Morgunblaðið - 01.12.1967, Síða 10

Morgunblaðið - 01.12.1967, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DES. 1967 // Ég er á móti dag- skráruppeldi á börnum // - spjall v/ð Guðmund L. Friðfinsson, rithöfund, bónda og barnavin á ( Egilsá í Skagafirði j ÞEGAR bóndi utan af landi ■ kemur til Reykjavíkur, vill það | oft bera við að í ýmsu sé að i snúast. Auk þess, að útrétta hitt j og þetta, þarf hann að heim- ! sækja kunningja og ættingja. ! Það var því lítill tími sem Guð- i mundur L. Friðfinnsson, rithöf- undur, bóndi og barnavinur á Egilsá í Skagafirði, hafði til að ! spjalla við mig, þegar hann var j á ferð í höfuðborginni fyrir i skemmstu. Enda sagðist Guð- mundur litlu hafa að segja frá. Eftir fortölur lét þó Guðmundur undan kvabbi mínu ©g kom nið- ; ur á blað, og spjallaði þar við , mig. Þar sem ég hafði heyrt að til stæði að hann gæfi út bók núna fyrir jólin, lá beint fyrir í að spyrja hann fyrst um hana: |i — Ég nefni bókina „Undir f ljóskerinu“, sagði Guðmundur. ÍÞetta eru sagnaþættir byggðir á sönnum heimildum ágæts sagna- þular, og auk þess hafa allar rit- aðar heimildir verið kannaðar eins vel og tök hefur verið á. Ég tel mig reyndar ekki fræði- mann, enda læt ég þess getið í formála bókarinnar, að ég láti mér í léttu rúmi liggja hvort bókin sé lesin sem fræði. Sumir þættirnir eru reyndar stílfærðir nokkuð á þann hátt, að reynt er að skyggnast lítið eitt lengra en frásögnin nær. Meðan sögur og sagnir geymdust á þann hátt að xnaður sagði manni, létu haenn sér ekki nægja að hlýða sög- unni einni saman. Hver saga, hversu glögg sem hún er og skil- t merkilega sögð, segir aldrei allt. I>að er alltaf eitthvað á bak við eöguna, sem fólkið vill skyggn- «-ast -inn í. Ég leyfi mér að kalla þetta sál sögunnar. Ég man vel eftir því frá æsku íninni, þegar verið að segja frá [ ýmsum atburðum, þá varð mönn nm tíðrætt um þá löngu á eftir. Já, það urðu oft langar umræð- or og getgátur, og voru menn þá að reyna að gera sér í hugar- lund, hvernig atburðarásin, sem ^ sagan bar ekki ljóst með sér, Jfaefði verið. Menn lifðu sig sem í eagt inn í söguna, og tóku þátt \ I henni með persónunum. Og þetta gildir enn þann dag í dag, að menn verða að lifa sig inn í söguna til þess að njóta hennar á réttan hátt. I — Eru það skagfirzk málefni, f sem þættirnir fjalla um? í. — Já. Þetta gerist að mestu I leyti í einum dal af fjórtán sem 1 liggja fram af Skagafjarðar- \ héraði. Austurdalur nefnist | hann. Heimildarmaður allra þátt j anna er ættaður úr þessum dal, f og mjög kunnugur staðháttum LÍ>ar- k — Hvers eðlis eru þáettirnir? 9 — Flestir þættirnir eru um f slys og svaðilfarir. Þá er og sagt töluvert frá einu heimili og í eett sem þar bjó. Það eru Skata- j staðir í Austurdal. M.a. er nokk- Uð langur þáttur um mann sem Var fæddur árið 1802 og hét Gísli tÁrnason og .hafði kenningamafn ‘ ið hinn sterki. Var talsvert um- i talaður á sinni tíð. Sérkennileg- 1 or maður sterkur og um hann gengu ýmsar sögur, jafnvel löngu eftir aðhann var látinn. M.a. sú, < að hann hefði fóigið peninga í I jörðu. Ég man meira að segja eftir því frá bernsku minni, að talað var um Skatastaðapening- ! ana. —. Þurfa menn ekki að vera 1 skáld Guðmundur, til þess að j geta fengið fram „sál sögunnar" >í slíkum þáttum? ; — Um það skal ég ekki segja. Hefur þetta hugtak nokkurn ii tíma verið skilgreint til hlítar? Er það ekki eitthvað svipað og með orðið „sál“, sem mönnum er tamt að nota, en kunna þó furðu lítil skil á. Sál sögu verður auðvitað aldrei_ ljósmynduð né sýnd á venjulegu tjaldi. Til þess að njóta slíkra hluta, ætla ég að skáldneisti lesandans þurfi að koma til. Eins má geta að menn verða að rita íslenzkt mál sóma- samlega og geta sagt sæmilega frá, til að þetta verði læsilegt fyrir fólk. Hvort mér hefur tek- izt það og annað í þessum þátt- um læt ég aðra dæma um. Áttunda bókin — Hvað ert þú búinn að skrifa margar bækur, Guðmund- ur? — Þetta verður sú áttunda. Tvær fyrstu bækurnar mínar voru ætlaðar unglingum. Sú fyrsta heitir Bjössi á Tréstöðum, önnur Jónsi karlinn í Koti og telpurnar tvær. Sú saga var fyrst lesin í útvarpi, sem fram- haldssaga í barnatíma, undir nafninu Eins og gerist og geng- ur. — Er hægt að svara því hvernig stóð á því að þú byrjað- ir að skrifa bækur? — Ef til vill ekki beint, en það er eitthvað sem knýr á. Það væri hins vegar heil saga að segja frá því hvernig þetta gekk til þegar ég byrjaði að skrifa. Ég var kominn talsvert á aldur og þar að auki í þessu starfi.- Satt að segja hef ég verið al.la ævi mina önnum kafinn og.graf- inn í vinnu, — ef til vill full- mikilli vinnu, að mér hefur fund izt stundum. Mér fannst ég vera að hlaupa svolítið út undan mér þegar ég byrjaði á þessu. En það var eitthvað sem kallaði, og lét mann ekki í friði. Ég reyndi að fara dult með þetta í fyrstu, og ég skrifaði Bjössa á Tréstöðum þannig, að ég gekk alltaf með blað og blýant í vestisvasanum og skrifaði hvar sem ég var staddur. Skrifaði oft á garða- bandinu, þegar ég var að bíða eftir að féð æti. Ég hefði núna dálítið gaman af því að eiga frumritið, það bar þess merki að ég vann allskonar óhreinlega vinnu og var þess vegna velkt og lifað úr vasa mínum. Ég brenndi því, sem hverju öðru ómerki- legu rusli. — Síðan hefur þú snúið þér að skáldsögunni? —■ Næsta bók mín var Mátt- ur lífs og moldar, síðan kom Leikur blær að laufi, þá Hinu megin við heiminn. Þetta eru allt skáldsögur. Næsta bók mín var Saga bóndans í Hrauni. Hún er reyndar ævisaga lifandi manns, Jónasar Jónssonar, bónda að Hrauni í Öxnadal. Þá bók var ég búinn að lesa að töluverðu leyti í útvarpi þegar hún kom út. Síð- an kom svo út smásagnabók er ég kallaði Baksvipur mannsins. Þá bók held ég að enginn hafi orðið var við, og hefur það vald- ið mér nokkrum sárindum og beizkju. Undirtónninn í þeirri bók er minn ekta tónn, eins og hann er núorðið. —. En ertu hættúr að fást við skáldsöguna? — Ja,það veit maður raunar aldrei. Ég vil ekki fara að gera nein fyrirheit, enda hafa þau víst lítið gildi, þar sem útilegu- maður á í hlut. Hitt er svo ann- að mál, að maður er þetta alltaf við sama heygarðshornið, og get- ur hlaupið útundan sér aftur og ennþá. — Nú fjalla þínar skáldsögur um tengsl mannsins og moldar- innar? — Rétt er það, enda ekki nema eðlilegt að maður skrifi um það efni sem maður þekktir bezt, og hefur lifað. Ég hef farið út fyrir þann ramma, einkum í smásögunum. — Nú var ég að heyra að þú værir búinn að skrifa leikrit Guð mundur? — Ég get ekki neitað því, að mér hefur dottið ýmislegt í hug í þá átt og löngunin hefur alltaf verið fyrir hendi. Mér er hins vegar ljóst, að það ei vandasamt að rita leikrit og ekki sízt fyrir þá sem litla aðstöðu hafa til að kynnast leikhúslífi. Það er nokkuð langt síðan, að ég fór að fikta svolítið við þetta, en hvort það verður nokkurn tíman ann- að en von og draumur og svo vonbirgði læt ég ósagt. Að verða til einhvers gagns — En þér hefur aldei dottið í hug að reyna að gera ritstörf- in að þínu aðalstarfi? — Ég veit ekki hvert ég hefði verið þess umkominn. Ef til vill er ég alltof margklofinn til þess, og þar fyrir utan var ég seztur í þetta sæti, og farinn að fást við búskap. Ég á þessa jörð og því er ekki að neita að hún á sterk ítök . í mér. Ef til vill er það eins með mig og suma bænd ur aðra sem eiga jarðir. Þetta snýst við og jarðirnar fara að eiga þá. Það er vafasamt hversu heppilegt slíkt er. Hvað um það, ég taldi mig hafa skyldur við jörðina og þótti illt að hlaupast á brott frá henni. Mitt ævistarf hefur aðallega verið fólgið í því að rækta og bæta og prýða jörð- á gras yfir sumartímann og lifa. sem óþvinguðustu lífi á sumar- fögrum stað, umgangast grþður og húsdýr og taka auk þess þátt í önnum og starfi sveitafólks. Með öðrúm orðum, alast upp á svipaðan hátt og íslenzk börn hafa alist upp gegnum aldirnar. Erfið frumbýlisár Sigurlaug dóttir okkar, hvatti okkur mjög að fara út á þessa braut, og við hjónin höfðum allt- af aðkomubörn frá því að við byrjuðum að búa. Það var lengi að þau unnu bara fyrir sér. Komu þetta sjö til átta ára og voru fram yfir fermingu. Alltaf var það til siðs, að þau eignuð- ust einhverjar skepnur, og stund um voru þau líka farin að fá svo lítið kaup. Það var alltaf tölu- verður þrýstingur á okkur að taka börn. Á endanum fórum við svo út í það að hafa barnaheimili og ég fór að atanda í byggingum i þessu sambandi. Við húsið hjá mér er nokkuð stór trjágarður, tæplega hálf dagslátta,og í hon- um reisti ég hús. Að vísu ekki með það augnamið í huga að taka börn í það, en það varð síð@r niðurstaðan. Síðan byggði ég skála við íbúðarhúsið og þar höf um við einnig börn. Þá vantaði okkur tilfinnanlega aðstöðu til matseldar og þegar á heildina var litið var þetta húsnæði, sem komið var, allt fremur þröngt og óþægilegt og mér fannst sem það væri á engan hátt trygging fyrir því að þetta starf héldi áfram þarna, eftir að við vær- um öll. Þá réðst ég í að byggja stórt hús, um 1000 rúmmetra. Byrjaði á því 1965 og var verk- inu að mestu lokið í fyrra. Það var ákaflega erfitt að hafa ',’örn- in meðan á þessari byggingu stóð, en hjá því varð ekki komizt vegna fjárskorts. Þessi frrmbýl- isár hafa verið ákaflega erfið. Fjárfestingin mikil og tíminn alltof stuttur til þess að þetta geti orðið hagsmunafyriræki. Svipmynd frá barnaheimilinu að Egilsá, sem hægt væri að kalla: „Snati í viðhafnarbúningi“. ina og standa í ýmislega lagaðri baráttu fyrir tilveru hennar stundum allharðri. Þegar ég svo þóttist sjá að rás tímanna yrði sú,að ekki væri farið að sækj- ast eftir jörðum og litlar líkur til þess að nokkuð af mínu fólki mundi setjast að á jörðinni, þá varð ég að gera upp hug minn. Tvö úrræði voru'til. Annað að hopa og setjast að á mölinni — gerast loks mikill maður með því að mæla malbik höfuðborg- arinnar ásamt öllum hinum. Hitt var að reyna að skyrpa enn í lóf- ana og gera eitthvað. Ég er þeirr ar skoðunar aðallt heilbrigt fólk þrái að verða til einhvers gagns í þjóðfélaginu, og ekki gerist það átaka- og sársaukalaust að vakna við það morgun einn að allt, sem unnið hefur verið á langri ævi, er að engu orðið. Er þuð ekki eiginlega andvana fætt ævistarf? En vonin og viðleitnin er alltaf eftir, þótt manneskjan sé dauð til hálfs. Og þá var það sem mér datt í hug, að ég gæti ?f til vill orðið til einhvers gagns ef ég hjálpaði nokkrum kaupstaðabörnum til að komast Börnin hafa í raun og. veru ekki nema þriggja mánaða sumarfri frá skólunum. Sjálfsagt hefur eitt og anna^ verið að hjá okkur þessi erfiðu frumbýlingsár, en viljinn hefur alltaf verið fyrir hendi, að börn- in mættu gott hljóta af dvol sinni.,Og í sumar gekk alH svo framúrskarandi vel. Raunar finnst mér það hafi alltaf gengið vel, en aldrei eins og í sumar. Við vorum mjög heppin með starfsfólk. Það lét sér annt am börnin, heimilið var ein heiid, þótt það væri stórt. Við barna- heimilið voru 10-—11 manna starfslið m.a. lærður matreiðslu- maður. Frá því við hófum þetVi starf hefúr verið hjá okkur eldri kona sem Guðbjörg heitir. Hún er mjög góð kona, segir börn- unum sögur, talar við þau og kennir þeim söngva. Við eigjm henni mikið að þakka. — Hvað voru mörg börn á Eg- ilsá í sumar? — Þau hafa verið um áttatíu. —■ Og þau kalla ykkur afa og ömmu? — Ójá, það er einhvern veg- Guðmundur L. Friðfinnsson rithöfundur. inn orðin venja að þau geri það, og út af fyrir sig þykir mér ákaflega vænt um það, því get ég ekki neitað. Við höfum aldrei sagt neinu barni að kalla okkur afa og örpmu, en þetta kom upp- haflega þannig til, að dótturdótt- ir okkar var hjá okkur og börn- in tóku þetta upp eftir henni. Áhrifin geymast — Mér þykir ákaflega vænt um öll börnin, sem hafa verið hjá okkur, sagði Guðmundur. Ég held ég hugsi til þeirra flest eða öll kvöld og morgna. Ég gleymi ef til vill nöfnum, en áhrifingleymast ekki. Það eru þræðir á milli okkar þótt lang- ar fjarlægðir skilji. Börnin hafa veitt okkur ótaldar gleðistilndir. Á móti dagskráruppeldi — Er ekki erfitt að hafa of- an af fyrir 80 börnum? — Ekki finnst mér það. Erfið- leikar eru aðallega fyrst meðan þau eru að aðlagast umhverfinu og breyttum siðum. Ég held að þegar tíminn líður finnist flest- um börnunum að þau eigi heima hjá okkur. Þannig þarf það líka að vera til þess að þau geti not- ið sín. Ég er enginn uppeidisfræðingur, en ég leyfi mér samt að vera á móti þessu stöðuga dagskrár- uppeidi á fólki. Börnin eru alin upp samkvæmt dagskrá allan skólatímann, 8—9 mánuði á ári. Þess vegna finnst mér eins mikil nauðsyn og lífsloft að þau fái að vera dálítið frjáls, þótt ekki sé nema hluta sumarsins. Og ég hef reynt að veita þeim mikið persónufrelsi og mögulegt hefur verið .Aðstaðan er mjög góð hjá okkur. Við erum dáiítið frá öðr- um bæjum og þarf því ekki að óttast að þau troði öðrum um tær, þótt þau þurfi geysilegt svig rúm. Ég skipa börnunum ekki nið- ur í deildlr, eða flokka. Það gera þau sjálf eftir því hvað á saman. Það dregst saman eins og segull sem saman á, og þau mynda með sér smá starfshópi, sem ailtaf hafa nóg að gera. Við höfum dá- lítið af leiktækjum hjá okkur, en þau eru ekki mikið r.otuð, Börn- in mega einfaldlega ekki vera að því. Saman eru börnin náttúrlega oft, bæði við mat og drykk og einnig eru þau kölluð saman í stofu og þar er talað við þau, þeim sagðar sögur, látin syngja, sýnt ýmislegt m.a. skuggamynd- ir.Við töium einnig við þau á kvöldin og lesum bænir með þeim og reynum að fá þau til að tileinka sér kristilega sið- fræði og 'lífsskoðun. Einnig höf- um við leitað til þjóðkirkjunnar með leiðbeiningarstarfsemi. Það Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.