Morgunblaðið - 13.10.1965, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.10.1965, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLABIÐ Miðvikudagur 13. október 1965 PATRICK QUENTIN: GRUNSAMLEG ATVIK — Alveg afskapleg, elskan, — verri en Sylvia La Mann. Hlust aðu nú á. Þetta kvöld í Cann- es, þegar þú varst fullur, eftir að hafa talað við Roger Renard, töluðum við Lukka saman. Þú getur ekki ímyndað þér, hvern- ig hún var. Bókstaflega sneydd öllu velsæmi. Hún sagði mér, að við jarðarförina hennar Normu, hefði ritstjóri Allsbers boðið henni mörg þúsund dali fyrir einhverjar hneykslisögur um mig. Hún sagði, að ef ég léti þig ekki giftast sér .skyldi hún senda Allsber nógar upp- lýsingar til að sanna, að, ég hefði drepið hr. Piquot og Normu og Sylviu. Vitanlega var þetta eins og hver önnur vit- leysa. Ég hef alltaf vitað, að þetta með hann hr. Piquot var slys, og eins hjá ^Normu og Sylviu. Tóm vitleysa, auðvitað. Og • þannig verður maður að hugsa, eða verða vitlaus að öðr- um kosti. En.....hvernig gat ég varizt henni? Ég var á hennar valdi. Ó, elskan mín, ég að láta undan. Hugsanir mínar streymdu í allar hugsanlegar áttir, líkast hitamóðum fiðrildum á heitu sumarkvöldi. Mamma gat þá haldið áfram að vera mamma! Mamma, sem gat talið sjálfri sér trú um, að þrjú morð væru bara slys, bara af því, að þann- ig varð henni lífið þægilegra! Hvfer annar en mamma átti hug- arflug, sem gat unnið svona. En ég vantreysti henni ekki fram- ar. Þessu var öllu lokið. Jafn ótrúlegt og það hefði einu sinni verið, þá vissi ég, að Lukka var eins og mamma var að lýsa henni. Hafði ég kannski ekki sjálfur fundið það á mér, áður en.....hvað það nú var.......... grænu augun og rauða hárið hafði gert mig vitlausan? — Nikki minn, þú hlýtur að hafa haldið, að ég væri eitthvert skrímsli, að fórna syni mínum til þess að forða sjálfri mér frá hneyksli. En ég hafði ekki gef- izt upp. Ég var ákveðin að hugsa út gagnárás, og það hefð’ ég gert.... En að minnsta kosti kom ég í kring dálitlum hrossa- kaupum. Til þess að sjá okkur farboða framvegis, hef ég........ Mamma stóð upp af rúminu, sveif yfir að snyrtiborðinu, tók blað upp úr skrautgripakassa og kom með það til mín. — Ég lét hana skrifa þetta. Ég vissi, að það mundi geta komið sér vel, þótt seinna yrði. 26 Lestu það! Ég leit á blaðið, sem var árit- að með rithönd Lukku, sem ég kannaðistt svo vel við. „Ég hef hótað að selja upp- lýsingar tímaritinu Allsber, þar sem Anny Rood er kærð fyrir morðin á hr. Piquot, Normu Delaney og Sylviu La Mann, nema því aðeins hún láti mig giftast syni sínum. Það er ein- göngu af metorðagirnd, að ég vil giftast honum, því að ég elska hann alls ekki. En jafn- skjótt, sem hjónavígslan hefur farið fram, sver ég að þegja yf- ir þessum upplýsingum. Lukka Schmidt. varð I Hlaðrúm henta allstaðár: i barnaher• bergið, unglingaherbergið, hjónaher- bergið, sumarbústaðinn, veiðihúsið, barnaheimili, heimavistarshóla, hótel. HÚSGAGNAVERZLUN REYKJAVIKUR BRAUTARHÓLTI 2 SÍMI 11940 Helztu kostir hlaðrúmanna eru: ■ Rúmin má nota eitt og eitt sér eða hlaða þeim upp í tvær eða þrjár hæðir. ■ Hægt er að fá aukalega: Nátthorð, stiga eða hliðarborð. ■ Innanmál rúmanna er 73x184 sm. Hægt er að fá rúmin með baðmull-. ar og gúmmídýnum eða án dýna. ■ Rúmin hafa þrefalt notagildi þ. e. koj ur, einstaklingsr úm og hjónarúm. ■ Rúmin eru úr tekki eða úr brenni (brennirúmin eru minni ogódýrari). ■ Rúmin eru öll í pörtum og tekur aðeiris um tvær mínútjrr að setja þau saman eða taka í sundur. HLAÐ RDM Þau rúmstæði sem hér eru auglýst, hafa oftast verið nefnd kojur. En þar sem kostir og notagildi þessara rúma fara svo langt fram úr því, sem hér hefur áður þekkzt, höfum við ákveð- ið, til frekari áherzlu á notagildi þeirra, að kynna þau undir nafninu hlaðrúm. Ég sat og horfði á þetta og á sjálfan mig um leið. Þá var barið á hurðina og ein kvensan frá John Cavanagh kallaði: — Ungfrú Rood, hér er símskeyti. — Alveg að koma, elskan! Mamma sveif fram að dyrun- um, opnaði þær, tók skeytið og kom svo upp til mín aftur, og reif það upp um leið. Ég var raunverulega alls ekki að hugsa um hana. Ég var ekki að hugsa um eitt eða neitt. Ég var bara með það á tilfinningunni, að þrátt fyrir allt og allt, þá ætlaði þetta allt saman að fara veL — Nikki. Röddin í mömmu kom mér til að líta upp. Hún stóð og starði á skeytið og andlitið á henni var allt í einu orðið ná- fölt — sýndist ekkert nema bein in. — Hvað er það, mamma? — Ó, Nikki! Sem snöggvast sýndist mér eins og hún væri öll að skreppa saman, rétt eins bg konan í sögunni, sem varð allt í einu hundrað ára gömul. En þetta var bara snöggvast og svo var hún 'strax orðin mamma aftur. Mamma var nú eins og hún var. Mamma gat vel talið sjálfri sér trú um, að þrjú morð væru ekk- ert annað en tilviljun. Þrjú morð? Nei, fjögur voru þau. En ég gat ekki talið mér trú um slíkt. Einhver hafði myrt þess- ar fjórar manneskjur. Einhver.. Ég tók skeytið og það var rétt eins og hugsanir mínar hefðu, fyrir einhvern rugling í tímanum, orðið á undan því, sem olli þeim, því að skeytið, sem var sent frá stöð, þarna örskammt frá, hljóðaði þannig: „Til hamingju með afmælis- daginn, elsku Anny taktu nú upp gjöfina mína Þinn elskandi eiginmaður.“ Eiginmaður! Þarna kom það. Nú var þetta loksins að taka á sig einhverja ákveðna mynd. Það var ekki mamma, heldur einhver, sem hafði verið með henni í gamla daga, sem hafði verið í bakherberginu þegar hr. Piquot gerði hana afturreka. Maður, sem hafði verið fús til að giftast henni, ekki raunveru- lega, heldur aðeins tH þess að útvega henni atvinnuleyfi, ein- hver, sem hafði tignað hana og tilbeðið og verið einbeittur á á því, að hvorki Piquot, Norma, Sylvia né Lukka skyldu standa í vegi fyrir henni, heldur skyldi mamma alltaf vera örugg á klifri sínu upp á þessa hættu- legu tinda, sem á heanar máli hétu „heima“. Hversvegna hafði mér ekki dottið þetta í hug, þegar ég var orðinn þess fullviss, að hátt- setti maðurinn var ekki annað, en skröksaga? Hversvegna hafði ég ekki gert mér ljóst, að þessi „ómerkilegi litli skrípaleikari“, sem mamma vildi ekki skiija við, hlaut að vera einhver, sem stóð henni nærri, einhver með- al okkar, einhver þannig vax- inn, að hefði hjónaband þeirra komizt upp, hefði það orðið ekki neitt stórhneyksli, heldur einmitt ómerkilegt smáhneyksli sem hefði nægt til að velta mömmu úr þessu glæsi-hásæti smu, og gera hana að almennu athlægi? — Skrípaleikarinn.... mað- urinn, sem hafði verið settur til hliðar þegar hann hafði lokið hlutverki sínu, maður, sem fyr- ir hreina tilviljun hafði fund- izt fyrir tíu árum og mamma — sem var nú eins og hún var, þrátt fyrir alla eigingirnina — hafði verið svo heiðarleg að taka aftur í hópinn. Þessi maður .... eini maður- inn.... (ANNY ROOD GIFT- IST BÍLST J ÓRANUM SÍNUM LEYNILEGA). Gino! Mamma kom inn aftur. Hún bar einn afmælispakkann, sem var lítill og vafinn í gullpappír með hræðilegri rauðri slaufu á bandinu. Hún gekk ekki að rúm inu. Virtist varla vita, að ég væri þarna. Hún settist í stól við snyrtiborðið og fór að taka utan af bögglinum. Þar kom kassi í ljós ... Hún reif af hon- um lokið. Svo tók hún upp ekki neinn hlut, heldur bréf. Um leið og hún dró arkirnar út úr umslaginu, andvarpaði hún, eins og hún ætti bágt með andar- dráttinn. Ég horfði á hana reyna að lesa það. Og ég komst hálfgert við, því að hún var svo miður sín, að hún hafði alveg gleymt gleraugunum. Hún hélt blöðun- um upp að augunum og síðan.I armslengd frá sér og svo aftur nærri sér. Ég stökk upp og náði í gleraugun og rétti henni. Hún tók við þeim þegjandi og fór síðan að lesa. Ég vissi, að hún vildi láta eins og hún væri ein. Ég vissi, að á þessari stundu var ég ekki raunverulegur í huga hennar. Ég sat bara á rúminu, reyndi að horfa ekki mikið á hana, reyndi að hugsa um annað. Hvað annað? Var það Monika? Loksins rankaði ég við mér við röddina í henni. — Nikki! É,g sneri mér við á rúminu. Hún sat þama bara með blöð- in í kjöltunni. Ég gekk til henn- ar. — Mamma! Hún leit á mig. Bak við gler- augun voru þessi frægu augu allt öðruvísi en ég hafði nokk- urntíma séð þau áður. Þau voru rétt eins og augun í hverri ann- arri konu, konu, sem hafði lært, að það er eins með augun og með gildleikan, að hvorutveggja verður að hafa hemil á. — Ó, Nikki.... ég hef alltaf vitað það. Það sé ég núna. í öll þessi ár hef ég verið að blekkja sjálfa mig, af því að ég vissi, að ef ég færi að horfast í augu við það, myndi ég sjá að allur frægðarferill minn hef- ur byggzt á........byggzt á . . — Viltu lofa mér að lesa það? Hún tók af sér gleraugun. Hendurnar sigu hægt niður og svo greip hún blöðin og rétti mér þau. Ég for með þau yfir í rúmið. Af því að ég vissi þegar svo mikið, sem ég hafði getið mér til um, fann ég, að ég fór hratt yfir, og staðnæmdist ekki hema við eitt atvikið hér og annað þar. „„Elsku Anny! Ég skrifa þetta vegna þess, að sá tími getur komið — þótt ég haldi, að svo verði ekki — að lögreglan þurfi að lesa það. Ef ekki svo væri, mundi ég þegja. En það get ég ekki, vegna þess, að enn á ég eitt verk eftir ógert, og ég veit ekki, hvernig það muni takast. Anny, elsku, dásamlega Anny. Ég mun aldrei vita, hvort þér hefur nokkurntíma dottið í hug, að ég hrinti hr. Piquot. Þú viss- ir, að ég var inni í hinu herberg inu hjá honum Nikka, en þú veizt, að þar voru aðrar dyr fram á ganginn, og þú veizt, að ég hafði heyrt, að hann var bú- inn að spilla fyrir þér þessum mikla möguleika þínum. En . ... við töluðum aldrei um það og það fór líka þezt á því. Ást mín hefði verið lítils virði, ef ég hefði látið þig deila sökinni með mér. Það var því eins og það var og Hollywood kom og þín mikla velgengni með og allt virtist vera í himnalagi að ei- lífu. Vitanlega var Norma enn. Það var sýnilegt að Roger hafði sagt henni nóg til að gera hana tortryggna, en það virtist ekki gera neitt til... fyrr en þarna um kvöldið. Og þegar hún svo snerist gegn þér í garðhúsinu hjá honum Ronnie, varð mér ljóst, að hún gat eyðilagt þig. Þessvegna var það, að ég elti, þegar þú fórst inn í húsið, þess- vegna hleraði ég við dyrnar, og þegar ég heyrði hana grenja, að hún skyldi koma upp um þig morðinu á hr. Piquot, þá vissi ég að allt var í voða. Það, sem seinna gerðist, gerðist bara. Þú fórst. Hún kom slagandi á eftir þér. Hún sá mig ekki einu- sinni. Næstum áður en ég vissi, hvað ég var að gera, var freist- ingin orðin of sterk og ég ýtti við henni.... Seinna var auð- velt að halda því fram, að við tvö hefðum verið saman í garð- húsinu .... Hann, sem elskaði þig eins og hann gerði, hefði aldrei farið að segja neitt.... ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.