Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15; JÚLÍ 1972 Minning: Elínborg Sigurðardótt- ir Llorens frá Akranesi F. 6. ágúst 1943 D. 11. júlí 1972 Sízt Vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða sælli funda, — það kemur ekki mál við mig. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. SVO kvaddi Jónas vin sinn, Tóm- as, forðum og þau orð hafa verið t Hjartkær eiginkona mín, móð- ir, tengdamóðir og amma, Þórunn Friðriksdóttir frá Vestmannaeyjum, lézt fimmtudaginn 13. júlí að Vifilsstöðum. Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 19. júlí kl. 10:30. Ingvar Þórólfsson, börn, tegndabörn og barnaböm. okkur fslendingum ljúf og kær æ síðan. Þessar Ijóðfinur koma nú fljótt í huga okkar, starfs- fóiks Sjúkrahúss Akraness, þeg- ar kveðja skal samstarfskonu okkar, Elínborgu. Þó að starfs- fóik sjúkrahúss sé ef til vili bezt undir það búið að taka óvæntum fréttum og atburðum, þá leyndi það sér ekki, að öllum hér i stofnun var mikið brugðið, þegar sú fregn barst út, að Elín- borg væri haldin þungum sjúk- dómi og horfur tvísýnar. Spurn- ingarnar margendurteknu og eiKfu í aldanna rás hafa efalaust risið hátt í hugum fiestra. Um æsku, líf, dauða, tilgang og rétt- læti. Svörin verða jafn fátækleg og fyrr. En hugurinn reikar til síra Hallgríms og sálms.ins, sem biskupsdótturinni í Skálholti var svo kær á banabeði hennar: ,,Svo hleypur æskan unga / óvissa dauðans leið / sem aldur og eh- in þunga, / allt rennur sama skeið.“ Og að þeim slungna sláttumanni, „er slær alit, hvað fyrir er, / grösin og jurtir græn- ar, / glóandi blómstrið fritt, / reyr, Stör sem rósir vænar, /.“ Elínborg háði stutt stríð en hart og hún mætti erfiðleikum sinum og böli af þeirri einurð og festu, sem voru einkenni hennar. í loka baráttu hennar var trúartraust balsam sálar hennar, sem aðdáun vakti. Hún gat því tileinkað sér lokaorð síra Halligríms: „hann er mín hjálp og hreysti, / hann er t PÁLL SVEINSSON, Landgræðslustjóri Islands, andaðist að heimili sínu Gunnarsholti, Rangárvöllum aðfara- nótt föstudags. Vandamenn. t Faðir okkar JÚN HAFLIÐASON, Hverfisgötu 32 B, lézt að Hrafnistu 13. júlí. Bömin. t Útför systur minnar INGVELDAR GUÐSTEINSDÓTTUR. fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 17. júlí kl. 13,30. Anna Guðsteinsdóttir. t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma ÞÓRHILDUR JULrA SIGURÐARDOTTIR, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í Holtum, laugardaginn 15. júlí kl. 14. Þeím sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir eða Árbæjarkirkju. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna Jón Jónsson frá Árbæ, dætur, tengdasonur og dætrasynir. t Innilega þökkum við öllum þeim fjölmörgu er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, PÉTURS Þ. EINARSSONAR Sérstakar þakkir færum við skipstjóra og skipshöfn Reykja- foss. Eyja Kristjánsdóttir, Einar Pétursson, Ásgerður Jónasdóttir, og barnabðm. mitt rétta líf, / honum af hjarta ég treysti, / hann mýkir dauðans kíf.“ Dvöl mín á Akranesi er ekki lörig og þvi kynni okkar Elki- borgar eigi að heldur. Þó er það svo, að ég tók fljóttega eftir henni. Því olli i fyrstu hlédrægni, sem jaðraði við feimni. En í fasi hennar og svip skein einbeitni og festa. Þessi iwunu hafa verið meðal höfuðeinkenna hennar. Svo hef ég heyrt marga mæla um hana lifandi og látna. En þó að Elínborg væri dul og seintek- in, var næmi hennar íyrir kímni gott og bros hennar því ljúfara og glöð var hún í hópi vina sinna og trygiglyndið var aðaM hetinar. Snemma beygist krókur að því, sem verða vill og þar kom vilja- festa Eiinboíigar fram. Eftir gagn fræðapróf 1960 fór hún að vinna á sjúkrahúsum. Þá fyrst á Sjúkrahúsi Akraness og síðar víðar. Árið 1965 hóf hún nám við Ljósmæðraskóia íslands og lauik þar prófi í október 1967. Að þvi loknu réðst hún ljósmóðir að Sjúkrahúsi Akraness og starfaði þar fram á þetta ár, er heilsa brast. Umsagnir um starf hennar eru á eina leið: samvizkusöm, úr- ræöagóð, kjarkmikil og rólynd. Æðrulaus á hverju sem gekk. Hugur og ást fylgdu starfi. Það verður hennar bautasteinn á vinnustað okkar. Og svo munu verk hennar hafa verið í hví- vetna, því að sóknarprestiur stað- arins, Garðaprestakalis, hefur sagt mér, að ljósmóðurskýrslur hennar hafi verið frábærar af samvizkusemi og frágangi. Elínborg fæddist 6. ágúst 1943, hér á Akranesi. Foreldrar henn- ar eru Sigurður B. Sigurðsson, bifvélavirki, og kona hans, Guð- finna Svavarsdóttir. Bæði héðan af staðnum og eiga ættir sínar að rekja í hérað. Hún var þriðja bam þeirra hjóna af átta. Það var því stór hópur bama og all- ur mannvænlegur. Það duldist engum, sem eiinhver kyrrni höfðu af þeirri fjölskyidu, hvað sam- heldni þeirra var mikil og ástar- böndin sterk. Þar kom tryggðin fram, sem ég hef áður vikið að. Ég fæ því eigi túlkað þá sorg, sem þar býr í ranní. Og minnug- ur þeírra orða, sem Oscar Wilde reit í De. profundis skal lopi ekki teygður: „-------en sorgín er viðkvæmari en allt ann- að--------Hún er sár, sem blæð- ir úr, ef nokkur hönd snertir það önnúr en hönd kærleikans, og jafnvel þá blæðir úr því, en án sársauka.“ Hjá þedm, for- eldrum, systkinum og öðrum ættingjum, dvelur hugur okkar og samúð þessa daga. Þann 20. júlí 1968 giftist Elín- borg spönskum manni, Enrique Llorens. Af kynnuim mínum góð- uim dreng og ljúfum i viðmóti. Ástir þeirra voru góðar eins og segir í fornu máli og þar komu beztu einkenni Elínborgar skýr- ast fram. Hún bjó manni sínuim gott og fagurt heimili og er þá enn að geta e-ins hæfileika henn- ar, en það er listar til handa. Hannyrðir voru henni yndi og smekkur hennar góður, er mér tjáð. Enriquie reyndist henni góð- ur og ijúftur til hinztu stundar og vildi búa með henni hér heima á Fróni. Þeim varð einnar dóttur auðið, Díönu Carmen, nú nýlega þriggja ára. Tregast verður hér tungu að hræra, þegar komið er að þessum þætti í ævi þessarar ungu konu. Einlægustu samúð okkar allra, sem starfa við Sjúkrahús Akraness, eiga þau feðgin. Okkur verður enn huigs- að til Jónasar og vísum til Ferða- toka og ekki sízt síðustu vísu: Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda, sem unnast, fær aldregi eilifið að skilið. Einar Helgason. MÉR finnst eríitt að rita til þín þesisar fátæklegu síðustu línur, elsku Elia min, og að ég skuli ekki eiga eftir að fá frá þér fleiri bréfin, en þú varst mér svo góð og uppörvandi í bréfum þinum. — Við höfum átt svo margar og skemmtilegar stundir saman bæði í starfi og einkalífi. Erfitt er að trúa að þú sért horf in brott. Ég vil aðeins þakka þér aillt gott sem þú hefur gert fyrir okk- ur hjónin, við eigum þér svo nmrgt að þakka og allar minning arnar sem við eigum saman, geymum við í huga okkar. Votta góðum manni þínum, litlu dótbur, foreldrum og systk- inum innilega samúð í þessari miklu sorg þeirra. Góður Guð varðveiti þig. t Alúðarþakkir til allra er sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför BJARNA BENEDIKTSSONAR, Fálkagötu 25. Guð blessi ykkur öll. Ólafía Kristrún Magnúsdóttir, börn og tengdabörn. t Við þökkum af afhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður, tengdamóður, ömmu, langömmu okkar og systur minnar RANNVEIGAR MAJASDÓTTUR, Birkimel 10, Rvík. •ngibjörg Guðmundsdóttir, Bjami Kolbeinsson, Sigríður E. Guðmundsdóttir, Haraidur Björnsson, Emma Guðmundsdóttir, Bjami Guðmundsson, Kristín Guðbjartsdóttir, Kristján Fr. Guðmundsson, Nanna I. Helgadóttir, María H. Guðmundsdóttir, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Jón Kr. Gunnarsson, bamaböm, barnabamabörn, Maria Majasdóttir. Vort traust er allt á einum þér, vor ástarfaðir rniMi, þín náð og mislkunn eilíf er það alla hugga skyldi. (P- J.) Þín vinkona Ragnheiður B. Víllaverde. ELLA mín! Víð eigum bágt með að trúa því, að þú sért horfin, þú, sem fyrir nokkrum mánuðum starí- aðir á meðal okkar og engum datt í hug að kailið kæmi svona fljótt. Þú, sem komst til starfa að morgni til að hjálpa nýju lífi í heiminn, en áður en dagur var liðinn varðst þú að lúta í lægra haldi fyrir þeim sjúkdómi, sem þú barðist við þar til yfir lauk, og vitum við nú, að í langan tima gekkst þú ekki heil til skóg- ar. Það er sárt til þess að vita, að ekki fái fleiri konur að njóta þín sem ljósmóður, en þú verð- ur ætíð minnisstæð þeim, sem þinnar hjálpar urðu aðnjótandi. Ella mín! Við munum alltaf minnast þess, hvað þú varst sterk í þxnu mikla sjúkdóms- stríði, vildir sem minnst láta fyrir þér hafa og varst alltaí þakklát fyrir það, sem fyrir þig var gert. Að endingu þökkum við þér allar samverustundirnar og biðj- um algóðan Guð að styrkja eig- inmann, dóttur, foreldra og alla ástvini í þeirra miklu sorg. Sælir þeir er sýta og gráta, sorgin beizk þó leggist á. Guð mun hugga, Guð mun láta gróa sár og þoma brá. Sjúkraliðar B-deildar Sjúkrahúss Akraness. KVEÐ.TA FRÁ MÁGKONUM ELSKU Ella. Nú verðum við að trúa þvi, að þú sért horfin frá okkur þótt erfitt sé. í tíu vikur ert þú búin að berjast við erfið- an sjúkdóm, sem svo margan hefur bugað og sigraði þig að lokum. Við komum allar í þína fjölskyldu úr öðrum byggðarlög- um og okkur verður alltaLf í fersku minni hve gott var að koma á heimili þitt, þar sem þér féll aldrei verk úr hendi til að fegra og prýða heimili þitt, þíns elskulega manns og litlu dótt- ur. Orðheldni þinni og samvizku- semi munum við aldrei gleyma. Þú tókst á móti börnum okkar og samgladdist okkur og varst ávallt minnug á að gleðja okkur öll, þegar tilefni gafst. Við og bömin okkar kveðjum þig með hjartans þökk og vitum, að þú ert ekki dáin, heldur köll- uð til meiri starfa Guðs um geim. Kæra Ella, við vitum að þú ert þakklát manni þínum og for- eldrum þínum fyrir liðnar sam- verustundir, og þá ekki sízt móð- ur þinni, sem veitti þér styrk og glæddi trú þína á Guð þessar erfiðu vikur. Elsku Quique og Cairnen litla, megi góður Guð blessa ykkur og styrkja nú, þegar þið hafið misst svo mikið. Minningarsjóður um Þóri Steinþórsson SKÓLANEFND og skólastjóri Reykholtsskóla hafa stofnað minnÍTXgarsjóð um Þóri Stein- þórsson fyrrverandi slkólastjóra í Reykholti. Þórir var til moldar borinn í Reykholtskirkjugarði þann 10. júní s.l. að viðstöddu miklu fjölmenni og á jarðar- farardaginn söfnuðust þegar rúmlega 120 þúsund krónur. Sjóðnium verður varið til að verðlauna neomendur er skara fram úr í helztu keninslugrein- um Þóris, en þær voru stærð- fræði, eðlisfræði og txókfærsla. 1 bréfi sem Mbl. hefua* borizt frá Reykholtsskóla siegir að gjöf- um í sjóðinn verði áfram veítt viðtaka og Tiá senda þær til séra Einars Guðnasonar ^kólanefrid- arformanns og Vilhjábns Einars- sonar skólastjóra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.