Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JULÍ 1972 velvakandi O Rannsóknir á áfengismálum Velvakanda hefur borizt eft- irfarandi bréf frá Ásgeiri Ein- arssyni. Bréfið birtist hér nokkuð samandregið, en Vel- vakandi vonar, að efni bréfs- ins komist samt til skila: gerir heiðurskvinna nokkur, Birna Gunnarsdóttir athuga- semdir við skrif Baldurs Braga sonar, um bann við notk- un áfengis. Rétt finnst mér það vera hjá Birnu, að ekki muni duga að setja hér á vínbann, því að, eins og hún segir, myndi það ýta undir starfsemi smyglara og enn fremur er nokkurn veginn ljóst, að brugg yrði hafið í stórum stíl af þeim, sem ekki geta án áfengis verið vegna sjúklegra hvata. Sjúk- legra hvata, segi ég, vegna þess að læknaskýrslur segja fullum fetum, að notkun áfeng- is, þótt ekki sé í óhófi, sé vott- ur af geðveilu. Auk þess má svo nefna, að sannað er lækn- isfræðilega, að hin minnsta notkun áfengra drykkja hefur skemmandi áhrif á heilafrum- urnar og þvi meiri, sem neyzl- an er meiri. Mér finnst mjög athyglisvert, að Geðrannsóknastofnun Há- skóla íslands hefir nú nýlega sent út dreifibréf, þar sem far- ið er fram á, að viðtakendur geri grein fyrir vínnotkun sinni fyrr og síðar. Er þetta plagg hið skilmerkilegasta á allan hátt og væri fróðlegt, að fá álit einhvers þeirra, er und- irrita bréfið, á áfengismálum þjóðarinnar almennt; frá hreint úr pokahorninu hvernig ástandið er, að dómi aðila, sem hafa undir höndum gögn um það, sem er að gerast og á ég þar við, meðal ann- ars, áfengisdrykkju ungl- inga allt niður í tólf ára aldur, svo að ekki sé meira sagt. Hvað er gert til þess að hafa áhrif á drykkjuskap unglinga? Mér virðist það varla vera nokkuð og að það litla, sem reynt sé að gera sé svo fálm- kennt, að það hitti áreiðanlega ekki í mark. Sést það bezt á því að áfengisneyzla unglinga hefur færzt mjög i vöxt nú á síðari árum. • Afleiðingar „drykkju- kennslu“ foreldra t>að er spurning í grein Birnu, sem vekur athygli mína: „Hvers vegna drekka foreldr- ar ekki með börnum sinum, svo að þau líti rétt á vín og njóti/ neyti þess á skástan hátt?“ Ég hefi haft persónuleg kynni af fleirum en einum manni, sem hefur orðið þeirrar „upphefð- ar“ aðnjótandi, að feður þeirra „kenndu" þeim að drekka áfengi og voru þessir aðilar allir um fjórtán ára aldur, er þetta átti sér stað. Nú blasir sú staðreynd við mér og öðr- um, er þekkja til þessara sömu manna, að áfengið er þeim fjöt- ur um fót, heimili þeirra eru í niðurlægingp og upplausn; börnin á vergangi og í mörg- um tilvikum undir höndum lög- reglunnar, vegna ýmissa óknytta, óreglu og lauslætis, og mætti svo lengi telja. Það er sagt að hóflega drukkið vín gleðji mannsins hjarta. Satt mun það vera og rétt mun það líka vera, að nota má áfengi sem meðal við sum- um sjúkdómum, en við vitum bara aldrei fyrirfram hvaða einstaklingur veldur áfenginu svo að hann biði ekki skaða af og þar iiggur hundurinn grafinn. Eitt atriði langar mig til að drepa á að síðustu. Ég skil ekki hvað Birna er að fara, þegar hún segir: „Það þarf ekki rosatrúarmann til að sjá það.“ Ef Birna á þarna við Baldur Bragason, þá vil ég geta þess, að ég hefi þekkt Baldur í mörg ár og veit, að hann hefir ákveðnar skoðanir i trúmálum, en að hann sé „rosa trúarmaður" hefi ég aldrei orð- ið var við. Annars er Baldur Bragason miklu meira en mað- ur til að svara fyrir sig, ef honum þurfa þykir. Með fyrirfram þakklæti fyr- ir birtinguna, sem ég vona, að verði óstytt. Þinn einlægur, Ásgeir Einarsson, Skipholti 43, Reykjavík." 0 Islenzkur pennavinur Velvakanda hefur borizt bréf frá sjómanni af islenzkum ættum, sem óskar eftir bréfa- sambandi við pilta og stúlkur á aldrinum 20 - 35 ára. Hann er búsettur í Kali- forníu, en er í langsiglingum á flutningaskipi. Hann býst við að koma til íslands í leyfi á næsta ári. Nafn hans og heim- ilisfang er: Mr. Richard G. Hafdai, 4844 Bannock Cir., San Jose, California 95130, U.S.A. „Kæri Velvakandi! í dálkum þínum I dag (9.7.) Humarbátur eða bátur með fiskitroll óskast í viðskipti. Er kaupandi að fiski. Ýmis fyrirgreiðsla. Símar 92-6519 og 92-6534. Hin árlega Svartengishátíð við Grindavík 1972 dagana 15.og 16. júlí. Dagskrá: Laugardagur: Svæðið opnað kl. 14. Dans um kvöJdið kl. 21 — 02. J.J og Berta. ★ Sunnudagur kl. 14: Skemmtunin sett. Lúðra- sveit Keflavíkur leikur. Magnús og Jóhann skemmta. Fallhlífarstökk, Ómar Ragnars- son, Ríó tríó skemmtir, handbolti, Karl Einarsson skemmtir kl. 21, dans kl. 21 — 01 J.J. og Berta. Varðeldur kl. 1. Ferðir frá B.S.Í. laugardag kl. 1 og 18,30, sunnudag kl. 11,30 og 18,30. Ungmennafélag Grindavíkur. Viðurinn lengi lifi Sadolin Verjið við yðar á árangursríkan hátt gegn afhöggi, fúa og vatni. Annars eyðileggst hann og tapar sinni fallegu áferð. Veljið: GRUNDTEX til notkunar í fyrsta sinni á nýjan og óunnin við. PINOTEX litlaust og í 13 blæbrigðum til frekari yfirferðar. TOPTEX til lokayfirferðar og viöhalds. Fáið: Ókeypis bækling — „Góð ráð um viðar- vörn“. Sadolin Orðsending til ferðnmnnnn Af gefnu tilefni vill utanríkisráðuneytið mælast til þess við ferðamenn, að þeir hafi meðferðis vegabréf eða önnur gild persónu- skilríki með mynd, þótt óskylt sé í viðkom- andi löndura, til að girða fyrir hugsanleg vandkvæði, t. d. 1 sambandi við afgreiðslu í peningastofnunum. Utanríkisráðuneytið, 14. júlí 1972. Aðvörun til bifreiðueigendu Aðalskoðun bifreiða með lægri skráningar- númerum en R-10000 átti að vera lokið 20. júní s.l. Verða því bifreiðir úr þeirri númera- röð, sem enn hafa eigi verið færðar til aðal- skoðunarinnair, teknar úr umferð án frekari aðvörunar. Jafnframt munu eigendur bif- reiðanna verða látnir sæta sektum sam- kvæmt umferðarlögum. Lögreglustjórinn í Reykjavík 12. júlí 1972. Sigurjón Sigurðsson. HOFUM FENCIÐ HINAR HEIMS ÞEKKTU SNYRTIVÖRUR FRÁ cuaxUaJ, Miss Elfíe Fielding SERFRÆÐINGUR FRA CUvdjiAJ, ve/ður tiil viðtals í dag laugardag til kl. 4 e.h. og mánudag til kl. 6 E.H. VERIÐ VELKOMNAR. SNYRTISTOFAN LAUGAVEGI 24 — SÍMI 17762.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.