Morgunblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.11.1965, Blaðsíða 13
Sunnuctagur 28. nóv. 1965 Æ>, te." MORGU N B LAÐIÐ 13 TÓNLEIKAR WVÐ VORU forvitnilegir og fróðlegir tónleikar, sem Musica nova og Tónlistarfélagið gengust fyrir sameiginlega í Austurbæj- arbíói fyrra þriðjudag. En ef dæma ætti eftir aðsókn, er sam- starf þessara félaga ekki efnilegt: í>arna munu að vísu hafa verið saman komnir margir þeirra, sem að staðaldri hafa sótt tónleika Musica nova, en Tónlistarfélags- menn — að slepptum formanni félagsins og framkvæmdastjóra vöktu athygli með f jarveru sinni. Þetta voru þó tónleikar, sem voru þess virði að heyra þá, jafnt fyrir aðdáendur hinnar nýj ustu tónlistar sem hina, er sitt- hvað hafa fundið henni til for- áttu. Og sanngjarnir menn munu geta orðið á einu máli um, að flest verkin, sem flutt voru, bera vitni einlægri viðleitni og alvar legri leit áð nýjum eða að minnsta kosti nýstárlegum tján- ingarhætti Hér fór enginn mað- ur úr buxunum, hvorki í eigin- legri né óeiginlegri merkingu. Um áhrifin af tónleikum sem þessum verður hinsvegar hver að segja fyrir sig. Öll viðbrögð okkar við tónlist eru háð upp- eldi okkar og reynslu. Mjög marg ir hafa heyrt það mikið af tón- list 18. og 19. aldar, áð þeir eru orðnir sæmilega dómbærir um verk þess tímabils, skilning á þeim og meðferð þeirra. Um tónlist þessarar aldar gegnir öðru máli, Síðan á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar hefir gerj- un hcnnai verið svo ör og ólg- an svo mikil, að fáir einir hafa yfirsýn yfir aílan gang þeirra mála. Framboð samtímaverka á tónleikum hefir og lengst af ver- ið lítfð, miðað við framleiðsl- una, þar til helzt nú á síðustu árum. En þá bregður svo við, að öll áherzla er lög á flutning verka eftir yngstu höfundana og þá fáu menn eldri, sem þeir telja sína lærifeður, en gengið stein- þegjandi fram hjá öðrum, sem djúp og óafmáanleg spor hafa markað í tónlistarsögu aldarinn- ar og vissulega átt drýgri þátt í áð ryðja yngri mönnunum braut ina en ýmsir þeir, sem nú er mest hampað. En nóg um það að sinni. Á þessum tónleikum voru alls flutt sjö tónverk fyrir fiðlu og píanó, hið elzta frá 1910, hið yngsta frá því í fyrra. Elzta verk ið, Vier Stúcke eftir austurríska tónskáldið Anton von Webern (1883—1945), var kannske það merkilegasta, sem hér var áð heyra. Hinn hnitmiðaði „punkta stíll“ Weberns býr yfir einhverj um töfrum, sem eftirlíkjendum hans tekst sjaldanst að ná. Sónata nr. 4 efitr Charles Ives (1874— 1954), sem ungu tónskáldin eru óðum að gera að „merkasta tón- skáldi Bandaríkjanna", stakk verulega i stúf við önnur við- fangsefni. En forvitnilegt er að kynnast verkum þessa höfund- ar, sem nú er áð verða svo mjög rómaffur, þótt naumast væru verk hans virt viðlits, meðan hanri var ofan moldar. Sónatína op. 39 eftir ameríska tónskáldið Wallingford Riegger (1885— 1961) er eftirtektarvert verk og einkar fínlega unnið, en róttæk- ari aðferðum hefir þessi höfund ur beitt annarstaðar. Verk eftir Bandaríkjamennina George Crumb og Donald Martino og Pólverjann Krzysztof Penderecki, samih á árunum 1959—64, megn uðu ekki áð vekja áhuga og at- hygli í sama mæli og fyrrnefndu verkin. „Mósaík" Leifs Þórarins sonar, samin 1961, er áður kunn hér af tónleikum og úr útvarpi og stóðst ágætlega samanburð- inn við hin önnur nýrri verk, sem hér var að heyra. Þá kemur loks að því, sem eins hefði mátt standa í upphafi þessara orða: Tónleikar þessir voru mjög vel vandáðir og fylli lega sambærilegir að því leyti við það sem bezt gerizt annars staðar. Bandaríski fiðluleikarinn Paul Zukofsky, sem er kornung- ur maður, fyllti auðveldlega allar þær margvíslegu tæknikröfur, sem viðfangsefnin gera, og hann j mun yfirleitt hafa blásið í þau þeim lífsanda, sem þau voru mótækileg fyrir. Píanóhlutverk Þorkels Sigurbjörnssonar var l líka allt annáð en auðvelt við- fangs, en hann leysti það af hendi með því öryggi og þeim ágætum, að aðdáun hlaut að vekja. Jón Þórarinsson. j XjétgG/iííM KARLMANNAFÖT — bezt úrval — Vetrarfrakkar, verð kr. 2.450,00. Terylene frakkar, svampfóðraðir 2.200,00 Rykfrakkar frá 1.525,00 Zlltitnci - HEIMIUSÚTVÖRP - BÍLAÚTVÖRP - FERÐATÆKI BLAUPUNKT SOLUUMBOÐ: Reykjavík: Radíóver sf., Skólavörðustíg 8. EINKAUMBOÐ: Stapafell. 081111 GUIMNAR ASGEIRSSON HF. Raftækjaverzlun Suðurlandsbraut 16 — Sími 35-200. Haraldar Eiríkssonar. Akranes: Keflavík: Vestmannaeyjar: ÞETTA GERÐIST ALÞINGI Alþingi, 86. löggjafarþingið, sett (9). Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1966 lagt fram. H'eildarniðurstöðutölur á sjóðsyfirliti kr. 3.790.475.000,00 (12). Birgir Finnsson kjörinn forseti Sam- einaðs Alþingis, Sigurður Óli Ólafs- son forseti Ed. og Sigurður Bjarnason forseti Nd (12). Forsætisráðherra flytur stefnuyfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar á Atþingi (14). • Fjárlög til fyrstu umræðu á Alþingi (19). Rætt á Alþingi um undirbúning hátiðahalda á 1100 ára afmæli íslands þyggðar 1974 (21). Miklar umræður á Alþingi um rannsókn á orsök umferðarslysa (27). VEÐUR OG FÆRÐ Kólnax i veðri og smávegis snjó- koma um allt land (16). Haustrigning í Reykjavík (17). Skriður falla á vegi við ísafjörð (19) Miklir vatnavextir sunnan lands og vestan (21). Vatn á 4 km kafia á þjóðveginum á Mýrdalssandi (23). Úrkoma á einni viku meiri en meðalúrkoma októbermánaðar (27). Bílar komast að nýju yfir brúna á Jökulsá á Sólheimasandi (28). Tún grænka í Miðfirði vegna veð- urblíðu (28). ÚTGERÐIN Fáskrúðsfirðingar fá 2 millj. kr. kaup eina viku við síldarvinnslu (1). Verð Suður- og Vesturlandssíldar ákveðið (2). Heildarsíldaraflinn norðan og aust- an 2,3 millj. mál og tunnur 3 okt. (5). Moksíld fyrir Austurlandi (5). Síldaraflinn norðan og austan 2.680.545 mál og tunnur 10. okt (13). Nýjar flokkunarvélar auðvelduðu mjög síldarsöltun i sumar (17). Togurunum gengur llla að fá fisk fyrir brezkan markað (17). Síldaraflinn norðan og austan 2 8 millj. mál og tunnur 17. okt. (20). Enn mikil síldveiði fyrir austan land (26). Sáldaraflinn norðanlands og austan 2,9 millj. mál og tunnur 24. okt. (26). MENN OG MÁLEFNI Borgarstjórinn í Reykjavík og fleiri fulltrúar borgarstjórnar heimsækja Grimsby i boði borgarstjórnar þar (6). Nær 80 íslenzkir verkfræðingar bú- settir erlendis (9). ítalski prófessorinn Maroo Scavazzi flytur háskólafyrirlestur um Dante (14) . Brynjólfur Jóhannesson situr fund Leikararáðs Norðurlanda (15). Birgir Kjaran kjörinn formaður stjórnar Flugfélags íslands (23). Dr. Sigurður Þórarinsson flytur fyr irlestur um Surtsey 1 Oslóarháskóla (26). tFundur forsætisráðlherra Norður- landaráðs haldinn í Finnlandi (26). Skipað í verðíagsráð Sjávarútvegs- ins. Kristjná Ragnarsson formaður (28) Björn Ólafsson, fyrrv. ráðherra, skipaður formaður bankaráðs Útvegs- bankans (30). Sr. Ingimar Ingimarsson kjörinn prestur í Vik i Mýrdai (30). Ásgeir Ásgeirsson, forseti, kominn heim úr einkaferð til útlanda (30). FRAMKVÆMDIR 13 fyrirtæki bjóða í byggingu drátt- arbrautar á Akureyri (2). Grensássöfnuður byggir safnaðar- heimili (3). Miklar framkvæmdir við Reykja- víkurhöfn fyrirhugaðar á árunum 1966 — 1970 ( 7). Fákur reisir tvö ný hesthús (8). Framkvæmdir hafnar við Norræna húsið í Reykjavik (8). Miklar lagfæringar gerðar 1 Al- þingishúsinu (9). Almennt hlutafélag um laxrækt við Lárvaðal á Snæfellsnesi stofnað (10). Höfn gerð á Þingeyri á einu ári fyrir 9 millj. kr. (14). Verzlunin Edinborg flytur I nýtt húsnæði að Laugavegi 89 (14). Reykjavikurborg gengst fyrir bygg- ingu sýningarhúss myndlistarmanna (15) . Menntamálaráðuneytið ákveður að reist skuli listamannahús (15). Bygging Suðurlandssjúkrahúss hefst væntanlega árið 1967 (17). Miklar endurbætur fyrirhugaðar í Vesturhöfninni í Rvík. (17). Ný niðursuðuverksmiðja tekur til starfa í Hafnarfirði (20). íslenzkar skipasmíðastöðvar bjóða í smiði 32 fiskiskipa fyrir Líbýu (24). Stapi, nýtt félagsheimili vigt i Ytri-Njarðvlk (26). Reykjafoss, nýtt flutningaskip eign Eimskips, kemur til landsins (26). Nýi, steinsteypti vegurinn til Kefla víkur opnaður (27). Unnið að byggingu Búnaðarbanka- húss á Sauðárkróki (28). 70 — 80% aukning á heitu vatni úr borholum i Reykjavík (31). BÓKMENNTIR OG LISTIR Brinkmann American Theatre Group sýnir hér ..Kirkjugarðinn í Skeiðar- árþorpi“ (Spoon River Anthology) (1) Land og lýðveldi, síðara bindi bókar Bjarna Benediktssonar, forsætisráð- herra, komið út (1). 76 íslenzk listaverk í Bandaríkjun- um (9). Þjóðleikhúsið sýnir „Síðasta segul- band Krapps", eftir Samuel Beckett og Jóðlíf eftir Odd Björnsson (10). Kosið í safnráð Listasafns íslands- (10). Tauno Hannikainen stjórnar tón- leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar og Erling Blöndal Bengtsson leikur ein- leik á celló (13). Óperusöngvararnir Sigurveig Hjalte- sted og Guðmundur Guðjónsson skemmta á Norðurlandi (M'). Sýning á Kjarvals-málverkum í til- efni 80 ára afmælis listamannsins (14) Framhaldsleikrit eftir Ármann Kr. Einarsson flutt í íslenzka og norska útvarpið (16). Þjóðleikhúsið sýnir ,,Afturgöngur“ eftir Henrik Ibsen (16). Bók Ásmundar Guðmundssonar, fyrrv. biskups „Ævi Jesú“ kemur út í enskri þýðingu, „The Supreme Life“ (16). Svíinn Börje Sandelin sýnir svart- listarmyndir hér (23). Komin er út ný ljóðabók eftir Jón úr Vör, Maurildaskógur (27). Leikfélag Reykjavíkur sýnir „Sjó- leiðina til Bagdad“ eftir Jökul Jakobs son (28). Afmælissýning á málverkum Magnús ar Á. Árnasonar (30). Sigfús Halldórsson heldur málverka sýningu í KópavOgi (30). „Leitið og þér munuð finna“, bók um Hafstein Björnsson miðil komin Út (30). I OKTOBER FÉLAGSMÁL Félagsdómur úrskurðar verkfall trésmiða í Árbæjarhverfi lögmætt (1) 1061 nemendi í Menntaskólanum í Reykjavík í vetur (2). Nemendasamband Menntaskólans á Laugarvatni stofnað (5). Fjármálaráðherra og viðskiptamála- ráðherra sitja aðalfund Alþjóðabank- ans (5). Aðalfundur Verzlunarráðs íslands haldinn í Reykjavík (9). Fjölmenni á minningardegi Leifs heppna á Skólavörðúholti (10). Óli J. Ólason. stórkaupmaður, kjör- inn formaður Reykjavíkurdeildar RKÍ (14). Hinn almenni kirkjufundur hald- inn í Reykjavík (16). Trésmiðir semja við atvinnurekend- ur (15). Samningar við starfsmenn ýmissa bæjarfélaga (17). Mótmælafundur í Keflavík vegna vegaskatts (21, 22). S.H. heldur ráðstefnu um framleið- slumál (27). Verkfall hjá yfirmönnum á togur- unum (27). Jón A. Ólafsson kjörinn formaður Varðbergs (30). Magnús J. Brynjólfsson kjörinn formaður VerzlunarráÓs Íslands (30). Njörður P. Njarðvík kosinn for- maður Félags háskólamenntaðra kennara (31). SLYSFARIR OG SKAÐAR Ungur maður, Steinar Richard Elíasson, Langholtsvegi 159, bíður bana 1 bílslysi (3). Eldur í 1000 hesta hlöðu á Lamb- húshóli undir Vestur-Eyjafjöllum (5) Gísli Jónsson, bóndi Engimýri í Öxnadal, stórslasast, er hann varð undir dráttarvél (5). 16 ára piltur Guðmundur Guð- mundsson í Ófeigsfirði, bíður bana af slysförum (6). Þúsund lítrar af olíu flóðu úr geymi á Norðfirði (7). Mikið tjón af eldsvoða að Gilsbakka í Arnarneshreppi í Eyjafirði (9). Soffía Guðmundsdóttir, Fögrubrekku Seltjarnarnesi, bíður bana í bílslysi (12, 14). Björn Halldórsson, Granaskjóli 3, Rvík, 55 ára, varð undir bómu á | Keflavíkurvelli og beið bana (12, 13). Vélskipið Ágústa VE 350 sekikur út af Austfjörðum. Mannbjörg (12). Smábátinn Jón Krák frá Víest- mannaeyjum rekur upp hjá Eyrar- bakka. Mannbjörg (12). Síldarsöltunarhús Sunnuvers á Seyðisfirði brennur (13). Um 70 fjár ferst í óveóri í Axar- firði (13). Vélbáturinn Strákur SI 146 ferst út af Grindavík. Brezkur togari bjargaði áhöfninni (19). Tugmilljóna tjón, er verzlunarhús Kaupfélagsins á Ólafsvík brennur (20) Hluti brúarinnar á Jökulsá á Sól- heimasandi fellur í vatnavöxtum (21). Tjón mjólkurbænda í Vestur-Skafta fellssýslu 70—80 þús. kr. á dag á með- an þeir koma ekki frá sér mjólkinni (22). Mannlaus vörubíll rennur á hús í Borgarnesi og skemmir það mikið (22). Vegatollskýlið á Keflavíkurvegi brennur (22). Skriða grefur fjárhús og leggst yfir tún að Arnþórsholti í Lundareykja- dal (22). * Mestu vegaskemmdir á síðari ár- um (22). Eldey GK 37 sekkur á sildarmiSun- um út af Austurlandi og Pétur Sigurðs son RE 331 hætt kominn (23, 24). Innbrotsþjófar kveikja i bókbands stofu. Skemmdir ekki miklar (24). Ungur maður, Jón Sigurgrímagon, Holti, Stokkseyrarhreppn, stórslasast á Selfossi (26). Katrín Óladóttir, 39 ára, Selvogsgr— unni 7, biður bana í bílslysi (29. 30). Vatnsleysi veldur tjóni á Seyðis- firði (30). Vatnsból bóndans að Þjórsártúni spillist vegna olíu, sem rann út tankbíl (31). AFMÆLI Jóhannes S. Kjarval, listmálari átt- ræður (15). Verzlunarskóli íslands 60 ára (15). Biblíufélagið 150 ára (15). Togaraútgerðarfélagið Alliance 60 ára (19). Sjómannafélag Reykjavíkur 50 ára (23). ÍÞRÓTTIR KR varð íslandsmeistari i knatt- spyrnu 1965 ( 5).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.