Morgunblaðið - 04.09.1968, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPT. 1968
23
— Bráðabirgðalög
Framhald af bls. 1
um hefur að undanfömu verið
mun óhagstæ'ðari en gert hafði
verið ráð fyrir, jafnframt því
sem ríkissjóður hefur orðið að
taka á sig viðbótarskuldbinding-
ar vegna erfiðleika atvinnuveg-
anna. Nauðsynlegt er að fá nokk-
urt svigrúm til þess að kanna
rækilega allar aðstæður og horf-
ur í efnahagsmálum þjóðarinnar
og ræða skilyrði til almenns sam
starfs stjómmálaflokka um lausn
vandane, svo áð Alþingi geti á
sínum tíma tekið endanlegar á-
kvarðanir. Hins vegar verður
ekki hjá því komizt, að nú þegar
séu gerðar ráðstafanir til þess að
draga úr gjaldeyrisnotkun og
greiðsluhalla ríkissjóðs. Ríkis-
stjórnin telur þvi brýna nauð-
syn bera til, að gerðar verði nú
þegar bráðabirgðaráðstafcinir í
þessu skyni, me'ð því að lagt
verði á 20% innflutningsgjald á
allar innfluttar vörur, svo og sam
svarandi skattur á útgjöld til
ferðalaga erlendis. Jafnframt hef
ur ríkisstjómin ákveðið, að tak-
markaðar verði a/5 sinni, svo srem
föng eru á, allar yfirfærslur fyrir
duldum greiðslum til útlanda.
Fyrir því eru hér með sett
bráðabirgðalög, samkvæmt 28.
gr. stjórnarskrárinnar á þessa
leið:
1. gr.
Af tollverði allrar innfluttrar
vöru skal greiða 20% innflutn-
ingsgjald, er rennur í ríkissjóð.
Um innheimtu gjaldsins gilda,
eftir því sem vi'ð á, ákvæði laga
nr. 63/1968 um tollskrá o. fl. og
lög nr. 68/1956 um tollheimtu og
tolleftirlit.
Innflutningsgjaldið skal greitt
af öllum vörum, sem teknar eru
til tollmeðferðar frá og með 3.
september 1968. Hafi innflytj-
andi fyrir 3. september 1968 af-
hent til tollmeðferðar skjöl, sem
eru að öllu leyti fullnægjandi
til þess að hægt sé að tollaf-
greiða viðkomandi vöm þegar í
stað, skal varan því aðeins af-
greidd án greiðslu innflutriings-
gjalds, skv. 1. mgr., að tollaf-
greiðslu sé lokfð fyrir 10. sept-
ember 1968.
Innflutningsgjald skal einnig
greitt af vörum, sem hafa verið
afhentar innflytjendum með
leyfi tollyfirvalda gegn trygg-
ingu fyrir greiðslu aðflutnings-
gjalda, sbr. 22. gr. tollskrárlaga,
nema fullnaðartollafgrei&sla eigi
sér stað innan tveggja mánaða
frá gildistöku þessara laga.
2. gr.
Heimilt er að greiða úr ríkis-
sjóði bætur vegna verðhækkana,
sem innflutningsgjaldið hefur í
fór með sér á eftirtöldum vörum.
brennsluolíu og umbúðum sjáv-
arútvegsins, vefðarfærum, sem
ekki eru framleidd innanlands,
svo og fóðurvörum landbúnaðar-
ins.
3. gr.
óheimilt er að hækka verð á
birgðum innfluttrar vöru, sem
innflutningsgjald hefur ekki ver
ið greitt af, og sama gildir um
birgðir iðnaðarvara, sem fram-
leiddar eru úr efni, sem inn-
flutningsgjald hefur ekki verið
greitt af. Til birgða teljast í
þessu sambandi vörur, sem inn-
flutningsgjald hefur ekki verið
greitt af og ekki eru komnar í
hendur innflytjenda.
Verðlagsnefnd skal heimila
verzlunarálagningu á sem næst
30% þeirrar hækkunar, sem af
innflutningsgjaldinu leiðir.
Nú er vara, sem innflutnings-
gjald hefur verið greitt af, flutt
inn með erlendum grefðslufresti
með leyfi réttra yfirvalda, og
skal þá rikissjóði heimilt að end-
urgreiða gjaldið eða hluta þess,
að svo miklu leyti, sem skuldar
upphæðin í krónum kann að
hækka á greiðslufreststímanum
vegna ráðstafana íslenzkra yfir-
valda. Fj ármálar áðherra setur
nánari reglur um slíka endur-
greiðslu.
5. gr.
Heimilt er ríki&stjórninni að
ákveða, a'ð lagt skuli allt að 20%
gjald á útgjöld til ferðalaga er-
lendis, sem renni í ríkissjóð.
Setur hún nánari reglur um til-
högun og innheimtu gjaldsins.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og
skulu gilda til 30. nóvember 1968.
Gjört að Bessastöðum 3. sept.
1968.
Kristján Eldjám (sign).
Magnús Jónsson (sign).
— Þióðareining
Framhald af bls. 1
þrengt að atvinnuvegunum og
ef við eigum ekki að standa
frammi fyrir því versta, sem
er atvinnuleysi, verður að
hjálpa atvinnuvegunum og þá
sérstaklega sjávarútveginum,
þar sem sum fyrirtæki eru
þannig á vegi stödd, að þau
eru að stöðvast eða stöðvuð.
Frá því að þessir erfiðleikar
hófust fyrir u.þ.b. tveimur ár
um hefur rikisstjórnin lagt
álherzlu á að forðast í lengstu
lög að skerða lifskjör almenn
ings og láta heldur abvinnu-
vegina taka á sig byrðar eftir
því sem við var komið. Nú
er hins vegar brýnasta verk-
efnið að koma í veg fyrir
stöðvun atvinnuveganna og
það er óumflýjanlegt að fólk
geri sér slíkt ljóst, að eðli vand
ans er, að það verður að
skerða lifskjör almennings.
— Hvaða áhrif hafa þessar
aðgerðir á kaupgjaldið?
— Lögin eiga að gilda til
30. nóvember en kaup ætti
skv. kjarasamningum að
hækka 1. des. Verði ekki frek
ari ráðstafanir gerðar mundu
verðhækkanir vegna þessara
aðgerða koma fram í kaup-
gjaldi þá. Hins vegar er ljóst,
að endanlegar ákvarðanir um
efnahagsaðgerðir til lengri
tíma verður að taka áður en
þessi lög falla úr gildi.
— Ber að skilja ákvæði lag
anna um 20% gjald á útgjöld
vegna ferðalaga erlendis svo
að þetta gjald nái einnig til
fargjalda?
— Nei, þetta er eingöngu
gjald á ferðagjaldeyri, ekki
farseðla.
— Hvaða áhrif hafa þessar
aðgerðir á tekjur ríkissjóðs?
— I>essi lög eru fyrst og
fremst sett til þess að draga
úr eftirspurn eftir gjaldeyri
og forðast spákaupmennsku.
Hefði eingöngu verið um fjár
hagsvanda ríkissjóðs að ræða
hefðum við beðið þess að þing
kæmi saman. Hins vegar er
það Ijóst, að greiðsluhalli hjá
ríkissjóði hefur þau áhrif, að
óeðlileg eftirspurn verður eft
ir gjaldeyri og þess vegna
nauðsynlegt að koma í veg
fyrir alvarlegan greiðsluhalla
ríkissjóðs. Það liggur nú ljóst
fyrir að áætla'ðar tekjur ríkis
sjóðs skila sér ekki á þessu
ári og til viðbótar var óum-
flýjanlegt í sumar að taka á
ríkið viðbótarskuldibindingar
til að koma í veg fyrir stöðv-
un ú’tflutningsframleiðslunn-
ar. Af þessari ástæðu og jafn
framt vegna þess, að samdrátt
ur í innflutningi h'lýtur að
rýra tekjur ríkissjóðs er það
óhjákvæmilegt að afla ríkis-
sjóði aukinna tekna og það er
gert með því, að tekjur af inn
flutningsgjaldinu renna í rí'k-
issjóð. Það er hins vegar ekki
hægt að gera sér grein fyrir
því hve hér er um mikla fjár
hæð að ræða. Það fer að sjálf
sögðu eftir áhrifunum af þess
um nýju aðgerðum.
— Hvað felst í þeirri fyrir-
ætlan ríkisstjórnarinnar að
takmarka duldar greiðslur?
— Duldar igreiðslur eru
greiðslur fyrir ýmis konar
þjónustu erlendis. í þessu felst
t. d. það að ef óskað ar gjald-
eyrisyfirfærslu til viðgerðar
á skipi erlendis er líklegt að
því yrði synjað ef hægt væri
að framkvæma viðgerðina inn
anlands. Þannig miun yfirleitt
reynt eð beina slSkri þjónusbu
starfsemi inn í landið.
— Hvað viljið þér segja að
lokum, fjármálaráðherra?
— Þetta eru vitanlega ekki
ánægjulegar aðgerðir og rík-
isstjóminni er það ekkert
gleðiefni að grípa til svona
ráðstafana, sem hafa rýrandi
áhrif á kjör almennings. En
það þýðir ekki að loka aug-
unium fyrir því stórkostlega
vandamáli, sem við er að fást
og er því eðlilegt að þjóðin
verði um sinn að búa við lak-
ari kost. öllum mega rauruar
vera Ijósir þeir mifclu erfið-
leikar, sem skaipasf hafa vegna
hins mikla verðfalls og afla-
brests, sem hafa dxegið meir
úr útflubningstekjum þjóðar-
inmar á skömmum táma en vit-
að er um að amnars staðar
hafi gerzt, eins og Ijóst er af
því, að gert er ráð fyrir að
útflutningstekjiur þjóðarinnar
í ár verði 40% lægri en 1966.
Og einmitt þessir stórfelldu
erfiðleikar leiða glöggt í ljós
þá miklu nauðsyn að sem víð-
tækust þjóðaireining Skapist
um lausn vandans og sem rik-
isstjómin leitast nú við að
hafa forusbu um.
- Sýndu og segðu
Framhald af bls. 13
mínum? Hann er þó læstur
inni í bílskúr.
Á síðustu stundu tók hann
þó ákvörðun. Hann ákvað að
fara og fékk með naumindum
far með bandaríska hópnum.
Af raunamæddum svip hans
mátti lesa, hvað hann var að
hugsa um. Það var Jagúarbif-
reiðin.
Þegar þennan morgun hafði
andspyrnan gegn Rússum tek-
ið á sig þá mynd, sem hún mót
aðist af æ síðan. í stað ögrana
var skorað á fölk að hafa eng-
in samskipti við rússnesku her
mennina, leggja þeim ekki lið
á neinn hátt, láta þá ekki hafa
neinar vistir, gefa þeim engar
upþlýsingar, en sýna þeim að-
eins þögla fyrirlitningu.
Frá kl. 12—1 á hádegi var
aHsherjarverkfall. í rauninni
breytti það ekfci miklu í mið-
borginni, því að öll starfsemd
lá þar niðri að miklu leyti
hvort sem var. Á Wenseslas-
strætd hófu stúdentar geysilegt
setuvenkfall (sit iin). Þúsundiir
þeirra settiust á götuna fyrir
framan stybtu heilags Wensesl-
as. Þar hafði verið kornið fyrir
svörbum sorgarfána og beint fyr
ir framan srt.yttuna lágu blóð-
ugar buxiur 14 ára drengsins,
sem skobinn hafði verið á stræt-
inu morguninn áður.
Mér hafði verið sagt, að
þekfetur maður myndi tala á
þessum útifundi og var því
áfeveðinn í að bíða og sjá,
hverju fram yndi. Rússinesdtír
bryndrekar voru víða meðfram
strætinu, en hermennirnir, sem
I þeim voru, horfðu rólegir á,
hvað fram fór. Maður nofekur
tók að flytja ræðu frá fótstalli
Wenseslasstyt'tunnar og þegar
ég spurði hver það væri, var
mér svarað, að það væri ein-
hver úr miðstjórn kommún-
istaflokksins. Ég og kunn-
ingi minn, vestur-þýzkur
blaðamaður urðuim báðir fyrir
vonbrigðum, ákváðum að fara
burt og ihitba tékfenesfcan vin
minn á hóteli míniu og fá frétt-
ir af því, sem gerzt hefði um
morguninn annars sbaðar í borg
intm.
Við hefðum bebur ekfci farið.
Aðeins stuittu seinna var mér
sfeýrt frá því, að Emil Zatopek,
langhlauparinn víðfrægi, sem
nú er foringi í her Tékfeóslóv-
akíu, hefði komið skyndilega
fram og flutt ávarp við feitoniar
lega hrifningu viðsbaddra. í
ávarpi sínu hefði hann hvatt til
einingar og stuðnings við leið-
togana, sem nú voru fangels-
aðir í Moskvu. Þá skoraði
Zatopek á fólk að leggja
áherzlu á óbeina andspyrnu
gegn innrásarliðkiu, en forð-
ast átök. Að ræðu sinni
lokin/ni, sem ekki var löng, hélt
Zatopek þegar burt.
Allsher j arverkfallinu var
varia lokið kl. 1, er leynistöð-
in „Frjáls Prag“ flutti tilkynn-
ingu til Zatopeks um, að hann
sfeyldi ekki halda heim til sín.
Við heimili hans hefði sézt til
bifreiða með ákveðnum númer-
um, sem vitað var, að Rússar
notuðu til þess að tatoa fasta
þá menn, sem þeir töldiu hættu
lega. Zatopek hvarf síðan „und-
ir jörðiina" eiins og svo margir
aðrir og vissi enginin, hvar hann
faldist.
Þegar leið á dagdnn tók speran
an á Wenseslasstræti að magn-
ast verulega. Stúdentar til-
kynntu, að þeix ætiuðu að efna
til mikils útifundar á Wenses-
lasstræti 'kl. 5 og vintu þainmig
að vettugi tiimæli um að gera
ekkert, sem gæti leibt til átaka.
Þá lýstu þeir því yfir, að þeir
myndu hafa að engu bann, sem
hernámsyfirvöldin höfðu lagt
við þessum fundi og var það
mun alvarlegra. Klukkan
4 voru þegar tekin að safn-
ast saman þúsundir manna á
strætinu. Þetta var að lang-
mestu leyti ungt fólk, sem tók
sér stöðu fyrir framan hervagn
ana og skriðdrekana og ögraði
rússnesku hermönnunum
óspart, hrópaði síðan í kór:
Dubcek, Dubcek, Svoboda,
Svoboda.
Þegar lá við að upp
úr syði. Fólkið var farið
að kasta í hermennina og af
og til mátti iheyra skotið af vél-
byssu upp í loftið ,en engiran
virtist gefa því nökkurn gaum.
Skyndilega mátti sjá, hvar all-
ir rússnesku hermennimÍT tófcu
sér stöðu, lásinn var itekinn af
hríðskotabyssum bryndrekanna
og þeiim öllum miðað í sömu
átt, þ. e. út á strætið, þar sem
mainnfjöldiran stóð.
- TÉKKÖSLÓVAKÍA
Franihald af bls. 2
ekki verið kosnir í miðstjórn
tékkneska kommúnistaflobksins,
en þeir eru meðal þeirra for-
ystumanna tékkneskra, sem
'hafa orðið fyrir einna harðastrj
gagnrýni Sovétmanna, þegar frá
eru taldir þeir Jiri Hajek og Ota
Sik.
Utanríkisráðherra Rúmeniu,
Corneliu Manescu kom til Lond
on í dag frá New York. Ekki
var þess getið, að hann mundi
Ihitta starfdbróður sinn, Michael
Stewart, en hins vegar tilkynnt,
að Stewart færi í heimsókn til
Rúmeníu innan fárra daga.
Sendiherra Sovétrfkjanna í
Brussel, Vasili Grubakov, gekk
í dag á fund Pierre Harmel, ut-
anríkisráðherra Belgíu og kvart
aði undan þvi, sem hann nefndi
„óeðlilegt annríki" í aðalstöðv-
um NATO í Brussel. Harmel gaf
þau svör, að fastaráð bandalags
ins hittist daglega til að ræða
um það ástand, sem upp kæmi,
þegar tilfærslur yrðu á herjum
Varsjárþandalagsins. Hann not-
aði tækifærið til að tjá sendi-
herranum, að hann hefði þungar
áhyggj ur af ástandinu bæði í
Tékkóslóvakíu og viðar í Austur
Evrópu.
Embættismaður ungverska ut-
anríkisráðuneytisins sagði í dag,
að engin ástæða væri til að grípa
til hernaðarJhlutunar í Rúmeníu,
þar sem ekkert hefði gerzt þar,
er benti til, að stjórnskipulagið
væri í hættu.
AP-fréttastofan segir, að blöð
í Rúmeníu — sem eru ritskoð-
uð hafi dregið talsvert úr gagn-
rýni á innrásina í Tékkóslóvakáu
og hernámið. Þess í stað er lögð
álherzla á að birta skjöl og plögg,
þar sem lýst er yfir fullum stuðn
ingi við stefnu flokksleiðtogans
Ceausescu.
NTB-fréttastofan sagði í kvöld
að tékkneskir blaðamenn
hefðu fengið ákveðin fyrir-
mæli sem þeir væru staðráðnir
í að fara eftir, þar sem þeir vissu
að mikið væri í húfi, ef gagn-
rýni birtist á stjórnarvöld Sov-
étríkjanna og yfirséjórn hernáms
liðsins. Helztu reglur fjölmiðl-
unartækja eru sagðar að
1. bannað skuli að gagnrýna eða
fara niðrandi orðum um Sovét-
ríkin og hin Varsjárbandalags-
löndin fjögur, sem að innrásinni
stóðu. Erlendar blaðaathuga-
semdir, sem eru fjandsamlegar í
í--------------------------j
Nýr fundur í
vikunni ?
Prag, 3. sept. NTB.
SKÝRT var frá því í Prag í
kvöld, að nýr fundur æðstu
manna Sovétríkjanna og
Tékkóslóvakíu verði haldinn
/í þessari viku. Var þetta haft
\ eftir áreiðanlegum heimild-
í um, en hefur ekki verið stað-
i fest opinberlega. í þeim fundi
7 munu taka þátt þeir Leonid 1
l Brezhnev og Alexei JCosygin (
1 og nokkjlr aðrir Sovétleiðtog-1
í ar og af hálfu Tékkóslóvakíu 7
7 þeir Dubcek, Cernik Svoboda J
\ og Smrkovsky. ^
garð greindra landa eru bann-
aðar.
2. gagnrýni er bönnuð á flokk-
inn, lögregluna, herinn, innan-
ríkisráðuneytið og nokkurrar
fleiri stofnanir.
Willy Brandt, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands sagði á
Genfarráðstefnunni í dag, að til
raunir V-Þjóðverja til að auka
frið og jafnvægi í Evrópu hefðu
orðið fyrir miklu áfalli, en vest-
ur-þýzka stjórnin myndi halda
áfram stefnu friðsamlegrar sam-
búðar þrátt fyrir allt.
Sovétríkin hafa ásakað V-
Þýzkaland fyrir að boma illind-
um af stað og ala á úlfúð á milli
Sovétríkjanna annars vegar og
Austur-Evrópuríkja hins vegar,
segir í tilkynningu, sem flokk-
ur Kurt Kiesingers, kanzlara V-
Þýzkalands, sendi frá sér í dag,
að loknum fundi. Á fundinum
hafði Kiesinger gert grein fyrir
viðræðum sínum við sovézka
ambassadorinn Semjon Tsarap-
kin. Á sendiherrann að hafa í-
trekað fyrri ásakanir sovéstjórn
arinnar á hendur v-þýzku stjórn
inni.
í NTB-fréttum frá Bonn í
kvöld segir, að Pólland, Ung-
verjaland og Búlgaría hafi byrj-
að að flytja á brott heri sina úr
Tékkóslóvakíu í dag, þegar kunn
ugt var að austur-þýzkir her-
menn höfðu horfið aftur til
stöðva sinna í A-Þýzkalandi.
Hlaup í
Skaftá
HLAUP gerði í Skaftá i fyrra-
dag og leggur mikla brenni-
steinsfýlu úr ánni samkvæmt
upplýsingum Siggeirs Björnsson
ar fréttaritara Mbl. í Holti á
Síðu. Slíkt hlaup varð siðast fyr-
ir hálfu öðru ári.
Mbl. hafði tal af Sigurði Þór-
arinssyni, jarðfræðingi og spurð
ist fyrir um hlaup þetta. Sigurð-
ur taldi líklegt að upptök hlaups
ins væru á sama stað og venju-
lega. Búast má við sigi í ofan-
verðum Skaftárjökli.
Ekki kvað Sigurður urant að
fullyrða hvort um gos undir
jöklinum væri að ræða eða
vatnsþrysting af völdum leir-
hvera. Hann sagði að hvort-
tveggja gæti verið orsök, en
taidi vatnsþrýstinginn senni'lega
orsök. Um hlaup í Kolgrímu í
Suðursveit sagði Sigurður að
þar væri líklegt að jökullón
hefði tæmzt.
Hlaup í Skaftá var síðast fyr-
ir hálfu öðru ári og þar áður ár-
ið 1964.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
SÍÐASTA dag ágústmánaðar kl.
24 á miðnætti var ekið á ljós-
gráa Daf-bifreið, þar sem hún
stóð við húsið Fálkagötu 5. Dæld
aðist hægra afturbretti bifreið-
arinnar, sem ber einkennisstaf-
ina R-19719.
Um líkt leyti sást til lítils hvíts
bíls og er talið víst að hann sé
valdur að árekstrinum. Rann-
sóknarlögreglan biður ökumann
hans um að koma til viðtals við
sig hið allra fyrsta.