Morgunblaðið - 15.09.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.09.1966, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLADIÐ Fimmtudagur 15. sept. 1966 Þessi mynd er tekin á fyrsta fundi Hagráðs hinn 3. ágóst sl. Á myndinni eru eftirtaldir menn taldir frá vinstri: Örn Steinsen, Hermann Guðmundsson, Ingi- mundur Erlendsson, Snorri Jónsson, Ottó Schopka, Sigurður H. Egilsson, Guðmundur H. Garðarsson, Björn Þórhallsson, Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, Gylfi Þ. Gísiason, viðskiptamálaráðherra, formaður ráðsins, Jónas H. Haralz, ólafur Björnsson, Magnús Brynjólfsson, Gils Guðmundsson, Júlíus Valdimarsson, Björgvin Sigurðsson, Jónas Guðmundsson og Jón Sigurðsson. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Skýrsla Efnahagsstofnunarinnar til Hagráðs 1. Inngangur. SAMKVÆMT __ lögum um Fram- kvæmdasjóð fslands, Efnahags- stofnun og Hagráð, sem sett voru á síðasta Alþingi (nr. 66, 13. maí, 1966), skal Efnahagsstofnunin leggja fyrir ráðið almenna skýrslu um ástand og horfur í efnahagsmálum tvisvar á ári. Sú skýrsla, sem hér fer á eftir, er hin fyrsta sem lögð er fram til fullnægingar þessu ákvæði. Ber því að nokkru að líta á hana sem tilraun um form og fram- setningu, og má vænta þess, að í framtíðinni verði skýrslur þess- ar fyllri en nú er, a.m.k. önnur hinna tveggja skýrslna hvers árs. Sú leið hefur verið valin að láta þessa skýrslu fjalla fyrst og fremst um þróun þjóðar- framleiðslu og þjóðartekna, skiptingu þeirra og ráðstöfun. Á hinn bóginn mun skýrslan ekki sérstaklega fjalla um þró- un fjármála ríkisins, peninga- m'ája né gjaldeyrismála. Er æt.l- unin, að þeim málum verði gerð skil i væntanlegri október- skýrslu, enda munu þá liggja fyrir endanlegar upplýsingar um niðurstöður ríkisreikninga fy.-ir árið 1965 og frumvarp til fjár- laga fyrir árið 1967. Skýrsla þessi er samin í Efna- hagsstofnuninni og byggð á gögn um, er stofnunin hefur safnað og unnið úr, að því er varðar þróun þjóðarframleiðslu, vecð- mætaráðstöfunar, tekna og launa. Töflur um peningamál, greiðslujöfnuð gagnvart útlönd- um og gjaldeyrismál hefur Seðlabankinn lagt fram. Um fjól mörg efnisatriði er byggt á heim- ildum Hagstofu íslands, einkum að því er varðar verðlagsþróun, en einnig í mörgum öðrum greinum, þar sem heimildir Hagstofunnar fléttast saman við annað skýrsluefni. Skýrsla þessi fjallar um nú- verandi ástand efnahagsmála og þann þróunarferil síðustu ára, sem hefur leitt fram til þess. Þær þróunarstefnur, sem nú eru ríkjandi í efnahagsmálum, hafa flestar verið að verki að meira eða minna leyti frá því um 1960 Nær því lýsing þróunarinnar yfirleitt aftur til þess árs. Slík skýrsla, sem tekur yfir hin þýðingarmestu meginatriði, svo sem þjóðarframleiðslu, þjóð- artekjur og ráðstöfun þeirra, at- vinputekjur launþega o. s. frv., hlýtur að talsverðu leyti að byggjast á áætlun og fyllingu í eyður fyrirliggjandi heimilda Einkum á þetta við um alira síðustu árin. Þrátt fyrir miklar framfarir á undanförnum árum stendur gerð hagskýrslna og þjóðhagsreikninga hér á landi því miður enn langt að baki því, sem nú tíðkast meðal þróaðra iðnaðarlanda. Framsetning skýrslunnar verð- ur með þeim hætti, að fyrst verður lýst þróun þjóðarfram- leiðslu og þjóðartekna og rakið í megindráttum, hvernig at- vinnuvegirnir hafa þróazt. Þá verður lýst þróun atvinnutekna launþega, kaupgjalds og verð- lags og ráðstöfun þjóðartekna til neyzlu og fjármunamyndunar. Allt eru þetta jafnframt þýð- ingarmikil atriði til skýringar á þróun þjóðarframleiðslu, þjóðar- tekna og aðstöðu landsins út á við. Þá verða raktir helztu drættir stefnu og stjórnar efna- hagsmála og leitazt við að setja fram helztu niðurstöður um ástand og horfur þeirra mála, eins og nú horfir við. 2. Hagvöxtur. Vöxtur þjóðarframleiðslu og þjóðartekna hefur verið ör síð- ustu árin. Að meðaltali hefur ársvöxtur þjóðarframleiðslu numið 5.5% frá 1960 til 1965 og vöxtur þjóðartekna 7.6%. Sé árið 1961 ekki talið með, en á því ári dró hið langa verkfall mjög úr vexti framleiðslu, er vöxturinn enn örari. Fást þá ársmeðaltöiin 6.4% fyrir þjóðarframleiðslu og 8.2% fyrir þjóðartekur frá 1961 til 1965. Fiskveiðar og 'isk- vinnsla, sem hafa aukið fram- leiðslu sína um 8-9% að jafnaði síðustu fimm árin, hafa átt i ik- astan þátt í þessari aukningu ásamt byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, sem aukizt hafa um næstum 10% að jafnaði umliðin fimm ár. Aðrar atvinnu- greinar hafa átt breytilegu gengi að fagna, en þó skilað drjúgum hluta til aukningar framleiðsl- unni. Viðskiptakjör þjóðarinnar út á við biðu verulegan hnekki árið 1960 vegna mikils verðfalls á lýsi og mjöli, en náðu sér aft- ur árið eftir. Síðan héldustu þiu lítið breytt fram til ársins 1964 Árin 1964 og 1965 hefur hins vegar orðið mjög mikil og al- menn hækkun útf lutningsverð - lags, eða 10-12% hvort árið. Á sama tíma hefur verðlag inn- flutningsins a8eins hækkað lítil- lega. Það er þessi sérstaka og óvænta hækkun á verðlagi út- flutningsins, sem hefur valdið því, að þjóðartekur hafa aukizt meira en þjóðarframleiðsla. Eng- in önnur þjóð í Vestur-Evrópu mun á þessu tímabili hafa notið slíks bata í viðskiptakjörum, enda byggist hann á sérstökum aðstæðum í framleiðslu fiskaf- urða. Sé árangrinum í vexti fram- leiðslu og tekna deilt með aukn- ingu fólksfjölda, sem numið hef- ur um 1.8% á ári, kemur í ljós, að frá 1960 til 1965 hefur fram- leiðsluaukningin á mann verið 3.7% á ári, en aukning þjóðar- tekna á mann 5.7% á ári að jafn- aði. Sé árinu 1961 sleppt úr, verður aukning þjóðarfram- leiðslu á mann til jafnaðar 4.6% á ári frá 1961 til 1965, en aukn- ing þjóðartekna 6.3%. Hagvöxtur síðustu ára hér á landi er öflugur, hvort sem mið- að er við fyrri tímabil hér á landi eða við önnur lönd á sam- bærilegu skeiði hagþróunar. Á áratugnum 1950 til 1960 var vöxtur þjóðarframleiðslu hér á landi 4.4% á ári að meðaltali, og var það fullt eins mikið og í öllum þorra Vestur-Evrópulanda á sama tímabili. En á fyrri hluta áratugsins 1950-1960 var efna- hagslíf landsins að rétta við eftir þann mikla afturkipp, sem að- lögun að nýjum aðstæðum að styrjöldinni lokinni- hafði í för með ' sér. Skapaði þetta, ásamt mikilli aukningu varnarliðs- vinnu á árunum 1953-1955, skil- yrði fyrir óvenju örum hagvexti um nokkurra ára skeið. Á síðari helmingi áratugsins var vöxtur- inn hins vegar mjög hægur, og hægari en í nokkru öðru landi í Vestur-Evrópu. Á árunum 1955-1960 jukust þjóðarfram- Fyrri hluti leiðsla og þjóðartekjur á mann um 1% á ári til jafnaðar á sama tima og þær jukust um 3—4% í flestum öðrum löndum í vesturhluta álfunnar. Samanburður við þróun ann- arra landa á undanförnum fimm árum reynist fslendingum hins vegar hagstæður. Sé litið yfir öll árin frá 1960 til 1965 er vöxt- urinn hér heldur meiri en í nokkru öðru iðnþróuðu landi innan vébanda Efnahags- og framfarastofnunarinnar, að Jap- an undanteknu. Sökum þess að fóíksfjöldi eykst hér á landi hraðar en víðast hvar annars staðar, er vöxturinn á mann hins vegar svipaður og yfirleítt gerðist í þessum löndum. Sé ár- inu 1961 sleppt úr samanburðin um og litið yfir árin frá 1961 til 1965, að því er ísland varðar, er bæði heildarvöxtur og vöxtut á mann mun hraðari en í nokk’*u hinna iðnþróuðu aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunar innar öðru en Japan. Upplýsitig- ar um þróun þjóðartekna ann- arra landa á þessu tímabili liggja ekki á lausu, en eins og að framan greinir, mun engin þeirra þjóða, sem hér hafa verið tengdur þvi, að tekizt hefur að notið_ slíks bata viðskiptakjara, sem íslendingar hafa notið, og er ekki ástæða til að ætla, að nokk- ur teljandi mismunur sé á þróun þjóðarframleiðslu þeirra og þjóðartekna. Hagstæðar sveiflur fiskistofna ásamt hagnýtingu nýrrar tækni við fiskveiðar hafa ráðið úrslit- um um það, að íslendingar hafa á undanförnum árum náð óvenju miklum árangri í efnahagsstarf- semi sinni. Á hinn bóginn er þessi árangur eins og hjá óðr- um þjóðum Vesturálfu einnig ná tengdur því, að tekizt hefur að framfylgja stefnu í efnahagsmál- um, er veitt hefur frjálsræði og stuðlað að samkeppni í athöfn- um og viðskiptum, samfara nægri atvinnu og stöðugleika í greiðsluviðskiptum við önnur lönd. 3. Hagur atvinnuvega. Meginundirstaða velgengni undanfarinna ára er í sjávarút- vegi, enda þótt velflestar aðrar atvinnugreinar hafi fylgt í kjöl- far hinnar miklu aukningar framleiðslu og tekna, sem þar hefur átt sér stað. Innan sjávar- útvegsins er velgengnin bundin að mestu við tvo þætti, aulcn- ingu síldaraflans, ásamt hag- stæðri afurðaútkomu síldarinn- ar, og hagstæða verðlagsþróun erlendis á sjávarafurðum al- mennt, bæði síldarafurðum og öðrum afurðum. Þessi hagstæða verðlagsþróun er að miklu leyti til komin af untanaðkomandi aðstæðum, en er að nokkru leyti ávöxtur beinnar viðleitni til að auka markaðshæfni afurðanna. Kemur hér ekki sízt til greina frekari vinnsla frystra afurða í verksmiðjum og aukin fram- leiðni í þeirri vinnslu. Þorskafli hefur farið heldur minnkandi á undanförnum ár- um, og koma þar að nokkru til greina bein áhrif hinna auknu síldveiða. Árið 1960 nam hann 453 þús. tonnum upp úr sjó, en árið 1965 377 þús. tonnum. Afl- inn minnkaði verulega til ársins 1962 og jókst síðan til 1964, en var aftur minni á síðasta ári. Einkum hefur afli togaranna dregizt stórlega saman, en afli bátanna hefur haldizt mjög stóð ugur og þannig ekki náð að vega upp samdrátt togaraaflans. Það ber að sjálfsögðu að hafa það í huga í þessu sambandi, að blómi bátaflotans hefur einbeitt sér að síld- og loðnuveiðum síðustu ár- in og að öll ný viðbót við flot- ann hefur verið smíðuð með þær veiðar fyrir augum. Engu að síð- ur sýnir tregða þorskaflans fyrst og fremst takmarkanir sjálfra fiskstofnanna á miðunum við landið, enda er það álit fiski- fræðinga, að heildarveiðin sé nokkurn veginn í hámarki. En á nálægum hafsvæðum, svo sem Barentshafi og Norðursjó, er beinlínis um ofveiði þorskfisk- stofnanna að ræða, þannig að hagur væri að minnkaðri sókn. Fiskiðnaðurinn hefur að nokkru bætt sér upp stöðnunina í aðföngum hráefnis af þorsk- afla með nýtingu annarra fisk- tegunda, þ.e. með frystingu síld- ar, humars og rækju. Þar við bætist, að um verulega viðleitni til hagræðingar og bætts rekstr- ar hefur verið að ræða í þessari atvinnugrein á undanförnum ár- um. Þó hefur munað mest um I verðhækkun afurðanna á erlend um haörkuðum. Framleiðsla frystra afurða, á föstu verðlagi, jókst um aðeins tæP 7% frá 1960 til 1965, en á sama tíma varð samdráttur í framleiðslu ísfisks, saltfisks og skreiðar. Hins vegar hækkaði vísitala markaðsverðs frystra afurða um 45%, ísfisks um 34%, saltfisks um 65% og skreiðar um 20%. Afkoma fiskiðnaðarins hefur fyrir áhrif þessara verðhækkana og aukinnar framleiðni haldizt lítið breytt, þrátt fyrir miklar kostnaðarhækkanir. Bezt er vit- að um_ afkomu hraðfrystihús- anna. Árin 1962 og 1965 hefur brúttóhagnaður þeirra, áætlaður eftir ýmsum heimildum, legið mjög nærri því að samsvara raunverulegum endurnýjun-r- kostnaði, þ.e. afskriftum af áætluðu endurnýjunarvirði. Á yfirstandandi ári er þó áætlað, að tekjur þeirra skili þeim aðeins helmirigi þeirrar upphæðar. Á undanförnum árum hefur af- koman yfirleitt reynzt betri eftir á en áætlað var í upphafi. Litlar líkur eru hins vegar á, að svo verði að þessu sinni, þar sein verðhækkun frystra afurða hef- ur stöðvazt og nokkur verðlækk un er jafnvel gengin i garð. Hin mikla aukning síldaraflans hefur orðið með þeim hætti, að skapað hefur veruleg vandamál í sambandi við nýtingu aflans. staðsetningu vinnslutækja og flutning hráefnisins milli lands- hluta. Aukning síldaraflans hótst með þýðingarmiklum haust-, vetrar- og vorsíldveiðum fyrir Suðvesturlandi. Var mikiu kostað til fjárfestingar í vinnslu tækjum til þess að nýta bann afla, bæði til frystingar og mjöl- og lýsisvinnslu. En ekki hafði sú aðstaða fyrr verið byggð upp en draga tók úr þeim veiðum ár frá ári, svo að nú eru þær mjög lít- ilvægar. Hefur það bitnað til- finnanlega bæði á frystihúsa- rekstri og á síldar- og fiskimjöls verksmiðjum suðvestanlands. Verksmiðjurnar hafa síðustu tvö árin getað bætt sér þennan missi nokkuð upp með loðnu- vinnslu og með flutningi síldar af austanmiðum. En hvort tveggja er fremur til þess fallið að halda verksmiðjunum í gangi um tíma, sem annars nýtt- ist alls ekki, en til þess, að hafzt geti verulega upp í fastan kostn- að. Er loðnan afurðarýr, og mik- ill kostnaður við síldarflutning i gleypir mestmegnis það, sem annars væri aflögu til að mæta föstum kostnaði. Sumarsíldveiðin fyrir Norður- og Austurlandi hefur breytzt að stað- og tímasetningu svo, að í stað þess að standa yfir sumar- tímann frá miðju Norðurlanui og austur og suður um mitt Aust urland hefur hún færzt austur af landinu, og er að mjög verulegu leyti stunduð á djúpmiðum langt 1 úti í hafi allt norður undir Jan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.