Morgunblaðið - 12.12.1973, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.12.1973, Blaðsíða 40
Fallegri litir FUJI FILM. Litfilmur SÍMAR: 26060 OG 26066 ÁÆTLgNARSTAÐIR AKRANES. FLATEYRI, HÓLMAVÍK. GJÖGUR. STYKKISHÓLMUR. RIF. SIGLUFJORÐUR, BLÖNOUÓS. HVAMMSTANGI MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1973 Jólasveinarnir eru nú a5 byrja að láta sjá sig, og þessa mynd tók Öl. K. M. af einum, sem var að kfkja yfir reykháfinn. Stórtap á SÍS-verksmiðj- unni í Bandaríkjunum TAP hcfur orðiðá rckstri lccland Products, dótturfyrirtækis SÍS f Bandaríkjunum, cr svarar um 121,8 milijónum króna á 19 mán- aða tímahili. scm iauk hinn 16. júnf sl. Rcikningar fvrirtækisins voru la;;ðir fram á árlcgum aðal- fundi lcdand Products, scm haldinn var í Rcykjavík í sfðasta mánuði, og kom þar fram, að tapið nemur samtals 1.449.890 Bandarfkjadol lurum. Iceland Products hefur aðsetur í Harrisborg f Fíladelfíu í Banda- Veiðarfæri brezkra togara skoðuð á ný ALLT fram til þess að samn- ingarnir um landhelgismálið tók- ust við Breta, gátu íslcnzk yfir- viild ckki skoðað veiðarfæri hrczkra togara, scm voru á vcið- um hér við land. Nú cftir að saniningar hafa náðst, hafa varð- skipsmenn hafið á ný cftirlit mcð veiðarfærum togaranna og hafa hæði vciðarfæri hrczkra og fs- lcnzkra togara vcrið skoðuð. Segir í frétt frá Landhelgis- gæzlunni. að brezkir togarasjó- ntenn hafi yfirleitt tekið íslenzku varðskipsniönnunum vel, þegar þá hefur borið að borði. Það hafa verið gerðar viðhlítandi ráðstaf- anir til að kanna gerð þeirra veiðarfæra, sem ástæða þótti til. Ilafsteinn Hafsteinsson, blaða- f u 111 r ú i L and h el gi sgæz 1 u n n ar, sagði í gær. að undanfarið hefðu 40 — 50 brezkir togarar verið á \eiðum innan 50 mflna mark- anna. Flestir hefðu verið að veið- um við Norðaustur- og Austur- land, fimm togarar hefðu reyndar verið á veiðum við Norðvestur- land. Þá hafa milli 15 og 20 v-þýzkir togarar verið á veiðum við landið og hafa varðskipin stuggað við þcim meðgóðum árangri. ríkjunum, og er, eins og áður segir, dótturfyrirtæki Sambands isl. samvinnufélaga. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, mun ríkisstjórnin nú hafa heimilað stjórn fyrir- tækisins að taka lán, sem nemur 1 milljón dollara, ti! að koma rekstri þess á réttan kjöl að nýju. Stjórnarformaður fyrirtækisins er Erlendur Einarsson. forstjóri SÍS, en hann er erlcndis og gat Ekkert mið- ar í samning um við flug- freyjur SATTASEMJARI ríkisins, Torfi Hjartarson, boðaði flugfrcyjur og viðsemjendur þcirra á sinn fund í gær kl. 17. Stóð fundurinn til kl. 19, en þá var gert hlé á fundinum. Hófst fundurinn aftur kl. 20 og var ekki lokið, cr blaðið fór í prcntun. Torfi Hjartarson sagði við blað- ið í gærkvöldi, að allt sæti við það sama I deilu flugfreyja við flug- félögin, og um þróun mála sagði hann allt vera f óvissu. Flugfreyjur hafa boðað verkfall á miðnætti á föstudag, ef samn- ingar hafa ekki tekizt fyrir þann tima. 12 DAGAR TIL JÓLA því Morgunblaðið ekki borið þess- ar upplýsingar undir hann. í þess stað snerí blaðið sér til Guðjóns B. Ólafssonar framkvæmdastjóra sjávarafurðadeildar StS, seni jafnframt á sæti í stjórn Iceland Products, og leitaði skýringa hjá honum á þessu tapi f rekstri fyrir- tækisins. Guðjón varðist allra frétta og sagði.'að hérlendis væri ekki til siðs að birta tölur um Framhald á bls. 22 Sjötugur maður fyrir bíl SJÖTUGUR maður frá Hafnar- firði varð f.vrir bifreið á Hring- braut í Reykjavík á milli kl. 11 og 12 á þriðjudágsmorgun, er hann var að ganga yfir götuna á gang- braut á móts við Landspítalann. Hlaut hann höfuðhögg og áverka á fæti, en var þó ailhress og taldi sig ekki hafa meiðst mikið. SÍS semur um sölu á 8000 lest- um af frystri loðnu til Japans SAMBAND fslcnzkra samvinnu- félaga hcfur nú samið um sölu á 8000 lcstum af frvstri loðnu til Japans á næsta vetri, og gcrt er ráð fyrir, að hægt vcrði að sclja meira, cf frystihús sambandsins .geta annað mciri loðnufrystingu. Samningarnir voru gerðir við flciri cn eitt fyrirtæki, og meðal þcirra er stórfyrirtækið Mitsu- bitsi. Það voru þeir Guðjón B. Olafsson framkvæmdastjóri sjávarafurðadeildar S.l.S. og Arni Bcnediktsson fram- Engar almennar kauphækkanir. sciria vinnu- r veitendur — Trúum bví ekki. segja ASI-menn kvæmdastjóri, scm önnuðust samningana. Guðjón B. Ólafsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að samn- ingarnir tryggðu sölu á allri þeirri loðnu, sem sambandsfrysti- húsin gætu fryst f vetur. Samið hefði verið um sölu á 8000 lestum, en reynt að ákveða magnið af raunsæi. Það væri margt, sem gæti breytt loðnufrystingunni, og þá sérstaklega ytri aðstæður, eins og v'eðurfar á miðunum, hve lengi loðnan héldi sig á miðunum o.s.frv. A FUNDI viðræðunefnda Alþýðu- sambands tslands og Vinnuvcit- cndasambands íslands í gær mcð sáttascmjara, skýrðu forsvars- menn Vinnuvei tendasambands- ins frá því, að staða atvinnuveg- anna væri slík um þcssar mundir og útlitiðá næsta ári væri þannig, að atvinnuvegirnir gætu ekki veitt beinar kauphækkanir. — Morgunblaðið hafði samhand við formann Vinnuvcitcndasam- bandsins. Jón II. Bcrgs, og spurði hann um álit hans á sainningun- um. Jón sagði, að undanfarið hefði farið fram athugun á stöðu at- vinnuveganna og framtíðarhorf- um, á vegum vinnuveitendasam- bandsins. Slík athugun hefði líka verið gerð af opinberum aðilum. Ljóst væri af niðurstöðum þessara at- hugana, að staða atvinnuveganna væri þannig, að ekki væri hægt að veíta almennar launahækkanir. Hitt er svo annað mál, sagði Jón, að við viljum athuga nánar, hvort ekki er hægt að skapa grundvöll tii að veita þeim allra lægst launuðu, einhverjar launa- bætur meðal annars með niður- fellingu a' töxtum. Slíkt hefur stundum verið gert með sérstök- um láglaunabótum og taxta til- færslum. Þá sagði Jón. að þær miklu kjarabætur, sem veittar hefðu verið undanfarin ár, stöfuðu af óvenju hagstæðum viðskiptasam- böndum við umheiminn. Nú væru hinsvegar horfur á, að dæmið væri að snúast til hins verra. Olíu- hækkununum og olíuskortinum I heiminum væri lýst þannig fyrir Islendingum af ráðamönnum þjóðarinnar, að líkja mætti við Vestmannaeyjagosið. Við slíkar aðstæður væri það algjört ábyrgðarleysi að veita almennar launahækkanir. Snorri Jónsson, forseti Alþýðu- sambands Islands sagði, að þrátt fyrir yfirlýsingu Vinnuveitenda- sambandsins í gær hefðu vinnu- veitendur ekki sannfært A.S.I. menn um, að þeir gætu ekki veitt kauphækkanir Vitað væri, að at- vinnuvegirnir stæðu misjafnlega vel, og ætti vera hægt að veita einhverjar kauphækkanir. Annars sagði Snorri, að þeim hjá A.S.Í. fyndust vinnuveitendur hafa verið lengi að átta sig, þvf þeir hefðu ekki enn fengið svar við kröfum sínum, sem lagðar voru fram í október. Og A.S.Í. menn teldu svar vinnuveitenda frá því í gær ekkert svar við kaup- kröfunum. Ilvað gerist vissi enginn, en málin myndu vonandi skýrast á næsta sáttafundi, sem boðaður hefði verið kl. 14 á mánudaginn. Sagði Guðjón, að Japanir teldu algjört skilyrði þess, að þeir gætu flutt loðnuna til Japans, að þeir fengju olíu handa flutningaskip- unum hér á landi. Olíuvandamál- ið væri nú orðið mjög alvarlegt I Japan og vitað væri um japönsk flutningaskip — og fiskiskip, sem stöðvazt hefðu víða um heim vegna olíuleysisins. Einnig var rætt um sölu á öðr- um fiskafurðum frá Islandi, en Guðjón sagði, að þrátt fyrir það, að Japanir væru miklar fiskætur, væru ekki margar tegundir sjávarafurða, sem við gætum selt til Japans, en þó væri möguleiki á að selja þangað nokkurt magn af hrognum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.