Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 17
MORGUNHLAÐH), MŒ)VIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968 17 Hvern fjandann variar mig um nokkra sveltandi negra í Afríku? Sao Tomé, 19. nóvember. ÞESSARI setningu hefl ég sjálfsagt hreytt út úr mér, og einnig hefi ég heyrt marga aðra tala í líkum dúr. Og segja má, að þetta sé ósköp mannlegt. Flestir hafa nóg af áhyggjum á sinni könnu, og nóg af skyldum að gegna, án þess að hafa áhyggjur af nokkrum svertingjum í svört- ustu Afríku. Nú get ég aldrei sagt þessa setningu aftur. Ég eyddi sólahring í Biafra. Matvælaflutningarnir til Biafra hafa gengið heldur brös ótt hérna hjá okkar fyrir- taeki. Við erum búnir að vera hér í einn mánuð, og flutt u. þ. b. eiinn þriðja af því magni, sem til stóð. Framan af urðum við fyrir ýmsum ó- höppum, sem urðu þess vald- andi að flugið takmarkaðist af flugvélaskorti, en áhafn- irnar gegnu um með hendur í vösum. Svo fyrir u.þ.b. hálfum mán uði voru Nígeríumenn svo bí- ræfnir að gera sprengjuárás á Annabella (flugvöilinn, sem við 'lendum á í Biafra) og særðu tvo Norðurlanda flug- menn. Eftir þetta atvik höf- um við haft þrjár flugvélar, en því miður aðeins eina á- höfn, því af flestum af okk- ar flugliðum leizt ekki á blik una og fórum heim. Sem bet- ur fer eigum við von á nýj- um áhöfnum hingað á morg- un, svo að við ættum að geta haft þrjár vélar í gangi aft- ur annað kvöld. Að undanförnu hafa Nígeríu menn gert næstum daglegar árásir á Annabella, venjulega rétt fyrir myrkur. Þamnig i'eyna þeir að draga úir flutn ingum okkar þangað, en lítið orðið ágengt því i'lla gengur þeim að hitta flugvöllinn, jafn vel í dagsbirtu, hvað þá í rökkrinu eða myrkri. Nú er aðeins kveikt á brautarljós- unum rétt á meðan flugvél er að lenda, og fer öll starf- semi á jörðu niðri í algeru myrkri, sem er stór breyting frá því sem áður var. Virð- ast þeir nú hafa gefizt upp við að ónáða okkur eftir rökk ur, a.m.k. fyrst um sinm. Vegna umræddra loftárása hafði ég áhuga á að vera á Annabella að degi til, og sjá með eigin augum hvernig þess um árásum var háttað, og með hverskonar tækjum. Fór ég því í fyrrakvöld sem far- þegi þangað og gisti nóttina. Um morguninn var mér boðið að skreppa með 100 km leið endingur, sem stjórnar spítal anum, og um leið dreifingu allra matvæla og lyfja, sem við flytjum á vegum kirkn- anna til Biafra, sagði mér brosandi, að fjöldinn állur af sjúklingunum tryðu því að Nígeríumenn vildu ekki reita Eldsabetu til reiði með því að kasta sprengjum á spítal- nokkrar þúsundir mynda, því engin tvö börn þjáðust á sama hátt. Að hægt skuli vera að afskræma mannlegar verur á jafn hryl'lilegan hátt, og að þetta skuU endilega þurfa að koma verst niður á þessum vesaHngs sakleysingjum er of ar ölíum skilningi. Ég hafði myndavélina með þessu. í eftirrétt fengu börn- in úthrætrða þurrmjólk, u.þ.b. enn þriðja af venju'legum kaffibolla hvert. Það var undravert að sjá hversu vel börnin döfnuðu við góða aðhlynningu. Ég hef átt bágt með að trúa, að börn, sem höfðu orðið að þola jafn miklar þjáningar, gætu sarnt brosað svona blítt og ég sá þarna. Sjaldnast fá mæður barn- anna að fylgja þeim inn á barnaheimilin. Stafar þetta af því, að oftast nær hafa mæð- urnar önnur börn, sem þurfa umönmunar, og svo vegna plássleysis á heimihnmim. Und antekningar eru samt gerðar, og þá sérstaklega, þegar börn in eru svo ung að þau þurfa „Ég hefði átt bágt með að trúa, að börn, sem höfðu orðið að þola jafn miklar þjáningar, gætu samt brosað svona hlýtt..." ti'l Umuahia, sem er eina borg in, sem nokkuð hveður að í höndum Biaframamma, og er núverandi stjórnarsetur. Þar er einnig stór spítali, nefndur í höfuðið á Elisabetu Breta- drottningu. Er þetta eini stór spítalinn eftir á yfirráðasvæði Biaframanna. Einnig er þetta eini spítaiinn, sem enn hefur ekki orðið fyrir árás Nígeríu flughers. Dr. Middelkoop, Holl Hver verða örlög hans? ann henmar, og þættust því al- veg óhultir þar. Því miður lagði ég ekki á minnið tölurnar um sjúklinga fjöldann, sem Dr. Middelkoop sagði mér. Ég man bara að spítalinn hefur margfalt fleiri sjúklinga en hann var byggð ur fyrir. Auðvitað er stór hópur þessara sjúk'linga særð ir hermenn. Mestan áhuga hafði ég á að sjá barnadeild- ina, því að uim 90% af því, sem við flytjum, fer til barn- amna. Oft hefur maður séð í blöð- um heimspressunar hryllileg- ar myndir af svel'tandi börn- um í Biafra og jafn oft hef- ur maðuir velt fyrir sér: Hve mikið af þessu eru staðreynd ir, og hvað mikið hreinn á- róður. Nú veit ég. Fólkið, sem ég sá meðfram þjóðveginum, hafði alls ekki Htið út fyrir að vera svelt- andi. Börnin, sem hlupu og vinkuðu bílnum virtust kát og fjörug og í eðli'legum holdum. Hvar var þá allt þetta svelt- andi fólk? Nú get ég sagt, að ég hafi séð ofurlítimn hiluta af því. Blöðin og tímaritin höfðu ekki logið. Ég var leiddur í gegn um þrjá langa skála, þar sem lágu nokkur hundruð börn, ef þá hægt er að kalsla þessar vesalings verur börn. Sum þeirra voru að vísu særð brennd eða limlest af völd- um loftárása, en langflest af þeim voru fórnarlömlb hung- ursneyðarinnar. ÞvíHkiri eymd og ég sá þar get ég ekki lýst með orðum eiraum. Til þess hefi ég ekki nægilegt vald á móðurmáHnu. Myndaivélin aatti að geta lýst þessu betur, en til þess þyrfti ferðis, en því miður voru skil yrði fyrir myndatökur mjög slæm. Bæði var, að dumbung ur var og svo voru börnin inni í skálanum, þar sem að birtan var af mjög skornum skammti. Myndir reyndi ég samt að taka, og sendi ég Morgunblaðinu filmuna með þessum línum í þeirri von um að eitthvað sé nothæft á henn Vona ég þarmeð að þú, 'les- andi góður, fáir að sjá líftið brot af því, sem ég sjálfur var vitni að. Næst var mér boðið að sfereppa út í ei'tt af hinum mörgu, en samt allt of fáu, barnaheimilum og matvæla- dreifingarstöðum „úti í skógi“ Þar var frá mjög svipuðu að segja. Voiu þar þrír skálar fyrir „byrjendur“, sem helzt er hægt að lýsa sem beima- grindum með starandi augu. I öðrum skálum og fyrir utan voru börnin, sem lengra voru komin á bataleiðinni. Um mat málstímann stóðu börnin í bið röðum með lit'lu skálarnar sín ar, pottlok, dósir, potta eða hverskonar ílát, sem hægt var að láta lítilsháttar matarslatta í. Gengu þau fram með spekt og ró án þess að ýta eða troðast, og þó að óviljandi yrði matarskammturimn mis- jafnlega stór sást aldrei neinn kvarta eða klaga. Þessi börn voru smámununum þakklát. Þarna sá ég hvernig skreið ar er neytt. Er hún soðin saman við allskonar græn- meti í nokkurskonar mauk, og fær hver krakki sem svar ar skammit af fiski á stærð við eldspýtustokk. Var mér tjáð að þetta væri efitirlætis fæða þeirra, og gætu þeir hvergi nærri fengið nóg af nauðsynlega á móðurinni að halda. Það hafði fréttzt að einn af flugmönnunum, sem færðu börnumum „lífið" væri viðstaddur og var ég allt í eirau umkringdur af þakklát- um mæðrum, sem vildu hver fyrir sig þakka mér persómu- lega. Aldrei hefi ég séð þakk- læti jafn innilegt, og var ó- mögulegt að komast hjá því að vera hrærður. Það sem við flytjum til Bi- afra með flugvélum er ekki nema dropi í hafið, miðað við það sem vantar. Núna sem stendur er bezta timabilið i þessum slóðum. Haustuppsker an var góð, en það, sem venju lega fer í geymálu til vors- ins er nú étið jafnóðum og það kemur upp úr jörðinni. Jafn- vel útsæðið er étið. Meðfram þjóðvegum og helztu sam- gönguæðum hefur fólk ennþá ofan í sig. Aftur á móti „úti í skógimum“ deyr fólkið um- vörpum vegna þess að matur- inn, sem kom úr borgunum kemur ekki lengur. Eftir 3 —4 mánuði verður sama eymd arástandið um allt landið. Tek ur það því, að vera að þess- um „dropaflutningum“? Ég þarf ekki annað en að sjá í huganum þessi stóru, starandi augu barnanna til að fá svarið. Sum með þakklætis svip, sum með voraleysissvip. Era þessi börn, sem ég sá, eru „lukkunar pamfílar", því að vonleysissvipurinn þeirra get ur hæglega breyzt í g'Ieðisvip. Hvernig er með þær þúsundir barna, sem aldrei eiga eftir að tsjá þurrmjól'k eða þurrk- aðan þorsk? Hvern fjandan varðar mig um nokkra sveltandi negra í Afríku?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.