel svartsýnustu menn hefðu ekki látið sig óra fyrir lcecan slitnaði 1 Jbriðja sinn Búizt við að viðgerð taki skamman tíma Kl. 20 mínútur yfir miðnætti í fyrrinótt slitnaði sæsímastreng urinn á milli fslands og Ný- fundnalands, Icecan, í þriðja sinn frá því er hann var lagður. Slitnaði strengurinn 414 sjómílu frá Friðriksdal á suðurodda Ók drukkinn á Fossvogsbrúna KL. HÁLFNÍU í gærkvöldi var bíl ekið á brúna yfir Fossvogs- læk. Skemmdist bíllinn töluvert og varð Vaka að fjarlægja hann, en slys urðu ekki á mönnum. Ökumaðunnn reyndist drukkmn. slíku. Beinir blaðið þeim tilmæl um til Evrópuþjóða, að þeim beri að vinna gegn því, að Ev- rópu verði stjórnað frá París og Bonn. Talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins lýsti því yfir í dag á blaðamannafundi, að stjórn- málamenn í Bretlandi, allt síð- an á stjórnardögum W. Chureh- ills, hafi lýst sig samþykka nán- ara samstarfi Frakka og V-þjóð- verja. Hins vegar vildi talsmað- urinn ekki ræða nánar um samn inginn, sem gerður var í París. ☆ LANDHELGISGÆZLAN hef- ur auglýsf varðskipið Gaut til sölu. Morgunblaðið hefur snú- ið sér til Péturs Sigurðsson- ar, forstjóra Landhelgisgæzl- unnar, og spurzt fyrir um ástæður fyrir sölunni. Pétur sagði m.a.: — Samkvæmt fjárlögum þessa árs er ekki ætlunin að gera út varðskipið Gaut og hefur hann því verið boðinn til sölu samkvæmt leyfi dóms málaráðuneytisins. — Ástæðan er, að undan- Grænlands, en í gær var við- gerðarskip, sem var á leið til Grænlands, komið á staðinn, og var ekki búizt við að viðgerð mundi taka langan tíma. Ekki er vitað hvað olli því að strengurinn slitnaði, því vart mun um fiskimið að ræða svo nærri landi en ísrek er þar hins vegar og er ekki óhugsandi að ísjaki kunni að hafa valdið slit- inu. Petta er í þriðja sinn, sem streng urinn milli íslands og Nýfimdna lands slitnár. Slitnaði hann einu sinni áður en hann var tekinn í notkun, einu sinni eftir að hafa verið tekinn í notkun og loks nú. Flugþjónusturásir til Nýfundna lands hafa verið tengdar um Bretland á meðan Icecan er bil- aður, en viðgerð ætti ekki að taka langan tíma svo sem fyrr greinir. Pétur Sigurðsson, forstjórl, með líkan af varðsklplnu Gaut, eins og það var í upphafi. Líkanið gerði Sigurður Jóns- son, módelsmiður, Landssmiðjunni. Vill fá sem flestar milljónir fyrir Gaut Varðskip auglýst til sölu farin ár hefur jafnt og þétt komið í ljós, að elztu og minnstu varðskipin hafa æ komið að minni notum við þær aðstæður sem nú eru, þótt þau hafi á sínum tíma þótt góð. — Þau hafa hvorki næga stærð eða ganghraða til að geta unnið þau störf, sem krafizt er af landhelgisgæzl- unni í dag. — Það er ekki aðeins stækk un landhelginnar sem hefur verið ör á sl. áratug, heldur einnig stækkun alls þorra bátaflota landsmanna. Bát- arnir eru nú miklu stærri og betur útbúnir en áður. Þeir geta því sótt dýpra og víðar til fiskveiða. — Af þessu leiðir að báta- aðstoðin hefur færzt meira yfir á stærri varðskipin. Með VarSskipið Gautur í Reykjavíkurhöfn í gær. Nú á að selja skipið eftir langa og dygga þjónustu. notkun flugvéla til landhelg- isgæzlu hafa þau líka betri tíma til þess. Byggður á Akureyri — Gautur er 85 brúttótonn að stærð og var byggður 1938 á Akureyrir Gunnar Jónsson, skipasmiður, byggði skipið og var mjög vandað til þess. End urbætur fóru fram 1952, aðal- lega á brúnni, og ýmsar breyt ingar gerðar. Ný vél var sett í Gaut 1948. —- Gautur hefur alltaf ver- ið mjög traustur sjóbátur og allir kunnað vel við sig í hon- um. Allir þeir sem eru skip- stjórar hjá Landhelgisgæzl- unni hafa einhvern tíma ver- ið skipstjórar á honum. Það hef ég líka verið oft. — Við sjáum allir eftir Gauti með söknuði, en það er ekki um það að fást. Hall- varður Rósinkarsson hefur verið mjög lengi á honum sem vélstjóri og síðasti skip- stjórinn er Sigurður Árnason. Hét Óðinn áður — Upphaflega bar skipiS nafnið Óðinn eftir hinum elzta Óðni, sem var járnskip álíka stórt og Ægir, en var seldur úr landi. — Gautur er búinn að þjóna vel og lengi með mikl- um ágætum miðað við stærð. Honum hefur aldrei hlekkzt á og er það ekki lítils virði. í landhelgisstríðinu átti Gautur þátt í því, að það fékk farsællega lausn. Sem flestar milljónir — Það eina sem við hugg- um okkur við þegar við þurf- um nú að sjá eftir Gauti, að verið er að skera af þeim end anum, sem ekki hæfir kröf- um tímans, en aftur á móti verið að byggja upp hinn endann. — Þess vegna vildi ég fá sem flestar milljónir fyrir Gaut. — Þeir, sem hafa hug á að kaupa hann, geta litið um borð fyrir hádegi næstu daga. Hann er nú í Reykjavíkur- höfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.