Morgunblaðið - 01.03.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.03.1966, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐID Þriðjudagur 1. marz 1966 Engar efnahreytingar í án um undan Mýrdalsjökli 3ENGIR jarðskjálftar svo teljandi ssé höfðu mælzt á mælum veður- stofunnar í tvo sólarhringa, er iblaðið hafði samband við Eirik Sigurðsson í gær, Um helgina var framkallað af mælunum á Akureyri og borið saman við Heykjavíkurmælinn þann dag sem jarðskjálftarnir voru. Reynd ust kippir vera þar á svipuðum tíma. Og voru upptakasvæðin ákvörðuð tvö, annað í norðan- verðum Mýrdalsjökli, hitt rétt uorðvestan við Torfajökul. Dr. Guðmundur Sigvaldason, jarðefnafræðingur, tók sýnishorn af vatni Jökulsár á Sólheima- sandi, Múlakvíslar og Skálmar, er renna undan Mýrdalsjökli. Efnagreindi hann sýnishornin í gær. Og reyndist efnasamsetning vatnsins alveg eðlileg miðað við Þennan árstíma. En Guðmundur tekur reglulega slík sýnishorn úr ánum. Þetta bendir til þess að ekkert óvenjulegt sé á seiði undir jökl- inum. Þó er engin reynsla feng- in fyrir því hvort efnabreyting á sér stað fyrir Kötlugos. Aftur á móti hefur það reynzt þannig fyrir eldgos sums staðar erlend- is og slík efnabreyting hefur orð- ið fyrir Skeiðarárhlaup. Greinilegir jarðskjálftakippir. EINS og kunnngt er varð fólk á nokkrum bæjum sunnanlands vart við jarðskjálftakippina sl. miðvikudag. Mbl. hafði samband við bændurna á bæjunum Heið- arseli á Síðu og Hrífunesi í Skaft ártungum. Rafn Valgarðsson bóndi á Heiðarseli, kvaðst hafa orðið greinilega var við tvo kippi á miðvikudagskvöldið, er klukkan var um 11.15. Sagði Rafn að vart hefðu liðið nema tvær til þrjár mínútur á milli þeirra. Hann sagði ennfremur, að hann væri ekki frá því að hafa fundið þriðja kippinn, en þó vildi hann ekki staðhæfa það. Árni Jónsson bóndi að Hrífu- nesi sagðist ekki hafa orðið sjálf ur var við kippinn, en einn heimamanna hefði fundið greini- lega vægan jarðskjálftakipp þetta kvöld um kl. 11.30. Hefði eins fundizt þessi eini kippur, og ekki orðið vart við neina jarðskjálftakippi síðan. * SKRIFSTOFA skemmtikrafta gengst fyrir fjölbreyttri mið- næturskemmtun n.k. fimmtu- dag í Austurbæjarbíói, þar sem fram koma 50 innlendir skemmtikraftar. Meðal þeirra er ungur sigl- Ásmundur að biia sig undir að brenna hundrað kr. seðilinn. Verð landbúnað- arvara hœkkar FRÁ og með deginum í dag hækkar verð landbúnaðarvara í samræmi við hækkun þá á kaup gjaldsvísitölu, sem i|i gengur í gildi. Þannig verður smásölu- verð á súpuk ( ti um kr. 67.20, en var áður 66.00 kr. Smásölu- verð á hryggjum verða 80.50 kr. en var 79.15 kr., smásöluverð á lærum 78,00 kr. en var 76.75 kr., og aðrar kjöttegundir hækka hlutfallslega. Þá hækkar verð á mjólk þann ig að mjólk í heilhyrnum kostar nú 7.75 kr. eða hækkar um tíu aura. Rjóminn í kvarthyrnum hækkar um 20 aura hver hyrna og verður 21.80 kr. Útsöluverð á 45% osti hækkar í 24.50 kr. en verður núna 125.75. Verð á smjöri breytist ekkert. Góður fundur Norræna félagsins á ísafirði SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld var haldinn almennur félagsfund ur í Norræna félaginu á ísafirði. Var hann haldin að Mánakaffi. Formaður félagsins, Aðalbjörn Tryggvason, kennari, setti fund- Kvöldvaka fyrir aldrað fólk í Háteigssókn KVENFÉLAG Háteigssóknar efnir til kvöldvöku fyrir aldrað fólk í sókninni, konur og karla í samkomuhúsinu Lido fimmtu- daginn 3. marz, og hefst hún kl. 8. Hefir kvenfélagið að undan- förnu boðið til öldruðum konum einu sinni á ári, og hafa þær samkomur hingað til verið í Sjó- mannaskólanum og jafnan fjöl- sóttar. Hafa félagskonur með þessu viljað veita gestum sínum ánægjustund og jafnframt auka kynni. Að þessu sinni býður kven- félagið bæði öldruðum konum og körlum. En þá þurfti stærra húsnæði en áður, og þessvegna var samkomuhúsið Lido fengið til hinnar fyrirhuguðu kvöld- vöku. Verður vel til hennar vandað. Sýnd verður kvikmynd og þekktur upplesari les upp. Þá mun karlakvartett syngja. Enn- fremur verður almennur söngur og kaffidrykkja. Væntir kvenfélagið góðrar þátttöku hins aldraða safnaðar- fólks. inn og stjórnaði honum. Sigurður Bjarnason, ritstjóri, formaður Norræna félagsins á íslandi, flutti síðan ræðu um þróun og árangur norrænnar samvinnu. Var máli hans ágætlega tekið. Þá voru sýndar skuggamyndir af starfi Norðurlandaráðs. Ennfrem ur sýndi Alfreð B&rregárd tann- læknir, skuggamyndir, aðallega frá Vestfjörðum. Loks fóru fram almennar umræður um félags-. mál. Til máls tóku Aðalbjörn Tryggvason. Jónas Tómasson, tón skáld, Jón Jóhannsson skattstjóri, og Sigurður Bjarnason, sem þakk aði Norræna félaginu á ísafirði fyrir þennan ágæta fund, sem sýndi mikinn áhuga félagsmanna. Fundinum lauk með almennum söng undir stjórn Samúels Jóns- sonar, forstjóra. Norræna félagið á ísafirði er ein fjölmennasta deild félagsins utan Reykjavíkur. Hefur það starfað vel á undanförnum árum. Fundur þess á laugardagskvöldið var ágætlega sóttur og fór í öilu hið bezta fram. Myndlistarsýn- ingu Heimdallar lýkur í kvöld M YN DLIST ARSÝNIN GUNNI í Félagsheimili Heimdallar lýkur í kvöld. Sýningin hefur verið op- in daglega frá s.l. miðvikudegi og verið vel sótt. Nokkrir ungir listamenn, sem fæstir hafa sýnt verk sín opinberlega áður sýna á sýningu þessari. Öllum er heimill aðgangur en ýningin er opin í síðasta sinn frá kl. 20,30 í kvöld. Siglfirskur töframaður firzkur töframaður Ásmund- ur Pálsson, sem leikur hinar furðulegustu listir. M.a. brenndi hann 100 kr. seðil, sem ljósmyndari Mbl. hætti til í þeim tilgangi, og er ekk- ert var eftir nema askan tóm, og ljósm. farinn að örvænta, þá allt í einu gaidraði Ás- mundur fram seðilinn á ótrú- legan hátt, en 15 manns stóðu í kringum hann meðan seðillinn, sem var í umslagi, var að brenna, og enginn tók eftir að hann aðhefðizt neitt blekkjandi. Við ræddum stutt lega við Ásmund á eftir, og spurðum hann hvenær hann — Kosningar Framh. af bls. 1. degis í dag og var ekki lang- orð. Þar sagði: — Forsætisráðherrann hefur farið þess á leit við hennar há- tign drottninguna að hún til- kynni þingrof. Drottningin hef- ur sent boð um að hún muni verða við þessum tilmælum. — Þing verður rofið fimmtu- daginn 10. marz. Kosningar munu fara fram 31. marz. — Nýtt þing verður kvatt saman mánudaginn 18. apríl og fer þá fram eiðtaka þingmanna og kjör þingforseta. Þing verður sett fimmtudaginn 21. apríl. I kosningabaráttunni sem fram undan er og hefst í kvöld með því að leiðtogar flokkanna flytja fyrsta kosningaávarp sitt í sjónvarp, mun Wilson leggja á- herzlu á að kjósendur veiti sér atfylgi til þess að efla og auka áform þau um endurbætur á sviði efnahagsmála og félagsmála sem mörg eru komin til framkvæmda að einhverju leyti þennan tíma sem liðinn er síðan Verkamanna flokkurinn batt enda á 13 ára stjórnarferil íhaldsmanna í októ ber 1964 og tók við stjórnar- taumunum með nauman meiri- hluta, fimm þingsæta. Síðan hefur meirihluti Verka mannaflokksins enn skerzt og er nú ekki nema þrjú þingsæti og verður það líklega ein helzta röksemd Wilsons fyrir því að láta efna til kosninga nú að hann þurfi sterkari aðstöðu á þingi til þess að umbótaáform hans um að koma á öflugu að- aðhaldi stjórnarinnar um verð- hækkanir og auknar launakröf- ur nái fram að ganga. Verkamannaflokkurinn gerir sér vonir um að kjósendur telji honum það til tekna, hversu hó laun eru nú almennt greidd í Bretlandi og hversu fátt manna er þar atvinnulaust. Einnig hef- ur það komið í ljós við auka- hefði byrjað að fást við töfra brögð. — Það var fyrir 18 árum, því ég lærði minn fyrsta spila galdur 4ra ára gamall. — Hefurðu komið fram áður? — Já, um mest allt landið og einnig í Reykjavík, bæði í Háskólabíó og Austurbæjar- bíó. — Hefurðu lært eitthvað erlendis? — Nei, ég hef fundið flest brögðin upp sjálfur. Hins veg ar hef ég sýnt bæði í Þýzka- landi og Englandi, er ég var skipverji á b.v. Elliða frá Siglufirði. — Fékkstu greiðslu fyrir það? — Já, eitthvað um 500 kr. fyrir kvöldið. — Hvað starfar þú? — Ég er að fara á vertíð til Eyja, þar sem ég verð kokkur á bát í vetur. — Ertu jafnmikili töframað ur í matargerðarlist eins og í sjónhverfingum? — Ekki vil ég sverja fyrir það. — Viltu segja okkur frá nokkrum brögðum, sem þú kannt? — Ég lét t.d. skjóta mig í Vestmannaeyjum, reka mig í gegn með sverði, læsa mig niður í kassa, sem var gegnum stunginn 180 eða 190 sinnum, og ég er heill á húfi, eins og þú sérð. Svo hef ég sagað sund ur kvenmann, verpt eggjum, og sitthvað fleira, en ekki borgar sig að ljóstra upp öll- um leyndarmálunum. kosningar og í skoðanakönnun- um að menn eru alménnt hlynnt ari stjórninni er talið var áður og loks er svo það, að Ródesíu- málið hefur valdið miklum klofn ingi innan íhaldsfiokksins, sem að vísu hefur ekki hugsað sér að gera hvorki það mál né önn- ur er snerta lönd Breta hand- an hafsins að baráttumálum fyrir kosningarnar heldur einbeita sér að innanríkismálum á borð við síau'knar verðhækkanir og önnur áþekk mál, sem oftast nær ráða úrslitum í þingkosningum í Bret- landi. Enda þótt Verkamannaflokkn- um sé almennt spáð sigri í kosn- ingunum sem nú eru framundan eru skoðanir mjög skiptar um það hversu mikill sá sigur verði. Mjög mikið er undir því komið, hverjum falla í skaut atkvæði þeirra 10% kjósenda sem enn eru óvissir í sinni sök og eins getur töluvert oltið á atkvæðum þeirra áhangenda frjálslyndra sem líkur benda til að muni þessu sinni heldur kjósa annan hvorn hinna flokkanna. Hin 630 þingsæti í Neðri mál- stofunni skipast nú þannig milli flo’kkanna að Verkamannaflokk- urinn hefur 314 þingsæti, íhalds- flokkurinn 302 og Frjálslyndir 9 þingsæti. Þingforseti og tveir varaforsetar hafa ekki atkvæðis rétt og tvö þingsæti eru auð nú vegna fráfalls þeirra er þau sátu. — Á isjaka Framhald af bls. 28. hafa orðið um kl. 2.30. Ekki sást strax til þeirra frá Skjaldarvík, því að hæð er á milli, en strax og vart var við háskann, sem þeir voru staddir í, um kl. 3.45, hringdi Jón Þorvaldsson, for- stjóri Elliheimilisins til lög- reglunnar á Akureyri og bað um aðstoð, þar sem engin fleyta var tiltæk á staðnum. Lögreglan fór þegar niður að smábátakvínni, og vildi þá svo vel til að þeir Karl Krist- jánsson, Eyrarvegi 15, og Indriði Hannesson, Bárufelli, Glerárhverfi, voru að koma að á trillu. Brugðu þeir þegar við og fóru drengjunum til hjálpar. Jafnframt því sem Jón Þorvaldsson hringdi til lög- reglunnar hljóp matsveinn Elliheimilsins, Benni Sören- sen, danskur maður, snögg- klæddur og kvefaður inn með ströndinni til þess að leita hjálpar, og óð snjóinn og ófærðina inn að Pétursborg. Þar hitti hann bóndann, Jakob Jónsson, og fóru þeir þegar og grófu árabát frá Blómsturvöllum upp úr fönn inni og hrundu honum á flot, með snjónum í og öllu saman. Var það nokkuð jafn- snemma, eða um kl. 4.15, sem bátarnir tveir komu að jak- anura, sem þá var kominn 200—300 faðma út á fjörðinn. Þeir Karl og Indriði lögðu nú að jakanum, en urðu að fara afar gætilega, svo að hann sporðreistist ekki vegna þess, hve lítill hann var. Drengirnir báru sig furðu- vel, voru ekki mjög blautir, en Inga var orðin afar kalt. Gekk vel að ná þeim um i trilluna, sem hélt síðan með þá og skíðin innanborðs, en árabátinn í eftirdragi heim að Skjaldarvík. Voru dreng- irnir þá búnir að vera í bráð um lífsháska á hinum örsmáa jaka nærri tvær stundir, enda þóttu þeir úr helju heimtir, þegar margar hendur kipptu þeim upp á þurrt land.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.